Lögrétta - 20.03.1926, Page 4
lögrjetta
__4_______________________________
Frh. af 1. aíðu
efsta þilfar, efra milliþilfar, skips-
hliðar og þverveggir milli lesta-
rúma sje einangrað fyrir kæli-
flutning. 2. gr. Ríkisstjóminni er
ennfremur heimilt að ábyrgjast
fyrir hönd ríkissjóðs það eða þau
lán, sem fjelagið þarf til skips-
byggingar þessarar, enda sje
skipið, nema með samþykki ríkis-
anda eða ríkissjóði. 3. gr. Eim-
skipafjelaginu er óheimlt að selja
skpið, nema með samþykki ríkis-
stjómarinnar, og ef skipið strand-
ar, er fjelaginu skylt, annaðhvort
að láta smíða nýtt skip af sömu
gerð, eða endurgreiða ríkissjóði
framlag hans.
Nýr banki.
Stjórnin flytur frumv. um að
henni sje veitt heimild til að veita
hlutafjelagi, sem stofnað kunni
að verða í því skyni, hlunnindi
handa banka, sem stofnaður verði
í Reykjavík. Færir hún þær ástæð-
ur fyrir frumv., að vegna hins
mikla vaxtar á atvinnuvegum
landsins, þyki nauðsyn að út-
vega heimild til þess að veita
hlunnindi nýjum banka, líkt og
gert var með lögum nr. 47 1923,
sem hafa ekki komist í fram-
kvæmd.
þverárf yrirhleðslan.
Samgöngum.nefnd hefur breytt
þingsályktunartillögu sjera Egg-
erts Pálssonar, sem áður var birt
hjer í blaðinu, og orðað hana svo:
Alþingi ályktar að heimila ríkis-
stjóminni að verja á þessu ári alt
að 5000 kr. til þess að fyrirbyggja
með bráðabirgðafyrirhleðslu fram-
rensli Markarfljóts í þverá. —•
Kostnað við það má á sínum tíma
telja með kostnaði við fyrirhleðslu
samkv. lögum nr. 69, 14. nóv.
1917.
Gengisviðauki á vörutolli.
Fjárhagsnefnd Nd. ber fram
fmmv. um afnám hans. Segir hún,
að fjárhagur ríkissjóðs virðist nú
þola það, að honum sje ljett af
vörutollinum.
Snjóbíll.
Jónas Jónsson flytur svohlj.
þingsályktunartillögu:
Alþingi ályktar að heimila
landsstjórninni að nota alt að 10
þús. kr. af landsfje nú í ár til að
kaupa og láta gera tilraunir með
snjóbíl, bæði á vegleysum og snjó,
til að fá öragga reynslu um, hvoi;t
þetta flutningatæki getur komið
hjer að notum.
Flm. segir í greinargerð: Fyrir
nokkrum áram fullgerði rúss-
neskur hugvitsmaður, ér heima á
í Frakklandi bíl, sem getur farið
um vegleysum, sanda, snjóbreiður
og upp brattar brekkur, sem ófær-
ar eru öðrum bílum. Frakkar hafa
í bílum þessum farið yfir Sahara-
eyðimörkina þvera og endilanga,
yfir þvera Mið-Afríku, og nú síð-
ast frá Kaspíhafinu og austur að
Indus. Stærsta bílaverksmiðja
Frakklands, Citroén, gerir bíla
þessa. Hún hefir útibú í Khöfn, og
væri einn slíkur bíll fljótfenginn
samræmi við 1. og 17. gr. fræðslu-
laganna frá 1907, sem ákveða
skólanefndum og fræðslunefndum
skyldur og rjettindi til að taka
böm burtu af slíkum heimilum,
ef nauðsyn krefur. Framkvæmd
á þesfeu hefir oft brostið, þó að
eftirlitið sje löggilt; en heimildin
er til.
Jeg hefi í fyrri grein minni
bent á, að ef prestum yrði ætlað
kenslueftirlit með skólalausum
heimilum, þá þyrfti a. m. k. að
tvöfaJda prestatöluna. Til þess að
reyna að sannfæra lækninn um
þetta, vil jeg biðja hann að hug-
leiða, hve mikið myndi þurfa að
fjölga læknum, ef hrepparnir
væra slviftir ljósmæðrunum. þó
býðst jeg við, að kenslustjómin,
án skóla, yrði meiri ábætir á starf
prestanna. það er alls ekki van-
traustslýsing á læknum, þó að
þaðan. Margt bendir til, að þessi
bíll gæti komið að miklu haldi í
snjóahjeraðum landsins, til vetr-
arflutninga, og til sumarferða um
rudda vegi, sem þó eru ófænr
venjujegum bílum.
Biyggjugerð í Rorgamesi.
Stjómin ber fram frumv. um
hana og eru 1. og 2. gr. svohlj.:
1. gr. Landsstjóminni er heimilt
að láta gera bryggju við Stóra-
Brákarey í Borgarnesi, að undan-
gengmni rannsókn um hvar á
eynni það sje hentugast, enda sje
svo mikið dýpi við bryggjuna, að
hæfilega stórt skip til flutninga
milli Reykjavíkur og Borgamess
geti legið við hana í hálfföllnum
sjó og skal telja kostnað af nauð-
synlegum dýpkunum við hana og
út frá henni með bryggjugerðar-
kostnaði. 2. gr. Ennfremur er
landsstjóminni heimilt að láta
gera garð eða brú yfir sundið
milli eyjar og lands, svo og veg
eftir eynni að bryggjunni og veg-
arspotta á landi eftir því sem
nauðsynlegt er, til þess að koma
að bryggjunni og frá.
Mentaskólinn.
Stjómin ber fram frv. um nýtt
fyrirkomulag á Mentaskólanum,
og eru höfuðbreytingar þess frá
núverandi fyrirkomulagi þær, að
námið verður óslitið 6 ára nám,
latína kend í öllum bekkjum, og
meira en nokkurt annað erlent
mál. í tveim efstu bekkjunum
skulu vera tvær deildir, mál-
fræðideild og stærðfræðideild.
Hver fastur kennari skólans
skal hafa leyfi frá kenslustörf-
um 10. hvert ár með fullum laun-
um og heimavistir skulu vera
við skólann fyrir ekki færri en
50 nemendur, sem njóti þar ó-
keypis húsnæðis, ljóss og hita.
Forgangsrjett til heimavistar hafa
nemendur, sem búa utan Reykja-
víkur. Húsameistari ríkisins áætl-
ar að húsbygging á lóð skólans
fyrir heimavistir handa 50 nem-
endum muni kosta um 150 þús.
krónur.
Mentaskóli á Akureyri.
Bemharð Stefánsson flytur frv.
um að bætt skuli lærdómsdeild
við gagnfræðaskólann á Akur-
eyri og hann framvegis kallast
mentaskóli Norður- og Austur-
lands.
Skenitanaskattur.
Ámi Jónsson, Jakob Möller,
Tryggvi þórhallsson, ólafur
Thórs, Magnús Jónsson og Ásgeir
Ásgeirsson flytja frv. um breyt-
ing á lögunum um skemtanaskatt
og þjóðleikhús. I stað þess að
þjóðleikhússjóðurinn fær nú
skemtanaskattinn frá þeim bæjum
einum, sem hafa 1500 íbúa eða
fleiri, fer frv. fram á að hann fái
skattinn frá bæjum, sem hafa 500
íbúa eða fleiri. Ennfremur er í
frv. ákvæði um að gjalda- skuli
skatt af dansleikjum öllum, jafnt
hvort þeir eru haldnir í nafni
ýmsra fjelaga eða dansskóla.
álitið sje, að þeim þurfi að fjölga
að sama skapi sem verksvið þeirra
stækkar.
Nú þykir mjer líklegt, að lækn-
irinn vilji benda mjer á, að þann
hafi gert ráð fyrir kexmuram,
eem þeir menn taki, er þurfa eða
vilja. — það er einnig heimilt
nú, og svo yrði að líkindum, þó
ríkið kostaði skólafræðslu alveg.
En í fyrri grein sdnni gerði Á.
Á. ráð fyrir svo litlum kenslu-
launum, að kennararnir gætu
ekki lifað af þeim. Nú verða þeir
auðvitað að fá lífvænleg laun fyrir
starf sitt. Annars er þeim ekki
unt að rækja það til lengdar, síst
svo að 1 lagi sje. Og fái þeir ekki
viðunandi laun, þá eiga þeir held-
ur ekki að fást til starfans. það
er að jafnaði ekkert góðverk að
láta traðka á rjetti sínum. Og þá
mun Á. Á. varia ætlast til, að
kennarar, sem ekki er að fá, beri
ábyrgð á starfi, sem þeir vinna
ekki.
Á. Á. talar fjálglega um, að von-
andi haldi kennaraskólamennimir
trygð við sveitina sína, en flýi
hana ekki og láti seiðast til kaup-
staðanna eins og fjöldinn, sem
ekki hafi hlotið nægilega göfgandi
áhrif. þetta getur litið nógu vei
út á pappírnum, en Einar Sveinn
Frímann sagði einu sinni, að þótt
fagurt væri kveðið um fjallaloft-
ið, þá væri þó erfitt að lifa á því
eintómu. það skyldi þó ekki geta
farið svo, að tvær grímur rynnu
jafnvel á Á. Á. sjálfan,ef hann lifði
við lítil laun og þröngan kost uppi
í sveitinni sinni, en hefði sterka
von eða jafnvel vissu um, sæmi-
lega vel launað starf í kaupstað?
Satt að segja myndi jeg ekki lá
honum, þó að hann veldi sjer að
starfa þar, sem hann gæti lifað
sómasamlegu lífi, og væri atvinn-
an heiðarleg.
þetta er alls ekki sagt af því,
að jeg vilji hvetja menn til að
flytja burtu úr sveitunum, ef
þeir geta aflað sjer nægilegrar
bjargar þar. Að sveitunum þarf
að hlynna, gera þær byggilegri
einyrkjum og bæta samgöngurn-
ar. Um það hefi jeg áður skrifað,
síðast í Alþýðublaðið 1. des. s. 1.
(Frh.).
Guðm. R. ólafsson
úr Grindavík.
----o----
„Tvö kvæði
um Guðmund biskup góða*.
Frh.------------
Nú hafa menn heyrt hvemig
Jóni lætur Bjömssyni rökfræðin!
Hann fæst ekíki við, úr þessu, að
sanna neitt ákveðið í ummælum
sínum um Bautasteina. Til þess
að geta svarað með rökum mestu
skammaryrðum Jóns, í garð þor-
steins, verð jeg að birta hjer
þrjú erindi úr kvæði þorsteins
um Guðmund biskup góða:
„Smáður hann var af vondri öld
og víttur sem Drottinn forðum.
pó kærleiks eldmóðar
skygndum skjöld
hann skaut móti syndar orðum.
Fáan herra. bar á stærri storðum.
Á drápsvíga dimmu láði
hann orrustur ótal háði:
við forneskju ferlega vætti,
við þjóðtrúar þrúðga mætti,
við syndarinnar sjötugfalda þætti.
En vopnið eina í öllum meinum
var hið sama silfurbjarta
sverð með hreinum brandi og beinum,
sem að ilsku hneit við hjarta
trúarsax. með sigri í eggjateinum".
Um miðvísuna af þessum
þremur farast Jóni þannig orð:
„það vanta ekki kröftug orð
þama, samanrekin hvert á eftir
öðra, en aldrei hef jeg sjeð vísu
geiga jafn freklega frá marki
eins og þessa“. Jeg spyr Jón
Björnsson: Er það ranglega orð-
að af skáldinu, að dimt hafi ver-
ið yfir Islandi af vígaferlum
Sturlungaaldar? Er það ósatt um
Guðmund biskup Arason, að hann
hafi háð orrastur við ferlega
vætti fomeskjunnar? Er það
rangt, að þjóðin tryði þá, að
máttur þeirra væri miikill?
Jeg læt Sturlungu svara þessu:
„Biskup fer um sumarit yfir
Vestfjörðu, en um vetrinn var
hann á Breiðabólstað í Stein-
grímsfirði með Bergþóri Jóns-
syni ok urðu þar margir hlutir
þeir, er frásagna væri verðir ok
jartegnum þótti gegna, þótt þat
sé eigi ritat í þessa bók, bæði þat
er biskup átti við flagð þat, er
þeir kölluðu Selkollu oík margt
annat“.
þetta nægir! Bæði í Sturlungu
og sögu Arngríms ábóta er af
miklu og mörgu að taka, er sann-
ar þetta. Sjálf veit þjóðin deili á
Guðmundi biskupi, svo óþaxft er
að ræða þetta. En fíflskur er Jón
með fádæmum að gjöra slíka at-
hugasemd og þessa!
I hitteðfyrra ifeomst Jón fyrst
yfir þessar „skyttu“-líkingar sín-
ar. Síðan hefir Jón hvíldarlítið
sprengt „hvellhettur" þessar, ým-
ist með eða móti mönnum. Og
löngu væri Jón búinn að strá-
drepa öll skáld 1 landinu (nema ef
til vill Davíð Stefánsson) ef
„klikkaði“ ekiki altaf hólkurinn í
höndum hans. Jón öfundar þor-
stein af kraftyrðunum. þorsteini
smalast betur, en Jóni — satt er
það! Jóni verður vant fleira en
nokkurra feraftyrða. Jón er ótrúr
og týninn við fjárgeymsluna. En
til þess að ná upp tölu hjarðar-
innar, hóar Jón geldyrðum á
stöðul. þess vegna sveltur bú
Jóns fyrir skort á málnytu.
önnur athugasemd Jóns, við
vísu þorsteins, er þessi:
„Eini kosturinn við vísuna er
sá, að maður veit nú að þættir
syndarinnar era sjötugfaldir!!“
Jón merkir hendinguna háðs-
marki — hann mun betur vita.
Um það deili jeg ekki „en hvatki
es missagt er í fræþom þessom,
þá es scyllt at hava þat heldr, es
sannara raynisc".
Væri Jón vinnumaður í sveit,
mundu gamlar konur minnast
Jóns á þessa leið:
„það má nú segja um hann
Jón, að hann er alveg einstakur
spilagasi! Síkátur og skemtinn á
heimili og altaf með spaugsyrði
á reiðum höndum!“
Næst segir Jón:
„Hvað segja menn t. d. um
andagiftina, framleikann, skáld-
máttinn og markhæfnina (aftur
skyttan uppi í Jóni) í þessum
ljóðlínum“:
,,því Eysteins ódáinsljóö
— himinlilju heilög ljóö —
og Arasonar sóiar-ljóÖ
— Arasonar sigurfómar blóð —
Guðmundar dáðu dýran trúarmóö".
„þykir mönnum þetta ekki
mikið og fagurt“ spyr Jón.
Spurning Jóns er alveg út í blá-
inn, — þessu er löngu svarað og
Jón hlýtur að vita svarið, þótt
fávís sje. þorsteinn segir: „Hið
helga og dauðlega ljóð Eysteins
um Guðsmóður — dáir trúarstyrk
Guðmundar biskups". þorsteinn
segir ennfremur, „að hin dýrlegu
ljóð Jóns biskups) Arasonar og
sigurfómarblóð biskups (á högg-
stokfenum) hafa gjört hið sama“.
En Jóni finst þetta „andlaust“
og „ófrumlegt" og „skáldmáttur-
inn“ lítill og „skotið framhjá
markinu“. Jón veit sig mann til að
segja þetta betur. Jón virðist hafa
frumlega skoðun á „Lilju“ og
feveðskap Jóns biskups Arasonar
og dauða hans.
Jón bætir þessu við:
„Og verður ekki mikilleikinn og
fegurðin enn meiri þegar ofan á
þessar andleysislínur bætast önn-
ur eins gullvæg orð og „sögu-
stallur“, „aldapallur“ og „dýrar-
hlýf“?“
Síðasta orðið, sem Jón nefndi
er prentvilla fyrir orðið „dýi’ðar-
hlýf“. Jón hefir áður sýnt skarp-
leik sinn við skýringu orða. þekti
Jón ofurlítið eðli og upprana
móðurmálsinis, slyppi hann fram-
hjá skömminmi, að gjöra athuiga-
semdir við orð eins og „Sögustall-
ur“ og „aldapallur". Alþýðan mun
skilja eymd Jóns, þessvegna er
en-gu á hann bætandi. Hann minn-
ir sjálfur, með þessu andleysis-
rorri sínu, á gamla húsganginn:
„Píkan situr á pallínum
Pjetursdóttir Anna“.
„það er ekki alt upptalið, sem
finna mætti að þessu kvæði“, seg-
ir Jón, „þetta er aðeins hið helsta.
En slíkt kvæði leyfir eitt af skáld-
um landsins sjer að kalla mikið og
fagurt“. (Sjálfur hefir Jón sann-
að best ágæti kvæðisins með ill-
gjörnum árásum á iþað og höf-
und þess). Og Jón bætir við: „En
það (fevæðið) er lítið og ljótt,
kalt og tilfinningalaust, og ger-
sneitt þeim kostum, sem góð
kvæði hafa til að bera“.
þannig kveður Jón Björnsson
þorstein skáld úr Bæ með forsi
og fúkyrðum! Framh.
Stefán frá Hvítadal.
----o----
Um víða verðld.
Síðustu fregnir.
Fregn frá Lundúnum segir, að
kolanámanefndin hafi afhent
stjóramni álitsskjal og sje aðal-
innihald þess, að ráða fastlega frá
þvi, að námumar verði þjóðnýtt-
ar. Bent er á, að núverandi fyrir-
komulag þurfi mikilvægra um-
bóta, en sami vinnutími og hingað
til sje nauðsynlegur og dálítil
launahækkun.
Fregnir frá Genf segja, að
fresta hafi orðið upptöku þjóð-
verja í þjóðabandalagið vegna
Iþess að ríki þau, sem heimtuðu
fast sæti í -bandalagsráðinu, ef
þýskaland fengi það, hafi ekki
viljað gefa neitt eftir af kröfum
sínum. Er sagt, að úrslitum máls-
ins sje frestað til næsta hausts.
Síðasta fregn frá Genf segir, að
þrátt fyrir þetta skildu fundar-
menn með vináttu. Talsverður
kuldi kom þó fram í garð Brasilíu.
Bæði Svíþjóð og Tj ekkóslóvakía
buðust til þess að sleppa tíma-
bundnum sætum sínum í ráðinu,
í þeim tilgangi, að hin óánægðu
ríki gæti fengið þau, svo sam-
komulag næðist um upptöfeu
þýskalands. Heimsblöðin ræða
tæplega um annað en þennan við-
burð, og sum telja hann fyrir-
boða þess, að þjóðabandalagið
leysist upp, en flest ræða málið
rólega og gera lítið úr slíkum
hrakspám.
Símað er frá New York borg,
að jámbrautarslys hafi orðið í
ríkinu Costa Rica. Var lestin á
flugferð yfir brú, og brotnaði
brúin. þrír vagnamir fjellu -niður
í fljótið. þrjú hundrað manna
draknuðu. Fjöldi særðist. Stærsta
járbrautarslys, sem sögur fara af.
Atburðurinn afskaplega hrylli-
legur.
Símað er frá London, að öskju
með calciumcarbid hafi verið kast-
að inn í gistihús, þar sem prinsinn
af Wales sat að veitslu. Kom af-
skaplegur gasþefur af, og hjeldu
sumir, að hjer hefði verið um til-
raun að ræða til þess að drepa
prinsinn.
Símað er frá Washington, að
Coolidge sje svartsýnn, vegna at-
burðarins í Genf. Álítur hann
framtíð þjóðabandalagsins óvissa
og afvopnunarfund þýðingarlaus-
an sem stendur, og útlit fyrir
styrjaldir hafi ekki minkað að
áliti hains.
Símað er frá Tókíó, að kvikn-
að hafi í flugeldaverksmiðju. —
Breiddist eldurinn út um heilt
hverfi í borginni. Átta hundrað
hús brannu til kaldra kola og era
fjögur þúsund manna húsnæðis-
lausir.
Símað er frá Trondhjem, að
Nordenfjeldske Kreditbank hafi
neyðst til þess að loka. Hann etf
einhver stærsti sveitabanki í Nor-
egi (Provinsbanki).
Símað er frá London, að fimm
verkamálaráðherrar, 1 frá hverju
eftirtöldu landi: þýskalandi, Bel-
gíu, Frakklandi, Ítalíu og Eng-
landi, undir forustu Thomas frá
alþj óða-verkamálaskrif stofunni í
Genf, hafi setið á fundum síðustu
daga og rætt möguleikana á að
lögleiða átta tíma vinnudag. —
Heyrst hefir, að fu-ndarmenn hafi
verið sammála um, að nefnd lönd
skyldu bráðlega koma þessu í
kring.
-----©----
Prentsmiðjan Acta.