Lögrétta - 14.12.1927, Side 4
4
LÖGRJETTA
| Veðdeildarbrjef. I
MinifiiiiuimiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiMiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiHiiiii
Bankavaxtabrjef (veðdeildarbrjef) 7. g
flokks veðdeildar Landsbankans fást
keypt í Landsbankanum og útbúum
1 hans. I
Vextir af bankavaxtabrjefum þessa |
flokks eru 5%, er greiðast í tvennu
lagi, 2. janúar og 1. júli ár hvert.
Söluverð brjefanna er 89 krónur
fyrir 100 króna brjef að nafnverði.
Brjefin hljóða á 100 kr.f 500 kr.,
1000 kr. og 5000 kr.
Landsbanki Islands. |
ÍlllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllHlllllllllllllllllllllllllUlllllllllllllllllilllllllllllllUIIIIIUIIUIIIIIllllltlllilllllIiilV
og frá 1911—1922. Var hann i Tapast hefur grár hestur 8
síðast einn af landskjörnum þing- i vetra. Mark: Blaðstýft framan
inn fullur af fylgismönnum
þeirra, varðsveit með stafi í j
höndum og svo þjónustufólk |
þeirra.
Fram fyrir þessa samkomu var ;
Jesús leiddur með bundnar hend- !
I
ur. Annas prestur hafði sjeð fyr- I
ir nokkrum vitnum, sem þarna
voru viðstödd, ef á þyrfti að
halda. Rjettarhaldið hófst með
því, að þau voru kölluð fram. Tvö
af þeim sóru, að þau hefðu heyrt
Jesús segja: „Jeg megna, að
brjóta niður þetta musteri, sem
gert er af mannahöndum, og
reisa annað á þrem dögum, sem
ekki skal vera af mannahöndum
gert“.
Þessi framburður var á þeim
dögum og fyrir þessum rjetti
mjög alvarlegt ákæruefni. Orðin
voru brot gegn helgidóminum og
guðlast. Því musterið í Jerúsalem
var í augum þeirra, sem þar
rjeðu, friðhelg drottins borg, og
að tala ógnunarorð gegn því var
sama sem að tala ógnunarorð
gegn drotni sjálfum. En þessi orð
hafði Jesús aldrei sagt, að minsta
kosti ekki eins og þau voru nú
höfð eftir honum. Hann hafði
reyndar sagt, að svo mundi fara,
að ekki stæði steinn yfir steini
af musterisbyggingunni, en ekki
sagt, að hann ætlaði að eyði-
leggja það. Og orðin um muster-
ið, sem byggjast skyldi á þrem
dögum og ekki skyldi reist verða
af mannahöndum, voru tekin úr
annari ræðu, þar sem hann í lík-
ingum hafði talað um upprisu
sína. Hefði verið auðgert fyrir
Jesús, að hrinda þessum vitnis-
burðum og afsanna þá. En hann
þagði.
Æðsti presturinn reis þá upp
með þótta og mælti: „Svarar þú
ekki ? Heyrir þú ekki framburð
vitnanna ?“ En Jesús þagði.
Sókrates hjelt langa vamar-
ræðu áður en hann var dæmdur
af lífi. Og í lok ræðunnar minnir
hann dómarana á, að hann sje
gamall maður, sem brátt muni
deyja, þótt dauðadómurinn farist
fyrir í þetta sinn, og hann býð-
ur að lokum fjárgjöld fyrir að
mega halda heim til sín í friði.
En Kristur heldur enga vam-
arræðu; hjá honum er ekki um
neitt orðaskak nje málfærslu að
ræða. Hann fyrirlítur, eins og
engill Dantes, mannlegar rök-
semdir. Haxm svarar með þögn,
og sje hann neyddur til að tala,
er hann svo stuttorður sem
fremst má verða. Kaífas reiddist
þögn hans og fjekk hann loks til
að tala, er hann sagði: „Jeg
krefst þess í nafni hins lifandi
guðs, að þú segir okkur, hvort þú
ert Kristur, sonur guðs“. Jesús
svaraði: „Þótt jeg segðist vera
það, munduð þið ekki trúa og
þótt jeg legði fyrir ykkur spum-
ingar, munduð þið ekki svara“.
Þeir risu þá allir upp, rjettu
hendur gegn honum í reiði og
æptu: „Ertu Kristur, sonur
Guðs?“
Jesús vill ekki neita sannleik-
anum. „Það em þín orð“, svar-
aði hann. „En jeg segi ykkur, að
hjeðan í frá munuð þið sjá
mannsins son sitja við máttarins
hægri hönd og koma á himinsins
skýjum“.
Þeir, sem í kringum hann
stóðu, urðu æfir yfir þessu svari.
Jesús hafði nú sagt óvinum sín-
um það sama, sem hann hafði
áður trúað vinum sínum fyrir.
Kaífas var ánægður, þótt hann
ljeti ekki á því bera. Hann ljet j
sem hann fyltist heilagri vand- !
lætingu, reif klæði sín og mælti j
með ákafa: „Hann gerir gys að
guði! Þurfum við framar vitni?
Við höfum nú sjálfir heyrt það
af hans eigin munni. Hvað sýn-
ist ykkur?“ Og ráðið svaraði ein-
um munni: „Hann er dauða-sek-
ur“. Var svo rannsókninni lokið, j
og án þess að nokkurt orð væri !
sagt hinum ákærða til vamar var j
hann dæmdur til dauða sem fals- i
spámaður og guðníðingur.
Ráðssamkomunni var lokið og j
vofunum í hvítu kápunum fanst ;
sem ljett væri af sjer þungri
byrði.
• ----o----
heitir nýútkomin Ijóðabók eftir
Sigurjón Jónsson. Með fyrstu
bók sinni, sem heitir Öræfagróð-
ur og út kom fyrir rúmum átta
árum, sýndi hann ótvíræða hæfi-
leika til skáldskapar. 1 þeirri bók
eru æfintýri og ljóð. Síðan hefur
hann skrifað nokkrar skáldsögur,
sem minna kveður að og veru-
legir gallar eru á. En í þessari
bók eru ýms kvæði, sem draga
að sjer athygli, þrátt fyrir
nokkra galla. Lengsta kvæðið,
Guðaskifti, er víða smellið og vel
kveðið. 1 öðru lengsta kvæðinu,
Draugur, er efni líkt og í Móra,
yngstu sögu Einars H. Kvaran,
þ. e. dáinn drengur er að reyna
að gera vart við sig á fyrv. heim-
ili sínu, en tekst ekki. Hann vek-
ur ótta og skelfingu hjá heimil-
isfólkinu, og hann er atyrtur
og honum er formælt af gömlum
manni, sem er afi hans. Líkt er
efni í öðru kvæði, sem heitir
Tamning. Drengur bíður bana af
byltu af ótömdum fola, en ríður
honum síðan afturgenginn og
drekkir honum loks í pytti. Það
er þjóðsagnablær á báðum kvæð-
unum og fjör í frásögninni. Af
öðrum kvæðum má t. d. benda á
Draumadísina, og fleira er þar
vel kveðið. — Bókin er sjerlega
vel gefin út og vel þess verð, að
hún sje keypt.
Sjötugsafmæli átti í gær Guð-
jón Guðlaugsson fyrv. alþingis-
maður, einn af nýtustu mönnum
þessa lands. Hann var lengi fram
eftir æfinni bóndi, síðan forstjóri
verslunarfjelags bænda á Hólma-
vík, en fluttist hingað suður fyr-
! ir nokkrum árum, býr nú á Hlíð-
! arenda hjer sunnan við bæinn og
j hefur með dugnaði haldið þar á-
fram landræktun, sem stofnandi
býlisins, Jón Kristjánsson pró-
i fessor, byrjaði. Á alþingi mun
j Guöjón hafa setið lengst allra
núlifandi manna, frá 1893—1908
mönnum Heimastjómarflokksins,
en fór frá eftir 6 ára setu samkv.
hlutkesti. Á þingi ljet hann eink-
um landbúnaðarmálin til sín taka
og var forgangsmaður margra
löggjafarumbóta á því sviði með-
an hann sat á þingi. Eftir að
hann fluttist hingað suður var
hann um eitt skeið fórmaður
Búnaðarfjelags íslands, en síð-
ustu árin er hann gjaldkeri þess.
Æfiágrip hans, með mynd, er í
maíblaði óðins 1915. Hann er
einn af 12 stofnendum Lögrjettu,
og eru nú fjórir þeirra á lífi,
auk hans: Guðmundur Bjömson
landlæknir, Guttormur Vigfússon,
Jóhannes ólafsson og Magnús
Kristjánsson fjármálaráðherra.
Brennumenn heitir nýútkomin
skáldsaga eftir Guðmund G.
Hagalín, allstór bók, 304 bls., og
ræðir um baráttu milli verka-
manna og vinnuveitenda í kaup-
stað einum hjer á landi. Verð-
ur bókarinnar nánar getið síðar.
En Guðmundur er afkastamikill
og efnilegur rithöfundur, líkleg-
ur til að auðga bókmentir okkar
að góðum skáldsögum, ef hann
fær notið sín til fulls.
Aflasala ísl. botnvörpunga hef-
ur síðast verið þessi: Snorri
goði 1250 Isassa á 1427 pund,
Skúli fógeti, 1250 kassa á 1217
pund og Ari 1000 kassa á 1012
pund. Pundið er kr. 22.15.
Mannalát. 12. þ. m. andaðist
Sigurður ólafsson fyrv. sýslu-
maður í Kaldaðamesi, 72 ára
gamall, vinsæll maður og vel met-
inn.
11. þ. m. andaðist á heimili
sínu hjer í bænum J. L. Jensen-
Bjerg hóteleigandi, 48 ára gam-
all, dugnaðarmaður, sem lengi
hefur rekið hjer stóra vefnaðar-
vömverslun og jafnframt veit-
ingar og gistihús.
Rauðamelsölkeldu á innan-
skamms að fara að starfrækja
þannig, að tappa vatn úr henni á
flöskur og kúta í stórum stíl og
senda utan. Hafa ýmsir erlendir
sjerfræðingar rannsakað vatnið
hægra. Einkenni: Hvítur hófur á
vinstra afturfæti. Finnandi beð-
inn að gera aðvart
Jónasi Hjörleifssyni
í Drangshlíð.
j og telja það mjög heilsusamlegt,
i einkum gigtveiku og magaveiku
j fólki. ölkelduna kváðu nú eiga
! tveir Norðmenp, og er annar
þeirra staddur hjer núna.
óðinn hefur nýlega tekið 4 er-
lenda botnvörpunga í landhelgi
og vora allir sektaðir, samtals
um 50 þús. kr.
Dáinn er nýlega Ólafur hrepp-
stjóri á Fellsenda í Dalasýslu,
merkur maður.
Kristnisaga biskupsins, síðara
bindið, er nýkomið út, myndar-
legt rit og merkilegt og verður
nánar getið síðar.
Vígslubiskup nyrðra, í stað
Geirs sál. Sæmundssonar, er ný-
kjörinn Hálfdán prófastur Guð-
jónsson á Sauðárkróki.
í Laufásprestakalli er nýkjör-
inn prestur sr. Þorvarður Þormar.
ísienska listsýningin í Kaup-
mannahöfn var opnuð af konung-
inum 11. þ. m. Dönsk blöð láta
ágætlega af sýningunni. Listasafn
danska ríkisins hefur keypt fjór-
ar myndir, 2 eftir Jón Stefáns-
son og 1 eftir frú Kristínu Jóns-
dóttur og 1 eftir Júlíönu Sveins-
dóttur. Auk málverka er sýndur
trjeskurður og silfursmíði og
skautbúningur, m. a. búningur-
inn, sem drotningunni var gefinn.
Dáin er nýlega hjer í bænum
Pálína Helgadóttir, systir Einars
garðyrkjustjóra, ágætis kona.
Brúðarkjóllinn, saga Krist-
manns Guðmundssonar, hefur
fengið ágætar viðtökur í norsk-
um blöðum og er bráðlega von á
þýskri, hollenskri og finskri þýð-
ingu og ef til vill á enskri og
tjekkneskri, að sögn.
Veslingunum, næstsíðustu bók,
verður lokið um áramótin.
Prpntsmiðian Acta.