Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 20.07.1927, Qupperneq 4

Lögrétta - 20.07.1927, Qupperneq 4
4 LOGRJETTA son fjekk 62. I Borgarfirði var kosinn Pjetur Ottesen (íhaldsm.) með 566 atkv. Bjöm Þórðarson hlaut 367. I Barðastrandasýslu var kosinn Hákon Kristófersson (íhaldsm.) með 340 atkv. Sr. S^g. Einarsson hlaut 289, Pjetur A. Ólafsson 201 og Andrj. Straum- land 109. Ennþá er ekki svo mikið frjett að fullyrt verði um flokkaskift- ingu og atkvæðamagn. Nú hefur Framsóknarfl. fengið 14 þing- sæti, íhaldsflokkurinn 13 og Alþ,- flokkurinn 4, Frjálslyndifl. 1 og utanflokka er einn þingm. En atkvæðamagnið er mest hjá I- haldsfll Ennþá mun það óráðið hvemig fer um stjórnarskifti, ef til þeirra kemur, og'óvíst hvort kvatt verður saman aukaþing. Hreyfing hefur verið í þá átt að spara þingkostnað sem mest og mun sá flokkur, sem við völdum hygst að taka, þá sennilega ráða nokkru um það, hvort þingi verð- ur stefnt saman eða ekki. Enn sem komið er hefur enginn þing- flokkur samt fengið nægilegt fylgi til þess að annast stjómar- myndun einsamall og því alt í óvissu um þau mál. ----o---- Iþróttabálkur. Óvenjulítið fjör er í opinberu íþróttalífi bæjarins í sumar. 1 þ r ótfasýni ngamar eru fremur fáar og ekki mikið á þeim að græða og er af sem áður var stundum þegar allir dagar flóðu í misjöfnum íþróttasýningum. Þrátt fyrir þetta eru ýmsar íþróttir þó allmikið stundaðar. Ber mest á því að fólk stundi „tennis“ sjer til skemtunar og fer slíkt mikið í vöxt, en áhugi á knattspymu er með daufara móti. Nokkur íþróttaafrek hafa einnig verið framin, sem í frásögur er færandi, s. s. Þingvallahlaup Magnúsar Guðbjömssonar og nú fyrir fáum dögum sund, sem frækilegt þykir. Synti þá ungfrú Ruth Hanson utan úr Engey og að steinbryggjunni í Reykjavík á röskum klukkutíma. Hefur Ben. G. Waage einn synt þessa leið áður, svo kunnugt sje. Er þetta lengsta sund, sem ísl. kona hefur synt, svo sögur fari af. Er lítt getið sundþrauta ísl. kvenna síð- an í fomöld er Helga jarlsdóttir synti með son sinn fjögurra vetra gamlan úr Geirshólma til Blá- skeggsár og sneri síðan aftur í móti öðram syni sínum átta vetra, því að honum dapraðist sundið þá, og segir frá þessu í Harðarsögu og Hólmverja. — Merkustu við- burðimir í ísl. íþróttalífi í sumar eru annars utanfarimar. Einkum hefur fimleikaflokkur íþrótta- fjelags Reykjavíkur undir stjóm Björns Jakobssonar fengið mikið lof erlendis og þótti leikfimis- kerfi hans mjög gott og fagurt. Á alþjóðamóti K. F. U. M. sem haldið er í Kaupmannahöfn þessa dagana hafa Islendingar einnig getið sjer góðan orðstír. Hafa íþróttamenn hug á því, að reyna að senda góðan flokk á Olympíu- leikina næstu og tekst það vænt- anlega. — I síðasta blaði aug- lýsti Jón Þorsteinsson nýja íþróttakenslu, sem athygli skaí vakin á og líkleg er til þess að geta orðið að góðu gagni. Hefur J. Þ. sýnt mikinn dugnað og áhuga á eflingu íþrótta, ekki síst heilsusamlegum líkamsæfingum fyrir einstaklinga, sem hvað mest er þörfin á. ---o---- Ritfreg-n. Janúar—júní-hefti Óðins er ný- komið út. I því eru margar grein- ir og kvæði og 67 myndir. Þar er grein um fríkirkjuna í Reykjavík og sögu hennar, með mörgum myndum, um Gunnar Hinriksson vefara, Brand Bjamason, Jón Sturlaugsson á Stokkseyri og konu hans, um Helgu Arinbjam- ardóttur í Görðum í Vestmanna- eyjum, um Halldór Jónsson á Rauðamýri, Sigurð Jónsson smá- skamtalæknir, Maríu Jóhanns- dóttur skáldkonu, Sigurbjörgu á Merkigili og Egil Steingrímsson, Eyjólf á Saurbæ og Jón Halldórs- son söngstjóra. Allar þessar grein- ir eru með myndum og myndir era af ýmsum fleiri mönnum s. s. Valdimar Ásmundssyni ritstjóra, Áma leturgrafara, Borgþór Jós- efssyni o. fl. Þá er ítarleg grein um Leikfjelag Akureyrar með mörgum myndum, bæði af ein- stökum starfsmönnum þess á ýmsum tímum, Halldóri Gunn- laugssyni, Vilhelm Knudsen, Freym. Jóhannssyn i og Hallgr. Valdimarssyni, — og myndir úr ýmsum leiksýningum þess, Ljen- harði fógeta, Nýársnóttinni, Tengdapabba Geijerstams, Skuggasveini, Dómum Andrjesai- Þormars, Óskastund Kristínar Sigfúsdóttur, Ambrosíusi Mol- becks og Fyrsta vindlinum eftir Jakob Kristinsson. En leikendum- ir, sem myndir eru af í þessum leikjum eru Margrjet Valdimars- dóttir, Páll Árdal, Gísli Magnús- son, Haraldur Bjömsson, Vilh. Knudsen, Eva Pálsdóttir, Álf- heiður Einarsdóttir, Þóra Hall- grímsdóttir, Þóra Havsteen, Svafa Jónsdóttir, Ingimar Eydal og Steinþór Guðmundsson. Hafði fyr- ir nokkrum árum komið í Óðni ítarleg grein um Leikfjelag Reyk- javíkur með fjölda mynda og er því í þessum tveimur greinum fengið yfirlit um helstu leikstarf- semi landsins og sögu hennar. — Ennfremur eru í þessu Óðinshefti kvæði eftir Jakob Thorarensen, Jón Magnússon, áður óprentað kvæði eftir Bólu-Hjálmar og þýð- ing Bjama frá Vogi á upphafinu á öðrum hluta Faust’s, sem ekki hefur áður verið prentaður. Þá eru fróðleiksgreinir, s. s. tvær sagnir um Jónas Hallgrímsson og Sigurð Breiðfjörð. Loks er í heft- inu langur kafli úr sjálfsæfisögu sr. Friðriks Friðrikssonar, sem mikið hefur verið lesin og orðið vinsæl. ---o---- Dorothea Spinney heitir ensk leikkona, sem víða hefur farið og lesið upp og leikið ýms skáldrit. Er hún nú hjer stödd og hefur farið með leikritið Alkestis eftir Euripides, eitt af höfuðskáldum Fomgrikkja. Var sá leikur fyrst syndur í Aþenu árið 430 fyrir Krists burð og eru því nærrí 2360 ár síðan. Leikurinn dregur nafn af ungri konu, sem tekur að sjer að deyja fyrir feigan mann sinn, til þess að hann geti lifað lengur, af því hann langar til þess. Mun grískur fornleikm1 ekki hafa verið fluttur fram fyr í heild hjer á landi og ekki hefur komið út heil þýðing á nema ein- um, Bakkynjum Euripidesar, eftir dr. Sigfús Blöndal. En Grímur Thomsen þýddi m. a. tvo kór- söngva úr Alkestis. Ungfrú Spinney fór með hina ensku þýð. Gilbert Murrays, helsta núlifandi grískufræðings meðal enskra þjóða. Var hún klædd grískri skikkju og sýndi hlutverkin af fjöri og skilningi og hefur þrótt- mikla, fjölbreytta og tamda rödd. Tíminni er nú miður heppilegur til skemtana eins og þessarar og takmarkaður hópur þeirra, hjer eins og annarstaðar, sem sækir erlendar framsagnir. Áheyrend- ur voru einnig nauðafáir og eftir- tektarvert að í flokk þeirra vant- aði flesta þá, sem annars verður skrafdrjúgast um „gildi klass- iskra bókmenta“. Björn G. Björnson verkfræðing- ur og kona hans eru nýlega komin hingað í kynnisför. Hann ar son- ur G. B. landlæknis og hefur dval- ið vestra síðan hann lauk stúd- entsprófi hjer fyrir 10 árum, stundaði þar háskólanám og lauk því með ágætri einkunn og hefur nú^stöðu í New York. Kona hans er rithöfundur og kunn af ýms- um kvæðum sínum. M. a. hefur hún orkt kvæði um Hallgerði langbrók, sem hlotið hefur mikið lof. Hún vinnur einnig að því að snúa á ensku ýmsum ísl. kvæð- um. „Lífið er mjer Kristur“ heita nokkrar predikanir sem nýkomn- ar eru út eftir sr. Bjama Jónssor. dómkirkjuprest. — „Sonur hins blessaða“ heitir bæklingur, sem einnig er nýútkominn eftir Sigur- björa Á. Gíslason. Ari Jónsson hjet íslenskur óperusöngvari, sem alið hafði mestan aldur sinn erlendis, en nú er nýlega dáinn í Kaupmanna- höfn.. A. J. mun hafa verið hinn fyrsti ísl. óperusöngvari og var á blómaárum sínum vel metinn og dáður söngvari við ríkisóperamar í Leipzig og Berlín.Á ófriðarárun- um misti hann allar eigur sínar og lifði síðan í fátækt og vinum horfinn í Khöfn og hafði ofan af fyrir sjer með söngkenslu. A. J. var lítt kunnur hjer heima á síðari árum. Hann hafði þó sungið hjer í Reykjavík nokkru fyrir alda- mótin síðustu og þótt mikið til koma. I kistuna með honum voru lögð böndin af frægðarsveigum hans, og var meðal þeirra eitt frá drotningu Vilhjálms Þýskalands- keisara. Kvennaskólinn í Reykjavík. Forstöðukona hans, Ingibj. H. Bjarnason alþm. hefur nýlega gefið skýrslu um hann fyrir starfsárið 1926—27. Nemendur r Okeypis og burðargjaldsfrítt sendist okkar nytsama og mjög myndum prýdda vöruskrá með gummí- og hreinlæti*- vörum og leikföngum, einnig úrum, bókum og póstkortum. Samariten, Afd. 67. Köbenhavn K. voru 118 og þurfti að neita ýms- um umsóknum, svo var aðsóknin mikil, en aukadeild var einnig stofnuð. Annars var skólinn með svipuðu sniði og fyr hefur verið frá sagt. Vesalingarnir. Fjórði og næst- síðasti þátturinn hefst í næsta blaði. Strandarkirkja. Lögrj. hefur tekið á móti 5 kr. frá Svani, sem eru áheit á Strandarkirkju. Eldgos eru nú sögð í Vatna- jökli einhversstaðar, eftir því sem haft er eftir bóndanum í Möðrudal, sem segist nýlega hafa sjeð eldstólpa og reyk yfir miðj- um jöklinum. Gunnlaugur Blöndal málari, sem undanfarin ár hefir dvalið í París, hefur nýlega haft sýningu hjá Ferlow í Kaupmannahöfn og hlotið lof fyrir. Prestafundur fyrir austfirska presta var haldinn um miðjan þennan xnánuð á Eiðum. Norð- lenskir prestar halda fund á Akureyri 20. þ. m. Strand. Kolaskipið Algo strand- aði nýlega á Eyrarbakka og hef- ur ekki náðst út. Páll lögmaður Vídalín. 18. þ. m. voru tvær aldir liðnar síðan P. V. andaðist. Hann var einn af at- kvæðamestu og fjölhæfustu mönnum sinna tíma. íslensk-danska-nefndin heldur fundi í Kaupmannahöfn í sumar og eru ísl. fulltrúarair farair eða á förum. Skólamál Sunnlendinga. At- kvæðagreiðsla fór fram um það um leið og kosið var til þings. Með samskóla voru greidd 499 atkv., með sjerskóla 363, en 219 seðlar voru auðir. Síðustu erl. fregnir. Alvarlegar róstur eru þessa dagana í Vínar- borg. Hafa orðið þar götubardag- ar og fallið 150 manns, og alls- herjarverkfalli var lýst yfir og miklar viðsjár milli stjómarinnar og andstæðinga hennar. Óeirðim- ar spruttu af því, að kviðdómur sýknaði keisarasinna, sem skotið höfðu á samkomu lýðveldissinna og drepið tvo þeirra. I Frakk- landi hafa verið samþ. ný kosn- ingalög, og er landinu samkvæmt þeim skift í tóm einmennings- kjördæmi. I Kína eru ennþá sí- feldar róstur. Einn Islendingur hefur verið þar undanfarið, Ól. Ólafsson trúboði, sem nokkrum sinnum hefur skrifað í Lögrj. I ferðabrjefum í Vísi hefur hann lýst ferð sinni, eða flótta, um ófriðarsvæðið nú nýlega. Segir hann t. d. um útlendingahatrið þar, að algengt hafi það verið, að hrópað var á eftir þeim fjelög- um: Útlendu djöflar! Útlendu hundar! Niður með útlendingana! Niður með kristindóminn! Drep- um útlendingana. Prentsmiðjan Acta.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.