Lögrétta - 08.06.1926, Qupperneq 4
4
LÖGRJETTA
Possamlr.
Höf. flutti þetta kvæði í fyrirlestri á búnaðar-
námsskeiði á Fáskrúðsfirði síðastl. vetur.
Beislaðu fossana, bjargráða öld,
borgað svo geti þeir framtíðargjöld.
Vinn úr þeim hita, vinn úr þeim Ijós.
Vinn úr þeim krafta, sem starfi til sjós.
Að þrælum ger fossanna loftið og láð;
lífsvaki þeirra svo auki oss dáð.
Fossarnir skapi í skammdegi sól,
skínandi bjart svo að verði um pól,
og háumarshlýju í herbergin inn,
hörku þá gaddurinn brennur á kinn.
Búsæld það eykur og bjartari lund;
birtan er lífsafl á dauðlegra grund.
Fossinn er prýði vors fjallkrýnda lands.
Fossinn er ímynd hins stórhuga manns.
Fossinn er sólin í framtíðarvon,
frjáls sem að nærir hvem ættjarðarson.
Bygðirnar prýðist og blómgist hver grund
af blessun sem fossamir leggja í mund.
Fossarnir starfræki iðnað hjá öld,
alt þar til kemur hið síðasta kvöld.
þó ís loki höfnum og alþeki land,
aldrei í sokkana vanta þarf band;
ull er í dúka og skinn til í skó,
það skiftir hjer mestu, að unnið sje nóg.
Ef fossana rækjum með dugnaði’ og dáð,
þeir dagamir koma, að verður vort láð
fátækt ei lengur, en fossar þar gull,
' því fleiru má vinna’ úr en skinnum og ull.
Og þá hlaupa bílar um bygðir og fjöll.
Burtu þá flæmast öll aftarhaldströll.
Landið þá stækkar, sem lifa má á,
lyngmóar, urðir og sandflákar þá
í töðuvöll breytast og garðræktar gnægð.
Gróðurmagn andans oss auka mun frægð. -
íslands þá stækka mun auðsnægtaborð.
Island að stækka, sje þjóðarkjörorð!
p. Mýrmann.
geti átt við böm og fullorðna.
Börnin sjeu að miklu leyti eins
og hinir fullorðnu, að öðm en því,
að þau eru minni. Samkvæmt
þessu hafa svo barnabækumar
verið svipaðar kenslubókum full-
orðinna, að öðru leyti en því, að
þæ|r hafa verið minni, en þar af
leiðandi hafa þær orðið enn síður
við bama hæfi en jafnvel þær
bækur, sem ætlaðar hafa verið
fullorðnum.
það er langt síðan jeg sá, hve
afarmikið er undir því komið, að
lesefnið sem bömum er fengið,
sje við þeirra hæfi. Með það fyrir
augum hefi jeg um mörg undan-
farin ár safnað lesefni handa
bömum. Hefi jeg reynt það á
börnunum sjálfum og valið það,
sem best hefir reynst, án tillits
til þess hver eða hvaðan höfund-
ur var. Birtist nú úrval þessa les-
efnis í bók, er jeg nefni: Sam-
lestrarbók. Er hún nú næstum
því fullprentuð. Hún er 12 arkir
að stærð í allstóru 8 blaða broti
og kostar í sterku skólabandi kr.
4,00. Sveinabókbandið nr. 17B við
Laugaveg í Reykjavík annast af-
greiðslu og innheimtu á þessari
bók og öðrum bókum, er jeg hefi
gefið út, og verða allar pantanir
afgreiddar þaðan fljótt og vel.
Ljúft væri mjer að fá umsögn
kennara um reynslu þeirra á þess-
ari bók og öðrum, sem jeg hefi
gefið út. Gæti það orðið til leið-
beiningar við næstu prentun. Öll
brjef, er mjer kynnu að verða
send, er best að fela Sveinabók-
bandinu, því að jeg er nú að
leggja af stað í ferð um Eng-
land og Ameríku, til þess að fræð-
ast um skólaástand og fræðslu.
Verð jeg eitt ár í þeirri för.
Jeg leyfi mjer að birta hjer
stuttan formála fyrir Samlestrar-
bókinni, svo að menn fái hug-
mynd um efni hennar og tilgang
minn með efnisvali og útgáfu:
Leskaflarnir í þessari bók hafa
verið reyndir í kennaraskólanum
og valdir úr mjög miklu lesefni.
Hefir það verið tekið, sem mest
hefir glætt lestrarlöngun og vak-
ið áhuga, starf og gleði barnanna.
Mikið af köflunum eru leikrit, en
þau hafa gefist best alls lesefnis,
til þess að gera raddlestur eðli-
legan og fagran og venja af
hugsunarlausum suðulestri. Marg-
ir kennarar, sem kynst hafa sam-
lestri eða leiklestri, hafa kvart-
að um tilfinnanlegan skort á sam-
tölum og leikritum við bama hætfi.
þessi bók á meðal annars að bæta
úr þeim skorti.
Best er, að bömin hafi sem
mest frjálsræði við undirbúning
og meðferð leikjanna, við það
vex þeim frumleiki og smekkvísi.
Gott er, að kennarinn leiki eina
persónuna við og við.
Jafnan ætti að tala um á eftir,
hvemig tekist hafi að leika, og
láta bömin sjálf leggja sem mest
til málanna.
það hefir löngum verið þjóðar-
11,1 * i' » n'
skemtun, að segja sögur. það hef-
ir og að nokkru leyti verið skóli
alþýðunnar. Hjer er stigið feti
framar í sömu átt. þegar sögum-
ar eru leiknar, verður hægara að
setja sig í spor þeirra, er sagan
er af; skilst þá betur eðli þeirra
og ástand en ella, og vex þá sam-
úð með þeim. þá fá og bömin
sjálf að beita kröftum sínum, sem
þeim er svo afarnauðsynlegt.
Jeg vænti þess, að þeir, sem
taka upp samlestur í skólum,
muni ekki hætta við hann, því að
hann fyllir skólalífið áhuga, orku
og gleði, jafnvel þótt ekki sjeu
fyrir hendi tjöld, búningar, leik-
svið nje neitt annað en bömin
með bækur sínar og ímyndunar-
afl. Fái það að starfa óhindrað,
getur jafnvel fullorðnum orðið
mikil gleði að leiknum.
Víða í sveitaskólum er börnum
mikið mein að feimni. Hana veit
jeg best læknast með samlestri.
Orsök hennar er venjulegá sú, að
lesarinn hugsar of mikið um sjálf-
an sig. í leiklestri lifir hann sig
oft svo vel inn í efnið, að hann
gleymir sjálfum sjer að miklu
leyti og venst svo af feimninni.
í kaupstaðaskólum er oft mik-
ið mein að því, hve börn búa sig
lítið undir kenslustundir heima.
þar er svo margt sem glepur.
Annars er skólakensla hjer á landi
svo af skomum skamti, að öll
þörf er á nokkurri heimavinnu.
En þá hefir mjer reynst undir-
búningur bestur, er böm hafa bú-
ið sig undir að leika.
Bókin er einkum ætluð börnum
á tíu ára aldri. En sá kostur er
á efni, sem má leika, að sami
kaflinn er vel þeginn af bömum
næstum því á öllum aldri. Börn
þreytast og mjög seint á að end-
urlesa það (leika), en fátt gefur
meiri lestrarleikni en að lesa aft-
ur og aftur hið sama, jafnvel eft-
ir að það er þaullært.
þegar bömin hafa leikið þessa
smáleiki svo oft, að þau biðja
sjaldan um að fá að leika þá, er
gott að lofa þeim sjálfum að snúa
sögu í leik. Við það vex þeim
mjög þroski, ritleikni og vald á
málinu. Vinni þau saman að þessu
starfi, eflir það samúð og vinar-
hug í skólanum.
Leikimir í þessari bók ættu
og að koma sjer vel, þegar skóla-
skemtun er undirbúin. Enda mjög
þroskavænlegt að undirbúa dálít-
inn sjónleik. Getur það orðið
margháttað starf. Fer þar sem
annarsstaðar, þar sem unnið er
af miklum áhuga, að atorku verð-
ur beitt svo sem, unt er. En þá
verður jafnan mikil framför, því
að hún fer næstum því að öllu
leyti eftir áhuga nemendanna.
Steingrímui- Arason.
-----e-----
Jón Iieifs
og þýska hljómsveitin.
Á seinni árum hefur oft verið
allfjölbreytt hljómlistarlíf hjer í
Reykjavík á summm. Ýmsir
listamenn hafa þá sótt hingað
utan úr löndum, og oft hinir
snjöllustu og að jafnaði verið vel
tekið og oft forkunnarvel. Hafa
Reykvíkingar þá reynst elskir að
hljómlist og ósparir á fje til
hennar svo að oft mun þetta
listafólk ekki fara á aðrar fjörur
auðugri, þó í stórborgum sje.
Hefur þetta þá einnig orðið til
þess að hæina hingað fleiri og
fleiri hljómlistarmenn af ýmsum
greinum. í sumar er t. d. gert ráð
fyrir að minsta kosti átta slíkum
heimsóknum, auk þess sem til er
í bænum sjálfum af hljómlistar-
lífi. Hættir mönnum stundum við
að gleyma því í heimsókna-
glaumnum, og er ósanngjarnt. því
þrátt fyrir alt það, sem enn er
ófullkomið og óþroskað í innlendu
hljómlistarlífi, hefur í því verið
unnið áhugamikið og merkilegt
starf á síðustu árum af ýmsum
duglegum og listhæfum mönnum,
svo að hjer er til innlend list, sem
með sæmd getur sýna sig, og hef-
ur sýnt sig, hvar sem er í stæ|rra
og menningarmeira umhverfi, þó
mikið sje líka um leirburð og
fálm. Ætti að vera hægt að lofa
svo erlenda gesti, að lasta ekki
það, sem nýtilegt er og frambúð-
arvænlegt í innlendri viðleitni.
Einkum kemur þetta illa heim,
þegar jafnframt olnbogaskotun-
um til innlendra manna, sem í
erfiðum aðstæðum og við þröng-
an kost hafa unnið fyrir íslenska
list, er ausið hóflitlu auglýsinga-
skrumi á erlenda miðlungsmenn.
Og stundum — einkum meðan
hljómlistarlíf var hjer fábreytt-
ara en nú er orðið — runnu Reyk-
víkingar í gagnrýnislausum apa-
skap og „snobberíi“ eftir hverj-
um útlendingi og innlendir menn
þá að vísu stundum daufir til
framkvæmda. Nú eru Reykvíking-
ar meira en áður farnir að ganga
sínar eigin götur í þessum efnum,
og velja og hafna, og kemur þó
stundum misjafnlega niður.
Einn þeirra manna, sem að-
súgsmikill hefur verið um ísl.
hljómlistarmál á síðustu árum, og
oft vandlætingarmikill og kröfu-
harður, er Jón Leifs. Hefur hann
m. a. skrifað ýtarlega um þau
hjer í Lögrjettu og víðar og
stundum hlotið misjafna dóma.
það hefur verið eitt höfuðáhuga-
mál hans að fá hingað stóra, er-
lenda úrvalshljómsveit, svo að
Reykvíkingar gætu kynst stór-
virkjum hljómlistarinnar í snjallri
meðferð og slíkt um leið orðið til
siðbótar og smekkbótar í inn-
lendri list. Nú hefur J. L. tekist
þetta, með rausnarlegri fjárstoð
bæjarstjórnarinnar, sem veitt hef-
ur til hljómsveitarinnar 10 þús.
IKS
Heildsala.
Smásala.
Verslunin hefur nú fyrirliggjandi mikið úrval af
fjölbreyttum og vönduðum, mjög ódýrum
V ef naðar vörum.
Pappír og ritföngum allsk.
Leður og skinn.
og flest tilheyrandi skó- og söðlasmíði.
Conklins Undarpennar og Víking blýantar.
Saumavjelar, handsnúnar og stígnar.
Vegna hagstæðra innkaupa og verðtollslækkunar eru
vörurnar mjög lágt verðlagðar.
Pantanir afgreiddar um alt land gegn póstkröfu.
Verslunin Björn Kristjánsson.
Velox skilvindan góða
No. 0 skilmagn 65 lítra á klst. kr. 110.00
„ 1 — 120 — - — — 135.00
„ 2 — 220 — - — — 225.00
Velox strokkurinn í þremur stærðum.
Varahlutir ávalt fyrirliggjandi.
Sendist gegn póstkröfu út um land.
Verslun Jóns Þórðarsonar
Reykjavík.
kr. Er það úrval úr einni bestu
hljómsveit þýskalands, 40 menn
úr Hamburger Philharmonisches
Orchester, sem hann stjómar nú
hjer. Leikur sú sveit m. a. við
Wagner-hátíðarnar í Bayreuth.
Sveitin hefur þegar haldið 4
hljómleika, þar af eina í Dóm-
kirkjunni, við mjög mikla aðsókn
og mikið lof og fögnuð. Hefur
sveitin farið með ýms stórverk-
efni eftir Beethoven, Mozart,
Weber, Hándel o. fl. og tekist
mjög vel. Á kirkjuhljómleikunum
voru einnig leikin lög, sem J. L.
hefur sjálfur búið til við
Galdra-Loft Jóhanns Sigurjóns-
sonar, Mimodrama og sorgar-
göngulag og hafa dómar manna
nokkuð skifts um þau, því æði-
mikill nýtískukeimur er að þeim
fyrir flesta hjer, einkum mið-
hluta sorgargöngulagsins, en
Mimodrama fjell möhnum vel i
geð.
J. L. kvað annars meira og
meira vera að brjóta sjer
braut erlendis og er áhuga-
mikill, vel lærður og gáfaður lista-
maður og með heimsókn sinni og
hljómsveitarstjórn nú hefur hann
unnið sjer vinsældir og traust
Reykvíkinga sem hljómlist unna
og viðgangi hennar hjer.
Siextugsafmæli átti Pjetur M.
Bjamarson kaupmaður 4. þ. m.
og hafði þá 1 boði hjá sjer ýmsa
kunningja sína. Heillaóskaskeyti
fjekk hann mörg. Hefur hann ver-
ið duglegur maður og framtaks-
samur og hrundið á stað ýmis-
legri nýbreytni í atvinnulífi og
viðskiftalífi hjer, nú síðast með
tilbúningi íslensks kaffibætis. Var
nokkuð frá þessu sagt í Óðni síð-
astl. ár, en þá átti P. M. B. 40
ára kaupmannsafmæli. Nú nýlega
hefur hann keypt húsið á Vestur-
götu, þar sem áður var Hótel
Reykjavík, og er nú að byggja
það um og breyta því og gera úr
því verslunarhús, og þangað flyt-
ur hann kaffiverslun sína.
Heilsufar. Gert er nú ráð fyrir
að útbreiðslu taugaveikinnar á
ísafirði sje að mestu lokið. Inflú-
ensa hefir í vor verið víða um
land, en alstaðar væg. Rauðir
hundar hafa gengið á Vopnafirði
og hægfara mislingar á Fljóts-
dalshjeraöi.
Óðinn. Ýmsir af eldri árgöng-
um hans, svo sem 4.—9. árg. fást
með miklum afslætti, allir 6 á kr.
10,00.
Síðustu árg., frá 17.—21. árg.,
fá nýir og gamlir kaupendur einn-
ig með miklum afslætti,alls 5 á kr.
20,00. Allir árgangarnir frá upp-
hafi, 21 árg., (inní vanta nokkur
blöð af fyrsta árg. og fjölgar
vantandi tölublö smátt og smátt)
eru seldir á kr. 50,00.
Sláttuvjelar. Verð á sláttuvjel-
um hefur yfirleitt lækkað nú í
seinni tíð. þar á meðal hefur
MacCormick töluvert lækkað í
verði, svo að hún er nú mun ó-
dýrari en áður. En sú vjel er talin
með bestu sláttuvjelum, er hingað
flytjast. Hefur Sigurður Sigurðs-
son ráðunautur útvegað mönnum
þessa vjel, en nú munu synir
hans gera það og er þá að hitta
á Laufásvegi 6.
Hervarnarráðherrann danski,
Rasmussen, kemur hingað í sum-
ar, leggur á stað 1. júlí í för til
Færeyja, Island og Jan Mayen.
Með honum verður m. a. Zahle
fyrv. forsætisráðsherra. Ráðherr-
ann ætlar að kynna sjer vitamál-
in í Færeyjum, landhelgisgætsl-
una hjer og skilyrði fyrir upp-
setningu jarðskjálftamælistöðvar
á Jan Mayen.
Islensku glímumennimir í Dan-
mörku. Frá Svendborg er símað
2. þ. m.: Dansk-ísl. Samfund hef-
ur tekið ágætlega á móti glímu-
flokknum. Niels Bukh hefur
reynst þeim ágætlega. I Khöfn
var þeim boðið í morgunverðar-
veitslu og síðan farið með þá í
skemtiför um Kaupmannahöfn.
þegar þeir komu til Ollerup var
borgin skreytt íslenskum flöggum,
og þar var tekið á móti þeim
með því að syngja ísl. þjóðsöng-
inn. Borgarstjórinn bauð þá vel-
komna með ræðu. þar var þeim
boðið í biðreiðaför. þeir sýna nú
glímuna daglega í bæjum á Sjá-
landi. I Khöfn höfðu þeir tvær
sýningar, og var almenningur
stórhrifinn, og ummæli blaðanna
ágæt. þeir hafa verið beðnir að
koma og sýna glímuna á langt-
um fleiri stöðum en þeir geta,
vegna naums tíma.
----»----
Pramtomjfijan Aota.