Alþýðublaðið - 22.09.1963, Blaðsíða 9
dæmt í ákvæði Sþ frá 11. -des.'
1946. Er þess krafizt í tillögu
Mongólíu, aS Allsherjarþingið
lýsi yfir vanþóknun sinni á að-
gerðum íraksstjórnar gegn Kúrd
um og krefjist þess, að hernaðarað
gerðum verði hætt og íraska
stjórnin taki upp samninga við
leiðtoga Kúrda um þjóðernisleg
réttindi þeirra.
★ NAPAL-SPRENGJUE
Hvort sem raunverulegur áliugi
fyrir hag Kúrda liggur að bakí
tíllögu Mongób'u eða ekki, þá er
tillagan sanngjörn og fyllilega
réttmæt, því að meðferð íraska
hersins á Kúrdum, síðan upp-
reisnin hófst fyrir rúmum tveim
árum og getur fyllilega talizt
þjóðarmorð. Hernaður íraka hefur
t.d. aðallega beinzt að óbreyttum
borgurum hvað bannað er í Genf
arsamningnum frá 1948 um al-
þjóðalög í hernaði, þeir hafa drep-
ið þúsundir óbreyttra borgara
með eldsprengjum af napal-gerð'
og enn fleiri þúsundir manna hafa
særzt og það í landi þar sem læknis
hjálp og lyf eru nær ófáanleg. Þá
hefur Alþjóða Rauða krossinum
verið meinað leyfis hvað eftir
annað til að hjúkra særðum, ó-
breyttum borgurum eins og hon
um ber heimild til að alþjóðalög-
um. Þá má í þessu sambandi einn
ig geta þess, að bæði Tyrkland og
íran hafa neitað sömu stofnun um
leyfi tii að fara með hjúkrunar-
sveitir eða senda lyf inn í Kúrd-
istan í gegnum lönd þeirra.
★ OFBOÐSLEG HRYÐJUVERK
Aldrei hafa aðfarir íraska hers-
ins verið grimmúðlegri en undan-
farna þrjá mánuði. Hver Kúrdi,
sem veitir uppréisnarmönnum
einhverja aðstoð, er réttdræpur
og þýðir það í reynd, að hernum
er leyft að skjóta óbréytta borg
ara að vild. Fré|tamönnum er
sem fyrr algerlega meinað að
koma til Kúrdistan þótt tveim.
hafi reyndar tekizt það síðan bor.g
arastyrjöldin hófst á ný. Skýra
þeir t.d. frá því, að stjórnarherinn
hafa tekið upp þann sið að deyða
heil landssvæði umhverfis þæír
Kúrdaborgir sem’ þeir hafa enn á
valdi sínu. Er þá öll byggð og
gróður á 10-30 km svæði utan við
borgirnar lögð í rúst með skrið-
drekum og jarðýtum og íbúarnir
reknir á brott eða jafnvel drepnir
Nokkrir vestrænir kristniboða,
sem yfirgáfu Kúrdistan fyrir
'ékömmu, skýrðu t.d. frá því í
London fyrir nokkrum dögum, að
þeir urðu vitni að því, er íraski
herinn umkringdi nokkur kúrdísk
þorp, méinuðu íbúunum flótta
með brugðnum ýélbyssum og lét
síðan flugvélar og stórskotalið
leggja þorpin í rúst, hús fyrir hús
unz allir voru drepnir og þorpin
öll jöfnuð við jörðu. Það er ekki
að ástæðulausu, að aðförum ír-
aks hefur verið líkt við. hryðju-
ygrk nazista.
★ EINROMA SAMÚÐ
Af ástæðum, sem ég hef
tilgreint, er euns ekki vitað um
afstöðu Vesturveldanna til tillögu
Mongólíu á Allsherjarþinginu.
Hins vegar gætir nær einróma
samúðar í blöðum Evrópu, og þá
auðvitað kommúnistaríkjanna líka.
í garð Kúrda. Stærstu og áhrifa-
mestu blöð V.-Þýzkalands og
Frakklands „Die Welt“, „Frank
furt Aegemeine“ og „Le Monde“
!hafa t d. öll lýst yfir fullum stuðn
ingi sínum við málstað Kúrda og
farið hörðum nrðum um stefnu
íraksstjórnar gagnvart þeim.
Engir munu biða komandi
herjarþings méð jafnmikilli eft
irvæntingu og Kúrdar í írak og
engir binda jafnmiklar vonír við
að Sþ komi þeim til hjálpar í
hörmungum þeirra og bægi á broit
ofstæki og grimmd þeirra hernað
ársinna og þess liðsforingjaskríls,
sém hefur nú öll völd í sínni
héndi í írak.
★ SKVLDA ÍSLANDS
Mál Kúrda á Allsherjarþinginu
verður einnig prófsteinn þess,
hvort sum ríki meti meira
tíska hagsmuni meðal stjórnmála
legra vanþroska rikja eða mann
’réttindi og alþjóðalög.
Vonandi gera fulltrúar íslend
inga á Allsherjarþinginu þá sjálf
sögðu skyldu sína við málstað
frelsis og mannúðar, að veita
Kúrdum allan þann heilshugar
stuðning, sem þeir geta, annað
hvort með því að styðja tillögu
Mongólíu eða hverja þá aðra til
lögu, sem fram kann að koma í
sama anda. Við höfum áður á
þingi Sþ stutt þjóðir, sem barizt
hafa fyrir xéttindum sínum og
■sjálfstæði. Vart mun nokkru
-sinni hafa verið ríkari ástæða til
að halda þeirri stefnu en emmítt
nú.
WWWWMWWWMWWVMWWMWWWWMMWWW'WIWtMWWUIWIWMWWWWWWWWWWWW^
FJOLBREYTT STARF
MÆDRASTYRKSN EFN D AR
rætt við frú Jónínu Guðmundsdóttur, sem veitir
sumardvalarheimtli nefndarinnar forstöðu
Starfsemi Mæðrastyrksnefnd
ar hefur eins og endranær ver
ið mikil í suniar. í Hlaðgerðar-
koti, mæðraheimilinu í Mos-
fellssveit, sem er 400 ferm. hús
með 16 herbergjum, hafa dval-
ið 47 mæðnr með 120 börn.
Fólkinu var skipt í fjóra hópa,
sem dvöldu þar í 15-16 daga
hver. Síðustu dagana var sælu
vikan haldin, 30 ágúst til 7.
sept. Þá voru 25 eldri konur á
heimilinu. Frú Jónína Guð-
mundsdóttir er forstöðukona
heimilisins og auk þess formað
ur Mæðrastyrksnefndar. V ð
ræddum við hana í gær um
starfsemina í sumar og tun
starf nefndarinnar í heild.
„Hvað er helzt að segja um
starfsemina í sumar?“
„Það er allt gott. Konurnar
og börnin virtust vera mjög á-
nægð með dvölina í Mosfells-
sveit. Hér var um að ræða frá-
skiTdar, giftar og einstaka mæð
ur. Til okkar hefur komið
margt þjakað fólk, sem stund-
um virðist vera alveg hjálpar-
vana. Á sumardvalarheimilinu
fær þetta fólk að njóta sin. —
Þannig er það með lífið, margt
má gera úr fólki, ef leitað er
að góðum kostum þess.
„Hvernig líkar þér að ann
ast sumardvatirnar?“
„Mjög vel. Ánægjulegasta
starf sem ég get hugsað mér,
er að sjá um fullorðnu konuru-
ar á sæluvikunni Margar þeirra
eru alttaf einar og þær hlakka
mikið tll sæluvikunnar á ári
hverju. Konurnar geta gert sér
margt til skemmtunar upp frá
og við aðstoðum þær eftir
beztu getu.‘!‘
Þess má geta að sumarstarf-
semi mæðrastyrksnefndar hef-
ur verið rekin í 33 ár í skólum
og öðru húsnæði viðsvegar um
SI. átta ár hefur hún
fram í elgin búsnæði, i
Hlaðgerðarkoti.
„Má búast við einhverri
breytingu á rekstri Hlaðgerðar
kots?“ .
„Mjög liklegt er, að það
verði rekið sem orlofsheimili.
— Hverjir eiga betur skilið
en fátæka fólkið að fá orlof?“
Starf Mæðrastyrksnefndar
er þrískipt. Ffú Auður Auðuns,
lögfræðingur annast lögfræði-
legu hliðina. Hún er til viðtals
kl. 2-4 á mánudögum. Skrifstof
an er opin á degi hverjum kl.
2-4 og geta mæður þá borið upp
vandræði sin. í þriðja lagi hef
ur nefndin mæðrablómið, sem
selt er á mæðradaginn og ann-
ast jólasöfnun.
„Var mikill. ágóði á síðasta
mæðradegi?" ý' V
„Á mæðradeginum fengum
við inn 130 þús. kr„ en um jól-
in 260 þús. og áiíka mikið í
fata- og matargjöfum. Jólapen-
ingunum var eytt í gjafir til
um 700 heimila. 250 gamlar
konur, um 250 einhleypar mæð
ur og um 60 heimili með 9-13
börn voru styrkt með pening-
um þessum. Það ber þó oft við,
að fátækasta fólkið gefur sig
ekki fram, og erum við mjög
þakklát að fá að vita um fólk
sem á það bágt."
„Hverjir styrkja ykkur helzt?
„Fyrir jóRn fáum við stór-
gjafif frá ýmsum fyrirtækjum
hér í bæ. Auk þess koma oft
börn foreldra, sem verið hafa
styrkt frá okkur, hingað með
gjafír. Þau láta þannig í ljós
þakklæti sitt fyrir velgerðirn
ar.“
„Hverju er helzt ábótavant
hjá ykkur?“
„Það er svo margt. Sérstak-
lega þurfum við að koma upp
saumastofu, þar sem víð getum
lagfært föt, sem okkur berast.
Fólkið er ekki alltaf fært um
að gera við sjálft og fara fótin
því þá ekki vel.
„Með hvers konar vandræoi
hefur aðallega verið leitað til
ykkar í sumar?“
„I sumar hefur verið með
minna móti leitað til okkar. í
sambandi við fjárhagslegan
styrk. Mest hefur borið á að
fólk hefur verið í vandræðum
að koma börnum fyrir á dag-
heimilum og vöggustofum. Svo
virðist húsnæðisvandamálið
vera alveg gífurlegt. Við get-
um lítið hjálpað þessu fólki,
getum helzt leiðbeint því, hvert
sé bezt að leita. Samvinna okk
ar við bæinn heppnast oft
furðuvel, og veitir hann þessu
fólki aðstoð.“
„Hvað telur þú valda hús-
næðisieysinu?"
„Ég skiT ekki, hvernig svona
getur komið fyrir. Nú er flest
fólkið á götunni, vegna þess
að það getur ekki borgað fyrir-
fram. Húsnæðið er svo dýrf
að það er ekki á allra færi að
greiða þann kostnáð.“
Að lokum þakkar Jónína öil
um Rejkvíkingum fyrir mik’a
aðstoð og séirstaklega vinum
sínum, sem hafa styrkt ■sum r
starfið, svo það varð eins mynd
arlegt og raun bar vitni um.
s, sem er mjög fjallent, og er það
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. sept. 1963 «)