19. júní - 01.11.1919, Side 8

19. júní - 01.11.1919, Side 8
40 19. J Ú N 1 talið sig landssamband. í því eru nefni- lega félög, sem starfa í deildum víða um land, svo sem Kvennréttindalélag íslands og Hvítabandið. Að gefnu tilefni. Ritstjóra Kvennablaðsins hefir án efa þótt það með öllu ótilhlýðilegt að tvö kvennablöð skuli hafa starfað hér á landi í nokkuð á þriðja ár án þess að í illind- um lenti á milli þeirra. í alveg nýkomnu ágústblaði Kvennablaðsins eru þess Ijós merki að frúin hefir nú hugsað sér að það hneyksli skuli ekki viðgangast degi lengur. Því þar ritar hún af allmiklum móð andmæli við grein, sem fyrir rúm- um tveim mánuðum birtist i ágústblaði »19. júní«. Grein sú hafði eigi annað inni að lialda, en að skýrt var frá frumvörp- um þeim, er á siðasta þingi lágu fyrir, um breytingar á íslenzkri sifjalöggjöf, og var þess jafnframt óskað að þeim yrði eigi hraðað svo í gegnum þingið, að konur ættu eigi kost á að kynna sér þau og hafa auga á meðferð þeirra þar. Og í því sambandi lá það í hlutarins eðli, að bent væri á Kvenréttindafélagið sem réttan aðila, að taka að sér fræðslu um Iögin og sjá um að þau yrðu svo úr garði gerð að konur mættu sem bezt við una. En frú Bríetu finst það til langt of mikils mælst. Verður eigi annað sagt en að »par höggvi sá, er hlífa skgldia, er hún, kvenréttinda konan gamla og góða getur eigi viðurkent þessa nauðsyn, en í þess stað lætur sér sæma að reiðast slíkri til- lögu sem þessari, svo mjög, að hún eyðir mörgum orðum að því að gera höfundi greinarinnar upp þá hvöt, að greinin sé rituð til þess eins að spilla fyrir fram- gangi málsins og nauðsynlegum umbótum á þessu sviði. Eg get fullvissað frúna um það, að grein mín er ekki rituð eftir innblæstri frá neinum öðrum, sú tillaga sem þar kemur fram er að engu leyti frá Banda- lagi kvenna. Gelur hún því eigi með sannsýni beint reiði sinni yfir henni til annara en mín. Eg hafði strax og eg fékk frumvörpin til umsagnar, hugsað mér að ilt væri ef konur gætu eigi á neinn hátt fylgt gangi þeirra gegnum þingið. Ekki eingöngu af ótta við að frumvörpin yrðu samþykt óbreytt, hitt kom einnig til greina að eigi var óhugsandi að þingið gerði breytingar á þeim. Því var það að eg rit- aði grein þessa, og áður en hún færi frá mér í blaðið var eg svo heppin að eiga kost á að tala um þetta mál við þá konu er eg veit að á þessu sviði hefir mesta þekkingu íslenzkra kvenna, og auk þess er vel kunnug gangi málsins á Norður- löndum undanfarin ár, og styrkti það mig í að halda við þessa afstöðu til málsins. Fyrirverð eg mig ekkert fyrir það, og finn hvergi hjá mér neinn snefil af löng- un til að hregða fœti fgrir frumvörp pessi, enda býst eg tæplega við að neinn finni þá stefnu í grein minni, sem les hana án þess að vera fyrirfram úlbúinn með ágæt- an vilja, á að færa til verri vegar. Peir sem kunna að lesa báðar greinarnar geta sjálfir dæmt um i hverri fram kemur meiri umhyggja fyrir góðum lyktum þessa máls. Því ritstjóri Kvennablaðsins telur það engu máli skifta hvernig frumvörpum þessum farnist á Alþingi, að eins það geri »sína skgldun, en hún er eitt af fernu: »að láta þessi lagafrumvörp ganga sinn lögboðna gang gegn um þingið, taka þar þeim breytingum, sem nauðsynlegar kynnu að þykja, og síðan verða annaðhvort feld eða sampgkl.« í grein minni gat eg þess Kvenréttinda- félaginu til niaklegs lofs, að það hefði orðið til að ýta undir að endurskoðuð yrðu nokkur atriði sifjalöggjafar vorrar. Kemur það þá ekki fleirum en mér kyn- lega fyrir að formaður félagsins og blað það, er liklega.ber að skoða sem málgagn þess, skuli nú vilja láta málið svo alger- lega afskiftalaust? I. L. L. Ritstjóri: Inga L. Lárusdóttir. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.