Lögrétta


Lögrétta - 02.03.1926, Qupperneq 1

Lögrétta - 02.03.1926, Qupperneq 1
[nnheimta og afgreiðsla í Veltusundi 3 Sími 185. LOGRJETTA Útgefandi og ritstjór horsteinn G í sia s n n t>ingholt>8fræti 17. XXI. ár. KeybjaTÍk. þriðjudaginn 2. mars 1Í126. 10. tbl. Umvíðaveröld. Yfirlit. Mikið er talað um það nú á síðustu tímum, að forustu Ev- rópumanna í heimsmálunum sje hætta búin. Raddimar, sem mót- mæla yfirráðum þeirra í öðrum heimsálfum, eru að verða hávær- ari og háværari. Á síðastliðnu vori reis Abd-el-Krim upp gegn yfirráðum Frakka og Spánverja í Marokkó. Báðir hafa sent þang- að mikið lið og kostað miklu fje til hemaðarins. En sigurinn er ekki unninn þar enn. Og þótt hann vinnist, getur ekki orðið þar nema um bráðabirgða-úrslit að ræða, því uppreisnin þama er liður í djúptækri hreyfingu inn- fæddu þjóðanna í Norður-Afríku og Asíu gegn yfirdrotnun Ev- rópumanna. Almenningur í Frakk- landi hjelt, þegar uppreisn þessi hófst, að þegar franski herinn væri kominn suður, yrði upp- reisnin bæld niður á fáum vikum. En hún reyndist miklu öflugri en af var látið opinberlega í byrjun- inni. það varð að senda fleiri og fleiri hersveitir til Marokkó og kostnaðurinn varð margfaldur við það, sem ráð var fyrir gert í upphafi. Af sömu rótum og Abd-el- Krims-uppreisnin eru uppreisn- irnar í Litlu-Asíu gegn frakk- neskum yfirráðum í sumar og haust, sem leið, og sömuleiðis deiluroar milli Tyrkja og Breta um Mósúlhjeraðið, sem nær því voru orðnar að friðslitaefni og geta vel orðið það enn. S.iálfstæð- ishrevfingin fer sívaxandi í Ind- landi og, óánægjan með yfirráð Breta þar. Og í Kína varð fiand- skapurinn gegn Vesturlandaþjóð- unum magnaðri á síðastliðnu ári en nokkm sinni áður. Við þetta bætist svo, að stór- veldi Vestur-Evrópu hafa árum saman sparkað stærstu þjóð álf- unnar, Rússum, frá sjer, af ótta við Bolsjevikakenningarnar. Rúss- ar hafa á síðari árum meira og meira leitað sambanda austur á bóginn, og áhrif þeirra hafa vax- ið í Asíu jafnframt því, sem þau hafa þverrað í Evrópu. I sumar, sem leið, studdu þeir hreyfinguna í Kína gegn Vesturlandaþjóðun- um. Og án efa styðja þeir, hve- nær sem tækifæri gefst, bæði Indverja og Tyrki í viðureign þeirra við Englendinga, þegar um er að ræða yfirráð í Asíulöndum. óánægja hefur án efa lengi verið ríkjandi meðal þeirra þjóða í Asíu og Afríku, sem lotið hafa yfirráðum Evrópuþjóðanna. En heimsstyrjöldin hefur gefið þeirri óánægju nýjan byr undir vængi. pær líta ekki með sömu augum til Evrópu eftir sem áður. Hún hefur mist hjá þeim álit við ó- friðinn. Hún er vanmáttugri gagnvart þeim eftir en áður, bæði efnalega og siðferðislega. þær hafa nú barist á vígvöllum Ev- rópu, teygðar þangað með flaður- mælum um það, að verið væri að berjast þar fyrir sjálfsákvörðun- arrjetti og jafnrjetti allra þjóða. Er þá ekki eðlilegt að þeir krefj- ist á eftir jafnrjettis og sjálf- ræðis? Evrópa stendur yfirleitt ver að vígi gagnvart öðrum álfum heims- ins eftir styrjöldina miklu en fyrir hana. Um leið og mesta heiptin frá ófriðarárunum kólnar smátt og smátt, verður mönnum þetta líka smátt og smátt ljósara. Af því stafar samkomulagshug- urinn, sem fyrst hefur verulega gert vart við sig á síðastliðnu ári í Locarnó-samningunum. þó má ekki búast við, að samningar þeir, sem undirskrifaðir voru í Locamo, haldi, ef á reynir, frem- ur en aðrir samningar af líku tægi. En það er talað um huginn eða andann frá Locarno, og hann var annar en sá, sem verið hefur ríkjandi á stjórnmálamannamót- um hjer í álfunni eftir heims- j styrjöldina. það lítur út fyrir, að þar sje um verulega breytingu að ræða. En það er fyrst og fremst breytt afstaða Evrópu í heild út á við, sem þokað hefur stjómmálamönnunum inn á þær hugsanabrautir. Síðustu fregnir. Fregn frá París segir, að búist sje við að samkomulag náist nú bráðlega um fjárlögin í franska þinginu, þar sem þingflokkarnir hafi nú loks sjeð, að þetta sje lífsnauðsyn. Síðan á að hefja samninga að nýju um skuldirnar við Bretland og Bandaríkin. Stjórnarskifti eru að verða í Noregi. Við umræður um fjárlög- in í Stórþinginu, sem lokið var 26. f. m., kom fram megn óánægja gegn stjórninni frá hálfu Hægri- manna og Bændaflokksins, er báð- ir kröfðust víðtækrar útgjalda- lækkunar. Vantraustsyfirlýsing til stjórnarinnar, sem flutt var í þinginu, fjell. En Mowinkel for- sætisráðherra lýsti yfir, að hann færi frá völdum, og tilkynti kon- ungi það samstundis. Munu nú Hægrimenn mynda nýja stjórn, ef til vill með stuðningi Bænda- flokksins. Frá þýskalandi er sagt, að í smábæ einum við Rín hafi 200 menn, flestir bændur, sem reiðir voru yfir skattabyrði sinni, brot- ist inn á skattstjóraskrifstofuna, brent þar öll skjöl og misþyrmt skrifstofufólkinu. Fregnin segir að þeim verði hegnt sem upp- reisnarmönnum. Óeirðir eru nú byrjaðar á ný í Damaskus og sagt að 6 þúsundir uppreisnarmanna sjeu í nánd við borgina og reyni að einangra hana. Fregn frá París segir, að pró- fessor Camette hafi skýrt frá til- raunum sínum við bólusetningu smábarna frá tæringarveikum heimilum gegn tæringu. Tilraun- imar hafa sannað, að 93% af börnum frá slíkum heimilum sjeu gerð ómóttækileg fyrir veikina. en spurningin er sú, hvort þau geti síðarmeir orðið tæringarveik. Frá Osló er símað, að menn sjeu orðnir órólegir út af hækkun krónunnar. Noregsbanki stórtapi á tilraununum til þess að hefta hækkunina. Fregn frá Rómaborg segir, að Mússólíni ætli bráðlega að leggja fyrir þingið lagafrumvarp um kirkjumálefni, en páfinn hafi mót- mælt og segi slík lög ógild nema sitt samþykki komi þar til. Eimreiðin öll til sölu. Eimreiðin frá upphafi, óbundin en með öllu óskemd, er til sölu með tækifærisverði í Bókaverslun Þorsteins Gíslasonar, Veltusundi 3. Á útleið. Svo heitir leikur, sem Leikfjelag Reykjavíkur er nú að sýna og mikið þykir til koma. Höf- undur er enskur, heitir Sutton Vane, ungur maður, og er þetta sagt fyrsta leikritið, sem hann hefur samið. Hann var í hcims- ófriðnum og er síðan fatlaður. En þetta leikrit hans hefur nú verið sýnt víða um lönd og hefur vakið ekki litla eftirtekt, enda er það frá- : brugðið að efni öllum eldri leikrit- | um, með því að það gerist á leið | frá þessum heimi til annars heims og allir, sem á leiksviðinu eru sýnd- ir, eru framliðnir menn. Með leiknum sýnir höf. hvernig hann hugsar sjer þetta ferðalag, sem okkur er sagt að liggi fyrir öllum jarðarinnar börnum. Leikurinn er fallegur og vel leikinn og enginn efi á því, að hann verður oft sýndur. ísland og Danmörk. I tilkynning frá danska sendiherranum hjer segir: Dr. Valtýr Guðmundsson prófessor hefur í grein í „Na- tional-Tidende“, í sambapdi við umræður út af fólksflutningum úr landi, beint athygli manna að Is- landi. — Segir hann að mikil land- flæmi hjer bíði þess, að verða tek- in til skynsamlegrar rætkunar, í sambandi við nauðsynlegar og fyrirhugaðar járnbrautalagning- ar. — Blaðið telur sig hlynt þeirri hugmynd, að Danir flytjist hing- að, ef uppástunga þar að lútandi komi fram af íslands hálfu. — Út af grein dr. V. G. birtir sama blað viðtal við Pál Zóphóníasson, skóla- stjóra á Hólum, sem nú er stadd- ur í Kaupmannahöfn, þar sem skólastjórinn gefur stutt yfirlit yfir búnaðarástandið hjer og framtíðarhorfur. — P. Z. hafði áður, samkvæmt fyrirspurn blaðs- ins um svipað efni, bent á lág- lendið hjer austanfjalls, sem biði eftir fólki og nógu fjármagni til ræktunar. — Hann tekur nú fram, að okkur vanti einungis duglegt, vinnandi fólk, og svo auðvitað nægilegt fje til framkvæmdanna. Segir hann, að danskt fjármagn og starfsamir danskir innflytjend- ur mundu verða mikill vinningur fyrir Island. „íslands mikli myndasmiður'* heitir grein í enska tímaritinu Review of Reviews (febrúarhefti) um Einar Jónsson frá Galtafelli. Segir þar frá bók hans „Myndir", sem út kom í vetur, og er lofsorði lokið á myndimar og skýringar G. Finnbogasonar landsbóka- varðar. Varðskipið „þór“. Við stjóm á því hefur nú tekið til bráðabirgða Einar Einarsson, sem áður hefur verið þar stýrimaður, en síðan tekur^við henni Friðrik Ólafsson frá ísafirði. Koma konungshjónanna. For- sætisráðherrann tilkynnir, að kon- ungur og drotning komi að foi'- fallalausu til Islands á beitiskipinu Niels Juel, en á skipinu verður Knútur prins starfandi liðsforingi. Gert er ráð fyrir, að komið verði til Reykjavíkur 12. júní, og eftir stutta viðdvöl þar er ferðinni heitið kring um land með viðkomu á ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Mannalát. Nýlátin er á Isafirði Sigríður Gísladóttir Ijósmóðir. merkiskona. — 26. f. m. andaðist á Vífilsstöðum Guðrún Ó. Skag- fjörð, systir Kr. ó. Skagfjörð heildsala. — 25. f. m. andaðist hjer í bænum Vilborg Grönvold, ekkja C. Grönvold verslunarstjóra á Siglufirði, tengdamóðir Gísla J. Ólafsson símstjóra og P. Smith verkfræðings. — 23. f. m. andað- ist pórarinn S. Eiríksson, sonur prestshjónanna á Torfastöðum í Biskupstungum, 17 ára gamall. í>íngtíðindi. Gengismálið. Tryggvi þórhallsson flytur frv. „um stöðvun á verðgildi íslenskra peninga“. 1. gr. hljóðar svo: „Leita skal stöðvunar á verðgildi íslenskra peninga á þeim gmnd- velli, að gengi þeirra gagnvart er- lendum peningum sje í samræmi við kaupmátt þeirra innanlands — með því markmiði að festa endan- lega verðgildi peninganna á þeim grundvelli". Löng og rækilega samin greinargerð fylgir, og verð- ur því ekki neitað, að höf. færir margt fram máli sínu til sönnun- ar, sem krefst nákvæmrar íhugun- ar. En mál þetta er flókið, og deil- ur erlendra fræðimanna um það sýna best, að erfitt er að komast til botns í því, eða finna um það algildar reglur. Hver hreyfing á genginu, upp eða niður, hefur í för með sjer eignatruflun, sumir tapa við hana, en aðrir vinna, og því stærri sem sveiflan er, því meiri verða truflanirnar og þau vand- ræði, sem af þeim stafa. Og þetta nær ekki einungis til einstaklinga innan þjóðfjelagsins. Útlendir fje- sýslumenn nota sjer gengissveifl- umar til hagnaðar og uppruna þeirra getur verið að leita hjá gróðabrallsmönnum annara þjóða, hvort sem mikil brögð hafa ver- ið að því hjer að undanförnu eða ekki. Málið var lengi rætt í Nd. og var því síðan, eftir tillögu flutnings- manns, vísað til fjárhagsnefndar. Með flutningsmanni tóku í streng- inn Ásgeir Ásgeirsson og Ólafur Thors, en á móti f járámlaráðherr- ann og Jón Baldvinsson. Flutnings- maður og þeir, sem með honum tóku í strenginn, sýndu fram á tap atvinnurekenda á hækkun ísl. krónunnar á síðastl. hausti og vildu, að landsstjómin hefði lagt bönkunum fje til þess að stöðva hækkunina, þ. e. til kaupa á út- lendum gjaldeyri, er framboð hans varð svo mikið, að bankamir gátu ekki keypt hann nema sjer í stór- skaða. En fjármálaráðherrann taldi, að þetta hefði ekki verið for- svaranlegt. Hann benti á, að nú hefði gengið verið stöðugt í nokkrá mánuði og vildi halda því fyrst um sinn, en að takmarkið væri að ná gullgengi. Umræðurnar voru mjög hóflegar frá báðum hliðum. Bankamálin. Frá nefnd þeirri, sem skipuð var á síðasta þingi til þess að fjalla um bankamálin, eru nýlega komin út álitsskjöl og frumvarp, og er þetta stór bók. pó er nefndin klofin. pessu frumvarpi fylgja fjórir nefndarmenn: Sveinn Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Jónas Jónsson og Magnús Jónsson, en fimti nefndarmaðurinn,Benedikt Sveins- son, hefur tekið aðra stefnu í mál- inu, og er álitsskjal hans ekki komið fram enn. Meiri hlutinn vill fá Landsbank- anum seðlaútgáfurjettinn, en láta bankann eftir sem áður vera lands- ins eign, ekki gera hann að hluta- banka, eins og um var talað á síð- asta þingi. Minni hlutinn mun aft- ur á móti koma fram með tillög- ur um stofnun sjerstaks seðla- banka, eins og haldið var fram af sumum á síðasta þingi. Veðdeild Landsbankans. Stjórnin ber fram frumvarp um stofnun nýs veðdeildarflokks, sem verður 5. flokkur, og er frumvarp- ið að mestu samið af bankamála- nefndinni, því henni var ætlað m. a. að undirbúa lög um fasteigna- veðlán. En á síðasta hausti var fje 4. veðdeildarflokksins þrotið og því nauðsyn að bæta úr þessu í bráð, þar til ný löggjöf verður sam- in um fasteignaveðlánin. Framv. gefur he:mild til útgáfu banka- vaxtabrjefa alt að 10 milj. kr. lslenskt happdrætti. Jörundur Brynjólfsson og Pjet- ur Ottesen flytja frumvarp um að lendsstjóminni veitist heimild til þess að veita bræðrunum Sturlu Jónssyni og Friðriki Jónssym einkaleyfi til stofnunar íslensks happdrættis með ýmsum skilyrð- um, sem fram eru tekin í frum- varpinu. Er frumvarp þetta líkt þeim frumvörpum um sama efni, sem áður hafa legið fyrir þinginu. Húsaleigulögin í Rvík. Magnús Jónsson og Jakob Möll- er flytja framvarp um að nema úr gildi lögin um húsaleigu í Rvík, og er það gert eftir beiðni bæjar- stjórnar. Leiga á strandferðaskipi. Frá samgöngumálanefnd er komin fram svohlj. tillaga til þingsályktunar: Alþingi ályktar að heimila ríkisstjóminni að leigja um 500 smálesta skip til strand- ferða, ásamt „Esju“, frá í ágúst og fram í desember næstk., er aðal- lega annist vöruflutninga með ströndum fram, en hafi þó nokkurt farþegarúm. Fyrirhleðsla eða brú á þverá. Eggert Pálsson flytur svohlj. tillögu: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjómina: 1. Að byrja á þessu ári á framkvæmdum til að fyrirbyggja framrensli Markar- fljóts í þverá, samkvæmt lögum nr. 69, 14. nóv. 1917. 2. Að láta rannsaka brúarstæði á þverá og gera áætlun um brúarkostnað, ef ekki telst mögulegt í náinni fram- tíð að koma í veg fyrir, að Mark- arfljótsvatnið renni í þverárfar- veginn. Sala á saltfiski og sfld. Jón Baldvinsson flytur frumv. um, að landsstjómin taki að sjer sölu og útflutning á saltfiski og annað um að hún taki að sjer sölu og útflutning á sfld. Sauðfjárbaðanir. Jör. Brynjólfsson, Jón Sigurðs- son, Sigurj. Jónsson, Kl. Jónssón og Ásg. Ásgeirsson flytja frumv. um breyting á lögum um sauðfjár- baðanir á þá leið. að með sam- þykki atvinnumálaráðuneytisins megi, auk hins lögskipaða baðlyfs, nota Coopersbaðlyf.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.