19. júní - 01.07.1924, Blaðsíða 4
52
19. J Ú N 1
tekið af jafnaðarmanni. En í jafnað-
armenskunni hefir frú Bang fundið
þá hainingju að verða ráðherra, og
er hún vel að henni komin, þvi bæði
hefir hún mikla þekkingu til að bera
og á að baki sér langl og mikið
starf í þarfir þess flokks, er geit hefir
hana að ráðherra.
2. Miss Margaret Bondfleld
er ein af ensku konunum, sem á
þing voru kosnar. Tilheyrir hún
verkmannaflokknum, en eftir síðuslu
kosningar myndaði sá flokkur stjórn.
Er hún ein af þektustu konum
flokksins og lærðasti sérfræðingur
Englands, í öllu er snertir atvinnu-
mál. Þótti mörgum sem hún væri
sjálfkjörin til að verða atvinnumála-
ráðherra. En er stjórnin var skipuð,
var Margaret Bondfield gerð að undir-
ráðherra — Secretary of the State —
eru þeir einskonar aðstoðarmenn ráð-
herranna, en eiga eigi sæti i stjórn-
inni. Miss Bondfield getur að vísu,
með þekkingu sinni, haft talsvert að
segja í stjórninni, en leitt er að enn
skuli hleypidómunum ekki vera lengra
úr vegi hrundið, en að kona gjaldi
þess að hún er kvenmaður, þegar um
einhverja þá stöðu er að ræða, sem
ábyrgð og veglylla fylgir.
Á ekkert eru menn jafn fastheldnir og
lífið, þó er ekkert, sem menn fara jafn
gálauslega með.
f huga hins þröngsýna er jafnan rúm-
gott fyrir hleypidóma.
Samnel Smiles.
Dánarfregnir.
i'rú Vulg’erðiir Lárnsilóttir Briem and-
aðist 28. aprít að hcimili sínu á Akrancsi.
Hafði hún lengi átt við vanhcilsu að búa.
Frú Valgcrður var framúrskarandi gáfuð
kona, listnæm og söngelsk. Var hún á-
hugasöm í þeim efnum, og mun vart hafa
verið meira en tvítug, er hún stjórnaði
hér stóru söngfelagi, er oft skemti bæjar-
búum á þeim árum. Um tíma stundaöi
hún nám við hljómlistaskólann í Kaup-
mannahöfn, en varð að liætta vegna veik-
inda. F’ékk þó heilsu aftur og giftist síra
Þorsteini Briem, var heimili þeirra fyrst
norður i Eyjaíirði, síðan að Mosfelli í
Grímsnesi og síðast á Akranesi. Þau eiga
á lífi 4 dætur allar í bernsku. Vanheilsan
skifti síðustu æfi-árum frú Valgerðar milli
heimilisins og sjúkrahúsvista. En hvort
sem hana var að hitta heima eða heiman,
hressa eða sjúka, var viðmótið jafnan
glaðlegt og ástúðlegt, enda gat enginn
sem kyntist henni annað en unnað henni.
Frú Valgerður var skáldmælt vel, og í
Ijóðum hennar kom fram hið sama og í
öllu lífi liennar, heit og einlæg trúrækni
og góðvild til allra, er hún náði til.
Frú Angusta Svenilsen einn af merkustu
borgurum þessa bæjar er nýlega látin,
háöldruð, 88 ára. Frú Svendsen rak lengi
verslun hér í bæ og var að líkindum lang-
fyrsta konan, sem lagði það starf fyrir sig.
Verslun frú Svendsen var góðkunn um
alt land fyrir vandaðar vörur og vönduð
viðskifti. Frú Svendsen var dugnaðar- og
þrekkona, vinföst og trj'gglynd — heiðurs-
kona í orðsins fylsla skilningi. X.
Kaupendur! Lálið afgreiðsl-
una vita um ef breyting verð-
ur á utanáskrift yðar.