Norðri - 25.10.1913, Blaðsíða 2

Norðri - 25.10.1913, Blaðsíða 2
112 NORÐRI. Nr. 34 umboðsstjórn og dömaskipun landsins í annað eða betra horf en nú er og til sparnaðar; og komi þá jafnframt til rannsóknar launakjör embœttismanna yfirleitt og afnám eftirlauna. Ennfrem- ur hvernig framkvæma megi aðskilnað ríkis og kirkju. Auk þess viljum vér, að Alþingi geri ráðstafanir til þess að gera landið og þjóðina kunnugt öðrum þjóðum, t. d. með því að gefa út á aðaltungumálum heimsins fræðandi rit um land og þjóð, sjá um að ritað sé um landið í erlend- um blöðum o. s. frv. Að lokum viljum vér taka það fram, að vér væntum þess, að þjóðin sé oss samdóma um það, að eigi séu þeir öðr- um ólíklegri til þess að vilja yfirleitt vinna að viðreisn þjóðarinnar í öllum greinum, sem sýnt hafa það, að þeir öðrum fremur bera sjálfstæðismál henn- ar fyrir brjósti. Vinnum nú við kosningarnar með eindrægni og ötulleik að sameiginlegu markmiði allra sjálfstæðismanna: fullu sjálfstæði Islands í efnahag og stjórnmálum,« Um ávarp þetta mun Norðri fara nokkrum orðum í næsta blaði. Annáll nítjándu aldar heitir ritverk sem Hallgrímur Pétursson bókbindari á Akureyri er byrjaður að gefa út í 6 arka heftum. Verk þetta á að verða safn af frásögnum um viðburði 19. ald- arinnar eftir síra Pétur heitinn Guð- mundsson sem lengi var prestur f Gríms- ey\ Útgefandi skýrir svo frá tildrögum útgáfu þessarar: »Eftir að faðir minn, séra Pétur Guð- mundsson, sem Iengi var prestur í Gríms- ey, fékk lausn frá prestsskap 1805, tók hann að safna öllu því saman, sem hann náði til um það er gerst hafði á landi hér á 19. öld; varði hann til þessa öll- um stundum, og safnaði öllu því sem hann gat til náð, bæði eftir prentuðum og skrifuðum heimildarritum. Árbækur Espólíns urðu auðvitað aðalritið, svo langt sem þær náðu, en mikið hefur hann aukið þær, bæði eftir tíðavísum, dagbókum, bréfasöfnum og frásögnum, sem hanu var sér úti unrúr ýmsum átt- um. Rit þetta hafði hann 'fullgért að mestu fram að 1850, og safnað miklum drögum til síðari hluta aldarinnar alt fram að aldamótum. Efninu raðaði hann eftir árum, og skifti því síðan niður í ákveðna kafla á ári hverju, eftir því sem árið iá fyrir. Ma gar sögur og frásagnir eru í safni þessu, sem áður eru lítt kunnar og eru mjög fróðlegar um ástand þjóðarinnar á þeim árum. Safnið nefndi hann »Annál nítjándu ald- ar«, og var það orðið mikið verk er hann féll frá. Nú vildi eg ekki láta þetta stórvirki föður míns falla í gleymsku og hef því ráðist í að gefa út til reynslu eitt hefti af annál þessum, til þess að sjá, hverj- ar viðtökur ritið fær hjá íslendingum. Eg hef reynt að afla mér þeirra upp- Iýsinga úr söfnum að sunnan sem mér hefur verið unt, og sömuleiðis úr heim- ildarritum, sem síðan hafa komið út, til þess að leiðrétta og fylla út í frumrit hans, þár sem vantaði í eða ónákvæmt var. Samt efast eg ekki um að margt mégi ennþá fylla með tímanum, þegar aðgangur fæst betri að heimildum. En hægast er með samanburð við Árbækur Espólíns að sjá, hvað annáll þessi er miklum mun fyllri en þær.« 2 hefti eru komin út af ritinu og ná frásagnirnar í þeim til 1815. Líklega hugsar útgefandinn til að gefa út 1 hefti á ári. Rit þetta verður mjög fróð- legt. í því er skýrt frá árferði, slysför- um, embættaveitingum,|láti merkra manna víða gerð að nokkru grein fyrir ættum og afkomendum sumra þeirra. Skýrt er og frá ýmsum glæpum og óknyttum. Málið á annálnum er látlaust og einfalt. Setjum vér hér til sýnis frásögn um Snorra prest Björnsson á Húsafelli, sem andaðist 15. júlí 1803 93 ára: »Snorri prestur vígðist að Stað í Að- alvík 1741, fékk Húsafell 1757 og slepti brauði 1796. Kona hans var Hildur Jónsdóttir prests að Stað í Aðalvík (f 1737) Einarssonar prests sama staðar, Olafssonar. Snorri prestur var meðal- maður á hæð, fagurlega á fót kominn, riðvaxinn, beinagildur og mikill í lið- um, hærður vel með slétta kinn. Hár- skúfur lítill var honum sprottinn á nefi, rauðeygur varð hann við aldur, grá- hærður mjög og loðbrýnn. Hann var atgervismaður hinn mesti, rammur að afli og sundmaður mikill, góður smið- ur, á þeim tíma talinn skáld gott. [Svo var mikill hvatleikur hans, að mælt var að hann hlypi yfir Hvítá í gljúfrum 12 álna stökk, og er það síðan kallað Snorrahlaup. Pað var eitt sinn, er hann kom úr Reykjavík, að hann ætlaði við þriðja mann inn í Hvalfjörð, fengu þeir veður hvast og því næst kafaldshríð, og kom svo, að bátnum hvolfdi. Prestur náði öðrum háseta sinna og gat borg- ið sér og honum til lands á sundi, en annar hásetinn týndist; var frost svo mikið, að alt sýldi, en er á land kom, bar hann þenna félaga sinn í hríðinni neðan frá sjó upp að Ferstiklu á Hval- fjarðarströnd, er hann rataði á; var þá önd nærri gengin úr manni þessum sök- um kulda. lifnaði þó við og varð al- heill, en sjálfur var prestur hress, sem ekkert hefði ískorist. Snorri prestur hafði steina þrjá mikla við garð á Húsafelli, er hann kallaði: Fullsterk, Hálfsterk og Aumingja eða Amlóða, til þess að reyna með afl manna. Hafði hann aldrei tek- ið Fullsterk hærra en á hné, en Hálf- sterk kom hann upp á garðinn, en hraustir meðalmenn komu Aumingja á hné. Jón Espólín hafði fengið Borgar- fjarðarsýslu 1796 og bjó nú í Pingnesi. Hann var manna mestur og sterkastur, og var honum mikil fýsn á að sjá Snorra prest og vita um aflraunir hans. Reið hann upp að Húsafelli að finna prest og fást við steinana, mun það hafa verið árið 1799. Prestur tók vel á móti honum og féll vel á með þeim. Er þeir höfðu margt saman rætt, beidd- ist Espólín að sjá steintökin. Eigi lézt prestur ætla, að mikið þrek þætti ung- um mönnum og hraustum að reyna steintök við sig afgamlan. En er til kom, fékk Espólín með engum hætti komið Hálfsterk upp á garðinn, en alt kom hann honum upp í veggjarbrún- ína. Sagði prestur þá, að lag við stein- ?nn mundi Espólín skorta; tók hann síðan steininn og lagði upp ágarðinn; furðaði Espólín það, þótt prestur væri vanur við steininn, er hann var þá nær níræður að aldri en sýslumaður á létt- asta skeiði. Allfróður þótti Espólín hann vera í fornfræðum og mikils fanst hon- um vert um hann. Börn Snorra prests og Hildar voru: 1. Jakob, fæddur 1756, hann var steinhöggvari mikill og smið- ur, svo að margir legsteinar eru eftir hann víða komnir og sumir norður um land, margir dökkrauðir að lit; fékk hann grjót það í Okinu. Hann varð gamall maður, en heyrnarsljór síðari hluta æfi sinnar. Hann var drengur góð- ur, og bjó að Húsafelli eftir föður sinn.« Vatnslelðslumálið. Bæjarstjórn Akureyrar hefir tekið til- boði eiganda Höepfnersverslunar um lán til vatnsleiðslunnar og gengið að því skilyrði að byggja bryggju fyrir alt að 20 þús. kr. norðan við innri hafn- arbryggjuna fyrir lánsfé frá Höepfner. Jafnhliða mun og hugsað til bryggju- gerðar, tii hlýfðar skipakvíarinnar við Torfunef og fleiri endurbóta á bryggj- unni þar. Skipaferðir. »Ingólfur« fór frá Húsavík á laugar- daginn, lá úti í garðinum í þrjá daga, brotnaði eitthvað ofandekks, fór svo á Pórshöfn, kom á Vopnafjörð í gær. »Kong-Helgi« er á Breiðafirði og á leið hingað. Ask liggur í Engiandi og er væntanlegur hingað eftir viku. Vesta kom hingað i gær á útleið. 30 Lange hneigði lítið eitt höfuðið til Bengt; en þó ekki eins vingjarn- lega eins og vant var. »Mér þykir leitt hafi eg gert forstjórann óánægðan með bersögli minni. Pér vitið það að eg skyldi ganga í eldinn fyrir yður, ef yður lægi á. Hafi eg þess vegna sagt einhverja heimsku, sem........« »Eg er vanur við!« greip Lange fram í. »Pú ert annars í seinni tfð orðinn nokkuð opinskár. Jæja, farðu vel!« A veginum til verkstofu sinnar, var Bengt að tauta við sjálfan sig: »Bannsettur asni get eg verið, að hafa ekki betri taum á tungu minni en þetta. Það er meira en meðal heimska að tala svona við mann, sem ekki á sinn Iíka á öllu landinu. Hann er bæði réttlátur og góður og eiskaður af öllum.« Samtímis að þessi vandaði maður Bengt, var að tala svona við sjálfan sig, hafði barón Axelhjelm, svolátandi samtal við sjálfan sig á leiðinni heim í hinum skrautlega vagni Rómarhjarta: »Pvílíkur stoltnarri! Pessi bolti í þeim leik að græða! Hann hefir af engu að stæra sig nema gullinu sínu; að hann skuli þora að tala svona við mig, greifa Axelhjelm, Eg á líklega að verða lagsmaður allra verkamannanna hans.« Baróninn grét af reiði út af því, hvað hann hefði mátt auðmýkja sig og að líkindum mætti framvegis, þegar hann færi að vinna undir stjórn þessa smámennis, sem honum fanst kominn vera af skrílnum. »Eg dey af gremju út af því, að mega auðmýkja mig svona. En hverjum er þetta að kenna? Altsaman honum frænda. Að sönnu átti eg ekkért til og ekkert fékk eg eftir foreldrana. En hann er ríkur þessi frændi og því er hann skyldur til að forsorga mig. Eg þakka honum það ekki. En eg var vitlaus að halda að eg gæti orðið ríkur á því að vinna. Eg ætlaði að hefja þessa verksmiðjuvinnu með mínu aðalsnafni, en í staðin fyrir að þakka mér, líta þeir á mig eins og jafningja sinn og hafa ekkert við mig, eins og mínu standi og stöðu hæfir. Petta er alveg óþolandi!!« 35 VI. Daginn eftir komu þeir báðir, Evert Axelhjelm og ívar á verksmiðju Jakob Langes og voru látnir byrja á þjala-vélunum. Hinn unga aðalsmann var öllum forvitni á að sjá, og ekki örgrant um að þeir hentu gaman að hans stoltlega fasi. ívar vakti einnig all- mikla eftirtekt. »Hvaða lagsmaður er þetta, sem þú kemur með?« spurðu svein- arnir Bengt. »Og það er unglingur,« svaraði Bengt, »sem húsbóndinn hefir tek- ið til kenslu, og eg á að hafa umsjón yfir.« »Hann er fölleitur í framan, greyið. Heldurðu að hann geti orðið smiður að nokkru gagni? Hvaðan er hann?« »Frá Stokkhólmi.* »Nú, nú, drengir þaðan eru allra mestu villudýr. Pað kváðu líka vera morðingjar þar. Hvaða hegningu skyldi hann nú fá, sá sem myrti hana fósturmóður sína?« »Hann var dæmdur sýkn saka,« svaraði Bengt. »Dæmdur sýkn?« sögðu hinir undrandi. »Pað er þó ekki mögulegt,« sagði einn af eldri sveinunum. »Ef það hefir verið gert, þá er lög og réttur ekki lengur til í landinu. Til hvers fj.......er þá að vera ærlegur, ef að slík þrælmenni eru dæmd sýkn saka?« Meðan á þessu samtali stóð, hafði ívar snúið sér við og brugðið Iit- >Kærðu þig ekkert um það,« segir Bengt. »Farðu bara að vinnu þinni. Þeim aumingja dreng var haldið í fangelsinu nærri heilt ár fyrir ósannar líkur, svo þú ættir heldur að kenna í brjóst um hann, heldur en að verá að dæma hann. »Dæmið ekki, svo þið verðið ekki sjálfir dæmdir«, stendur í ritningunni einhversstaðar.« Bengt var »meistara«-sveinn, sem kallað er, efstur allra hinna og hafði talsverð áhrif á þá og naut álits og virðingar hvers manns, bæði yfir og undirgefinna. Pessar athugasemdir sveinanna gjörðu ívar svo niðurlútan, að hann þorði valla að horfa framan I nokkurn mann.

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.