Norðurland - 11.06.1904, Blaðsíða 3
147
Nl.
skip, — róið langt. — Þetta eru helztu
aflafréttir í þetta sinn, vonandi að hann
glæðist.
Nú um helgina fór eg með Sigurði Ei-
ríkssyni regluboða stórstúku Goodtempl-
ara í útbreiðsluför út í Svarfaðardal — og
varð árangurinn af þeirri för sá, að stofn-
uð var stúka, sem heitir »Áfram«. Stofn-
endur eru efnilegt og gott fólk. Stúkan
hefir fundarstað á Dalvík. Umboðsmaður
stórtemplars verður Jón Stefánsson útvegs-
bóndi á Dalvík, og kom hann mjög vel
fram við stofnun þessa fyrirtækis, eins og
í öllu öðru, sem hann tekur að sér eða
gengst fyrir; má Reglan vænta sér góðs
liðsinnis frá honum. Af stofnendum þess-
arar stúku vil eg ennfremur npfna: Ágúst
Jónsson realstúdent í Felli, Hallgr. bónda
Sigurðsson, Hrappstöðum, Gamalíel bónda
Hjartarson, Uppsölum, Þorsteinn Baldvins-
son, Böggversstöðum, Sigurð Gunnlaugs-
son, útvegsbónda,Dalvík. Stúkan er í góðra
manna höndum, og mun veráa í framtíðinni
til blessunar fyrir dalinn þeirra, og sóma
fyrir stofnandann, sem í þetta skifti sem
endranær sýndi lifandi áhuga á því að
gera Iýðum Ijósa nytsemi og göfugleik
Reglunnar. Sömuleiðis stofnaði Sig. Eiríks-
son unglingastúku, sem heitir Mjallhvít,
hér á Hjalteyri í gær með 14 meðlimum
og hélt útbreiðslufund, fyrir stúkuna
»Fram«. Sigurði lízt vel á þá stúku, og
segir að lifandi áhugi sé hjá meðlimum
hennar. Ludvig Möller.
Maðkur í skipi.
Þegar hr. Bjarni Einarsson skipa-
smiður fór að gera við »Júh'us« fiski-
skipið, sem laskast hafði á Hornvík,
komst hann að raun um, að það var
maðksmogið og fann í því maðkinn.
Menn hafa hingað til gert sér í hugar-
lund, að maðkurinn sé hér alls ekki,
eða lifi hér ekki af veturinn. Málið
er alvarlegt og brýn nauðsyn á, að
það verði rannsakað.
Forseti Bókmenfafélagsins
í Khöfn var dr. Valtýr Quðmunds-
son kosinn á síðasta aðalfundi deildar-
innar þar. Ólafur Halldórsson konfer-
enzráð neitaði að taka við endurkosn-
ingu. Dr. Þorvaldur Thóroddsen var
því næst kosinn og neitaði líka. Kosn-
ing varð svo um dr. V. G. og dr.
Finn Jónsson, sem fekk mildu færri
atkvæði. í tilefni af þessari breytingu
neitaði dr. F. J. að taka endurkosning
sem skrifari deildarinnar og sagði sig
sömuleiðis úr íslendingafélagi, Stú-
dentafélaginu íslenzka og samskota-
nefnd Snorra Sturlusonar-minnisvarð-
ans.
Skipun Landsbankabókarans
Ráðherrann hefir skipað Ólaf Davíðs-
son verzlunarstjóra á Vopnafirði bók-
ara við Landsbankann, eins og Nl.
hefir áður skýrt frá.
Tveir menn (afþremur) í bankastjórn-
inni, gæzlustjórarnir báðir, höfðu Iagt
það til, að annar maður yrði skipað-
ur í þessa stöðu, einn af núverandi
starfsmönnum bankans. En Tr. Gunn-
arsson bankastjóri hafði verið í minni
hluta og mælt með Ó. D.
Nú mæla bankalögin svo fyrir að
landshöfðingi (nú ráðherra) skuli skipa
bókara og féhirði bankans og víkja
þeim frá, hvorttveggja eftir tillögum for-
stjórnarinnar. Jafnframt fyrirskipa þau
lög að bankastjórarnir skuli »útkljá í
sameiningu þau málefni, sem varða
bankann, en greini þá á, ræður at-
kvæðafjöldD.
Það verður víst nokkuð torvelt að
sanna, að hér hafi ekki verið brotin
lög.
Sfokkeyrar presfakall.
Um það eru í kjöri Zóphonías Hall-
dórsson prófastur f Viðvík, Jónas Jón-
asson prófastur á Hrafnagili og Stef-
án M. Jónsson prestur á Auðkúlu.
Um ísafjarðarsýslu
hafa sótt Gísli ísleifsson sýslumaður
í Húnavatnssýslu og Magnús Torfason
sýslumaður Rangæinga. Umsóknarfrest-
ur útrunninn.
Vafnsveifumál Rvíkur.
Það virðist nú komið vel á veg.
Tvo menn hefir bæjarstjórnin fengið
frá Englandi til þess að rannsaka,
hvernig hentugast mundi að afla sér
vatns, og þeir telja illkleift að fá það
annarstaðar að en úr Elliðaánum. En
þær ár á Englendingur einn. Þær feng-
ust fyrir ekki mörgum árum fyrir lítil-
ræði f samanburði við það, sem þær
mundu kosta nú, ef þær væru falar.
Menn gera sér vonir um, að samning-
ar muni samt takast við eigandann,
með því að bærinn þarf ekki að halda
á nema litlum hluta af ánum. Mikill
áhugi er með bæjarstjórninni á að
koma málinu í framkvæmd og bæjar-
búar fylgja henni víst í því efni, eftir
því, sem kom fram á borgarafundi, er
haldinn var 28. f. m. Frumkvöðull
þessa framfarafyrirtækis í höfuðstaðnum
er héraðslæknirinn þar Guðm. Björns-
son.
Mannaláf.
Eiríkur Sverrisen, sýslumanns í
Strandasýslu, cand. phii., andaðist í
Reykjavík 13. f. m., fæddur 1867.
Ekkja hans er Hildur Jónsdóttir, prests
Bjarnasonar Thorarensen frá Stórholti.
Gull og seðiar
'kom með »MjöIni« til Islandsbanka
þ. 31. t. m., og var búist við, að
bankinn mundi þá taka til starfa eítir
örfáa daga.
Verzlunarhorfur.
Frá Newcastle er skrifað 25. f. m.,
að fiskverðið haldist stöðugt og að
boðnar séu f Khöfn fyrir stórfisk kr.
67,68, fyrir smáfisk kr. 54,5 5 og
fyrir ýsu kr. 50, skipp.
Allar horfur eru á góðu ullarverði,
sennilega hærra verði en síðasta ár.
Um sauðfjármarkað ekki hægt að
fullyrða neitt svo löngu fyrir fram,
en líkindi til, að hann verði að minsta
kosti eins góður og í íyrra.
Saltað sauð'.kjöt selst sem stendur
illa vegna þess að verðið á svínakjöti
er mjög lágt. Ilæst verð, sem boðið
hefir verið, er kr. 47, 48 tunnan,
224 pd.
Hr. Zöllner gengur að því vísu, að
töluvert hærra verð megi fá fyrir salt-
kjöt en að undanförnu, ef farið sé
vandlega eftir söltunarreglum, sem
hann hefir sent pöntunarfélögunum.
Oröum aukió
er það í 32. bl. Norðurl., að marg-
ir séu hér alveg heylausir, því það er
enginn enn; en hitt er rétt, að marg-
ir eru orðnir tæpir, þó helzt 3 heimili
(tvíbýli á einu), og eru þau heimili fram
f firði, og hafa rekið sauðfé sitt hér
ofan til sjávar, og haft það við hús
hér, en þó altaf gefið því hey með
fjörubeitinni og korninu; korn hefir
sem sé verið gefið kúm með töðu,
frá þvf fyrst í febrúar og fram á
þennan dag, en sauðfé frá því um
páska. Tvær kýr hafa verið drepnar,
báðar f óstandi, og því lítil eftirsjá í
þeim, og ekki sízt þegar eigendur
gátu fengið gott verð (25 aura pd.)
fyrir kjötið af þeim, til sjómanna;
enginn ber á móti því, að horfurnar
vóru orðnar alt annað en glæsilegar,
ef alt af hefðu haldist stórhríðar, því
snjór var hér miklu meiri fyrir, en
vanalegt er um þetta leyti.
Héðinsfirðingar, Dalamenn og Sigl-
nesingar hafa staðið sig með heiðri
og sóma í þessum aftökum; þó hefir
eitthvað verið gefið af korni í Héðins-
firði, og á Dölum hefir Jakob bóndi
verið banki eins heimilis síðan á pásk-
um, með hey.
Er gott fyrir sveitarfélögin að eiga
slíka hauka í horni. Einnig mun Jón
á Hóli hafa hjálpað um æðimarga
poka hingað á Eyrina til þurrabúðar-
manna, sem litla grasnyt hafa.
Nú er þetta basl fyrir okkur vonandi
á enda; snjórinn hverfur nú ótrúlega
fljótt, því hitar eru miklir, oft 250 á
Reaumur á móti sólu. Svona hefir tíð-
in verið stöðugt síðan á hvítasunnu —
og engin næturfrost, svo alt kemur
grænt undan fönninni.
Siglufirði 29. maí 1904.
Q. S. Th. Q.
„Friðþjófur“,
gufuskip kaupfélaganna átti að leggja á
stað frá Leith í gær. 14. þ. m. verður það
á Breiðdal og Seyðisfirði, 16. Húsavík og
Hrísey, i7.KIjáströnd, Hjalteyri, Svalbarðs-
eyri, Akureyri og Haganesvík, 18. Hofsós,
Kolkuós og Sauðárkrók, 19. Blönduós, 20.
Skagaströnd og Hvammstanga, 21. Stein-
grímsfirði og Norðfirði, 22. ísafirði, 23. Arn-
gerðareyri og kemur 27. til Reykjavíkur;
fer þaðan 7. júlí og kemur til Newcastle
11. s. m.
2. ferðina fer skipið frá Newcastle 15.
júlí; þaðan til Seyðisfjarðar og Rvíkur 20.,
Sauðárkróks 29. og kemur til Nervcastle
4. ág.
I 3. ferð frá Newcastle 9. ág., kemur
til Rvíkur 14., fer þaðan 21., Newcastle 26.
I 4. ferð frá Lcith 31. ág. Seyðisfirði 4.
sept., og á að vera ferðbúið af Akureyri
14. sept.
Mosfellspresfakall
í Mosfellssveit er veitt síra Magnúsi
Þorsteinssyni í Landeyjum.
Góðviðri
me*ta hefir verið alla þessa viku, þurkar
og blíður. Grasvaxtarhorfur góðar orðnar,
en sennilega er sumstaðar þörf á vætu.
Um skóggrœðslu
heldur hr. Flensborg fyrirlestur hér í leik-
húsinu í kvöld kl. 9 og sýnir myndir af ís-
lenzkum skógum til skýringar. Hann hefir
haldið fyrirlestur í síðasta mánuði um það
efni í Reykjavík fyrir húsfylli, og láta höfuð-
staðarblöðin ágætlega af.
Hyrningarsfeinn
var lagður að gagnfræðaskólanum hér á
laugardaginn var. Skólastjóri J. A. Hjalta-
lín hélt stutta tölu og bæjarfulltrúi Friðbj.
Steinsson sagði nokkur orð. Önnur viðhöfn
var ek'ki til hátíðabrigða.
Þilskipin.
»HeIena« (Jóh. V.), fiskiskip, hefir kom-
ið inn þessa viku með 4000 fiska. »Fami-
lien« sunnan úr Reykjavík, engan afla.
»Marianna« (Jóh. V.), hákarlaskip, með
107 tn.
Siglingar.
»Mjölnir« kom hingað á þriðjdaginn frá
útlöndum. Farþegar Jón Þorláksson verk-
fræðingur ogFIensborg skógræktarfræðing-
ur, báðir frá Seyðisfirði. Skipið hafði komið
við í Reykjavík og kom samt á réttum
tíma hingað.
Leiðréffing.
í 3. dilki greinarinnar í 33. bl. Nls. »Úr
Bárðardal« hefir misprentast: »Fosfórusýru-
áburðurinn að mestu uppleystur«; á að
vera: »Fosfórusýruáburðurinn að mestu ó-
uppleystur«, eins og líka sambandið sýnir.
Hér með tilkynnist heiðruðum al-
menningi, að eg undirritaður hefi sett
upp skósmíðaverkstofu á Sauðárkrók
þann 14. maí þ. á., og tek eg því
að mér alt, sem að skósmíði lýtur,
frá þeim tíma, bæði að setja upp alls
konar nýjan skófatnað og einnig allar
viðgerðir á skóm, alt svo ódýrt og
með svo þægilegum borgunarskilmál-
um, sem mér frekast verður hægt.
rnr Alt fljótt af hendi leyst. TWi
Virðingarfylst
14. maí 1904. (
Kalldór jfa/ldórsson,
skósmiður.
Ofanritaður Halldór Hatldórsson hefir
undanfarandi stundað skósmíði á vinnu-
stofu minni í rúm 5 ár, og eftir þeirri
reynslu votta eg, að hann er mjög
vel að sér í sinni iðn.
Sauðárkrók 14. maí 1904.
jóh. Jóhannesson,
skósmiður.
SKANDINAVISK
EXPORTKAFFE SURROOAT
Kjöbenhavn.
!F. }{jorth & Co.
«......-..
Nokkura vissu fyrir
Bonus upphæðum með
Bonus útborganir fram-
vegis getur félagið eðli-
lega ekki gefið, en eins
og hérsett tafla sýnir, þá
hefir Bonus á undanfar-
andi 30 ára tímabili ver-
ið mjög hár, og mun að
líkindum verða nokkuð
svipaður framvegis.
Eftir fyrstu 3 árin verður:
Tilfallinn Bonus 312.50
Eftirfarandi tafla sýnir
vaxandi Bonus við 5 ára
tímamót frá 10 til 30 ár.
Tilfallinn Bonus 250.00
375-0°
— 375-oo
— 375-oo
— 375-oo
Bonus á öllu tímabil-
inu, 30 árum, nemur því:
Kr. 2062.50.
Tafla, er sýnir, hvílíkur hagnaður það er að kaupa
lífsábyrgð í lífsábyrgðarfclaginu Standard í saman-
burði vlð að leggia fðgjaldið í sparisjóð og sýnir, hvað
háan Bonus félagið hefir gefið á síðastl 30 árum. Bon-
us útborgun fer fram með 5 ára millibili.
Maður, sem frá þvr hann var þrítugur hefir árl. getsð lagttil hliðar kr. 122 50, mun, er liann deyr, hafa safnað eftir- farandi upphæð. 'r *o 1 re &■£.£? gfffg w)IO 3 <«••-» — b'"-c w 2
Deyi hann | eftir: j *8 Já c/) c E tjj rO C k S15 h 2 -S Í3W010 , KO © hfi-5 3 þ. u > u C hio i-x •Cl5 2 w.3
i ár Kr. 5000.00 Kr. 126.79 Kr. 4873-21
2 - 5C00.00 — 257-25 — 4742.75
3 - 5000.00 — 393-83 — 4606.17
4 ~ 5000.00 — 534-36 — 4465.64
5 - — 5312.50 — 679.89 — 4632.61
6 - — 5362.50 — 829.58 — 4532.92
7 - — 5412.50 — 986.33 —* 4426.17
8 - — 5462.50 — 1147.64 — 43M-86
9 ' — 5512-5° — I3I4-59 — 4197-91
IO - — 5562.50 — 1487-39 — 4075-11
>5 ‘ — 5937-5° — 2446.45 — 3491.05
20 - — 6312.50 — 3585-51 — 2726.99
25 - — 6687.50 — 4938.35 — I749-I5
30 - — 7062.50 — 6545.11 — 5I7-39
Aðalumboðsmaöur jyrir Norður- og Austurland
M. EINARSSON.