Norðurland - 15.08.1903, Page 3
187
NI.
Stjórnarskrárfrnmvarp síðasta þings
var samþykt við 3. umrœðu í efri deild
31. júlí, að viðhöfðu nafnakalli, með
öllum atkv. gegn einu (Sig. Jensson).
*
* *
Heimullegar kosningar. Efri deild liefir
samþykt kosningalagafrumvarp stjórnar-
innar (leynilega atkvæðagreiðslu og kjör-
stað í hverjum hreppi), en hafði þó áður
breytt því í ýmsum greinum eftir upp-
ástungu nefndarinnar, er deildin skip-
aði í málið. Til þess að afstýra hé-
gómlegum og meiningarlausum þing-
menskuframboðum var því ákvæði bætt
inn í frumvarpið, að hvert þingmanns-
efni skuli láta fylgja framboði sínu
yfirlýsingu að minsta kosti 12 kjós-
enda í kjördæminu um að þeir styðji
kosningu hans. Með þessu hugði nefnd-
in að náð yrði sama takmarki og með
50 króna kjörfylgisveðinu, er ákveðið
var í frumvarpi síðasta þings, en stjórn-
in neitaði að staðfesta, af því að það
kæmi í bága við stjórnarskrána.
Nokkur þingmannafrumvörp.
Nýju þingmennirnir. Efri deild hefir
afgreitt frá sér frumvarpið um kosn-
ing nýju þingmannanna fjögurra. Til-
laga kosningalaganefndarinnar um að
láta kjósa þá sinn í hverjum lands-
fjórðungi var feld, en samþykt í þess
stað að skifta þeim jafnt milli kaup-
staðanna Reykjavíkur, ísafjarðar, Akur-
eyrar og Seyðisfjarðar, er hver kjósi
einn þingmann.
Um útflutningsgjald af hvalafurðum.
Nefndin í fiskiveiðamálinu leggur fram
frumvarp um breytingu á útflutnings-
gjaldi af hvalafurðum á þessa leið:
1. Af hverri tunnu hvallýsis kr. 1.25
2. Af hverjum IOO pd. af
hvalkjötsmjöli..............— 0.50
3. Af hverjum 100 pd. af
hvalguano................-— 0.25
4. Af hverjum 100 pd. af
hvalbeinamjöli..............— 0.25
Gjald þetta er sem stendur, samkv.
lögum 11. nóv. '99: 0.50; 0.25; 0.10;
0.10.
Um leynilegar kosningar og hluta-
fallskosningar til bæjarstjórna í kaup-
stöðum. Flm. Hannes Hafstein og
Þórh. Bjarnason.
Um eftirlit með þilskipum, sem not-
uð eru til fiskiveiða eða vöruflutninga.
Frá nefndinni í fiskiveiðamálinu.
Frumvarpið mælir svo fýrir, að öllum
þilskipum, sem notuð eru til fiskiveiða
eða vöruflutninga, og skrásett eru hér
á landi, skuli fylgja svo margir skips-
bátar, að skipverjar geti allir farið í land
í senn, ef þörf krefur.
Útgerðarmaður skal skyldur að senda
lögskráningarstjóra, eða umboðsmanni
hans, fyrir lok janúarmán. ár hvert, til-
kynningu um það, hvaða þilskip hann
ætli að nota til fiskiveiða eða vöru-
flutninga á því ári og hve marga
menn hann hafi áformað að láta lög-
skrá á hvert þeirra. Skipin skulu síð-
an skoðuð af tveim valinkunnum og
óvilhöllum skoðunarmönnum, er kjósa
sér oddamann, ef ágreiningur verður.
Álíti þeir að skip sé þannig úr garði
gert, að lífi eða heilsu skipverja sé
hætta búin, sakir þess, hve skipið er
veikbygt, eður sakir fúa eða annara
galla, þá má eigi lögskrá menn á
slíkt skip fyr en sannað er með vott-
orði skoðunarmanna, að bætt sé úr
því, sem ábótavant þótti. Virðist skoð-
unarmönnum íbúðarrúm skipverja illa
útbúin, of lítil eða loftill fyrir þá tölu
skipverja, sem ætlað er rúm í þeim,
má eigi lögskrá fleiri menn á skipið
en skoðunarmenn meta, nema héraðs-
læknir telji það óhult.
Um stofnun lagaskóla á íslandi. —
Við skólann eiga að vera tveir fastir
kennarar: Forstöðumaður með 4000
kr. launum og annar kennari með 3000
kr. Flm. Jón Magnússon.
Um breyting á I. gr. í lögum 19.
febr. 1886 um friðun hvala, — að allir
hvalir, nema smáhveli, svo sem hnýsur,
höfrungar og marsvín, skuli vera frið-
helgir fyrir skotum hvervetna í land-
helgi árið um kring, nema í ísvök sé
eða fastir á grynningum, eða haml-
aðir á annan hátt þvílíkan. Flm. Hannes
Hafstein, Jóh. Jóhannesson.
Um afnám svonefndra Maríu- og
Péturslamba, — að fóðurskylda þeirra
verði afnumin frá fardögum 1904 að
telja, en hlutaðeigandi prestaköllum
greidd uppbót úr landssjóði fyrir tekju-
rýrnun, er af því stafar. Flm. Jóh. Jó-
hannesson.
Um ýmisleg atriði er snerta síld-
veiði, — um bann gegn því, að útlend
skip séu notuð við síldarsöltun eða
aðra verkun síldar til útflutnings, né
heldur innlend skip í samfloti við út-
lend. Lögreglustjóri má skipa eftir-
litsmenn til að hafa umsjón með síld-
veiðinni, og fá þeir að launum 5 aura
af hverri tunnu síldar, sem út er flutt.
Af öllum síldarnótum, sem fluttar eru
út frá íslandi, skal greiða útflutnings-
gjald, 1 kr. fyrir hvern ferhyrnings-
faðm í nótinni. Flm. Hannes Hafstein,
Stefán Stefánsson.
Um lyfjasölu héraðslækna, — að þeir
skuli hafa einkarétt til lyfjasölu í þeim
héruðum, þar sem engin löggilt lyfja-
búð er; þó mega aðrir læknar, er rétt
hafa til lækninga, selja meðul, er þeir
sjálfir ráðleggja sjúklingum, ef þeir
hafa fengið þau hjá héraðslækninum
eða lyfsala innanlands. Flm. Jón Jónas-
sen.
Um að undirbúa nýtt jarðamat.
Meiri hluti landbúnaðarnefndarinnar
flytur frumvarp um það, að allar
jarðir á landinu skuli meta til dýr-
leika í hundruðum króna. Matið skal
framkvæmt af 3 mönnum í hverri
sýslu, er sýslumaður kveður til. Mats-
menn skulu leysa starf þetta svo af
hendi, að þeir geti verið við því búnir
að staðfesta gjörðir sínar með eiði.
Páfinn andaður.
Leó páfi 13. andaðist 20. f. m.
eftir rúma hálfsmánaðar legu. Hann
var fæddur 2. marz 1810. Páfi varð
hann 3. marz 1878. Hann er talinn
með mestu vitmönnum og lærdóms-
mönnum, sem í páfastóli hafa setið.
I
Ágætur afli.
Hjalteyri þ. 9. ágúst 1903.
Nú getum við fært blaðinu okkar,
»Norðurlandi«, góðar fréttir, því að
nú hefir verið lífvænlegt hér út með
firðinum hvað aflabrögð snertir, og
skal hér skýrt frá því, eftir því, sem
kostur er á.
Eins og kunnugt er, hefir verið
lítill afli hér á firðinum framan af í
sumar. En um miðjan mánuðinn síð-
astliðinn fór þorskafli að aukast, og
innan fárra daga var orðinn hlaðafli
alstaðar hér út með firðinum, alt
hingað inn fyrir Hjalteyri.
Vikuna frá 20.—26. f. m. voru
hlutir á dag um 6—7 kr. víða á
bátum. Samt var misfellasamt með
róðra sökum beituleysis fyrst, en um
þ. 22. f. m. urðu menn varir við
mikla síldargöngu út af Ólafsfirði og
inn fyrir Hrólfssker, sem liggur út
af Hrísey. Næstu nætur var lagt fram
undan Yztabæ, og fengu menn full
net. Nú fóru menn sömuleiðis að
leggja vestan fjarðarilns, á Svarfaðar-
dal og inn strendurnar, — því allar
víkur og vogar voru svartar af síldar-
torfum.
Hér við Hjalteyri hefir síldaraflinn
verið mikill, — og verður vikan frá
29. júlí—4. ágúst mönnum lengi f
minni.
Fyrst voru lögð þ. 28. nokkur net,
sem næsta morgun voru full af síld.
Þ. 29. fóru allir að leggja og fengu
fyrirhöfn sína fyllilega borgaða. Því
margir bátar fengu 10—20 tn. yfir
nóttina í fá net hver.
Sem sérstakt dæmi upp á þessa
síldarhrotu skal geta þess, að einn
bátur fekk hér utan við 70 tn. á
þremur dægrum í 4 net — þannig að
netin fyltust jafnóðum og úr var tek-
ið. Þessi bátur er nú búinn að fá um
160 tn. á liðugri viku — enda köllum
við formanninn, sem heitir Ól. Odds-
son, síldarkong, og á hann það nafn
með réttu fyrir dugnað sinn og hag-
sýni í síldarveiðum. Mannahlutir munu
vera yfir vikuna frá 60 kr. upp í
250 kr. eftir afla og mannafjölda á
bátunum — geri þeir betur í Klondyke.
Hér á Hjalteyri er búið að salta
um 750 tn. af síld við verzlun Ó.
Möllers. Á Litlaársskógsandi mun Lars-
sen nótaútgerðarmaður vera búinn að
kaupa fullar 1000 tn., og í Hrísey
var búið að kaupa, þegar síðast frétt-
ist, fullar 400 tn.
Þetta er alt netasíld veidd á einni
viku, og er það mjög mikið, þegar
þess er gætt, að heyskapur stendur
yfir, og margir hér út frá eru bæði
land og sjávarbændur. En sumir hafa
fleygt frá sér orfinu og hætt að slá
um tíma, til þess að ná í síldarhlaup
þetta.
Síldarverð hefir verið 6—8 kr. hér
út frá.
í morgun er lítil síld, en við von-
um, að hún komi aftur upp og Norður-
land eigi eftir að fá aðra skýrslu frá
okkur innan skams líka þessari.
Fiskiskipið »Mínerva« (Ó. M.) kom
hér inn um daginn með á fimta þús-
und.
Tíðarfar kalt. Tún ffemur vel sprottin
og lítur út fyrir fremur gott grasár hér
ytra.
'4
Siglingar.
Sd. 9. ágúst kom seglskipið »Ingeborg“
með kolafarm frá Englandi til Höepfners
verzlunar.
Md. 10. ág. kom „Vesta" að sunnan.
Farþegar hingað Sigurður Magnússon læknir
af Dýrafirði með fiú sinni, Júlíus Halldórs-
son læknir af Blönduós, Claessen kaupmaður
af Sauðárkrók og m. fl. „Vesta" fór héðan
aftur daginn eftir. Með henni tóku sér far
meðal annarra Sörensen stórkaupmaður með
frú sinni og syni til Khafnar og Gránu-
félagsfulltrúar á fund félagsins á Seyðisfirði.
Föstud. 14. ág. kom gufuskipið „Krystal*
af Austfjörðum. Með skipinu kom sú frétt,
að „Mjölnir" sé lagður á stað til útlanda.
S. d. kotn „Ceres" frá Reykjavík austan
um land. Með henni komu auk margra
annarra: Frá Reykjavík Guðm. Björnsson
héraðslæknir, frk. Ragna Stephensen, frk.
María Stephenseu, Jón Þórðarson kaupmað-
ur, justizráð Hansen, frú Lund; frá Seyðis-
firði Þorv. Davíðsson kaupm. hér, Halld. Jón-
asson stúdent og Þorst.Skaftason prentsmiðju-
eigandi; síra Þorleifur Jónsson á Skinnastað.
Enginn síldarafli
hefir verið hér innfrá meira en viku, og
er ótíðinni kent um.
Hinn seffi sýslumaður
vor og bæjarfógeti, Guðm. Björnsson,
lagði á stað héðan heimleiðis í gær.
Siglufjaröarpósfferðin.
f síðasta NI. er sagt, að póstferðin milli
Akureyrar og Siglufjarðar sé tvær dagleiðir
á sumrum. Pósturinn (hr. Hallgr. Kráksson)
hefir bent oss á, að ekki sé unt að fara þá
ferð á svo stuttum tíma með póstflutning
vegna krókanna, sem eru á póstleiðmni (að
Hjalteyri, Kvíabekk og Haganesv(k) og vegna
viðstaðanna á afgreiðslustöðunum. Allra-fljót-
asta ferð fyrir póstinn er 2Va dagur hvora leið,
en jafnaðarlega ganga til hennar 3 dagar fullir
á sumrum.
Bœjarsfjórnarfundir.
Þriðjudag 14. júlí.
Samþykt að leigja barnaskólann til
gagnfræðakenslu næsta vetur, samkvæmt
beiðni frá Hjaltalín skólastjóra.
Beiðni frá Magnúsi Einarssyni um launa-
hækkun vísað til skólanefndarinnar.
G. Dinesen neitað um leyfi til að setja
niður netakvíar á þeim stöðum, sem Chr.
Havsteen var leyft að hafa þær í fyrra
og skorað á oddvita að hlutast til um, að
Havsteen láti hreinsa svæði það, sem neta-
kvíarnar stóðu á, svo að þar séu ekki
staurar né annað til fyrirstöðu fyrirdrátt-
um.
Sigurði búfræðing Þorsteinssyni gerður
kostur á íbúðarhússlóð við Eyrarlandsveg-
inn, ef hann legði fram skilríki fyrir næstu
mánaðarmót fyrir því, að hann gæti komið
húsinu upp á þessu sumri,
Leyft að Ieigja gagnfræðaskólanum stof-
una, sem er við enda bæjarþingsstofunnar
í leikhúsinu, gegn því að leiga sú er bær-
inn borgar þar, væri færð niður um 5 kr.
á mánuði.
Þriðjud. 28. júlí
Frestað beiðni Sigurðar Sigurðssonar
um land.
Sömuleiðis frestað beiðni Sigurðar Sig-
urðssonar og Péturs Þorgrímssonar um
land.
Vísað til byggingarnefndar beiðni frá
Benjamfn Benjamínssyni um lóð við Eyrar-
Iandsveg.
Veittar 20—30 kr. til hreinsunar á göt-
um bæjarins.
Þriðjud. 6. ágúst.
Höepfnersverzlun gerði kost á að selja
lóðina frá rauða stólpanum inn að bakara-
húsi verzlunarinnar og óskaði að tekið
væri upp í kaupsamninginn, að lóðin væri
eigi seld til verzlunar. Verðið átti að vera
1000 kr. Bæjarstjórnin ákvað að kaupa
lóðina fyrir 1000 kr. með öllum gögnum
og gæðum til lands og sjávar, kvaðalausa,
og fól oddvita að semja um kaupin og
taka lán til að borga kaupverðið, ef þess
gerðist þörf.
Ákveðið með 4 atkv. gegn 1 (J. V. Hav-
steens) að byggja yfir hið auða svæði á
milli hinna tveggja brúa, sem ákveðið
hefir verið að leggja fram á bryggjuhöfuð-
ið fram af bryggju bæjarins á Akureyri
og verja til þess alt að 650 kr.
Eyrarlandsnefnd falið að láta smala land
bæjarins og reka sauðfé til afréttar.
Benjamín Benjamínssyni leyft að reisa
smiðju í gilinu fyrir ofan Mr. Jones með
ýmsum skilyrðu.m
N