Norðri - 25.03.1909, Blaðsíða 4
48
NORÐRA.
NR. 12
grímssyni frá Bægisá (f 1902) en hann var
sonur Arnn'r'ms prests Haligrímssonar. —
Reistu þau bú á Vöglum, þar sem þau
bjuggu myndarlega um 20 ára bil. Munu
margir minnast þeirra frá þeim tíma. Þá
voru þau búlaus nokkur ár, en kringum
1890 fluttu þau að Efri Vindheimum og
bjuggu þar í 7 ár, eftir það voru þau hjá
börnum sínum.
Þeim varð 8 barna auðið. Dóu 3 þeirra
í æsku og 2 á fullorðins aldri, en 3 eru enn
á lífi, öll uppkomin.
Sigurrós sál var meðalkvenmaður á hæð
og svaraði sér vel. Hún var einkar lagleg
kona, en það, sem prýddi hana þó mest,
var hreint yfirbragð og 1,'tlaus framkoma.
Hún var ein af þeim ágætu konum, sem
vinna fagurt og dygðum prýtt æfistarf í
kyrþey, en láta sér ekki mest um það vert
að starfa þar og þannig, að mest sé áber-
andi — ávinna sér augnabliks hrós, sem
venjulega hverfur skjótt og gleymist með
öllu, slíkt var ekki að hennar skapi, svo
hógvær og blátt áfram sem hún var.
1 húsmóðurstöðunni gekk hún á undan
fólki sínu með góðri breytni í hvívetna;
ekkert var henni ógeðfeldara en óánægja
á heimili sínu, enda tókst henni með still-
ingu og gætni, að sporna móti þvi og halda
góðum heimilissiðum.
Ef margar konur væru því líkar sem
hún var, þá væri vel.
Blessuð sé minning hennar.
R.
Aíarstórt uppboá
us
verður haldið þrjá daga í röð, 1. til 3. apríl næstkomandi,
Jósefs kaupmanns Jónssonar, Strandgötu nr. 7 á Oddeyri.
Selt verður 8000 kr. virði af margskonar vörum.
Mjög mikið af vefnaðarvöru, leirvöru, plettvöru, glysvarningi, o. m. m. fl
LANGUR GJALDFRESTUR.
Sérstaklega ættu bændur að nota tækifærið. Að betri kaupum
munu þeir ekki geta komist á þessu ári.
Akureyri, 23. marz 1909.
Björn Líndal.
Bakarí og fbúð
til leigu í húsi Olgeirs bakara Júlíussori-
ar á Oddeyri. — Semja má við
Pétur Pétursson,
verzlunarstjóra Oránufélagsins.
BIÐJIÐ kaupmann yðar um
Edelstein, Olsen & Cot
beztu og ódýrustu
Cylinderoliu
Vélaolíu,
Cunstvélafeiti,
Þurkunartvist.
Karbólineum,
Tjöru o. fl. o. fl.
ALBERT B. COHN.
INN- OG ÚTFLUTNINGUR AF VÍNUM OG ÖÐRUM ÁFENGUM
DRYKKjUM OG VÍNVERZLUN.
SÉRSTAKLEQA: EFNARANSAKAÐ MADEIRA, sherry,
RAUÐ OG HVÍT PORTVÍN,
FORÐABÚR FYRIR ÚTFLUTNING ST. ANNEPLADS 10,
TOLLBÚÐIN KÖBENHAVN.
SÍMNEFNI: VINCOHN.
DE FORENEDE
BRYGGERIERS
MALT-
er framúrskarandi hvað snertir
mjúkan og þægilegan smekk.
fiefir hæfilega mikið af »extrakt«
fyrir meltinguna.
Hefir fengið meðmæli frá mikils-
metnum læknum.
Dtomark Expeditionen meddeler den i. Septbr. 1908:
Med Fornaíelse kan jeg give det Danmark Ex
peditionen medgivne „Ægte Kongens Bryghus Malt-
#xlr*kt“ min bedste Anbefaling.
0llet holdtsig fortraeffeligt under hele vort 2aarige
Ophold i Polaregnene Med megen Agiehe
Alf. Trolífi.
Besta meðal við,
hæsi og öðrum
kælingarsjúk-
dómum
26
Frú Steiner hafði gifst mjög ung ríkum stórkaúp-
manni í Kristjaníu — en þar eð hún komst fljótlega
að því, að maðurinn hennar vissi talsvert um
ýmsa ónefnda hluti, sem hún bar ekkert skynbragð á,
þóttist hún sjá, að hún væri dregin á tálar, og ásetti
sér að leggja sjálfa sig í sölurnar, til þess að hefna
þessarar móðgunar við kvenþjóðina, svo að einn
karlmaður að minsta kosti fengi refsingu fyrir ósið-
semi karmannanna.
Þegar hún var búin að vinna að þessu í eitt ár,
með hinum mesta dugnaði og þrautseygju, var hún
búin að ganga svo fram af manninum, að hún fékk
fúslega samþykki hans til skilnaðar, og nú lifði hún á
háum launum og gaf sig við list sinni. Það kom
sem sé í ljós, að hún hafði mikla hæfileika sem list-
málari — tneðan hún án þess að flýta sér nokkuð —
beið eftir siðsörnum eiginmanni, helzt listamann.
Þegar Júlia Kröger kom heim úr utanför sinni,
tók hún strax eftir frú Steinar, það var sú eina
»dama» í bænum, —fanst henni, —sem hafði á sér
norðurálfusnið. Þær kyntust og urðu fljótlega sam-
rýmdar vinkonur. Júlía gekk til hennar að læra að
mála, hún hafði nefnilega líka listgáfu, en ekki eins
mikla og frú Steiner, en til endurgjalds stóð hús
Krögerg ætíð opið fyrir fögru frúnni úr höfuðstflðn-
27
um, sem annars hafði valdið hinu mesta hneyksli í
bænum.
En Gustav Kröger tók við henni fegins hendi,
þar eð hann hafði nú opnað hurðir og giugga aftur
eftir fráfall konunnar; frú Steiner var líka kona eftir
hans höfði, svo glöð og örugg; það var kvenmaður,
sem hægt var að tala við, um hvað sem vera skyldi,
svo geðþekk en þó svo frjálsleg gagnvart karl-
mönnum, eins og hún þekti alt út í hörgul og vissi
deili á öllu.
Sofía frænka, eldri systir Krögers var sú eina á
heimilinu, sem alls ekki gat felt sig við hina fríðu,
fráskildu konu.
«Það er ekki þessvegna* sagði Sofía frænka »að-
hún er svo frí af sér,-og talar svo liðlega um alla
ósiðsemi, sem til er. — «
«Já en finst yður ekki það gangi nokknð langt
stundum?« spurði frú Knudsen gætilega og roðn-
aði um leið, — eins og þenni hætti oft til.
«Alls ekki, alls ekki!« sagði Sofía frænka um leið
og hún rétti úr sér, það er einmitt gott, að það sé
talað um hluiina eins og þeir eru, það er gott fyrir
alla og ekki sízt fyrir urigar stúlkur.«
«Haldið þér að það sé til góðs fyrir Júliu að —»
«Vegna þess iná húu gjarnan umgangastfrú Steiner
Steinolíuföt
hrein, kaupir hæsta verði eins og að
undanförnu, verzlun
J. V. Havsteen Oddeyri.
Lögrétta,
gefin út af hlutafélagi í Reykjavík,
stjórnað af ritstjóra Þorsteini Gfslasyn,
og ritnefnd Guðm. Björnssyni landlæknii
Jóni Magnússyni bæjarfógeta og Jóni
Þorláksyni verkfræðing, er nú eftir ára-
mótin orðin stærsta blað landins að um-
máli og tölublöðum fjölgað að mun.
Areiðanlega bezta og áreiðanlegastafrétta-
blað landsins. Nýir kaupendur, er vilja
láta senda sér blaðið beint, snúi sér til
afgreiðslumannsins, bóksala Arinbj-
Sveinbjarnarsonar, Reykjavík eða út.
sölumanns blaðins á Akureyri, Hallgr.
Valdemarssonar Aðalstræti 13.
,NorðrA kemur út á fimtudag fyrst um
sinu, 52 blöð um árið. rtrgangurinn kostar 3 kr.
iunanlands en 4 kr erlendis; í Amerfku einn
og hálfan dollar. Gjalddagi er fyrir 1. júlí
ár hvert. Uppsögn sé bundin við árganga-
mót og er ógild nema hún sé skrifleg og
afhent ritstjóra fyrir 1. seft. ár hvert,
Auglýsingar kosta eina krónu fyrir hvern
þuml. dálkslengdar og tvöfah meira á fyrstu
'síðu. Með samningi við ritstjóra geta menn
sem auglvsa tnikið fengið mjög mikinn afslátt.
Prentsmiðja Björns Jónssoaar.