Norðurland


Norðurland - 05.09.1903, Page 2

Norðurland - 05.09.1903, Page 2
Nl. 198 blað? Ætti að þurfa nema eina slíka grein til þess að gjöra blað það, er með hana kemur, óalanda, óferjanda, óhæfilegt til að koma inn í nokkurt heiðvirt hús, ef velsæmistilfinningin væri nógu mikil hjá almenningi?* »Bjarka»-greinin sem höf. vitnar til, er alt annars eðlis, og mér finst alveg rangt að heimfæra hana undir þennan flokk. Það er ein af þeim greinum í því blaði, sem stóðu með rithöfundar- markinu dr. X. Hún er um ódauðleikann, að lífstilveran sé engin eftir dauðann og að mönnunum sé ekki nauðsynlegt að trúa á annað líf. Síra J. B. segir sjálfur, að hún sé »stillilega. orðuð.« Þar er, með öðrum orðum, ekkert við- sjárvert, nema skoðunin, sem fram er haldið. Eg er alveg jafn - ósamdóma þeirri skoðun eins og síra J.B. Eg trúi því, sem Kristur hefir um það efni sagt. Og eg er sannfærður um það, að það sé vís- indalega sannað, að lífstilvera vor haldi áfram eftir dauðann. Eg er líka sam- mála síra J. B. um það, að »þótt benda megi á stöku menn, sem lifað hafa vönduðu lífi í siðferðislegu tiliti án trúarinnar á lífstilvon eftir dauðann,* þá verði þó aðalreglan þessi: »Rang- lætistilhneigingin, syndsemin í mann- legu eðli, fær lausan taumin við það að ódauðleikatrúin er deydd.« Eg tel það því hið mesta ólán mannkynsins, ef sú skoðun yrði ofan á, sem haldið er fram í þessari grein f «Bjarka«. En eg get ekki með nokkuru móti látið mér skiljast, að bókmentavöllur- inn sé saurgaður með ritgjörðum móti ódauðleikatrúnni. Allar rangar skoðanir eru hættulegar, jafnvel þótt um þau efni sé að tefla, sem smávægileg eru talin. Þær geta allar orðið stórhættu- legar. í því efni er ekkert sérstaklega ástatt iwn rangar skoðanir um ódauð- leikann. En hvaða vit væri í því að telja allar rangar skoðanir óhafandi saur? Hvað yrði þá úr frelsi manns- andans ? Siðuðum þjóðum hefir komið saman um það, að eitt af skilyrðunum fyrir þekking og viðurkenning sannleikans sé einmitt það, að allar skoðanir, hvort sem þær eru rangar eða réttar, hafi rétt tii þess að koma fram. Viður- kenning þess er einn af hinum miklu áttavitum mannkynsins. Missum vér sjónar á þeim áttavita, fer ekki hjá því, að vér komumst út í verstu ó- göngur. Hreinleikur eða óhreinleikur ritgjörðanna fer ekki eftir skoðununum, sem fram er haldið, heldur þeim hrein- leik eða óhreinleik hjartans og hugar- farsins, sem þar kemur fram. Vísvit- andi lygar koma æfinlega frá saurugu hjarta. En efninn um ódauðleikann hefir oft búið í hinum hreinustu sálum. Og engar óhreinar hvatir þurfa að stjórna gjörðum mannanna, þó að þeir reyni að sætta mannkynið við þau forlög, sem þeir eru sannfærðir um að bíði þess. Síra J. B. gerir mjög mikið úr velsæmis og hreinleika-tilfinning Eng- lendinga. Hvað mundu þeir nú segja, ef farið væri að kenna þeim það, að Stuart Mill hefði saurgað bókmenta- völl þeirra? Þeir mundu segja, að það næði engri átt. Og þó hefir enginn maður ritað ákveðnara móti ódauð- leikatrúnni en hann. Auk þess, sem minst er á blöðin hér heima, tilfærir höf. dæmi úr vestur- íslenzkri blaðamensku um saurgun bók- mentanna, og verður víst ekki annað sagt, en að ummælin séu rétt og makleg. Si'ðari hluti fyrirlestursins stendur í mjög lausu, nálega engu sambandi við fyrra hlutann, og er það óvenju- legt um fyrirlestra síra J. B. Hugsana- sambandið er þar ve-njulega mjög fast. Þessi síðari hluti byrjar á staðhæf- ingum um, að það sé »nýjungagirni, breytingafýsn, byltinga-tilhneiging, sem einkennir þjóðflokk vorn á þessum síð- ustu tfmum«. Þessi galii á að vera aðalþröskuldurinn. Enga tilraun gerir höf. til að sanna þetta. Og þess gerist þó full þörf. Það þarf meira að segja að ganga vandlega frá sönnunum fyrir annari eins staðhæfing og þessari, ef komast á hjá því, að hún verði blátt áfram hlægileg í augum þeirra manna, sem nokkuð hafa athugað þetta mál. Þjóð sem býr í sams konar híbýl- um eins og fyrir 1000 árum, þjóð, sem hefir yfirleitt sama búskaparlag og sömu vinnuaðferð eins og fyrir 1000 árum, þjóð, sem af íslenzkum bókum les langhelzt þær, sem ritaðar voru fyrir 600-—700 árum og að mjög miklu leyti hugsar sömu hugsanirnar eins og fyrir svo löngum tíma, þjóð, sem telur sig öll hafa sömu trú, þjóð, sem aldrei fær einu sinni neitt að heyra, sem teljandi er, um andlegar og atvinnulegar byltingar í veröldinni, þjóð sem hefir að kalla má alt sitt kven- fólk í þjóðbúningi o. s.frv., o. s. frv.,þessi þjóð á aðalega að vera í hættu stödd af »nýjungagirni, breytingafýsn, bylt- ingatilhneiging«! »Margt er sér til gamans gert,« segir skáldið, og margt má segja okkur íslendingum hér heima í fá- sinninu. En mér finst samt, að annar eins maður og síra J. B. ætti að finna til einhverrar ábyrgðar á því, sem hann leggur til mála vorra. Eg sagði áður, að engin tilraun væri gerð til þess að sanna þessa breytinga- fýsnar-staðhæfing. Það, sem höf. minn- ist á tilhneiginguna til að búa til ný orð og á stafsetningarruglinginn, tel eg alls enga tilraun. Er það nokkuð undarlegt, eða lýsir það nokkurri breyt- ingafýsn, þó að verið sé að mynda ný orð í tungu eins og íslenzkunni, sem hingað til hefir verið beitt við tiltölu- lega fáar hugmyndir? Jafnvel í tungum menningarþjóðanna miklu er alt af verið að mynda ný orð. Eg er, til dæmis að taka, þessa dagana að lesa enska bók, sem úir og grúir af orðum, sem ekki eru til í nýjustu og stærstu orðabókum enskum. Og um stafsetningarmálið er það að segja, að í raun og veru er þess engin von, að þar sé komin sú skipun á, sem allir lúta. Eftir hvaða fyrirmynd ættu menn að fara? Hvers vegna' hefir ekki síra J. B. sjálfur sömu stafsetning eins og fornaldarrithöfund- ar vorir? Af því að þá ætti alþýða manna mjög örðugt með að lesa rit hans. Hvers vegna hefir hann þá ekki sömu stafsetning eins og t. d. Magnús konferenzráð Stephensen? Af því að henni ber ekki saman við þekking hans. Þriðja spurningin kemur oss til hugar; en henni getur víst síra J. B. einn svarað: Hvers vegna hefir hann sjálfur aðra stafsetning en allir aðrir hafa nú og hafa haft frá því, er fyrst var farið að rita íslenzku? Einmitt á síðustu árum hefir verið gerð alvarleg tilraun til þess að koma sér saman um stafsetning, er íslendingar geti alment aðhylst. Og naumast verður annað sagt, en að sú tilraun hafi tekist vonum framar. E. H. % 2rá útlöndum. Rússneskur konsúll, Rostkovsky að nafni, var myrtur í Monastir, næst- stærstu borginni í Makedóníu, af tyrkneskum hermanni 8. f. m. Kon- súllinn var talinn valmenni, og kristn- ir menn áttu þar athvarf; jafnframt gekk hann ótrauðlega fram í að leiða í ljós hermdarverk Tyrkja, og var því óþokkaður af þeim. Rússa- stjórn gengur ríkt eftir hefndum. Þ. 10. f. m. kviknaði í vagnalest, sem var að fara eftir jarðgöngum í Parísarborg. Samtímis brunuðu aðrar lestir inn í göngin. Þar varð svo mikill reykur og hiti, að ekki varð líft og alt komst í uppnám. Þar köfnuðu 90 manns, alt eða mestalt verkafólk. Líkin voru óskemd af eldi, en kolsvört af reyk, og hræðilega afskræmd eftir dauðastríðið. Hand- leggirnir stóðu beint upp í loftið, hnefarnir kreptir, en fæturnir kross- lagðir. X Frá alþingi. Þessi lög hafa verið afgreidd frá alþingi í sumar: Frá sfjórninni. Um breýtingu á stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni íslands 5. jan. 1874. — Fjárlög fyrir árin 1904 og 1905.— Fjáraukalög fyrir árin 1902 og 1903. — Um samþykt á landsreikningnum fyrir árin 1900 og 1901. — Fjárauka- lög fyrir árin 1900 og 1901. — Um aðra skipun á æðstu umboðsstjórn ís- lands. — Um gagnfræðaskóla á Akur- eyri. — Um frestun á framkvæmd laga 25. október 1895 um leigu eða kaup á eimskipi og útgerð þess á kostnað landssjóðs. — Um kosningar til alþing- is. — Um verzlanaskár, firmu og pró- kúru-umboð. — Um vörumerki. — Um heilbrigðissamþyktir fyrir bæjar- og sveitarfélög. — Um varnir gegn berkla- veiki. — Um breyting á gildandi á- kvæðum um almennar auglýsingar og dómsmálaauglýsingar. — Um viðauka við lög 8. nóv. 1895 um hagfræðis- skýrslur. Frá þingmönnum. Um ábyrgð ráðherra íslands. — Um að skifta Kjósar- og Gullbringusýslu í tvö sýslufélög. — Um löggilding verzlunarstaðar við Selvík í Skaga- fjarðarsýslu. — Heimildarlög um á- fangastaði. — Um stækkun verzlunar- lóðarinnar í Reykjavík. — Um heim- ild til lóðarsölu fyrir Reykjavíkurkaup- stað. — Um breyting á kgsbr. 3. apr. 1844 viðvíkjandi Brúarkirkju í Hof- teigsprestakalli. — Viðaukalög við lög nr. 17, 13. sept. 1901 um breyting á tilsk. 20. apr. 1872 um bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavfk. — Um verð- laun fyrir útflutt smjör. — Um lög- gilding verzlunarstaðar f Bolungarvík í Hólshreppi í Norður-ísafjarðarsýslu. — Um breyting á lögum nr. 4, 19. febr. 1886, um utanþjóðkirkjumenn.— Um breyting á 24. gr. í lögum um bæjarstjórn á ísafirði frá 8. okt. 1883. — Um breyting á lögum nr. 8 um vegi frá 13. apr. 1894. — Um löggilding verzlunarstaðar við Kálfshamarsvík í Vindhælishreppi f Húnavatnssýslu. — Um ráðstafanir til útrýmingar fjákláð- anum. — Um eftirlit með mannflutn- ingum til útlanda. — Um hafnsögu- skyldu í ísafjarðarkaupstað. — Um við- auka við lög um meðgjöf með óskil- getnum börnum. — Um löggilding verzlunarstaðar á Grenivík við Eyja- fjörð. — Um friðun fugla. — Um við- auka við lög 9. jan. 1880 um breyt- ing á tilskipun 4. maf 1872 um sveitar- stjórn á íslandi og breyting á lögum 9. ágúst 1889 um viðauka við nefnd lög. — Um leynilegar kosningar og hlutfallskosningar til bæjarstjórna í kaupstöðum. — Um að stjórninni veit- ist heimild til að makaskifta þjóðjörð- unni Norður-Hvammi í Hvammshreppi fyrir prestsetursjörðina Fell f Dyrhóla- hreppi. — Um eftirlit með þilskipum, sem notuð eru til fiskiveiða eða vöru- flutninga. — Um viðauka við lög 14. des. 1877 um tekjuskatt.—Um stofn- un lagaskóla á íslandi. •— Um breyt- ing á 1. gr. í lögum 19. febr. 1886 um friðun hvala. — Um ýmisleg at- riði, er snerta síldveiði. •— Um löggild- ing verzlunarstaðar á Ökrum í Hraun- hreppi í Mýrasýslu. — Um stofnun seðladeildar í landsbankanum í Reykja- vík. — Um löggilding verzlunarstaðar við Heiði á Langanesi f Norður-Þing- eyjarsýslu. — Um heimild til að kaupa lönd til skógarfriðunar og skógar- græðslu. — Um breyting á 1. gr. í lög- um nr. 24 frá 2. okt. 1891. — Um fólks- innflutning til íslands. — Um kosningu fjögurra nýrra þingmanna. — Um þing- sköp til bráðabirgða fyrir alþingi. •— Um lífsábyrgð fyrir sjómenn, er stunda fiskiveiðar á þilskipum. — Um breyt- ing á lögum 11. nóv. 1899 um út- flutningsgjald af hvalafurðum. — Um heimild til lántöku fyrir landssjóð. — Um eftirlaun. — Um skyldu embættis- manna til að safna sér ellistyrks eða kaupa sér geymdan Iffeyri. — Um tún- girðingar. Norðurl. mun skýra nákvæmar frá efni helztu laganna svo fljótt sem kost- ur verður á. Hér fara á eftir helztu atriði fáeinna merkislaga. Túngirðingulögin. 1. gr. Á tímabilinu 1905—1909, að báð- um árum meðtöldum, má á ári hverju verja til lánveitinga 100,000 kr. úr Iandsjóði, til að kaupa galvaníseraðan gaddavír, gal- vaníseraða járnteina og galvaníseraða járn- stólpa í túngirðingar. 2. gr. Hver eigandi eða ábúandi jarðar, sem vill algirða tún sitt, getur fengið til pess lán úr Iandsjóði á þann hátt, sem mælt er fyrir í lögum þessum, og ver landsstjórnin því til að kaupa girðingarefni það, sem nefnt er í 1. gr., og til fiutnings- kostnaðar á því til hafna þeirra, sem ósk- að er, og strandferðaskipin koma á. Sýslunefndir annast um, að menn séu á höfnunum, er veiti girðingarefninu mót- töku, og gjöra aðrar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, og skulu sýslusjóðir kosta uppskipun, geymslu og afhendingu efnisins. 3. gr. Á jörðum einstakra manna og stofn- ana Ieggur Iandssjóður fram 3/4 af verði girðingarefnisins; þó leggur hann það alt fram, þar sem hlaðinn er svo hár garður undir, að eigi þarf fleiri en 3 strengi ofan á hann, til þess að hann sé fullkomin vörn fyrir öllum búpeningi. Á öllum landssjóðsjörðum og kirkjujörð- um skal verð fyrir girðingarefnið að öllu leyti Iagt fram af landssjóði. 4. gr. Af láni því, er Iandssjóður leggur fram til girðinganna, greiðast árlega, í 41

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.