Norðurland


Norðurland - 05.12.1903, Síða 4

Norðurland - 05.12.1903, Síða 4
44 »1. »Eg hefi lesið inngang þinn að umtali um þingið. Mér líkar það vel — mjög vel. — Sérstaklega er einkar maklegum orðum farið um túngirðingaflanið. Það verður sann- arlega einhvern tíma markvert dæmi upp á fálm f loftið — sem á að vera framfarir, en er bara fálm. Bótin er, að bændur lands- ins verða alment það skynsamari en þingið, að þeir nota eigi slíkt lán, nema þá gintir af einhverjum gösprurum á stöku stað. En framgangur þess á þinginu, eins og ýmis- legt fleira, sýnir, hvernig valdakapphlaupin, kosningaloforðin, rógurinn og ósannindin eru búin að spilla þinginu. »En hvað segir svo nýja stjórnin? hver verður hún ? Heldur hún áfram á sömu braut: að kitla kjósendur með fögmm orð- um og hátíðlegum heitum, sem verða kák og hálfverk, er til efndanna kemur? Eða verður hún framfarastjórn — sönn og ein- Iæg framfarastjórn ?« % Spæjarinn. Skáldsaga eftir Max Pemberton. [Framhald.] »En það getum við ekki,« mælti Páll. »Við getum ekkert séð; við getum að eins hafst eitthvað við, Marian, og það höfum við bæði gert, þó að guð megi vita, hvað það er, sem við höfum hleypt okkur út í og hvernig það fer! Á þessu augnabliki erum við í ey nálægt Finnlandi, og hér verðum við þangað til lygnir og sjóinn Iægir. Þá förum við út á »Esmeröldu« aftur og á morgun komum við til Stokk- hólms.* Hún klappaði saman höndunum, starði svo fram undan sér og mælti: »Þetta er heil veröld af eyjum, líflaus veröld. Enginn blettur getur verið eins einmanalegur í heiminum eins og þessi. Og þó finst mér þetta nú eins og borg. Eg gæti hugsað mér fuglana sem menn, klettana eins og kirkjur og stórhýsi. Ald- ingarðurinn Edin er ekki torfundinn, þeg- ar maður hefir ekki séð sólina heilan mánuð.« Hann klappaði henni og bað hana að gleyma þvf, að það gæti verið undir dutl- ungum veðursins komið, hve nær hún yrði frjáls kona. »Þér þykir vænt um að vera frjáls, Mar- ian; þér þykir jafnvænt um það og mér. Einhvern tíma kann að koma sá dagur, er við minnumst þessa dags og tölum um hann eins og morgun ástar okkar. Eg held ekki, að þeir elti okkur; þeir eru fáir, sem rata um þessar slóðir; jafnvel fiskimönnum er ekki mikið um það gefið að koma hingað; þetta er sannkölluð sjó- mannagröf og að því hefir mörgum vösk- um dreng orðið.« »Og samt hættir þú þér hingað.« »Eg átti einskis annars úrkosta. Við gát- um ekki komist fram hjá skipunum, sem send höfðu verið á eftir okkur, og við gátum ekki snúið aftur; þetta var eina höfnin, ef við ætluðum ekki að snúa aftur til fangelsisins, sem hinir vildu koma okkur í.« Hrollur fór um hana og hún hallaði sér upp að honum. »Við snúum aldrei aftur, elsku-vinur; er ekki svo?« Hann fór að taka upp smásteina og fleygja þeim út í freyðandi öldurnar. »Eg veit það ekki,« sagði hann eftir langa þögn. »Hver veit, hvað framtíðin ber í skauti sínu? En rússneskur maour er eg ekki lengur. Ættjörð á eg enga framar.« Oendanlega djúp tilfinning var í orðum hans, og hún gat ekki dulist Marian. Síðan er hún fór út úr klefanum í Alexanders- víginu, hafði hún aldrei skilið jafn-vel og nú, hve mikið hann hafði í sölurnar lagt. »Æ, Páll, Páll,« mælti hún gremjulega, »en sá glæpur, sem eg hefi drýgt, að eg skuli hafa leitt yfir þig aðra eins ógæfu! Láttu mig snúa aftur til Krónstaðar. Eg á ekkí það skilið, sem þú leggur í sölurnar fyrir mig; og eg get aldrei endurgoldið það. Enn er ekki orðið of seint að snúa aftur«. Hann hló að sorg hennar. Hann sá eftir því, að hann skyldi hafa sagt þetta, og hann svaraði henni með því að taka hönd- unum utan um kinnar hennar og horfa inn í tárvot augun. • Glæpurinn, sem þú hefir drýgt,« sagði hann, »er sá að vera yndislegasta stúlkan í veröldinni. Þér hcfir orðið það á, og annað ekki, að koma mér til að unna þér hugástum, svo að mér finst enginn heim- ur vera til nema þar sem þú ert. Hvers vegna ertu að tala um endurgjald? Gera þeir nokkuð í endurgjaldsskyni, sem unn- ast? Er þá ekki alt sameiginlegt með þeim? Sá, sem gerir þér mein, gerir mér líka mein. Þegar þú ert ánægð, er eg það líka. Eg missi eitt Iand og vinn alla veröldina. Þó að eg sé ekki Rússi lengur, er eg maðurinn þinn. Við skulum ekki vera að tala um þetta; það er vanþakk- læti, þegar lífið er fyrir framan okkur með annari eins auðlegð; bregðist það okkur, þá fyrst getum við farið að kvarta. Verði vindurinn hagstæður, komumst við til Stokkhólms á morgun. Þar hefi eg skipa- skifti og fer með ensku gufuskipi til Lund- úna. Þá verður þú að gleyma því, að þú ert ensk kona. Þú átt þá að verða kona Zassulics og vinur Rússlands. Þú verður að gleyma öllu því, sem þú hefir lært í Krónstað, og þú verður framvegis ekki í neinum kunningsskap við þá vini þína, sem freistuðu þín. Við byrjum lífið af nýju eins og pílagrímar í ókunnu Iandi, en við verðum samferða á Iífsleiðinni og ferðin verður okkur auðveld.« Skuggarnir hurfu af andliti hans meðan hann var að tala um alt það, er hann ætlaði að gera í Lundúnum, og hve mik- ils góðs hann vænti sér af einum frænda sínum og þekkingu sinni sem verkfræð- ingur. Marian hlustaði á hann með bros á vörunum; en alt af sagði hún jafnframt við sjálfa sig, að hún yrði að afstýra því, að hann legði alt þetta í sölurnar, og neyða hann til að snúa aftur til starfs síns og ættjarðar sinnar, ef þess yrði auð- ið, ekki sem mann, er ratað hefði í ónáð yfirboðara sinna, heldur sem mann, er barist hefði við mikla freistingu og unnið sigur á henni. Að því, er til sjálfrar henn- ar kom, efaðist hún ekki um, að hún mundi verða svo sling að finna einhver ráð til þess að komast heim til ættjarðar sinnar. Hún gerði sér enga grein fyrir þeirri hættu, sem hún var i stödd einmitt þá — að rússnesku skipin gátu fundið þau á hverju augnabliki sem var. Nú gat hún aftur horft á himininn og andað að sér hreinu lofti. Henni fanst sem hún Iéti berast í báti úti á reginhafi, og það ferða- lag fanst henni ekki óviðkunnanlegt. »Þú verður að snúa aftur, Páll,« sagði hún í mjög ákveðnum róm, þegar hann hafði Iokið máli sínu. »Þú verður að finna einhver úrræði og einhverja afsökun.« A 111 f* peir, sem skuldavið / % verzlun undirskrif- aðra við næsta ný- ár, verða að borga 6 aura af hverri krónu sem ]oeir skulda. Oddeyri, 1. des. 1903. Kolbeinn & Ásgeir. Óskilakindur í Þistilfirði. 1. Móbotnóttur geldingur, mark: gagn- fjaðrað hægra og gagnbitað vinstra. 2. Hvít lambgimbur með sama marki. Réttur eigandi getur vitjað and- virðisins að frá dregnum kostnaði. Ytra Álandi 19. okt. 1903. Hjörtur Þorkelsson. Auglýsing. Hrossamark Hallgríms Jónssonar á Hnúki í Húnavatnssýslu er tveir bitar framan hægra, vaglskora aft- an vinstra. Þeir, sem vilja fá skiprúm á hákarlaskip- um, snúi sjer sem fyrst til undirritaðs. Akureyri, 5. des. 1903. Joh. Christensen. Vegna sjúkdóms er óskað eftir góðri stúlku, annaðhvort fyrir svo sem tvo mánuði eða allan veturinn. Menn snúi sér til A. Schiöth, Bakaríinu, Akureyri. Nýtt og?gott smjör svo og ný hœnuegg er keypt fyrir peninga og vörur fyrst um sinn við Höepfners verziun. Haustull og Rjúpur alt af keypt í Höepfners verzlun með hæsta verði. S 1 • r keyptur Priona -- / verði í saumur verzlun Þeir, sem þurfa að kaupa ýmislegt til heimilisparfa pr. contant svo sem kaffi, sykur, export, hveiti og tóbak, kaupa það hvergi billegra en við Qudmanns Efterfl.s verzlun. Engir dagprísar, engin verð- hækkun. Akureyri 28. okt. 1903. Jóhann Vigfússon. suamamamauammaamamamm > Haustull, § í Prjónles, í *■ RjÚþUr og æ- > Smjör «■ ■ er keypt hæsta verði við verzlun < Gudmanns Efterfl.8 ■ 'W' 1“ ■ ■■■■■■■■"■■■ ■ Bezta Jólagjöf Nýja Testamentið (vasa-útgáfa) með 50 myndum, þar á meðal 20 litmyndum, í skraut- bandi kr. 1.50, 3.00 og 5.00 hjá Friðk. H. Jones, Akureyri. t Nýtt! t Nýtt! t Fallegustu jólagjafirnar eru kúnst- ofnu myndirnar hjá Einari Jónssyni málara. Slíkur vefnaður hefir ekki sést hjer áður. Sosdrykkja uerksmiðja Eggerts Einarssonar á Oddeyri hefir ætíð nægar birgðir af allskonar limonaðetegund- um, svo sem: Jarðarberjalimonaðe, Hind- berjalimonaðe, Appelsinlimonaðe, Ánanas- limonaðe, Grenadinlimonaðe, Vanillelimon- aðe, Sitrónvatn og Sódavatn. Samskotaloforö til sjúkraskýlis í Höfðahverfishéraði (í krónum). Safnað af Ólafi heitnum Davíðssyni frá Hofi: Frá sjálfum honum 5.30; præp. hon. Davíð Guðmundsson, Hofi, 5; Jóhannes Jóhannesson, sýslumaður á Seyðisfirði, 5; Stefán Stefánsson, eldri, Möðruvöllum, 2; Valtýr Stef- ánsson, Möðruvöllum, 4; Hulda A. Stefánsdóttir, Möðruvöllum, 4. -»--- Vigfús Jósefsson, Hellu, 5; Áskell Hannesson, Austari-Krókum, 2; Björn Bjartmarsson, Hrísey, 2. Áður auglýst: kr. 1418,19 Samtals: kr. 1452,49. Samskotin ættu ekki að vera minni en 2500—3000 kr., svo enn er mikils þörf. Eg treysti því, að menn haldi enn drengilega áfram að styðja þetta góða fyrirtæki. Þeir, sem enn ekki hafa borgað lof- orð sín, eru beðnir að gera það sem fyrst. Grenivík 25/u 1903. Sigurður Hjörleifsson. Crawfords Ijúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið af CRAWFORD & SONS Edinburgh og London stofnað 1813. Einkasali fyrir ísland og Færeyja F. Hjorth & Co., Kjöbenhavn, K- fálka neftóbakið er bezta neftóbakið. THE EDINBURGH ROPERIE & SAILCLOTH Co. Ltd. Glasgow stofn- sett 1750býr til fiskilínur,hákarlalínur, kaðla, netjagarn, seglgarn, segldúka, vatnsheldar presenningar 0. fl. Einkaumboðsmenn fyrir ísland og Færeyjar F. Hjorth & Co., Kjöbenhavn, K. Z-í-m-a-k-e-n-s-l-a í ýmsum úísaum fœst hjú Önnu Magnúsdóttur, Lœkjargötu nr. 1. MJÓLKfæsLSr steini Halldórssyni. **NorÖurland“ kemur út á hverjum laugardegi. 52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á íslandi, 4 kr. í öðrum Norðurálfulöndum, IV2 dollar. í Vesturheimi. Ojalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis fyrir fram). Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót; ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí. Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við rit- stjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikiö. Prentsmiðja Norðurlands

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.