19. júní - 01.11.1919, Blaðsíða 3

19. júní - 01.11.1919, Blaðsíða 3
19. J Ú N I 35 til síns máls. Það er ekki enn þá gert svo mikið fyrir mæður komandi manna. En eru nokkur likindi til, að sá skóli verði stofnaður, er undir- búi til fulls undir það starf, sem verður hlutskifti svo margra kvenna: að vera móðir og leiðtogi? Ekki má hann steypa nemendur sina í sama mótinu, því hverju harni lientar silt. En margskonar fræðslu gæti hann veitt. Hjá oss vantar t. d. með öllu hverskonar fræðslu i meðferð ung- barna. Og almenn undirstöðu-atriði uppeldisfræði mætti eflaust kenna, en sú fræðigrein lærist víst aldrei til hlýtar á skólabekknum. En hitt að hlynna að þreyttu og uppgefnu mæðrunum, gera þeim kleift, að taka sér frí frá störfunum og áhyggjunum, ætti sannarlega að vera eitt hið fyrsta og sjálfsagðasta verk, ekki að eins kvennfélaga — heldur ætli meðal löggjata þjóðanna, að komast á sú slefna, að launa öllum sínum starfsmönnum vel, en þó mæðrunum hezt. Konur —- kjósendur. (Niöurl.) Nú eru fylkingar hinna eldri braut- rj'ðjenda þessa ináls farnar að þynn- ast. Fjöldinn, sem þær hörðust fyrir, gengur nú fyrirhafnarlaust inn í hið fyrirheitna landið. Þetta vekur engan fjálgleik hjá þeim. Þær verða eigi varar við alvöru skyldunnar. IJær eiga að eins eðlishvöt hjarðarinnar, að fylgja forustusauðnum. Og for- ustusauðirnir verða fyrst um sinn, og jafnvel lengi, karlmenn. Þelta er jafn eðlilegt og það, að á fyrri öldum voru hinar æðri stéttir einar um löggjöf landanna, vegna þess að alþýða manna var þá hvorki læs né skrif- andi. Þess mun verða langt að bíða, að konur, það er að segja allur þorri kvenna, þroskist til skilnings á stjórn- málum og áhuga á þeim í Iikum mæli og karlmenn. Pess vegna hefi eg bent á þýðingu fræðsluslarfsins, sem eg tel mjög nauðsynlegt, þó það sé að eins ytra skilyrði þess að kosningarréttur kvenna leiði í sann- leika til bóta. Aðaláherzluna verður að leggja á að þroska sálirnar. Hér verður að fara fram köllun, endurfæðing og helgun, sem styrkir konur í þeirri trú, sem flokksaginn hefir deylt, en sem oss nú, eftir hin síðustu fimm ár, ætti að vera ljóst, að er mann- lífinu, og þá ekki hvað síst stjórn- málalífinu, öllu öðru nauðsynlegra. Og á eg þar við trúna á hinn heilaga anda. Fegar sú trú er orðin að afli bæði í einka- og stjórnmálalífinu, hefst sú endurreisn mannkynsins sem er hug- sjón og draumur hinna hreinjörtuðu. Peiin konum, sem þegar eiga þessa trú, ber skylda til að mynda nýjan stjórnmálaflokk, ílokk hinna óháðu. Þið verðið fáliðaðar í fyrstu. En lát- ið það eigi aftra yður. Þessi flokkur má ekki verða griða- staður pólitískra vindhana. Eigi hæli fyrir liðhlaupara, jábræður og allra systur. Hann verður að marka sér Ijósa, ákveðna stefnu í þeim aðal-

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.