Lögrétta - 08.06.1927, Page 4
4
LOGE+BYTA
Útrýmið rottunum!
Það er nú fullsannað, að afkvæmi einna
rottuhjóna geta á einu ári orðið 860 rott-
nr. Af þessu er auðsæ þörfin á að útrýma
rottunum. Til þess að ná góðum árangri
er þvi tryggast að nota K a t i n og
R a t i n i n . Ratin sýkir rottumar, og
þær sýkja svo aðrar rottur, sem þær
umgangast meðan þær em veikar, og
drepast að 8—10 dögum liðnum. Ratinin
hefir aftur á móti bráðdrepaudi verkanir
á þær rottur, sem jeta það.
Ratin-aðferðin
er: Notið fyrst Ratin, svo Ratinin, þá
fæst góður árangur.
Sendið pantanir til
RÁTINKONTORET, KÖBENHAYN
Allar upplýsingar gefur
Agúst jósefsson
heilbrigðisfulltrúi, Reykjavik.
Lögrjetta og Öðinn. Afgreiðsla
þeirra er áfram, fjnrst um sinn, í
túngholtsstræti 1. En með því að
bókaverslun mín er nú seld, má
ekki utanáskrift brjefa til mín
eða blaðanna lengur vera: Bóka-
verslun Þorsteins Gíslasonar, því
eins oig auglýst er á öðrum stað í
blaðinu, heldur bókaverslunin
nafninu áfram, svo að þetta verð-
ur utanáskrift til nýja eigand-
ans. Þorst. Gíslason.
ig fluttir um þessi efni í ka-
þólsku kirkjunni o. v. Loks er
svo að sjálfsögðu að geta í þessu
sambandi predikunarstarfsemi
prestanna, en kirkjumar eru
mjög vel sóttar í Reykjavík, og
engu síður af körlum en konum.
Ýmsir bæklingar hafa komið
út um trúmál á síðkastið og vak-
íð talsverða athygli í svip. Eftir
sr. Gunnar Benediktsson í Saur-
bæ er bæklingurinn: Var Jesús
sonur Jósefs, frá nýguðfræðilegu
sjónarmiði, eftir Sæmund Sig-
fússon er Guðs son kallar, frá
gamalguðfræðilegu sjónarmiði og
Sigmundur Sveinsson skrifaði
bæklinginn Dæmalaus kirkja,
með allhvassri ádeilu á hinar
nýju stefnur og losarabraginn á
þjóðkirkjunni. Loks hefur Luð-
víg Guðmundsson gefið út fyrir-
lestra sína um Vígsiuneitun bisk-
upsins, en þeir vöktu athygli þeg-
ar þeir voru fluttir, en hefur ver-
ið hljóðara um þá síðan, enda
viðurkent að biskupinn hafi rjett
til neitunarinnar. En ýms atrið-
in, sem rædd eru í þessari bók
og hinum, sem nefndar voru,
ættu það skilið, að þau væru
nánar rædd og röksamlega og
rólega, enda mun ekki geta hjá
því farið til lengdar, að presta-
stefnan taki mál þessi til alvar-
legrar íhugunar og ákvörðunar
um afstöðu kirkjunnar og þó
með allri varúð, því talsvert er
hætt við ofstæki í þessum mál-
um, og það oft út af smáatrið-
um, sem kirkjunni er til ills eins.
Merkasta trúmálaritið, sem út
hefur komið á síðkastið er þó ó-
nefnt. En það er Kristindómur-
inn eftir Adolf v. Hamach, í
þýðingu eftir sr. Ásmund Guð-
mundsson skólastjóra á Eiðum,
með formála eftir biskupinn.
Hamach er eins og kunnugt er,
einhver helsti forvígismaður
þýskrar nýguðfræði, stórlærður
maður og ritfær. En um margar
skoðanir hans mundi að sjálf-
sögðu deilt hjer eins og í heima-
landi hans. En ef mönnum er
það á annað iborð hugleikið að
kynnast þessum málum alvarlega
og læra að greina milli gamallar
guðfræði og nýrrar, er best að
leita til þeirra sem fremstir
standa í flokki hvorumegin, þeg-
ar þeir gera ítarlega og rólega
grein fyrir máli sínu, eins og
hjer er um Hamach. Væri fróð-
legt að fá þýdda einhverja
áþekka bók frá gamalguðfræði-
legu sjónarmiði. Mundi það af-
farasælla fyrir trúmálalíf lands-
ins en margt það pex sem meira
tíðkast.
■■■ -o»■■
Ekkjifrl FriOrika Briem
áttræð.
„Skáld er eg ei“,
en skyldukvöðin kallar
og kveða biður orkulítinn beim;
ei seinna er vænna, óðum æfi hallar,
þú ert nú bráðum til hans
komin heim,
er þráir þig að baki bólstrum skýja
og brátt mun með þjer sambúð
endumýja.
þið voruð hjón í öllu öðrum
mönnum
til eftirbreytni dýrleg fyrirmynd,
með faðminn þaninn
út i ykkar rönnum
mót eymd og neyð,
sem þyrstum svalalind.
því hjörtun klökk nú munu ykkar
minnast,
ei meiri hjón á landi voru finnast.
Ættarþjóðar þegar varð hann sómi,
én þú varst fágæt, ilmrík Ðanarós;
úr augum þjer skein ávalt
blíðuljómi,
en allra sinna varð hann
stoð og ljós.
Ei valdist kona betur merkum
manni,
til meiri sæmdar, þótt jeg landið
kanni.
I engu var hann eftirbátur sinna,
og alt eins skært var gáfnaljósið
hans,
en um sig sjálfan æ hann
hirti minna,
en efla þá, og lyfta hátt til manns;
og því er Gunnlaugs ljósríkt yfir
leiði,
þar ljómar ávalt sólin skært í heiði.
Og eg er einn af slíkum,
sem ætti að minnast hans,
íl af kærleikskrafti ríkum
hann kom mjer fyr til manns;
og því er hjartað þrungið
af þökk og lofi og yl,
en samt jeg get ei sungið
hans sæmd — þó feginn vil.
Hann lítinn dreng mig leiddi
frá látins föður beð,
hann öllum tárum eyddi
og um það fjekk hann sjeð,
að einskis í jeg misti,
jeg annan föður hlaut.
Hann varð minn vinur fyrsti,
hann varð mjer skjól í þraut
Og því er ei að undra,
þótt æ jeg dái þig,
er sorgum náðir sundra
og síðan leiddir mig,
og yfir látins leiði
mjer ljósið fegurst skín,
er á það blómin breiði;
jeg blessa minning þín.
Og vel jeg mætti minnast
þín, mæta, göfga fljóð;
þjer þakkir eiga að innast,
þú ætíð varst svo góð.
Hinn ljúfi ljóssins faðir
þjer launi fyrir svein,
um allra alda raðir
þjer ami ei sorgin nein.
þú vart munt gleymast vinum,
þú varst þeim hlíf og skjól,
og ekki heldur hinum,
er höfðu litla sól;
í átta tugi ára
þú öðrum hjálpir vanst,
að draga úr sviða sára
þjer sæla og gleði fanst
þú ljós á þinna leiðum,
er lífið gjörðir bjart,
und minnishimni heiðum
í hugann flýgur margt;
með silfrað hár þú situr
við sólríkt aftan skin,
er þýða þökk nú flytur
frá þakkarskyldum vin.
H.
-----o----
Bóklestur á Akureyri. Bóka-
vörður Amtsbókasafnsins á Ak-
ureyri, Davíð frá Fagraskógi,
hefur nýlega samið skýrslu um
notkun safnsins sl. vetur. Lesin
voru 5438 bindi af 534 maxms og
451 bindi á lesstofu af 1000
manns. Mest iesin einstakur inn-
lendur höfundur er þar Einar H.
Kvaran (130), þá Jón Trausti
(101), Gunnar Gunnarsson (70),
Guðm. Friðjónsson (65), o. s. frv.
Mest lesinn erlendur höf. er C.
Garvice (76), þá H. Ibsen (64),
V. Hugo (60), Sigrid Undset (60)
Patric McGill (59), Bjömstjeme
Bjömsson (58) og Jónas Lie
(57), Selma Lagerlöf (53). Tíma-
ritin eru einnig allmikið lesin,
Nýjar kvöldvökur, Eimreiðin,
Skímir, Óðinn. Islendingasögur
em talsvert lesnar (144).
Kappreiðar fóru fram við Ell-
iðaámar á 2. hvítasunnudag. Var
þar fjöldi fólks og veður hið
besta. 28 hestar vom reyndir.
Fyrir skeið fjekk 1. verðl., 200
kr., Sjúss F. Hansens í Hafnar-
firði, og auk þess verðlaunabik-
ar, gefinn af Ól. Magnússyni
ljósmyndara, 2. verðl. fjekk
Sleipnir Sig. Z. Guðmundssonar í
Rvík, 100 kr., og 3. verðl. Baldur
Einars E. Kvaran, 50 kr. — Fyr-
ir stökk fjekk 1. verðl., 200 kr.,
Móðnir frá Deildartúngn og auk
þess 50 kr. og silfurbikar, gefinn
af Ól. Magn., fyrir að setja nýtt
met (22!/4 sek.). 2. verðl., 100
kr., fjekk Reykur Jóns Guðna-
sonar í Rvík, og 3. verðl. öm
Einars Sæmundssonar skógfræð-
ings, með hlutkesti milli hans og
Sörla Ólafs Magnússonar, sem
áður hefur fengið fyrstu verðl.,
en nú er 18 vetra gamail. Flokks-
verðlaun, 15 kr., fjekk Fluga frá
Valdastöðum. Mýlnir frá Gríma-
stöðum var við æfingamar talinn
fljótastur allra hestanna, en fyr-
Velox
skilvindan
góða er hljóðlítil og ljett í
snúningi.
Skilur sjerlega vel, einföld
og hæg í hreinsun og end-
ist ágætlega.
Fæst í 8 stærðum.
No. 0 skilur 65 lítr.
— 1 — 120 —
— 2 — 220 —
Velox
strokkurinn
strokkar rjómann á 15—20
mínútum. 3 stærðir 5, 10 og
15 lítra.
Y arahlutir
ávalt fyrii'ligg'jandi.
"V erslun
]óis Pörðirsmar
Reykjavík.
ir einhver mistök varð hann
eftir, er flokkur hans var reynd-
ur og var dæmdur úr leiknum.
Aflabrögð. Mokafli er nú sagð-
ur í verstöðvunum við Eyjafjörð.
Tímaritið Rjettur, 1. h. 12.
árg., er nýkomið út, fjölbreytt
og læsilegt.
Forsætisráðherra fór á kon-
ungsfund nokkrp eftir þingslit,
en er væntanlegur heim aftur 12.
þ. m.
Frk. Anna Pjeturss, dóttir H.
P. jarðfræðings, hjelt hjer ný-
lega klaverhljómleika og var lát-
ið mjög vel yfir. Hún hefur lært
í Khöfn, dvalið þar að undan-
fömu hjá móður sinni.
Guðm. G. Hagalín rithöfundur
er nýkominn heim hingað með
fjölskyldu sinni, eftir nær
þriggja ára dvöl 1 Noregi. Ætlar
hann að dvelja austur á Fljóts-
dalshjeraði (á Hvanná) í sumar,
en setjast hjer að næsta haust.
Óðinn, jan.—júní 1927, er nú
bráðum fullprentaður. í honum er
m. a. sagt frá Frikirkjunni í Rvík
og Leikfjelagi Akureyrar, með
mörgum myndum. Sjera Fr. Frið-
riksson heldur áfram æfisögu
sinni o. s. frv.
Prentsm. Aeta.