Lögrétta - 08.01.1926, Side 1
tnuheimta og afgreiðsla
í Veltusundi 3
Sími 178.
Útgefandi og ritstjór'
Þorsteinn Gíslason
Þingholt88træti 17.
XXI. ár.
Reykjavfk, föstudaginn 8. janúar 1926.
2. tbl.
Umvíða verölri.
Síðustu Iregnii.
Frá Aþenuborg er sagt, að
Paugalos haí'i gert stjórnarbylt-
ingu og tekið sjer alræðisvald.
Kveðst ætla að stjóma Grikklandi
með aðstoð hers og flota. Fund-
unx þingsins hefur verið frestað
um óákveðinn tíma.
Fregn frá Vínarborg segir, að
Karl krónprins aí Rúmeníu haii
afsalað sjer konungstign. Kemur
það aí ósamlyndi milh hans og
föður hans, Ferdinands konungs,
út af kvermamálum. Hafði kon-
ungur neytt ki’ónprinsinn til þess,
aö giítast grískri prinsessu, sem
Helena heitir, og eignuðust þau
son, sem Michael heitir og nú
hefur orðið krónprins í stað föðui
síns. En fregnirnar segja, að Karl
prins hafi tekið saman við konu af
almúgaættum og hafi Ferdinand
konungur reiðst því stórlega og
ætlað að skilja þau með valdi, en
Karl prins var ósveigjanlegur.
Kom svo sú fregn, að hann væri
horfinn. En litlu síðar kom hann
fram í Mínano á Ítalíu og sagt,
að hann sje nú á leið þaðan til
Stokkhólms. Hefur hann heitið, að
láta ekki sjá sig í Rúmeníu á
næstu sex árum. Sagt er að hann
vilji ekkert um sínar sakir tala
við þá, sem leita frjetta hjá hon-
um, en málið hefur, svo sem
nærri má geta, vakið mikla at-
hygli og umtal. Sagt er, að kona
sú, sem hann hefur nú tekið sam-
an við, sje Gyðingastúlka, for-
kunnar fögur. Síðustu fregnir frá
Vínarborg segja, að fleira en
kvennamálin hafi valdið sundur-
lyndi þeirra feganna. það hafi
staðið til, að ýmsir hinna kunn-
ustu herforingja í Rúmeníu
gengjust fyrir byltingu og átti þá
að láta Ferdinand konung fara
frá völdum, en Karl prins taka
við þeim. þær ráðagerðir hafi
strandað, en vegna þeirra hafi
Karl prins farið úr landi.
Chamberlain utanríkisráðherra
Breta hefur verið suður á Italíu
til að hvíla sig, og er það í frá-
sögur fært, að Mússolíni hafi átt
langt viðtal við hann. Sjálfir hafa
þeir enga skýrslu gefið um sam-
tal sitt. En eitt stórblaðið í Lund-
únum þykist vita, að Mussolíni
hafi beðið Chamberlain að mæla
með því, að Bretar yrðu vægir
í kröfum, er samið yrði við þá
um afborganir á skuldum Itala,
en viljað lofað því á móti, að
Italir styddu Breta, ef stríð yrði
af Mósúlmálinu. Blaðið segir, að
Chamberlain hafi engu viljað lofa
um þetta.
Sagt hefur verið, að úrslit
Mósúlmálsins mundu ekki valda
neinum ófriði. En fregn frá 3.
þ. m. segir, að stjórn Tyrkja hafi
engu svarað vinsamlegum tilmæl-
um ensku stjórnarinnar um að
ræða málið við hana í bróðerni.
Afskaplegur jarðskjálftakippur
fór um alla Norður-ltalíu 2. þ.
m., stóð yfir í 10 mínútur, og varð
af honum töluvert tjón.
Fregn frá New York segir, að
fádæma drykkjuskapur hafi verið
þar í borg á jólunum og á nýárs-
nótt. Hafi 40 menn verið fluttir
dauðveikir á spítala, og höfðu
þeir drukkið eitraðann spírítus,
heimabruggaðan.
Fregn frá Rómaborg segir, að
Margerita ekkjudrotning hafi and-
ast þar 4. þ. m.
Fregn frá Berlín segir, að á
nýársnótt hafi 400 manns slas-
ast í borginni, 455 verið teknir
fastir og 8 sjálfsmorð hafi verið
framin.
Hlákur miklar og vatnavextir
hafa verið í Mið-Evrópu nú í
hyrjun ársins. Ákaflegur vöxtur
hljóp í Rínfljótið, enda var hiti
í Berlín rjett fyrir áramótin 14
stig og í Múnchen 17 stig. Fregn
frá Brússel frá 4. þ. m. segir að
vatnsflóð geri víða tjón. 1 borgmni
Lúttich sje fjöldi húsa á kafi í
vatni og menn fari á bátum um
borgina. Tjónið á þesum eina stað
er áætlað um 8 milj. franka. —
Síðustu fregnir segja að flóðin
fari þverrandi.
Fregn frá Kairo segir, að gull-
kista Tutanhamens sje nú sýnd
þar á safni einu.
Símað er frá Washington, að
bankastjórar Englandsbanka,
Belgíubanka og umsjónarmaður
þýsku skaðabótamálanna sjeu þar
staddir og ræði við Mellon fjár-
málaráðherra um almenne gengis-
festu í Norðurálfunni.
Frá Berlín er símað: Samkvæmt
símskeytum frá Moskvu hefur
sameignarfokkurinn haldið 14.
stórfundur sinn. Sú skoðun kom
fram á fundinum, að hætt skyldi
tilraunum til þess að koma á
stað heimsbyltingu, en í þess stað
byrja smám saman að koma aft-
ur á gamla laginu um verslun og
viðskifti og viðurkenna mestan
hluta ríkisskuldanna.
Khafnarfregn frá 2. þ. m. seg-
ir að forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra Noregs hafi sent
Politiken svohljóðandi nýárs-
kveðju: Ef allar þjóðir gætu
bundist jafntraustum böndum og
Norðurlönd eru bundin, yrðu úti-
lokaðar styrjaldir í Evrópu. For-
sætisráðherra Frakka sendi sama
blaði svohljóðandi skeyti: Fái
Locarnóandinn að ríkja í framtíð-
inni, verður hægt að byggja upp
nýja Evrópu frjálsra þjóða, er
taki ótakmarkað tillit hver til ann-
arar og vinni saman að sameigin-
legu takmarki í framfara- og
friðarmálum.
Fregn frá Rómaborg segir, að
stjómin ætli að leggja fyrir þing-
ið frumvarp um mikla aukningu
hersins. Einnig sje hún að koma
á heræfingafjelagsskap meðal
ungra manna.
Fregn frá New York frá 31.
des. segir, að ákaflegir kuldar sjeu
þá í Bandaríkjunum. 100 menn
hafi helfrosið þar.
Nokkrir stórbankar í Bandarikj-
unum ráðgera nú að sameinast
og verður þá stofnfje samsteypu-
bankans meira en miljarður
dollara.
það er sagt, að Henry Ford
standi á bak við hina fyrirhuguðu
för til Norðurheimskautsins frá
Bandaríkjunum á næsta vori..
Ráðgert er flug frá Alaska til
heimskautsins og til Spitzbergen
og útbúnaður á að verða svo góð-
ur, að flugmennimir geti verið án
sambands við umheiminn í 2 ár.
Símað er frá Budapest, að kom-
ist hafi upp um einhverja hina
gífurlegustu peningafölsun, sem
sögur fara af. Prins Windisch-
graetzh var forsprakkinn, en aðrir
þátttakendur vom fjöldi hátt
settra embættismanna, og þeirra
á meðal ráðherrar. Höfðu menn
þessir látið búa til tugi miljóna
af háum bankaseðlum, er þeir
ætluðu að selja í útlöndum, í þeim
tilgangd að útvega fje h&nda prine-
inum og vinum hans meðal aðals-
manna og embættismanna. Prins-
inn sóaði peningunum vitfimings-
lega og tapaði til dæmis á einni
nótt héilli miljón í fjárhættuspili.
Aðaltilgangur fyrirtækisins var
að gera erkihertoga Albrecht að
konungi. Fjöldi manna handsam-
aður og hefur málið vakið geysi-
lega athygli um allan heim.
Síðasta fregn segir, að prins-
inn hafi lýst því yfir, að miljón-
um seðla hafi verið komið fyrir til
geymslu í ýmsum stórborgum.
Hið pólitíska markmið fyrirtæk-
isins var að koma Habsborgurum
að völdum. Meðal helstu for-
sprakkanna var sjálfur lögreglu-
stjóri borgarinnar. Fjelagið hefur
þegar selt talsvert af seðlunum
til ýmsra landa. Stórblöðin kalla
viðburðinn stærsta pólitíska
hneyxlismálið, sem komið hef-
ur fyrir þar í sögunni.
Símað er frá London, að fyrver-
andi lögreglustjóri Thomsan hafi
verið dæmdur í átta þúsund
sterlingspunda sekt fyrir lög-
reglurjetti, vegna þess að lög-
regluþjónn kom að honum að
kveldlagi, er hann var að tala við
götustelpu í garði nokkrum í borg-
inni. Dómarar álitu veru hans þar
ósiðferðislega. Svaraði Thomson
því einu til, að hann hefði verið
að kynnast næturlífinu og hefði
hann hugsað sjer að skrifa blaða-
greinar um það.
Símað er frá Napóli, að Vesu-
víus hafa „gerst órólegur“ og
hafi tveir nýir gígir myndast. —
Hægfara hraunflóð streymir út
úr þeim.
Doctorsnafnbót fjekk Jón
Helgason meistari frá Kaup-
mannahöfn hjer við Háskólann í
gær fyrir bók, ,sem hann hefir
samið, um Jón Ólafsson frá
Grunnavík, fræðimann frá 18.
öld. Vörnin fór fram í sal N. d.
í Alþingishúsinu og var þar fult
áheyrenda. Formaður Heimspeki-
deildarinnar, Ágúst Bjarnason
prófessor, stýrði athöfninni, en
andmælendur voru skipaðir pró-
fessorarnir Páll E. ólason og Sig-
urður Nordal. Mælti doctorsefni
fyrst nokkur orð og skýrði frá,
hver atvik lægju til þess, að hann
hefði ráðist í að rita bók þá, sem
fyrir lá. En síðan flutti Páll E.
ólason prófessor langa og fróðlega
ræðu um Jón frá Grunnavík, starf
hans og bók doctorsefnis. Hrós-
aði hann bókinni mikið, en tíndi
svo fram töluvert af aðfinningum
við einstök atriði, eins og títt er
við slíkar athafnir. Síðan talaði
Sigurður Nordal og mintist á, að
varnir ritgerða við háskóla fyrir
doctorsnafnbót færu fram eftir
miðaldasiðum og væri það álita-
mál, hverjar reglur hinn ungi há-
skóli okkar ætti að festa sjer
um þetta. Fanst honum eðlilegast,
að háskóladeild sú, sem hlut ætti
að máli, gæfi út skriflegt álit um
bækur þær, sem doctorsnafnbæt-
‘ ur yrðu veittar fyrir, og mætti
þá sá dómur háskóladeildarinnar
fylgja ritinu, auk þess sem hann
yrði birtur í Árbók háskólans.
Nordal hrósaði einnig riti doctors-
efnis, en tíndi fram nokkrar að-
finslur. Að lokum iþakkaði doct-
orsefni prófessorunum þær við-
tökur, sem bók sín hefði fengið,
og svaraði nokkrum af aðfinsl-
unum. Tók svo á móti heillaóskum
prófessora og áheyrenda.
Er Jón Helgason wmar mafiur,
sem ver rit fyrir doctorsnafnbót
hjer við háskólann, en sá fyrsti
var Páll E. ólason prófessor. Nú
fer dr. J. H. til Osló og tekur þar
við háskdlann að sjer kennara-
stöðu þá, sem áður var ætluð Sig.
Nordal prófessor.
Kaldalónskvöld. Síðastl. þriðju-
dagskvöld söng Eggert Stefáns-
son söngvari í Nýja Bíó, og söng
aðeins lög eftir Sigvalda Kalda-
lóns, bróður sinn, en Sigvaldi ljek
undir á hljóðfæri. Húsið var fult
og verður söngskemtun þessi end-
urtekin næstkomandi sunnudag.
þetta er í þriðja sinn sem Eggert
hefir sungið hjer opinberlega síð-
an hann kom heim úr utanför
sinni fyrir nokkrum vikum, og
hefir hann nú unnið alment lof og
vinsældir hjer í bænum fyrir söng
sinn. Eins og kunnugt er, hafa
ýms af lögum Sigvalda Kaldalóns
náð miklum vinsældum, sem fara
sívaxandi, og eru orðin þjóðkunn.
M. a. voru sungin þama lög úr
hinu nýútkomna sönglagahefti
hans.
Með hverjum pósti berast dag-
blöð og tímarit út um land.
Flytja þau margskonar frjettir og
fróðleik. þar eru rædd mál þau,
er varða þjóðina að einhverju
leyti, oft frá ýmsum hliðum, svo
að lesendum gefist færi á að skoða
þau betur og bæta við athuga-
semdum — ef þurfa þykir.
Nýung er það engin að lesa um
skaðá, sem vetrarveðrin hafa gert
á mönnum, skepnum og mann-
virkjum (auk sjóslysa). Tíðast
eru það skaðar á sauðfje. Sjó-
slysum og mannvirkja er reynt að
fækka með bættum útbúnaði. Slys-
um, sem veðráttan veldur á mönn-
um, er fækkað með bættum sam-
göngum eða samgöngutækjum.
þar til má nefna vegi og vörður
með þeim, auk símans. Til að
fækka slysum á búfje er bætt
meðferð þess í hús-fóðri, svo að
það þurfi ekki að fjarlægjast hús
í tvísýnu. veðri.
Nú verða t. d. oft slys á sauð-
fje af því, að það liggur úti fjarri
húsum og veðrabrigði snögg og
mikil. það kemst ekki heim þegar
það er ekki vant því, og vegna
jarðlags og veðráttu. Oft verða og
slys á mönnum af því að reynt
er að bjarga fjenu.
Á þessu þarf að ráða bót, af
nokkur kostur er. Vil jeg benda
á þá einu leið, sem jeg kem auga
á í svipinn, en hún er þessi: 1
sumum harðviðrasömum sveitum
(einkum norðan- og vestanlands),
þar sem sauðfje liggur úti langt
frá bæjum í góðum högum, sem
þó tekur fyrir í flestum veðrum,
skemmri eða lengri tíma, skal
byggja fjárhús á hagkvæmum
stöðum. Dyraumbúnaður á hús-
unum skal vera þannig, að dyr
sjeu alt að 2V& alin á hæð, en
hurðinni skift í tvent, hinn efri
hluti hennar skal hanga í krók
á dyratrje og skal honum lokað
með trjelokum á dyrastafi. Hurð
þessi sje 25 þuml. á hæð. Neðri
hurðin skal vera á krókum á dyra-
staf og lokað með hespu. Hún á
að vera 35 þuml. á hæð. Hurð-
irnar skulu báðar hafa venjulega
hurðarbreidd og vera innan við
dyraumbúnað. Við hús þetta þarf
að vera hlaða — þótt ekki sje
nema fyrir fáeinar aátur —, svo
að hægt sje að gefa kindum,
„venja þær að húsi“, sem kallað
er. Aldrei sje lokað fyrir þeim,
neðri hurðin skal vera á hjörum,
en vel frá henni gengið, svo að
hestar fari ekki inn og hindri
með því fjeð frá því að liggja
inni. Dyrnar skulu snúa skáhalt
undan snjókomuáttinni. Hús þessi
skulu bygð í þeim högum, þar sem
fje heldur sig, eða því er haldið
í útilegu framan af vetri og vori.
Um leið og hússtæði er valið, þarf
að gæta að því, að fjeð þurfi ekki
að fara yfir torfærur til þess að
komast í húsaskjólið. Gott er að
taka eftir ræktunarskilyrðum, því
að það ræktast altaf undan fjenu,
þar sem það safnast til legu eða
í afdrep. Ekki má geta svellað
mikið í kringum húsin. Ekki er
vert að hafa fleira fje en eitt
hundrað við hvert hús. þar sem
fje er margt, skulu húsin vera
dreifð um hagann.
Sje þess gætt, að koma fje á
hús snemma á haustin og því gef-
ið aðeins munnhár og það gert
að kvöldi til, svo sem einu sinni
í viku, fer fjeð í húsin á hverju
kvöldi til þess að liggja þar yfir
nóttina, því helst betur á holdum,
það er tryggara fyrir hættum,
fjárgeymslan auðveldari, jafnari
notkun landsins og framtíðar-
ræktun.
það, sem hjer er sagt, á að-
eins við, þar sem fje liggur úti
fjarri vanalegum húsum, eða tor-
færur eru milli þess og húsanna.
Nú er svo mikið rætt og ritað
um ræktun landsins. Hjer er bent
á leið til þess, að fjölga gróðar-
blettunum og fækka sauðfjár-
sköðunum. Mundi ekki mega fara
hana, eða finna aðrar hagkvæm-
ari.
þetta er mál, sem varðar alla
landsmenn, þótt einstaklingar
verði fyrir skellunum fyrst.
Palli.
----o——
Bautasteinar.
Líkastir smíði dverga’ og dísa
. . 1 dimmu fortíðar glj úfra-veldi,
„Bautasteinar" við bláloft rísa
— Úr: blýi, stáli, gulli’ og eldi.
Lengi lifi þorsteinn Bjömsson
skáld.
Haukur Eyjólfsson.
-----o----
Kristur eða þór heitir ritgerð
eftir Einar H. Kvaran, sem birtist
í síðasta hefti Iðunnar, sem kom
út nú rjett fyrir áramótin. E. H.
K. svaiar þar árás þeirri, sem Sig.
Nordal prófessor hefur gert á rit
hans og lífsskoðanir í Skími 1925.
Er það E. H. K. ljett verk, að
sýna fram á veilur í þeirri ritsmíð
enda gerir hann það svo rækilega,
að sókn er nú en ekki vörn hans
megin. Hann skopast að því, að
ritgerð S. N. hafi í einhverju
blaðinu verið kölluð „djúphugsuð",
en finst að „vanhugsuð" hefði átt
þar betur við. — Annars mun
Lögr. bráðlega birta kafla úr þess-
ari ritgerð E. H. K., svo að les-
endur hennar fái skýra hugmynd
um deiluefnin.
Einokunarverslun Dana á Is-
landi, rit Jóns heitins Jónssonar
sagnfræðings, sem svo heitir, er
nú að koma út í danskri þýðingu,
eftir Fr. Á. Brekkan rithöfund,
og er það Dansk-íslenska fjelagið,
sem gengst fyrir útgáfunni.