Norðri


Norðri - 25.10.1913, Qupperneq 4

Norðri - 25.10.1913, Qupperneq 4
114 NORÐRl. Nr. 34 Heimsfrægt er hið ameríska ankergangs vasaúr í 14 kar. gullblend- ingsumgerð. Það gengur eftir hvern uppdrátt í 36 tíma og er ábyrgð tekin á réttum gangi í 4 ár. Það er með svissnesku gangverki og merkt »Speciose« og er með rafvél yfirdregið með 18 kar. gulli svo það þekkist ekki frá 100 kr. gnllúri, en kostar þó ekki uema 4 kr. 80 aura, tvö keypt saman kosta 9 kr. 30 aura. Þessi úrategund er margsinnis verðlaunuð. Hverju úri fylgir gylt keðja. Kvennúr af sömu gerð kosta 5 kr. 70 au. Engin áhætta að panta. Skifti eru leyfi- leg og séu úrin send óskemd aftur verður andvirðið endursent Úrin sendast með eftirkröfu af H. Sping- arn Krakau úraverksmiðju 528 Austurríki. Veðrátta um síðustu helgi brá til norðanáttar með fannkomu. A mánudaginn var all- hart veður, brotnuðu þá 8 símastólpar í Skagafirði, bátur brotnaði á Dalvík við Svarfaðardal. Skautafélagið er ekki að bíða eftir ísnum, til að skemta sér. Það kann ósköp vel, að gera dálítið að gamni sínu, þó að Tjörnin sé auð og Esjan blá. Gjörið þið svo vel — það er dansað í kvöld á Hótel Reykjavík! Þið megið koma rennandi og fara rennandi — en bara ekki á skautum. Svo ritar blaðið Reykjavík um skauta- félag höfuðstaðarins. Eitthvað líkt er með skautafélag Akureyrar. Botnvörpungurinn héðan »Ear! Monmauth«, hefir tví- vegis selt afla sinn í Englandi; í fyrra skiftið fyrir 480 pd. sterl., en í síðara skiftið fyrir 500 pd. Skipið var hér inni á dögunum; hafði víða reynt fyrir fiski, en alstaðar mjög tregt um hann. Botn- vörpungarnir syðra afla og mjög illa. Vestri. D.F. „DODRO" aukaskip frá sameinaðafélaginu fer 2. nóv. frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur, þaðan til Akureyrar og svo austur um til Kaupmannahafnar. Búist við að skipið verði hér um miðjan nóvember. Áfgreiðsla D. F. D. S. á Ákureyri 22. október 1913. Eggert Lasdal. Islandsk Kompagni Aktieselskab. Direktör Jörgen Hansen Brolæggerstræde 14. Köbenhavn. Köb og salg af Islandske Produkter. »Flóra« kom hingað í gær á austurleið. Skip- ið hafði legið veðurtept í tvo daga á Patreksfirði. Chocolade og Cacaos verksmiðjan „sirius;“ í Fríhöfninni í Kaupamnnahöfn búa til hið ágæta CONSUM CHOCOLADE Það er efalaust nr. 1 gætið þess að vörumerki vort«standi á pökkunum sem er Lögskráð vörumerki. Útgefandi og prentari Björn Jónsson. 32 »Og stoltið að beigjast,* segir greifinn alvarlegur. »Það er betra að Axelhjelm læri það í tíma, að það er engin skömm að því að vinna, heldur en finna það ofseint eins og eg. Hann hefir einkar gott af þvíi að læra hjá þér. Hann myndi aldrei fá nærgætnari kennara.* »Það er mikið hrós, sem þér berið á mig,« sagði Lange, »En þrátt fyrir alla nærgætni held eg, að eg fái mörg óþægindi af þessum læri- sveini.t »Hvað gerir það,« sagði greifafrúin. »Bara að þér getið gert úr honum duglegan mann.« Lange snýr sér að Helfríði og segir: »Þetta eru skrítnir vinir! Annar fær mig til þess, að taka ti! kenslu, stoltan og stærilátan mann, og eg held heimskan. Hinn segir að það sé sama hvaða óþægindum hann valdi mér, bara að eg geri úr honum duglegan mann!« »Eg kenni í brjóst um yður,« segir Helfríður hlæjandi, en bætir svo við alvarlegri:. »en eg kenni líka í brjósti um barón Axelhjelm.* »Yður finst það líklega ekki rétt af bróður yðar, að vilja breyta baróninum í iðnaðarmann?* »Eftir minni hyggju var það réttara, að velja annan veg í lífinu fyr- ir Axelhjelm heldur en þennan.« Greifinn sneri sér að systir sinni og segir: »ViItu þá ekki segja mér hvaða vegur það er? Evert á engar eigur Hann hefir enga löngun til þess, að ganga lærða veginn, en hefir snef- il af verkfræði og hagleiksnáttúru. Og eg er viss um, að hann á þann hátt gæti fengið sjálfstæða stöðu, fremur en á nokkurn annan hátt. Því eg geng út frá því, að það sé fremur lúðubakalegt fyrir ungan og hraustan mann að borða »náðar-brauð« hjá ættingjum sínum.« »Það er alveg rétt,« segir hún. »En fyrir það ætti hann þó ekki að þurfa að vera að vinna á iðnaðarmanna verkstoíu.« »Og hversvegna?« segir Lange og leit á Helfríði, svo hún roðnaði. »Maður verður þó að kunna vinnuna, áður en maður fer að segja öðr- um til, hvernig þeir eiga að vinna.« »Þegar farið er að mæla á móti yður,« sagði hún hlæjandi, »þá verður maður ávalt að hætta því fyrir skort á röksemdum.* 33 Hinn ungi barón kom nú inn. »Þarna kemur þá sakamaðurinn,* sagði Helfríður. Lange heilsaði vinsamlega Evert og segir: »Á morgun koma 2 kenslupiltar á verksmiðju mína, þér og annar ungur maður, sem eg lofaði í dag að|taka. Eg vil vona að báðir þess- ir verkamenn verði mér til sóma.« Hann lagði áherzlu á orðið »verkamenn« svo að Evert blóðroðnaði. Þegar Lange var sestur niður aftur hjá ungfrúnni, hvíslaði hún að honum: »Þér eruð alt of harðbrjósta.* »Harðbrjósta?« »Já, því þá að viðhafa það orð, sem þér vissuð, að hlaut að særa hann?« »Nú! þér meinið orðið verkamenn? Eg get ekki séð, að það liggi neitt særandi í því orði. Sá sem finnur sig særðan af þv' er heimskingi, sem ekki hefir hugmynd um hvað lífið er.« Greifafrúin var gengin til þeirra og hafði heyrt síðustu orð Langes. Hún segir því: »Það er ekki til neins fyrir yður að reyna það, að gera Helfríði lýðstjórnarsinnaða. Hjá henni er aðalshugmyndin, þýðing höfðingja veldisins svo rótgróin, að hún getur ekki hugsað sér heiminn öðruvísi en með því.« »Nú hittist svo vel á,« sagði Jakob, »að eg ber ætíð stærstu virð- ingu fyrir annara skoðunum og vil heyra þær.« Svo fór hann þangað sem greifi Hermann stóð; en Helfríður horfði á eftir honum með undarlega, innilegu augnaráði. Greifafrúin tók eftir öllu og segir við sjálfa sig: »HvíIík heimska af Helfríði, að halda að hún geti kæft ást sína, með þessu aðals-ættarstolti.« »Eg liefi merkilega nýung að segja ykkur; fyrir hönd ungfrú[Kall- enstjerna hef eg keypt í dag hina eldgömlu stóreign Stúrisjö, sem liggur hérna rétt hjá. Eg held hún ætli sér að flytja þangað í vor.«

x

Norðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.