Norðri - 09.07.1912, Síða 1

Norðri - 09.07.1912, Síða 1
VII., 20. Akureyri, 9. júlí. 1912 Theodore Roosevelt. Forsetaefni Bandaríkjanna. Forsetakosningin í Bandaríkjunum er nú í undirbúningi. í flokki samveldis- manna (Republikana) var hörð rimma um Það hvort flokkurinn skyldi styðja Roosevelt eða Taft til forsetatignar. Sóttu báðir þessir garpar hart fram. Endirinn á þeirri rimmu varð að álítlegur meiri hluti þeirra manna er slíku ráða mælti með Taft. Ottast nú margir að sam- veldisflokkurinn klofni og að Roosevelt myndi nýjan flokk, en þó þykir ólík- legt að hann nái kosningu þótt hann hafi enn rnarga áhangendur og sé bæði William Jennings Bryan. kappgjarn og ötull að hafa sig áfram. Bandaríkjamenn hafa heldur ekki nú slíka trölla trú á honum og fyrir fjór- um árum. Svo spillir það fyrir honum að það hefir verið föst venja Banda- manna að velja aldrei sama forseta nema tvö tímabil. Washington fysti forseti Bandaríkjanna hélt þessari reglu fram þótt eigi væri hún lögbundin, og allir forsetar hafa beigt sig fyrir henni nema Orant, sem bauð sig fram eftir að hafa verið tvö tímabil forseti, en þá náði hann eigi kosningu. Fyrir fjórum árum fylgdi Roosevelt þessari reglu og gaf eigi kost á sér sem forseti í þriðja sinn þótt kosn- ingu hans hefði mátt telja vísa. Sérveldis- menn (Demokratar) og fylgismenn Tafts nota þetta atriði óspart gegn Roosevelt, og benda á að vald forseta sé meira en flestra ríkisráðenda, og að gera hann of fastan í sessi geti orðið hættulegt og leitt til stjórnarbyltingar. Allt var í írafári og ósamkomulagi um forsetaefnið í sérveldismannaflokn- um í Bandaríkjunum, og þeim skærum veitti hið gamla forsetaefni þess flokks Bryan, engu minni eftirtekt, heldur en forsetaefni samveldismanna ósamkomu- laginu í þeirra flokk. Bryan hefir þrisvar verið forsetaefni sérveldismanna og þris- var fallið, mörgum þykir því að hann eiga það skilið að flokkurinn komi hon- um að, fyrir hve oft honum hefir verið tefl fram til fals. Hann hefir haft hljótt um sig enn, þótt hann sé flestum betur málifarinn. »Eg er einungis fregnritari fyrir blöð,« sagði hann við blaðamennina sem hópuðust utanum hann til að for- vitnast um skoðanir hans. Pessa dagana stendur samkoma þeirra sérveldismanna, sem sker úr hver verður forsetaefni þeirra, og þeir sem bezt þykjast þekkja hugi ráðandi manna í flokknum telja líkur til að Bryan verði enn teflt fram. Hann er enn á bezta aldri. Fæddur 1860. Hefir lengi gefið sig að stjórn- málum og blaðamensku. Er mælskumað- ur með afbrygð'um. Margir sérveldis- menn segja. Hann er okkar flokks fremsti maður og mundi verða góður forseti. Vesta kom hingað 6. þ. m. á leið til útlanda. Vatnajökulsferð. Kock, foringi úr landher Dana, sem verið hefir við landmælingar á íslandi og á Grænlandi, hefir, eins og skýrt hefir verið frá í blöðunum, áformað að fara yfir Grænlandsjökla næsta sumar, ætlar að leggja upp frá austurströndinni og þvert yfir landið, þar sem það er einna breiðast, til vesturstrandarinnar. Hefir Kock haft mikinn útbúnað til far- arinnar og ætlar að hafa íslenzka hesta til ferðarinnar yfir Grænland. Lét hann kaupa 16 hesta hér (Eyjafirði í vor, og fór með þá yfir Vatnajökul fyrir skömmu til að reyna þá. Kock kafteinn kom hingað með Flóru 12. f. m. með tveimur félögum sínum. Annar þeirra var þýzkur stjörnu og veð- urfræðingur, en hinn danskur grasafræð- ingur. Ferðinni var heitið héðan suð- austur að Vatnajökli og yfir hann. í þá ferð var lagt 14. f. m., og fóru í hana, auk þessara þriggja útlendu manna, Vigfús Sigurðsson fyrverandi póstur, sem búið var að ráða til Grænlandsfar- arinnar, Sigurður Símonarson úr Rangár- vallasýslu, sem verið hafði áður í mæl- ingaferðum með Kock í Skaftafellssýsl- um, og sem fylgdarmenn suður undir jökulinn Sigurður Sumarliðason og Jón Þorkellsson frá Jarlstöðum í Bárðardal. Segir eigi af ferðum þeirra fyr en kom- ið var austur undir jökul fyrir austan Jökulsá, þar sem heitir »Hvannalindir.« 136 Tíminn er æfinlega nógur, ef vér notum hann réttilega, en gallinn er, að vér sóum í hugsunarleysi burtu frá oss þessari dýrmætu gjöf, í Amenku lærum vér að nota tímann réttilega, þar verðum vér að viður- kenna að tíminn sé gull. “En v,tlð Ijer hvað mest hefur vakið undrun mína hér í Svíþjóð, síðan eg kom og fór að kynnast hér. Það er, hve lítið Svíar hugsa um að nota timann ser t.l gagns og framfara, og færa sér í nyt gæði landsins.* »Rað getur vel verið að þetta sé rétt. En Svíar eru ekki eins fé- gírugir og Ameríkanar, sem leggja alt í sölurnar til þess að eins að fullnægja sínum tímanlegu kröfum.« »En einmitt með þessum sífeldu heilabrotum, um hvernig þess verði aflað fljótast og þægilegast, þá þroskast sálin og sjónarsvið skyn- seminnar verður víðtækara. F*ér þurfið ekki annað en að bera saman ameríkanska og svenska konu, og þér munuð undrast hve hin Ame- ríkanska hefur víðtækari skilning og grundvallaðri skoðanir í öllu hag- fræðislegu.« »F*ér eruð ekki mildur í dómum yðar við oss Svíana,« sagði Helfríður hlægjandi. »Eg hlýfi aldrei neinum við sannleikanum.* »Þér álítið þá, að vér séum heldur vitgrannar?« »Pað segi eg ekki beinlínis. En fyrir gjörvöllu uppeldi hinna sænsku kvenna liggur það vanalega til grundvallar að þær giftist þegar á unSa alcíri °g þurfi síðan ekki annað en vagga sér í veltistól og fitla eitthvað við nálina sér til dægrastyttingar. Rað er álitið nóg að þær kunni hinar nauðsynlegustu húsreglur. En ameríska stúlkan er þar á móti alin upp til sjálfstæðis; að hún geti sjálf rutt sér braut og aflað síns brauðs án nokkurrar aðstoðar, það er þeirra mark og mið«. »Rað er líka þannig hér, einkum meðal hínna fátækari; hinar auð- ugri þurfa ekki að berjast fyrir framfærslu lífsins.« »Það er satt, þeir auðugu þurfa ekki að að berjast fyrir nauðsynj- um lífsins, en þeir gjöra heldur ekkert þarflegt, og það er það, sem ame- n'ska konan hreint ekki leyfir sér. Hún veit að henni hefir verið gefin 129 um sig. Hún virti alt fyrir sér, og alt var í sömu röð og reglu eins og þegar hún skildi við það. Hún þekti alt og henni fanst eins og hún nú vera komin heim til sín eftir langa ferð, en gleðibjarmi sá. sem hjúpaði andlit hennar við þessa tilfinning, hvarf bráðlega. Hún var að eins gest- ur í þessu herbergi, sem hún hafði lifað í svo marga ánæjustund Hún hleypti brúnum og beit á vörina og svipurinn varð kaldur og alvarlegur. Helfríður sat í hægindastól fyrir framan rúmið og var auðséð á henni að hún hafði grátið. »F*ú hefur grátið, elsku Helfríður mín,« sagði móðir hennnar með skjálfandi rödd. Eg vildi að eg gæti gjört það líka en lindin er þornuð.* »Elsku mamma,« sagði Helfríður grátandi og greip hönd móður sinnar »reyndu að vera róleg á meðan þú ert svona ve.k. Pað eina og kærasta, sem vesalings dóttir þín á í þessum heimi, er líf þitt. »Helfríðui! Móðir þín hefur lifað alt of lengi og óskaðu þess ekki að hún enn þá dragi fram líf sitt sannfærð um óhjákvæmilega eyðilegg- ingu ættar vorrar; óskaðu heldur að hún losni sem fyrst úr þessum eymdardal.« Hún þagnaði. - En eftir litla þögn sagði hún: »Veit Hermann ekkert um þetta?« »Nei, hann er ekki heima.« »Retta verður honum beiski bikarinn,« hélt hún áfram og stundi við. Nú var Stefanía orðin talsvert frískari. »Er greifinn kominn heim?« spurði hún Jakob um leið og hann kom inn til hennar. »Nei, hann kemur ekki fyr en á morgun, eftir því sem eg hefi komist næst,« svaraði Jakob og settist hjá Stefaníu. »F*ú hafðir mikið óráð í gærkveldi.« »Og um hvað talaði eg?< »Um alt.« Stefanía strauk hendinni um ennið. »En það var í gær eins og þegar þú varst veik í Boston, það hefur enginn heyrt eitt einasta orð nema eg.«

x

Norðri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.