Njörður - 06.02.1917, Page 1
jg ff
1 Verð hvers ársfjórð- ;
1 ungs (15 blöðj kr. 0,75 :
I er greiðist fyrirfram. :
j Erlendis 4 kr. árg. ;
%ii|h|ii|iiiii|ii|ii|i!|iiii!|ii|!ii:i|ii|iiiiiiii|i!|:iiiii:iiiiiiiiii|mIiiiii|i:ii:|ii|!:íi
j Komur vanalega út :
1 einu sinni i viku og | '
I aukablöð við og við. ;
: Alls 60 blöð á ári. j
l l l llll M i i i i i i iMiiiiiir
+3 Ritstjóri: síra Cruðiu. Gruðmundsson.
II. ÁRGr.
ísafjörður, 6. febrúar 1917.
M ö.
Nokkrar duglegar stúlkur,
vanar fiskiverkun,
geta fengið góða atvinnu í Reykjavík þangað til síldarveiði byrjar
(snemma í júlí). Þurfa að fara suður með s/s „Gullfossiu eða s/s
„íslandi“ næstu ferð.
JLcfaot lcjör i boði.
Nánari upptysingar lijá
Ingvari Yigfússyni. biikksmið
Tangagötu 20.
BúnaOarsamband
Vestfjarða.
Stofnun þess.
Þann 8. maimánaðar 1907 var
Sambandið stofnað. Höfðu þing-
menn Yestfjarða gengist fyrir því
ásamt Guðjóni Guðmundssyni bú-
fræðing. Hafði bann víst hugsað
talsvert um það mál ogferðast nokk-
uð um Vestfirði til að undir búa
stofnum Sambandsins. Einnig
samdi hann frv. til laga fyrirþað.
Hann ætlaðist til þess, að bún-
aðarfólög yrðu stofnuð í hverjum
hreppi á Yestfjörðum, þar sem þau
eigi áður voru komin á fót og öll
skyldu þau mynda Sambandið, vera
í því og senda fulltrúa á fundi þess.
Þessir fulltrúar skyldu einir, á-
samt stjórn Sambandsins, hafa at-
kvæðisrótt á fundum, en aðrir
fólagar aðeins málfrelsi og tillögu-
rótt. Þetta var mjög vel til fallið,
því með þessu var Sambandið fal-
Íð forsjá búnaðarfélaganna og þeim
gefin hvöt til að annast það sem
best, og haga starfsemi þess eins
■og helst þótti henta.
Hluttaka manna i stofnun Sam-
bandsins var allgóð.
Á stofnfundinum mættu fulltrú-
ar 19 búnaðarfélaga. Af þeim voru
úr Austur-Barðastrandarsýslu . 4
— Vestur-Barðastrandarsýslu . 3
— Vestur-lsafjarðarsýslu . . 4
— Norður-ísafjarðarsýslu . . 4
— Strandasýslu.............4
Fyrir utan- fulltrúana mættu
ýmsir nafnkendir menn, t. d. þm.
Strandamanna, Guðjón Guðlaugs-
son, þm. Norður-Isfirðinga, síra
Sigurður Stefánsson, Guðjón Guð-
mundsson, sem fyr er nefndur og
fl. og fl.
í frumvarpi til laga fyrir Sam-
bandið var gjört ráð fyrir, að setja
á stofn eina aðalgróðrarstöð á Vest-
fjörðum og síðar aðrar smærri á
víð og dreif um sambandssvæðið.
Þetta hefur sennilega verið gjört
með hliðsjón af því, sem á var
komið í öðrum landshlutum.
Það hef ég fyrir satt, að eigi
hafi öllum fundarmönuum litist
ráðlegt að stofna þessa aðal-gróðr-
arstöð, en vist er hitt, að ágrein-
ingur reis um það, hvar hún ætti
að vera.
Ofan á varð að setja liana hér
á ísafjörð.
Fyrsta yflrsjónin.
Það var án efa yfirsjón, að efna
til þessarar aðalgróðrarstöðvar, þeg-
ar af þeirri ástæðu, að hún hlact
að verða of þung byrði á Sam-
bandinu, svo mestur hluti af fó
þess gengi til hennar, en lítið yrði
eftir til annara framkvæmda.
Þar að auki mátti sjá, að henn-
ar var lítil þörf, enda hæpið að
hún kæmi að nokkrum verulegum
notum, þó hún yrði í sæmilegu
lagi.
Veðurátt og jarðvegur er svo
ólíkt á Vestfjörðum, að reynsla
manna við gróðrarstöðvar á Suð-
urlandi og Norðurlandi, er engu
siður leiðbeinandi, en tilraunir þær
sem gjörðar væru hór á Isafirði.
Voru því í upphafi sterkar lík-
ur til þess, að ekki mundi svara
kostnaði, að hafa slíka gróðrarstöð
í samanburði við að styrkja áhuga-
sama menn í sem flestum hrepp-
um á sambandssvæðinu til mat-
jurtaræktar.
Slíkur styrkur mundi eflaust
liafa orðið mörgum að góðu gagni.
Á ég þar ekki eingöngu við þá,
sem lians nytu, heldur einnig við
ý komið beint frá Ameriku:
Margar teg. af á v ö x t u m ,
þurkuðum og niðursoðnum; sömu-
leiðis Sardinur og Lax. Steikt
nautakjöt og m. fl.
Alt mjög ódýrt.
Versl. G. Jónasson.
þá uppörfun, sem nágrönnum væri
að starfi þeirra þar sem sæmilega
gengi. Mundi það hafa fest hugi
manna við Sambandið og laðað
búnaðarfélögin til að styðja það
og efla.
Stofnun Gróðrarstöðvarinnar
varð þar á móti til þess, að gjöra
sum búnaðarfélög fráliverf Sam-
bandinu og einnig marga menn
aðra.
Þótti þeim vonlaust, að hún yrði
til almennra nytja, í hæsta lapi
stássgripur fyrir Isafjörð, ofvaxinn
fjárafla Sambandsins og líklegur
til að draga huga stjórnarinnar um
of frá þvi, sem gagnlegra væri
fyrir Vestfirði. ,
Nú hafa menn fyrir sér 10 ára
reynslu og hún mun i margra aug-
urn skýr vottur þess, að Gróðrar-
stöðin væri betur óstofnuð.
Ekki ein bára stök.
Ef þessir menn hafa rétt fyrir
sór, má segja að ekki var ein bára
stök hjá Sambandinu.
Áður langt leið var lögum þess
breytt svo, að allir félagar fengu
atkvæðisrétt á fundum þess.