Norðri - 13.10.1908, Síða 2
158
t
NORÐRI.
NR. 40
ar lengra sækir fram, þótt ekki ségjörð-
ur til þess leikur, að æsa vonir hennar
fyrirfram með blekkingum.
Danska
ráðaneytið
nýja-
Símskeyti til Norðra.
Neergaard forsætisráðherra og her-
málaráðherra, Stiftamtm. Brun fjármála-
ráðherra, sendiherra greifi Ahlefeldt
Laurvigen utanríkisráðherra, Claus Bern-
sen innanríkisráðherra, Högsbro dóms-
málaráðherra, Anders Nielsen landbún-
aðarráðherra, Enevold Sörensen kenslu-
málaráðherra og Johan Hansen vicekon-
súll verzlunarmálaráðherra (t*að síðast
talda er nýstofnað embætti).
Krítey auglýsir að hún gangi aftur
undir Grikkland.
Austurríki innlimar Bosniu og Herze-
gowinu.
Ofurefli.
S aga
eftir Einar Hjörleifsson,
Listaverk? já, óneitanlega, Gallalaust?
nei, því miður; merkilegt að jafn orð-
hagúr maður og smekkvís á mál eins
og Einar skuli setja máls-hortitt í bók-
ina, og það á fremstu síðu (<*og var
leiðinleg*). Petta «rekur maður tærnar«
í og svo verkjar mann í «tærnar» alla
bókina í gegn.
Um efni bókarinnar er hætt við að
ýmsir segi, eins og kerlingin um guð-
spjöllin; henni þótti ekki «gaman» að
þeim, því »enginn er í þeim bardag-
inn.» En réttur dómur er það ekki. Það
eru bardagar í bókinni, þótt ekki sé
þeir í riddarasögustílnum; þar sjást
ekki «brotnir hausar» né «blóði lituð
•
stor𻫠eins og eftir hnútukastið hjá
Goðmundi á Glæsivöllum. Og þó eru
skemdarvíg í bókinni, andleg rothögg
og mannorðsmorð, verri en nokkurt
hnútukast —og sjálf er bókin í heild
voldug «hnúta« í hvoftinná öllum þjóð-
málaskúmum, og þá ekki sízt á skríln-
um hugsunarlausa, sem lætur æsa sig,
ginna sig, múta sér til þess að gjöra
ærsl og óhljóð að öllum, sem hann
heldur sér betri. — Það er valin «hnúta»,
henni er kastað af heljarafli, og hún hittir
— hittir vbeint f hausinn á «Öndvegis»-
ritstjóranum, fundarskrílnum, sóknar-
nefndarformanninum, Ólafi sögvísa og
svo líka Imbu vatnskerlingu. Mér sárnaði
nú við Einar, að fara svona afleitlega
með Imbu —en það er smátt um misk-
un eða hlífð hjá Einari.—
Efni bókarinnar, söguþráðurinn, er
fremur veigalítið að ytri fyrirferð. Ung-
ur prestur, frjáls í trúarskoðunum, kem-
ur til Reykjavíkur. Sóknarnefndarformað-
urinn, jgamall ráðríkis-gaur, Rorbjörn
Ólafsson, tekur honum tveim höndum,
hefir ráðið kosning hans, og hygst að
hafa hann í vasa sínum. En prestur er
einbeittur, sjálfstæður maður, og fer
sinna ferða. Ljúfmenni er ,hann, hjálp-
fús, en of frjálslyndur í trúarefnum, að
karlsins dómi, og svo er hann einn af
þessum bannsettu náungum. sem »ekki
vilja þýðast skynsamra manna ráð» nfl.
að sitja og standa eftir vilja F*orbjörns
gamla. Svo slitnar upp úr vináttu þeirra
algjörlega út af ráðskonu Rorbjarnar
ungri sveitastúlku, sem prestur kom í
burtu frá Þorbirni. «Öndvegis»-ritstjór-
inn, handgenginn maður Porbjarnar,
rægði prest í blaðinu. Stúlkan fór að
drekka með »Öndvegis«-ritstjóranum og
eitt kvöld í hríðarveðri fann prestur
stúlkuna, dauðadrukna, sofandi í skafli
á götunni, bjargaði henni heim til sín
— hann var ógiftur —og lét húsmóðir-
ina hátta hana ofan í sitt eigið rúm,
en gekk sjálfur úr því. — Litlu síðar fór
stúlkan, hálf-full, í samdrykkju við «Önd-
vegis-ritstjórann að glopra með að hún
hefði «sofið í rúminu prestsins.í Meira
þurfti ekki. Svo tóku þeir ráð saman,
Porbjörn og ritstjórinn, rægðu prestinn
fyrir villutrú og óskýrlífi, boðuðu svo
»safnaðarfund» og létu skrílinn hrópa
prestinn af.
Sagan er látin gerast í Reykjavík. en
gat eins vel farið fram á mörgum stöð-
um.
Hún er ádeilurit í frekasta lagi, þótt
ekki séu mörg í henni stóryrðin. »í góð-
semi vegur þar hver annan.» Orðin
eru þýð, þau eru fimlega fléttuð, all-
víðast slétt-feld og fáguð, en myndin
sem þau skapa, er víða afskræmi; sum-
staðar eru myndirnar fagrar, gullfalleg-
ar, undir niðri straumar heitra tilfinn-
inga, sannleiksþrá,ogdrengskapur. Mann-
lýsingarn ar eru víða meistarlegar og svo
ræða yfirdómarans ! Þar er höfundurinn
«kominn í stólinn.» Par titrar í hverju
orði hin kuldalega fyrirlitning fyrir
þessari kvikandí maðkaveitu, atkvæða-
skríl Porbjarnar. Pað er kuldahlátur í
ræðunni, svo fárániegur, að mér ílaug
í hug stakan :
kuldahlátur þykir þinn
þó ei fara illa:
er sem dauðs manns utan á kinn
þá af er vangafylla.
Öfl »myrkursins» rógurinn og lygin
vinnur þar glæsilagan sigur á frjálslyndi
og öllu því sanna og góða, sem sagan
lýsir.
«Ofurefli er stórmerkileg bók — á
þessum tímum.
Idem.
—-—
Akureyrí 13. oktbr. 1908.
Tíðarfar hefir verið hið æskilegasta
að undanförnu. Stormhryna var dálítil
af suðri síðasta föstudag. Annars stilt
veður og blítt eins og á vordag,
Síldarafli er dálítill hér inni á Poll-
inum; mest er það samt smásíld, sem
ekki er verzlunarvara. Aðeins iítið eitt
af hafsíld og millisíld. Við austurlandið
standa nú 4 «Iásar» og mikið í þeim
af síld, en helzt hugsað að taka þá upp,
þykir ekki borga sig að taka úr þeim.
Fiskafli er lítill hér inni, en úti í
firðinum hefir verið dágóður afli fram
að þessu.
Sláturtíðin hér er nú um það bil
að enda. Af sauðfé hefir færra komið
til bæjarins en að undanförnu. Astæð-
an til þess án efa hinn góði heyafli í
sveitunum, svo bændur vilja halda lífinu í
sem flestu, og svo heldur Iægra kjötverð
en síðustu undanfarin ár. Kjöt 20 aura
pundið hæst, mör 22 aura pd., gærur
25 aura. pd. í sláturhúsi kaupfélagsins
hefir verið slátrað 4500 kyndum alls,
mikið af því kjöti flutt út.
Barnaskóli kaupstaðarins verð-
ur settur 15. þ. m. kl. 11 f. h. Kenn-
endur skólanseru: Halldóra Bjarnadótt-
ir, forstöðukona; hefir um undanfarin
6 — 7 ár verið kennari við skóla í Moss,
kaupstað í Noregi á stærð við Reykja-
vík (c: 10,000) Fyrsti kennari Páll Jónsson
sem nálægt 25 ár hefir verið kennari við
skólann, og allra manna mest fyrir hann
barist á undanfarinni tíð. Annar kennari
er Ingimar Eydal, lýðháskólamaður frá
Askov. Tímakennarar eru: Aðalbjörg
Sigurðardóttir, Elínborg Bjarnardóttir frá
í’ig mun reka í roga stanz
þegar þú kemur í verzlunina
EDINBORG
og sérð allar þær nýju vörubirgðir, sem þangað hafa komið núna
með síðustu skipum .
W&T Lesið auglýsingarnar frá Edinborg í næsta blaði.
BIÐJIÐ kaupmann yðar um
Edelstein, Olsen & Cot
beztu og ódyrustu
<1 j Cylinderoliu
OT’fl III
jV/X Purkunartvist.
Kardólineum,
Tjöru o. fl. o.
Miklabæ, frú Halldóra Vigfúsdóttir, Júl-
íus Arnason, og auk þess söngkennari
Magnús organisti Einarsson.
Síldar-útflutningur héðan frá
Eyjafirði og Siglufirði lítur út fyrir að
verði aðeins lítið eitt minni en í fyrra;
þá var hann rúmar 200.000 tn. Nú er
búið að flytja út nál. 170.000 tn., en
mikið er enn eftir óflutt út, sjálfsagt
8—10.000 tn. Mikið af hringnóta-síld-
inni er víst selt fyrir lágt verð í útlönd-
um, en verð á síld, einkum netasíld, er
að hækka. Víst má telja að fyrir land-
nótasíld mundi fást gott verð, ef eitt-
hvað fengist af henni. Peir gjöra sér
beztu vonir um það, nótalagaformenn
hér, að fá góða veiði hér á Pollinum
bráðlega og mundi þá »hækka hagur
Strympu.» — Ekki mun af veita, því
Peningavandræðin eru altafsöm,
þrátt fyrir ársæld, afla og alla góða hluti.
Bankarnir ganga hart eftir skuldum og
eru jafn innautómir eftir. Ætli ekki væri
tími kominn tilað snúa gömlu setningunni
um «sálina prestanna» upp á bankana:
«Seint fyllist sálin bankanna».
Jón Stefánsson ritstjóri þessa blaðs
brá sér snögga ferð til Reykjavíkur með
„Ceres, en í fjærveru hans sér ritsíma-
stjóri Gísli J. Ólafsson um útkomu
blaðsins.
Gifting. Ari Jónsson ritstjóri og al-
þingismaður og Matthildur Hjörleifsson
(dóttir Einars Hjörleifssonar) giftu sig
í Reykjavík 10. þ. m.
E/s Ceres kom hingað frá útlönd-
um á föstudagskvöldið er var og fór
héðan aftur áleiðis til Reykjavíkur að-
faranótt sunnudagsins. Með henni fór
til Reykjavíkur frú Anna Vigfússon, Jón
Stefánsson ritstjóri og fleiri.
E/s «Úranus» kom hingað í gær
frá útlöndum og fór aftur í nótt til
Rvíkur. Með honum fór ungfrú Hulda
Laxdal til Reykjavíkur og margir fleiri.
Tombólu hélt hjúkrunarfélagið ,H!íf‘
hér í barnaskólanum á sunnudaginn var;
hún var mjög vel sótt.
Stefán skólameistari Stefánsson,
sem nú undanfarið hefir legið hættulega
veikur í botnlangabólgu, er nú á góð-
um batavegi.
f Chr. Zimsen fyrveranöi frakkneskur
konsúll í Reykjavík andaðist 3. þ. m.
Hann var mesti heiðutsmaður og dreng-
ur góður.
Siglunesvitinn verður tendraður
15. þ. m.
Nýtt
í bókaverzlun
Kr. Guðmundssonar.
Æfisaga P. Péturssonar biskups.
Systurnar frá Grænadal (saga).
Sæfarinn, (eftir Júlíus Verne.
Brasilíufararnir síðari hiuti
Vinur frúarinnar (eftir H. Sudermann).
Pýzkar smásögur o. fl.
Paa Grund af Pengemangel
eælges for 1/2 Pris finulds elegante Herre-
stoffer for kun 2 Kr. 89 Ö. Al.^/ibr.
Skriv efter 5 Al. til en Herreklædning,
opgiv Farven, sort, en blaa eller mörke
graamönstret. Adr.: Klædevæveriet í Vi-
borg NB. Damekjoleklæder i alle Far-
ver 89 Ö. Al. dobbr. Helt eller delvis
modtages i Bytte Uld 65 Öre pr. Pd.
Strikkéde Klude 25 Öre pr. Pd.
Hér með tilkynnist heiðruðum
viðskiftamönnum mínum að
af þeim útistandanni skuldum,
sem verða við verzlun mína við
nýjár næstkomandi reikna eg sex
prósent vexti.
Siglufirði 5. október 1908.
Helgi Hafliðason.
N ÝTT
í bókaverzlun
Frb. Steinssonar Akureyri:
Æfisaga Péturs Péturssonar bikups
í skrautbandi kr. 4,50 heft kr. 3.00.
Systurnar frá Grænadal, saga 1 kr.
Sæfarinn, saga eftir Julius Vernekr.1,25
Vinur frúarinnar, saga eftir Hermann
Súdermann 2 kr.
Brasiliufararnir 2. hef<i 2 kr.
Hreiti steinolíföt
kaupir hæsta verði nú eins og undanfarið
verzlun J. V. HAVSTEENS á Oddeyri.
BERNSKAN
er að áliti barnakennara bezta
lesbókin fyrir börn sem til er á
íslenskri tungu. 2. hefti með
myndum kemur út í næsta mán-
uði. Pantið það sem fyrst hjá
Pórh. Bjarnarsyni prentara.