Norðri - 28.04.1908, Blaðsíða 1

Norðri - 28.04.1908, Blaðsíða 1
III. 17. Akureyri, þriðjudaginn 28. apríl. 1908. Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10—2, 4—7 Ritsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e. h. helga daga 8—11 og 4—6 Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og laugard. 5—8. Sunnudögum 10—11 og 4—8. Pósthúsið 9—2 og 4—7. Utbú Islandsbanka 11—2 Utbú Landsbankans 11—12. Stúkan Akureyri fundad. þriðjud.kv. kl. 8. Brynja miðvikudagskvöld kl. 8. Isafold Fjallkonan sunnudagskv. kl. 4. Trúföst mánudagskv. kl. 8. Vorið er komið! BLÓMSTURPOTTAR margar teg, SKRAUTSKÁLAR nm blómsturpotta, er e-k-k-i hafa fengist héráður. GARDINUTAU mjög óciýrt, niargar teg. og margt, margt fallegt fleira nýkomið í ,.Verzlunin Akureyri“ Matvara og allskonar nauðsynjavara nýkomin í „Verzlunin Akureyri“ Seld mjög ódýrt gegti peningum. A ðflu tningsbann. ii. Sú var tíðin í mörgum löndum og er enn þá á Rúslandi og Tyrklandi og öðrum illa siðuðum eða ósiðunum ríkj- um, að vart var eða er unt að áð hreyfa s'g án þess að brjóta boð eða bann laganna. »pý skalt» eða «þú skalt ekki« kvað við úr öllum áttum, hvort sem mönnum kom til hugar að láta þetta ógert eða gera hitt. Menn voru settir í gapastokk, ef að þeir vanræktu kirkju- göngur og fleygt í fangelsi, ef að þeir létu í Ijósi skoðun sína á þeim hlutum, er taldir voru að heyra Guðsríki eða jarðneskri pólitík til. Og væri þessi skoðun allólík þeim kenningum, er þá VOru taldar heilagur sannleikur, lá kvala- full dauðahegning við því að láta hana í Ijós. Hvergi hefir þessi pólitík fest dýpri rætur né þifist betur en í skauti hinn- ar kristnu kirkju, er allra trúarbragða og kenninga mest hefir |agt áherzlu á kærleika til náungans og jafnvel sett hann í hásæti við hliðina á því boði, elska drottinn guð sinn af öllu hjarta s,nu> sem talið er hið æðsta og helzta boðorð. Engum sögufróðum manni kemur nú til hugar að neita því, að höfuðorsök alls miðaldaófrelsisins hafi verið um- hyggja guðsmanna, keisara og konunga fyrir andlegri og líkamlegri velferð safn- aða og þegna. «Kærleikinn til náungans» knúði þá til þess að kvelja lífið úr ná- unganum á þann allra hryllilegasta hátt, er hugvitsmönnum þeirra tíma lánaðist að finna upp. Af sömu orsök var mönn- um bannað að lmgsa og tala, og boð- ið að trúa þessu eða hinu, hvort sem þeir gátu það eða ekki. Nú er öllum menningarþjóðum orð- ið það fyllilega Ijóst fyrir löngu síðan, að þetta er hið mesta og skaðlegasta gönuskeið, sem mannkynið hefir nokk- urn tíma tekið á framþróunarbraut sinni og að «sannleika guðs» hefir aldrei ver- ið breytt í meiri lýgi en á þeim tímum, er þessar kenningar réðu lögum og lofum. En hvað kemur alt þetta aðflutnings- banni áfengis við? Eg geri naumast ráð fyrir að for- kólfar aðflutningsbannsins muni spyrja þannig, því að þá er þeim ekki fylli- lega ljóst, hvað þeir eru að gera. En til þess að spara þeim það, ef að einhverjum þeirra kynni að verða það á að öðrum kosti, ætla eg að svara þeim strax. Þeir aðhyllast sömu barnfóstrupólitík- ina og löggjafar miðaldanna. Af »kær- leika til náungans» og «umhyggju fyrir velferð hans», vilja þeir beita þvingun- arlögum til þess að sporna við því að menn geti farið sér að voða. Reir ætla að taka hið sama gönuskeið og áður hefir leitt til hins mesta ófarn- aðar fyrir lönd og lýði. Og þeir hafa miklu minni afsökun en hinir fyrri siðameistarar. Reir sjá dæmin fyrir sér en láta sér þó ekki segjast. Því meiri menningarþroska sem þjóðirnar ná, því skaðlegri er slík lög- gjöf. Og því meiri samgöngur og Vlðskifti sem eru á milli þjóða og landa, því skaðlegri eru slík lög í einu landinu, þegar þau eru ekki í öðru. Margir ungir íslendingar, er til út- landa hafa farið, einkum stúdentar hafa brotið bát sinn sakir sjálfræðis síns og komist á glapstigu sakir þess, að þeir hafa ekki kunnað fótum sínum forráð. Rar hafa þeir leikið lausum hala, án handleiðslu foreldra eða annrra vanda- manna og mörgum þeim, er mest hafa notið handleiðslunnar heima fyrir, hefir verið hættast við falli. Islenzka þjóðin hefir mist marga og efnilega nienn á þenna hátt. Samkvæmt barnfóstrupólitík aðflutu- ingsbannsmanna ætti að banna öllum ungum mönnum með lögum að fara utan, nema þá undir sérstakri umsjón og handleiðslu einhverra sálusorgara og og siðameistara. Er forkólfum aðflutningsbannsins eigi fullljóst, að sú hætta, er yfir vofir ung- um mönnum, er utan fara, hlýtur að aukast við aðflutningsbannið. Því minni greinarmun, sem menn þekkja góðs og ilís, því hættara er þeim við að komast á glapstigu.— — Eg er satnþykkur forkólfum aðflutn- ingsbannsmanna um það atriði, að á- fengistollurinn sé engin meginástæða gegn aðflutningsbanni. En tíma og fyrirhyggju þarf til þess að hrinda þeim þröskuldi úr vegi á þann þátt, að vel megi við una. B. L. • •*•*■*.. - Svar til Bjarnar Jóhannssonar. Það ætlar að verða fleira en eitt, sem mér finst athugavert í 7. tölublaði Norðra þ. á. Fyrir stuttu síðan bað eg um orðið sökum þess er Bogi Th. Melsteð skrifaði í nefndu blaði. Nú sé eg að herra Björn Jóhannsson hefir í grein sinni í sama tölublaði beint einu skeyti sínu í þá áttina, þar sem líklegt mætti þykja að eg ætti með skjöldinn að standa, og þykir mér því lítilmannlegt að reisa ekki upp röndina. B. J. segir svo: «Hér á landi er þó eitthvað, sem heitir Sambandskaupfélag. En til þess heyrist ekkert, ekki einu sinni stuna eða hósti.» Satt er það, að Sambandskaupfélagið hefir lítið látið til sín heyra í blöðun- um; þó flutti »Norðurland« útdrátt úr aðalfundargerð þess fyrra ár. En fé- lagið hefir gert þetta á annan hátt, sem það taldi betur við eiga. Rað hefir skrifa) deildum sambandsins um ýms sameiginleg mál, og að öðru leyti í tímariti sínu, rætt mörg sameiginleg mál, þó ekki hafi það verið gert með stun- um og hósta. Vona eg að B. J. sker- ist eigi úr leik að lesa ritið, og getur hann þá betur um þetta mál dæmt. Félagið hefir á síðastliðnu ári haft mikil afskifti af kjötsölu sambandsdeildanna og mun, að líkindum, láta sauðfjárverzl- un deildanna vera aðalmál sitt á þessu ári, en sinna þó jafnframt hverju því verkefni, sem deildir sambandsins kunna að fá stjórn þess í hendur, en þau verk- efni hafa hingað til alt of fá verið. Af því sem B. J. segir. rétt á undan hinum til greindu orðum hans. skilst mér að hann hafi gert sér þær vonir, að Sambandskaupfélagið mundi »í nán- ustu framtíð . . . reyna með samtökum og viturri aðferð, að gera vörurnar út- gengilegar og halda þeim íveröi.» Pað er nú einmitt þetta, sem Samandskaup- félagið hefir verið að reyna og mun reyna framvegis, ef deildir sambandsins aðhyllast það. Eg tek því orð B. J. eiginlega sem lö^eggjan, og þannig skil- in eru þau góð og velkomin. En því megum vér B. J. eigi gleyma, sem fé- lagsmenn, að eigi .félaginu að verða nokkuð verulega ágengt í þessu máli, mega liðsmennirnir eigi standa dreifðir og aðgerðalitlir, heldur fylkja sér fast undir sama merki. Sé þessa atriðis eigi vandlega gætt, mun hið sama koma í Ijós og á dög- um hins herkæna Rómverja, að það þykir eigi óvænlegt að geta unnið sig- ur á hernum höfuðlausa og hershöfð- ingjunum liðlausu. 18. apríl 1908. Sigurður Jónsson (varaframkvæmdarstjóri Sambandskaupfélagsins.) Heill og sæll Norðri! Eg er ánægður við þig fyrir að þú gerðir þér að góðu molana hina smáu, er eg sendi þér um daginn, og eins er eg ánægður við húsbónda þinn fyr- ir það að hann hefir reynt að brjóta, að minsta kosti suma molana til mergj- ar. En nú langar mig til að losa en betur um kjarnann, sem hósbóndi þinn er að krunka í kring um, en sýnist þó varla þora að snerta við. Jafnframt vil eg svara nokkru af því, sem ritstjóriun hefir að mínu áliti ranglega sagt, og beinist ýmist að mér eða íslenzkri al- þýðu yfir höfuð. Rá er fyrst að minnast lítillega á þá aðferð hans, að byrja blaðið með því að svara grein, er síðar stendur í því. Petta gerir mér að vísu ekkert til. En eg veit ekki betur, en að það sé al- mennur siður kurteisra ritstjóra með aðsendar greinar, er þeir birta í blöð- um sínum, að láta prenta þær fyrst en síðan athugasemdir sínar og andsvör. Petta virðist líka í alla staði eðlilegra og mun þægilegra fyrir lesendurna, nema ef ritstjórarnir ætlast til að blöð þeirra séu lesin aftur á bak.1) Allur fyrri hluti greinarinnar »Embæt't- ismenn« í 7. og 8. blaði Norðra er þannig að hann þarfnast ailsengra svara, enda varla þess verður; hann er ekki antiað en algerlega órökstuddar getsak- ir til alþýðu. Höf gerir alþýðu upp ýmsar hugsanir og skoðanir, sem ekki ná nokkurri átt.2) Hvenær hefi eg eða nokkur annar alþýðumaður látið- þá skoðun í ljósi, að allir embættismenn undantekningarlaust séu ómagar, og letingjar og að þeir ættu alls ekki að veratil?3) Hvaða leyfi hefir B. L, til að gefa svona fjarstæður út, sem skoðun megin þorra alþýðu? Eg segi óhikað ekkert nema sitt eigið bessaleyfi. Hann þykist tala fyrir munn alþýðu, en gerir ekki annað en með fremur ruddalegri aðferð að reyna að sverta málstað hennar (o. alþýðunnar). Höf. hefði algerlega átt að spara sér 1) Til þess að reyna að komast hjá því að styggja hinn heiðraða greinarhöfund nieira en orðið er, ætta eg að Iáta mér nægja að gera stuttar neðanmálsathugasenidir við þessa löngu grein hans, og láta prenta þær með smáletri, fyrir kurteisissakir. Honum til fróðleiks vil eg geta þess, að það er föst regla flestra blaða að birta allar ritstjórn- argreinar á sömu síðu í blaðinu, og flest hin smærri blöð flytja þessar greinar fyrst á fyrstu síðu. Ef að aðsendar greinar þykja gefa tilefni til ritstjórnargreina, leyfa ritstjórarnir sér að birta báðar greinarnar í sama blaði, án þess að spyrja höf. hin- ar aðsendu greinar leyfis. Hefir B. J. fyrstur mann frætt mig um það að þetta væri ókurteisi. Ætti hann hér eftir þegar hann sendir blöðum greinar til birtingar, að láta þess jafnframt getið, hvar í blöð- unum sér þóknist að greinin sé birt, rit- stjóranum tilþjónustusamlegrar eftirbreyni. 2) Eru þetta rökstuddir dómar um fyrrhluta greinar minnar? 3) Beinir ekki höf. orðum sínurn til allra em- bættismanna undantekningarlaust, eins og heimilisfeðra, kaupmanna og ungmenna- Rúmsins vegna nenni eg ekki að tilf 6 orð annara alþýðumanna í sömu ál».

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.