19. júní - 01.04.1922, Page 2
í 9 . JÚ rt í
■74
í þarfir annara nytsamra fyrirtækja.
T. d. var hún stofnandi húsmæðra-
félagsins og formaður þess alla tíð.
I bæjarstjórn sat frú Jónassen árin
1908—1914.
Sú, sem þessar línur ritar, kyntist
frú þórunni Jónassen um það leýti
er konur fóru að vinna fyrir Lands-
spitalasjóðinn. Hún var fyrsti fulltrúi
félags sins í sjóðsnefndinni. Pað varð
hennar hiutverk að verða gjaldkeri
þess sjóðs, og því starfi gengdi hún
meðan æfin entist. Það var mikið
starf og erfitt, en frú Jónassen varð
það létt, og við hinar í sjóðsnefndinni
munum minnast hennar alla tíð, með
þakklæti og virðingu. Vér minnumst
hlýjunnar og samvinnu-þýðleikans,
ósérplægninnar og starfsviljans, sein
aldrei skoraðist undan, og þess, hve
gott var að vera í verki með henni.
Alls þessa minnumst við með Jiakk-
læti og söknuði.
Frú Fórunn Jónassen var einliver
allra mikilhæfasta kona þessa lands.
Við fr lail hennar höfum vér mist
mikið. Skarðið er vandfylt. Minningin
um hina göfugmannlegu ágætiskonu,
mun lengi lifa meðal þeirra, er áttu
því láni að fagna að kynnast henni
og vinna með lrenni, því
orðstir
deyr aldrigi
hveim sér góðan getr.
Landskjörið.
Lögum samkvæmt skal kosning
þriggja aðal- og jafnmargra vara-
þingmanna, sem kosnir eru með hlut-
fallskosningum um land alt, fara frarn
6 hvert ár. Var í fyrsta sinni kosið
á þennan hátt sumarið 1916. 1 það
sinn 6 til þingsetu og 6 til vara.
Helmingur þeirra var svo dregin út,
og skyldi fara frá að 6 árum liðn-
um, og skyldi þá kosið í þeirra stað.
Kosningarrétt hafa konur og karlar
35 ára og eldri, er að öðru leyti full-
nægja þeim skilyrðum, sem þurfa til
þess að hafa full borgaraleg réltindi.
Það er og ákveðið í lögunum að
kosningin skuli fara fram 1. júlí.
Listar þurfa vera komnir til lands-
kjörsljórnar 8 vikum fyrir kjördag.
Meðmælendur með listum skulu vera
170 og skulu J>ar af 60 vera úr hinu
forna Suðuramli, 30 úr Austuramti og
40 úr Norður- og Vesturamti, hvoru
um sig.
Fað er því allmikill undirbúningur,
sem til þess þarf að selja upp lands-
kjörslisla. Sá listi þarf að eiga góð
ítök og sluðningsmenn í ölluin lands-
hlulurn. I’að mun þó veitast auðvelt
stjórnmálaflokkunum, sem fylgismenn
eiga um land alt og bundnir eru
samtökum, hafa sín þingmannaefni
vís, og æfinguna í að setja upp lista
og koma fram við kosningar.
Erfiðara verður starfið þeim, sem
byrjendur eru, svo sem vér erum,
konurnar. Samt hafa konur ráðisl í
það stórvirki, að koma fram með
sérstakan kvennalista nú við lands-