Norðurland - 13.09.1902, Síða 3
203
Nl.
Fyrsta ástæðan er vanþekking.
Fjöldi manna hér á landi veit ekki
meira um heimatrúboð og hvað jrað er,
heldur en Kínverjar vita um safnaðarlífið
á íslandi.
Sumir halda að heimatrúboð eða innri
mission sé einhver sértrúarflokkur, sem
hafi það aðalaugnamið að vinna sérkredd-
um sínum áhangendur eins og sumar
„sektir" virðast hafa. En þetta er fjarri
öllum sanni, því að heimatrúboð verður
að byggja á sömu trúarjátningu og sú
kirkjudeild hefir, sem hreyfing þessi er
hjá, til þess að geta borið nafn með rentu.
Sumir halda, að þeir, sem heimatrúboði
sinna, séu sí og æ að prédika um eilífa
útskúfun og vinni mönnum stórtjón með
því að hræða menn á helvíti. Flér er það
sannleiksatriði, að danskir prestar yfir höf-
uð og sérstaklega sumir þeirra, er fylgja
heimatrúboði, tala bæði oftar og skýrar
um fordæminguna en vér eigum að venjast,
en mjög er þó logið í viðbót um það
efni. Mér er ekki kunnugt um, hvernig
þessu er varið í öðrum löndutu innan
heimatrúboðs þar; en mönnum til hug-
hægðar get eg bætt því við, að mér er
sjálfum ógeðfelt að heyra mörgum orðum
farið um fordæminguna, enda varasamt
fyrir prédikarann að gera það nema með
grátandi hjarta.
Sumir halda að heimatrúboð sé hvergi
nema í Danmörku. Sannleikurinn er, að
hreyfing þessi hefjr fest rætur um öll
prótestantisk lönd nema ísland.
Menn halda ýmsar fleiri fjarstæður um
heimatrúboðið, sem oflangt væri að telja.
En hvað er þá heimatrúboð?
Það er starf leikmanna og presta að
því að efla guðsríki inn á við í kirkj-
unni. í orðinu innri mission felst ekki
annað en sending inn á við og er það
stundum haft um alt mannúðar og kær-
leiksstarf, sem kristnir menn framkvæma
í Jesú nafni, en í þrengri merkingu sér-
staklega um þær breytingar, sem komið
hafa fram meðal prótestanta á síðustu
öld, þegar leikmennirnir fara að prédika
guðsorð með prestunum og styðja að því
á ýmsan hátt, að svefninn og deyfðin
hverfi.
Ef menn vissu þetta, vissu að heima-
trúboðið starfar fyrst og síðast að því
sama og hver prestur, sem annars er
ekki óhýtur ieiguþjónn, starfar að því,
að vekja og glæða lifandi trú og veita
mönnum blessun safnaðalífsins og sam-
félags trúaðra, þá yrðu sjálfsagt fleiri
með því.
En svo eru aðrir, sem hata heimatrú-
boðið af alt annari ástæðu. Þeir sjá, að
kristna trúin eflist miklu betnr, þegar
Ieikmennirnir fara verulega að vinna ineð
prestunum, en þeir eru vantrúarmenn,
sem er illa við allan kristindóm einkum
starfsaman kristindóm. Meðan þeir þjóna
heiminumogvantrú sinni,mávæntaaðþeir
beiti lygi og róg gegn þeim, sem þeir
telja ómaksins vert að höggva eftir, en
last þeirra er lof fyrir þá, sem drotni
þjóna.
þriðja aðalástæðan gegn heimatrúboði
er „hákirkjuleg" eða á því bygð, að
prestum einutn sé trúandi til að boða
guðsorð svo í lagi sé, og þess vegna sé
leikmannahreyfingarnar injög viðsjárverð-
ar. — Það þarf ekki annað en nefna Moody
eða Fi. N. Hauge til að sanna, að drottinn
getur notað óvígða menn í sína þjónustu.
En satt er það, að leikmannahreyfingar og
heimatrúboð geta farið afvega, það er
svefninn einn og áhugaleysið, sem aldrei
þarf að óttast að taki nein gönuskeið.
Eg hefi áður talað, eins og staðið hefir
i „Verði ljós", um kosti heimatrúboðsins
hér á landi og hvaða gagn það geti
gert og skal því hér slept.
Að eins örfá orð um mína stefnu og
hver ætlan mín er með starfi míuu.
Eg vil starfa að vakningu. Þorri manna
sefur, andlega talað, og margir prestar
setja kröfuna alt of lágt, enda reyna
söfnuðirnir trúlega að lama þá og draga
þá niður, en ber þá ekki á bænarörmum
upp á við.
Eg vil starfa að samfélags kristindómi.
Þessir fáu, sem þó þrátt fyrir alt vilja
ekki annað vita sér til sáluhjálpar en
Jesús Krist og hann krossfestan, sitja
hver í sínu homi, styðja Iítið eða ekkert
hver annan og vinna ekki í sameiningu,
og því æði lítið að eflingu guðsríkis.
Alt þetta mundi breytast, ef bænasam-
komur og sameiginlegur rítningarlestur
færi að tíðkast, ásamt öðru fleira í
líka átt.
Komist hreyflng hér á, þarf hún að
vera íslenzk; mér hefir aldrei komið til
hugar að koma hér á dönskum kristin-
dómi og þætti það óheppilegt að ýmsu
leyti, þvf að þjóðerni vort og landshætt-
ir eru svo ólíkir. Kirkjtileg þarf hún og
að vera. Leikmennirnir verða að vinna
i sambandi við prestinn sinn svo lengi
sem unt er, en prestarnir verða að
skilja þá og leiðbeina þeim eins og
eldri bræður.
Seinni part vetrarins höfðum vér
ritningarlestur og bænasamkomur í
Reykjavík, sem hafa gert meira gagn
en margar prédikanir, og ég vona að
því fari fram.
Það er lífsskilyrði þjóð vorri að eign-
ast lifandi kristindóm, heilbrigða trúar-
vakningu. Ef vér hefðum verið eins
heppnir og Norðmenn að fá kirkjulega
vakningu samhliða þjóðlegri vakningu,
væri þjóðin vor komin lengra en hún er.
Guð gefi að svefninn og kuldinn
megi hverfa én ljósið og hitinn frá
hæðum koma í staðinn.
X
Auðviíað
flytur nú »Austri« þau ósannindi, að
dr. Valtýr Guðmundsson hafi gengið í
bandalag við Einar Benediktsson, til
þess að fá þjóðina til að hafna stjórnar-
bótinni. Hvers vegna hefði blaðið átt
að neita sér um að fara með þau ósann-
indi, jafn-mikið og það hefir við slíkan
flutning fengist?
Og auðvitað legst blaðið í djúpsettar
og alvarlegar hugleiðingar út af því,
hvernig farið hefði, ef dr. Valtýr og
flokksbræður hans hefðu ráðið mestu
á síðasta þingi. Hvers vegna ekki gera
sér einhvern mat úr soðinu af ósann-
inda-hnútunni, úr því að ekki er á róg
að lifa.
Auðvitað fyllast margir heilagri vand-
lætingu — ekki út af því að logið skuli
vera upp á saklausan mann og honum
eignað það, sem honum er skapi fjærst
— heldur út af því, að dr. Valtýr og
hans vinir skuli vera svona miklir föð-
urlandsfjendur!
Þvi að auðvitað gerir það ekkert
til, þó að ekki sé nokkur sannleiks-
neisti í staðhæfinguin þeim, sem not-
aðar eru til að sverta mann. Rógurinn
hefir alveg sömu áhrif fyrir því. Það
er svo margreynt í stjórnmálabaráttunni
hér á landi.
Og auðvitað verður sú raunin á,
þangað til góðir menn í flokki rógber-
anna taka í taumana.
Vatnsveifingar.
Áhöld til vatnsveitinga inn í hús á
Oddeyri komu nú með »Agli«.
Qanga má að því vísu, að vatni verði
að vori veitt inn í hvert hús hér inni á
Akureyri. Áður en sýslumaður Kl. Jóns-
son fór suður á þing í sumar, hélt hann
fund með húseigendum í miðbænum, til
þess að hrinda málinu áleiðis, og bundust
þeir þá samtöknm, kusu nefnd til þess
að hafa rannsókn á hendi og skuldbinda
sig til að bera þann kostnað, sem af
rannsókninni leiddi. í nefndinni eru
kaupmennirnir Magnús B. Blöndal og
Sigv. Þorsteinsson og Sigtr. snikkari Jóns-
son. Nokkuru síðar áttu húseigendur í
suðurbænum fund með sér, tjáðu sig
fúsa á að vera með í samtökum og fela
sömu nefnd að annast framkvæmdir fyrir
sitt leyti.
Þessi nefnd er nú að láta búa til vatns-
skál hér uppi í brekkunni að norðanverðu
við Gilið. Allar líkur eru til þess að
þar sé fáanlegt nægilegt vatn fyrir öll
hús í miðbænum og suðurbænum. En
reynist ekki svo, verður önnur skál búin
til uppi á brekkunni sunnar og pípa lögð
úr henni í vatnsveitiiigarpípuna norðan
að. Áhöldin verða pöntuð að vori.
Skemfisamkoma
var haldin í þinghúsi Höfðhverfinga
á sunnudaginn var til arðs fyrir hið
væntanlega sjúkraskýli læknishéraðsins,
og var húsfyllir. Sigurður héraðslæknir
Hjörleifsson, sem fyrir samkomunni hafði
gengist, setti hana með nokkurum orðum.
Söngur var þar undir forustu Bjarna
Aarasonar á Svalbarði og Friðbjarnar
Bjarnasonar á Grýtubakka. Og Einar
Hjörleifsson ritstjóri las töluvert af sögu-
köflum og kvæðum.
Til Hólaskóla
hefir Sigurður skólastjóri Sigurðsson
keypt bækur og kensluáhöld fyrir iooo
kr. Kensluáhöldin eru valin eftir því,
sem hann álítur hentast hér á landi,
eftir að hafa skoðað söfn skólanna á
Norðurlöndum. Nokkurar efnafræðis-
rannsóknir verður unt að gera við skól-
ann, t. d. að rannsaka fituefni í mjólk
sterkju í kartöflum og svo ýmsar jarð-
vegsrannsóknir. Svo hefir verið keypt
töluvert af mótmyndum af verkfærum
°g fl. og fjöldi af öðrum myndum. Á-
höld eru til að sýna skuggamyndir til
skýringar við fyrirlestrana. Vel flestar
nýrri bækur um búnað, sem líkindi eru
til að komi hér að haldi, hafa verið
keyptar, og svo fær skólinn öll helztu
tímarit um búfræði, sem komu út á
Norðurlöndum. Af ísl. bókum verða
meðal annars til flestar bækur, sem
bókmentafélagið hefir gefið út.
Auk þess, sem stórkaupmaður Fraen-
kel gefur skólanum tilbúin áburðarefni,
eins og getið var um í »N1.« í sumar,
gefa og tveir stórkaupmenn í Khöfn
tilbúin áburðarefni og tilbúin fóðurefni.
Kensluáhöld verða eins góð og á sam-
svarandi skólum erlendis, safnið vita-
skuld ekki eins stórt, en alt hið nýj-
asta, og það, sem nú er mest notað,
verður við hendina.
Þar sem nú svo mikið verður við
skólann af nýjum búnaðarritum og
kensluáhöldum, menn fá tækifæri til
að kynnast efnafræði með tilraunnm, sem
ekki hefir áður verið kostur hér á landi,
og engin ástæða til að ætla annað en
kenslan verði góð, þá verður sjálfsagt
mikinn fróðleik að Hólum að sækja,
bæði fyrir bændur alment, og eins fyrir
menn, sem þegar hafa við búfræðisnám
fengist.
Ingólfur Gíslason
héraðslæknir sýndist á batavegi, en
er þó alvarlega veikur enn, svo allsend-
is er óvíst, að hann sé úr hættu.
Guðm. Hannessyni
héraðslækni hefir batnað mikið sið-
ustu dagana, en er þó til muna bólginn
undir hendinni. Flest getur hann unnið,
sem fyrir kemur.
Síra Ásm. Gíslason
á Bergstöðum kom hingað nú í vik-
unni og er nýlega farinn heim aftur,
var að finna bróður sinn Ingólf lækni,
með því að hann hafði fengið þær fregn-
ir af honum, að hann væri í mikilli
hættu.
Skilvindu-viðgerð.
Vér vekjum athygli manna á auglýs-
ing Búnaðarfélags Islands um þann kost,
sem menn eiga nú á að læra að gera
við skilvindur. Sigurður Jónsson er
dverghagur maður, en eftir því sem oss
er skrifað úr Reykjavík, hefði hann ekki
getað fundið það af hyggjuviti sínu, sem
hann hefir lært. Búnaðarfélög úti um
landið ættu að sjá um að kenslu-tilboð-
inu sé sint.
Aflabrögð.
Síld er lítil hér inst á firðinum. Tíu
strokkar fengust í fyrradag í einar
fiskikvíarnar (Jens Petersens). Höepfners
verzlun og Hansen, sem *nú er í félagi
um nótalag, köstuðu nót á miðvikudag-
inn og fengu 50—100 strokka. Við Hjalt-
eyri er lítill afli. Fram undan Höfða-