Norðri - 18.02.1913, Blaðsíða 2

Norðri - 18.02.1913, Blaðsíða 2
14 NORÐRI. Nr. 4 Sá tími kemur einhvern tíma áreiðan- lega. Vér skulumvera hughraustirá meðan.o Atvinnuskortur á vetrum. Ingólfur Oíslason héraðslæknir á Vopn- afirði hefir vakið máls á því í »Austra«, að í Vópnafjarðarkauptúni og í fleirum kauptúnum Austanlands horfi til vand- ræða fyrir atvinnuleysi þurrabúðarmanna. Hann lýsir ástandinu svo á Vopnatirði: Á lok september kemur svo sláturtíð- in, þá hafa allir nóg að gera, en þeg- ar henni líkur, seint í október, fer að vandast málið, þá er líkast því sem brotni hjól í vél, svo hún hættir að starfa alt í einu. Pegar búið er að koma vörunum út í skipið og setja bátana, þakka kaupmennirnir fyrir vel unnið verk, borga kaupið, og svo fer hver heim til sin. — Við þetta væri nátt- úrlega minna að athuga, ef kaup dag- launamanna og fiskinnlegg sjómanna nægði fyrir úttektina alt árið, en því miður mun mikið vanta á það fyrir mörgum, sem nærri má geta. Rað mætti vera gott kaup, ef 4 —5 mánaða vinnu- laun nægðu til að framfleyta fjölskyldu í 12 mánuði. Hitt mun máske tíðara, að þegar atvinnuveitandinn ætlar að fara að borga daglaunamanninum kaup- ið, eða kaupmaðurinn sjómanninum inn- léggið, um veturnætur, að þá er búið að taka út á alt saman; veturinn blasir við, en engir peningar, engin atvinnu- von og lítið lánstraust. Metinirnir vilja vinna, en enginn hefir neitt handa þeim að fást við. Hver og einn getur svo getið því nærri, hvernig fólkinu líður yfir veturinn, eg ætla ekki að lýsa því.« * • * Svipaða sögu mætti segja úr mörgum kauptúnum norðan og austan lands, þó má geta þess, að á Seyðisfirði og fjörð- unum þar fyrir sunnan byrjar oft nokk- ur atvinna í apríl við trollarafisk, sem keyptur er, og í þeim mánuði er stund- um farið að leita fiskjar sunnan við Gerpir. Á Seyðisfirði, Mjóafirði Norð- firði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði er miklu meiri útvegur en á Vopnafirði, óg þar er oft feitað fiskjar fram í nóvember, og er við það nokkur bein og 'óbein at- atvinna. Lóðaeyðsla er mikil á þessum fjörðum, og ekki svo lítil atvinna við að setja upp nýjar lóðir á vetrum. Stöku maður fer og af þeim fjörðum til Vest- mannaeyja til vetrarróðra. Vinnuleysis- tíminn mun því enn lengri á Vopnafirði og í kauptúnum hér nyrðra, en hann er- á syðri fjörðunum austan lands. Ingólfur læknir vill að gerð séu sam- tök til að efla iðnað í kauptúnum, sem þurrabúðarmenn geti unnið við og er það vel hugsað, en ekki þyrftu menn að búast við háu kaupi ættu slík fyrir- tæki að geta borið sig, en lágt kaup á á veturna, einkum við innanhúss vinnu er samt betra en algert atvinnuleysi. Útvegsmenn og kaupmenn í kauptún- unum, sem þurfa mikillar vinnu á sumr- um, ættu að bindast fyrir að koma á slíkum fyrirtækjum, til þess að geta veitt því fólki nokkra atvinnu á vetrum, sem þeir þurfa að láta vinna á sumrum. Tunnuverkstæðið á Akureyri er spor í þessa átt. Mundi eigi vinnustofa til að riða í net, búa til olíuföt, prjóna peys- ur og nærföt, og vinna fleira, geta borið sig, ef þurrabúðarfólk vildi vinna þar á vetrum fyrir lágt kaup. Veðrátta Mikill snjór féll fyrri hluta þorra, en úr miðþorra góð hláka og hvassviðri annað slagið. Nöldrið í Höfðabrekku- fólkinu. Það verður margt öðruvísi en það ætti að vera f Akureyrarkaupstað, og þar er ýmsu ábótavant. Rað brennur þar meira en ætti að brenna, það er stundum etið og drukkið, spilað, dans- að sofið eða vakað meira en ætti að vera, þvaðrað, logið o'g slæpst meira en þyrfti að vera. Veikindi lasleiki og eymdarskapur meir en mundi vera, ef menn færu nógu skynsamlega að ráði sínu, o. S. frv. Fólkið finnur þetta, en það er eins og það langi til að kenna öðrum en jálfu sér margt af því sem aflaga fer, hafi tilhneigingu til að breiða það út, að það sé enn verra hjá náunganum en sér, enn skitnara, enn vesælla, enn veikara, enn óhyggilegar að farið, o. s, frv., og svo finst því sjálfsagt að það geti verið óvilhallur dómari milli sjálfs sín og annara. Höfðabrekkufólkið á Akureyri (það er fólklð sem býr í, á og undir höfð- anum í bænum) hefir lengi haft tilhneig- ingu til að setja útá og finna að sóða- skapnum á Eyrinni og gefa í skin að það væri svo sem eitthvað skárra hjá sér. Eyrin var nýbyggjarasvæði og miklu yngra hálfsystkyni Höfðabrekkunnar, og er þetta ef til vill orsökin til þess að Höfðabrekkufólkið er æði oft að setja sig yfir Eyrarfólkið. Rað er eins og því þyki stundum gott að hafa strákinn í förinni til að geta kent honum um það sem miður fer. Mér hefði nú ekki þótt það taka því, að fara að minnast á það í blaði, þótt einhverri af þessum Höfðabrekkumad- dömum verði stundum létt um tungu- takið yfir þriðja eða fjórða kaffibollan- um og breiði þá vel úr þeirri skoðun sinni, að alt hljóti að vera ákaflega leið- inlegt á Eyrinni, léleg húsakynni, eilífur næðingur, grútar- og síldarlykt, enda- laus veikindi, fyrirlitlegt næturflakk, o. s. frv. Nei, mér hefði ekki komið til hugar að fara að gera slíkt að umræðu- efni, því eg vil að konur hafi éins mik- ið málfrelsi og karlar, þær þurfa oft fullt svo mikið á því að halda. Og svo er ekki örgrant um að Eyrarmad- dömurnar geti stundum goldið slíkar ræður í sömu mynt. En það er annað sem eg vil eigi láta afskiftalaust, það er þegar Höfða- brekkublaðið eða heilbrigðisnefndin er að auglýsa á prenti lýtin, ræfilsháttinn og ófullkomlegleikann á Eyrinni, en þegir alveg um samskonar ófullkomleg- leika á heimajörðinni Höfðabrekku, Pað sem eg í svipinn man eftir af þessu tagi er: Blaðið Norðurland, sem fætt er og uppalið undir Höfðabrekkunni, var í haust að finna að vatnsleiðslunni í bænum, og breiddi sig þá yfir vatns- skortinn á Eyrinni, enýþagði um allar misfellurnar í Höfðabrekku. í fyrra geys- aði taugaveiki í yztu húsunum í Höfða- brekku og í ár í syðstu húsunum. Heil- brigðisnefndin auglýsti ekkert á prenti um það. í vetur kemur upp taugaveiki í einu eða tveimur húsum á Eyrinni. Pegar eru settar upp prentaðar auglýsingar, sem gefa í skin að veikin sé óhollu vatni að kenna og illri umgengni á Eyrinni. Ekkert slíkt hefir verið auglýst, þegar samskonar veiki hefur verið í Höfðabrekku. Svo fer Höfðabrekkublað- ið að auglýsa það, að varasamt sé að drekka vatnið á Oddeyri, Retta nöldur í Höfðabrekkufólkinu í blöðum og prentuðum auglýsingum annarsvegar um ástandið á Eyrinni, en hinsvegar þögnin um ástandið heima fyrir, bendir á að það vilji halda á lofti lýtunum hjá nágrönnum sínum, en þegja um sín eigin lýti. Hinsvegar er því ekki að neita, að ýmislegt þarf að bæta og laga á Eyrinni, og það er smátt og smátt verið að því, þyrfti ef til vill að ganga hraðara, og það þarf enginn að taka illa upp þótt heilbrigðisnefnd finni að illri umgengni og illum vatnsbólum, en það er eitthvað undarlegt þegar hvað eftir annað á prenti er verið að taka einn hluta bæjarins fyrir i þessu efni. Pað er enginn efi á því, að víða á Oddeyri má fá gott vatn og líklega betra en undansig Eyrarlandstúnsins, sem Spítalinn og Höfðabrekkufólkið er að tryggja sér. Aldrei er heldur talað um niðurganginn frá spítalanum, sem stund- um kvað þó hafa verið töluvert krass- andi, og nú kvað fyrst eiga að fara að koma lagi á, né um sorphaug spítalans við alfaraveg. Mér finst það sannast hér: *Að flest er sætt á sjálfsbúi.« Rað þarf að hafa pllan hugann við eymdina á Eyrinni og haida á lofti ólaginu þar, nema þegar bæjarféð þarf að nota til heilbrigðismála, þá er ávalt hentugra að eyða því fremur í Hófðabrekkuna en sóðaskapinn á Éyrinni, og ftá upp- hafi er búið að kosta stórfé upp á Búðarlækinn i samanburði við það sem kostað hefir ver'ð upp á kílana á Eyr- inni. Eyrarbúi. Nýr smáleikur í einum þætti, nýlega saminn af Páli kennara Jónssyni, var sýndur bér á sunnu- dags kvöldið. Hann á að sýna hvernig ástandið geti orðið, væri kvennfrelsis- hugmyndin framkvæmd út í yztu æsar, og á þann hátt, að hausavíxl sé haft á heimilisstörfum, þannig að konan taki við störfum mannsins og reki hann svo til að taka við sínum störfum. f. Efnið er þetta: Frú Jóhanna, kona Árna verzlunar- manns situr heima í stofu sinni, og er að skrifa kvennfrelsisritgerðir auðsjáan- lega forskrúfuð og montin. Hún sím- ar eftir Árna manni sínum að koma heim og gera húsverkin, og segir kaup- manni með þjósti upp þjónustu Árna. Vinnukonu skjáta er að snúast kringum frúna, en gerir lítið því hún þarf að vitleysast á vinnukonufundunum að öðr- um þræði og halda þar ræður og gera samþyktir um vinnukonu frelsi, og frúnni finst þetta athæfi hennar sjálfsagt. Svo kemur Árni heim, sem auðsjáanlega er lymsku-rola, sem ekki treystir sér að gera uppreysn á heimilinu, en fer að dunda við að sópa gólfið og bæta sokka. Hann fær konuna til að taka við fjár- stjórninni, en kemur því svo til leiðar, að mörgum fjárkröfum rignir yfir hana fyrsta daginn, sem hún er fullkominn húsbóndi á heimilinu. Petta veldur henni áhyggjum og erfiðleikum. Frúin verður þann dag lögregluþjónn fyrir ötula fram- göngu og skörungsskap kynsystrá henn- ar í bæjarstjórninni, og fær hreppstjóra- húfu. En svo veður fullur svoli inn til hennar, meðan Árni er að sjóða graut úti í eldhúsi, og er ósvífinn og gerir sig heima kominn og kallar ftúna Jóku, og minnir hana á forna «iautartúra«, hún setur upp húfuna og bistir sig. En svola- mennið skeytir því engu leggur á hana hendur, en húfan veltur í gólfið. Frú- in fer að gráta og hrópar á Árna mann sinn, sem kemur svo frá grautarpottin- um og stillir til friðar, en frúin skýst út. Pegar svolinn er farinn kemur hún inn aftur og er þá fremur mæðuleg. Sernst þá svo milli hjónanna, að Árni fari í sölubúðiná aftur til að vinna þar fyrir þeim, en frúin taki aftur við heim- ilisstörfunum, og á því samkomulagi endar leikurinn. Um leikinn má segja það, að hann se fremur á undan en eftir tímanum, og þó óvíst að kvennfrelsisöfgar verði nokkurntíman alment reknar svo langt og hér er gert, að konur hugsi sér að hafa algerð verkaskifti við karla. Sízt hér á landi þar sem kvennfrelsis hreyf- ingaöfgar hafa enn ekkert eða sárlítið fylgi meðal íslenzkra kvenna, svo þær alment hliðra sér mjög hjá að taka þátt í kosningum eða bjóða sig fram, til að takast á hendur bæjarstjórnarstörf o. fl. Sú hugmynd, sem kemur fram í leikn- um, að konum mundi alment erfitt að taka að sér óundirbúnar ýms störf karla er efalaust rétt, en þó dylzt oss ekki að höf. hefir eigi valið af betri end- anum meðal íslenzkra kvenna, til þess að sýna hvernig fara mundi. Pessi frú Jóhanna ei auðsjáanlega ekki annað en fremur heimskur og hrokafullur upp- skafningur, sem vill hreykja sér eitthvað í mannfélaginu, enda legst eigi meira fyrir kempuna að uppgefast við, en það sem hver meðal kona íslensk mundi þrautalaust hafa haft sig fram úr, og miklu eðlilegra var að frúin^hefði hald- ið fullri virðingu og myndugleik gagn- vart svolanum, en að fara að gráta og hljóða. Pað var öðruvísi timbur í KöJlu og Hildi í Skjaldvöru eftir sama höf- und, svo Ijóst er, að hann þekkir kjark- inn í ísl. kvennþjóðinni, en líklega hef- ir höf. þurft að flýta sér svo mikið að gera Ijósa hugsjónina bak við leikinn, svo hann yrði ekki oflangur, að hann hefir ekki haft tíma til að gera erfið- leikana nógu mikla til að uppgefa frúna, en fyrir það verður líka miklu minna í hana varið. Leikurinn er laglega samsettur og vel leikinn. Ný vatnsleiðsla í Akureyrarbæ er nú á döfinni. Jón ísleifsson verkfræðingur skoðaði í haust fyrir bæjarstjórnina uppsprettulindir í Vaðlaheiði fyrir ofan Varðgjá, og hefur nú gert áætlun um leiðslu þaðan. Hann gerir ráð fyrir að bygður verði stór Vatnsgeymir skamt fyrir neðan iyndirn- ar og vatnið verði leitt þaðan í 4 þuml. stálpípum til sjávar og yfir leiruna og yfir í kaupstaðinn. Petta reiknast honum að muni kosta 27 þús. krónur. Svo er lausleg áætlun um að það muni kosta 20 þús. kr. að leggja vandaða vatns- leiðslu um bæinn, en þá er gert ráð íyrir að þessi nýja vatnsleiðsla kaupi það sem hún geti notað úr vatnsleiðslu þeirri sem nú er. Málið hefur allörugt fylgi í bæjarstjórn- inni og ýmsir bæjarbúar fylgjá því fast. Sumum þykir að vísu nokkuð athuga- verð leiðslan yfir leiruna, segja að Eyja- fjarðará, sem rennur þar í álum, breyti oft um farveg og eru þá hræddir um, að hún grafi ofanaf og undan vatnspíp- unum, segja þeir sem kunnugir eru leir- unni að heppMegast muni að leggja píp- urnar sem yzt á henni, því eftir því sem utar dragi geri áin minni breyt- ingar. Hjúkrunarfélagið Hlíf kvað ætla að ' a d . skemtisarakamu sunnudaginn þ. p til ágc :-a fyrir sjóð s'v.:. ';r þar margt ti skemt- unar. .v • ;em sóiósöt.gur, dúet (beztu söngmenn bæjarins), nýr smále kur og fleira.

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.