Norðurland - 18.11.1905, Blaðsíða 3
39
Nl.
Moskusnaufin
fáum við líklega bráðlega hingað til
landsins frá Grænlandi. Síðasta Alþingi
hét norskum skipstjóra Ole Nessö að
nafni, 10,000 kr. láni gegn því að hann
settist að á Islandi, ræki héðan íshafsveið-
ar og ffytti hingað moskusnaut og mosk-
uskvígur og seldi hverja skepnu fyrir
ekki meira en 1,000 kr. — Nessö þessi
kom nýlega til Reykjavíkur, til þess að
undirbúa lántökuna og búferlaflutninginn.
Skarlafssóff
kom hér upp í húsi kaupmanns Jóns
Norðmanns; mjög vægt tilfelli; er nú
að mestu um garð gengið.
Jakob Gíslason,
kaupmaður, hefir legið þessa viku
og hefir legið þungt, en er nú eitt-
hvað betur haldinn.
ýlegt vasaúr tapaðist á Akur-
eyrargötum við síðustu Skál-
holts ferð.
Finnandi er vinsamlega beð-
inn að skila úrinu til Ólafs Arnórssonar
á »Hótel Akureyri«, gegn ríflegum
fundarlaunum.
Smá-úrklippur
sitt ve! af höndum. Hefir Steinólfur einn
ráðið, unnið að og sagt fyrir niðursetningu
volanna, húsbyggingu þar að lútandi o.s.frv.
Erþað alveg einstakt áræði og þrautseigja,
srm sá maður hefir sýnt í þéssu máli, og
næstum einstakt í sinni grein, ef hann
kcmur fyrirtæki þessu vel á veg af sjálfs-
dáðum.
Verzlunum hefir fjölgað hér mikið á þessu
ári, og samkepni vex því að mun. Má því
segja, að verzlunarfýknin sé í mjög svip-
ucu hlutfalli hér og á Akureyri. Ný vöru-
tegund er hér innleidd, sem eg veit ekki
hvort er algeng á Akureyri; það er »súr
saft«. Áfengi er víst ekki talið í henni og
tolllaus mun hún vera, en alhægt segja
nákunnugir menn sé, að drekka sig blind-
fufla af henni, sé hún tekin inn i stór-
skömtum. Eru dæmin deginum ljósari í
þessu efni. — Heyrt hefi eg þó ærlega
drykkjumenn segja, að »saftin« færi illa
með menn og væri óholl, hvað sem satt
er i því. Nýlega orsakaði þessi svokallaða
»súra saft« næstum því hjónaskilnað, hálf-
gert uppnám og réttarhöld, en þó lægðist
sá bylur aftur von bráðar, sem betur fór.
Kirkjulíf er hér dauft, enda kirkjan lítil,
ljót og leiðinleg og frámunalega illa sótt.
Kirkjusöngurinn er vanalega daufur, og
sönglegt líf er hér í daufasta lagi, þótt
kraftar séu mikið góðir.
Barnaskólinn var settur hér i. þ. m. I
honum eru um 20 öörn. Kennari sá sami
og í fyrra: Valdemar Valvesson. Neðri
deild, sem hér var í fyrra, er engin enn,
hvað sem verður.
X
Járðskjálfti. — Eldgos?
Á miðvikudagsnóttina var vöknuðu
mcnn hér í bænum við allsnarpa jarð-
skjálftakippi. «
Fyrsti kippurinn kom um kl. 1 ,
annar um kl. 3. Varð þá enn hlé um
stund. Um kl. 5 byrjuðu kippirnir
aflur með litlum millibilum. Var sá
kippurinn langsnarpastur sem kom
kl. 5,10’.
Á miðvikudagskvöldið sást roði á
suðausturlofti um dagsetursleytið í
stcfnu af Vatnajökli eða Öskju, en
ekkert hefir enn frést um eldgos.
Vonandi að ekki verði mikil brögð
að því.
X
Heiðurssamsæfið
fyrir síra Matthíasi Jochumssyni fór
fram 11. þ. m. og tók fjöldi manna þátt
í því. Dauðsfall það sem hér bar að
höndum rétt áður en samsætið átti að
fara fram dró nokkuð úr fjölmenninu, sem
annars hefði orðið svo mikið að salurinn
hefði varla rúmað það. Ræðuna fyrir síra
Matthíasi hélt héraðslæknir Guðmundur
Hannesson, en Eggert Laxdal kaupmaður
talaði fyrir frú hans. Auk þess héldu ýms-
ir aðrir ræður. Auk kvæðisins, sem prent-
að var í síðasta blaði, var honum og flutt
annað kvæði mjög snoturt eftir J. N.
Yfir sæti skáldsins var veggurinn skreytt-
ur mjög haglega með fangamarki skálds-
ins úr blómum og hörpu fyrir ofan og
pálmagreinum í kring.
í samsætinu flutti skáldið kvæði það
sem prentað er á öðrum stað hér í
blaðinu.
Innlendur bofnvörpungur,
eign nokkurra Reykvíkinga, var nýlega
sektaður fyrir brot á landhelgislögunum.
Fckk 1100 kr. sekt, auk málskostnaðar
ailamissis og veiðarfæra.
2 heiðurssamsæfi
hafa nýlega verið haldin syðra tveim-
ur merkismönnum þjóðar vorrar.
Annað héldu Reykvíkingar 18. f. m.
bankastjóra Tryggva Gunnarssyni, er
þá varð 70 ára, en hitt héldu Vest-
manneyingar héraðslækni ÞorsteiniJóns-
syni í mínningu þess að hann hafði þjón-
að þar læknisembætti í 40 ár.
I báðum þessum samsætum voru
nokkuð á 2. hundrað manna.
Gull fyrir vafn.
Nú þykir að sögn fullreynt með vatns-
gröftinn í höfuðstaðnum. Hafa 2 holur
verið boraðar hvor um sig á 2 hundrað fet
á dýpt. Hefir þetta kostað bæinn um
8,000 kr. en vatn ekki fengist. Aftur hafa
boranir þessar Ieitt til þess að fundist
hefir gull og fleiri málmar, þó óvíst sé
ennþá að hvaða gagni verður.
Fiskafli.
Hallgrímur Kráksson póstur kom á mið-
vikudaginn vestan úr Hofsós. Segir hann
að afli hafi þar þá verið föluverður, um 50
í hlut, mest af hálfísu, á saltaða síld.
Eftir mánaðamótin síðustu hafði Sveinn
Árnason óðalsbóndi í Felli í Sléttuhlíð róið
til fiskjar og hlaðið bátinn af vænum fiski,
hafði bæði þurft að afhausa og afgogga.
Yfirgangur bofnvörpunga.
Isalold frá 26. f. m. skýrir frá mjög
vasklegri framkomu Vestmannaeyinga og
þá ekki sízt sýslumanns þeirra, til þess að
reyna að hafa hendur í hári hinna útlendu
yfirgangsmanna þar við eyjarnar. Hefir
þessi yfirgangur magnast ákaflega síðan
botnvörpungar sáu að ekkert var að ótt-
ast af hinum nýja yfirmanni varðskipsins.
Þeir sýslumaður lögðu að skipum botn-
vörpunganna á vélarbátum og reyndu til
þess að ná uppgöngu í nafni Iaganna en
skipverjar bjuggust til varnar með barefl-
um, krókstjökum, stöngum og kolastykkj-
um. Tókst þeim ekki að ná uppgöngu á
skipin, en tiúmeri allra skipanna gátu þeir
náð og gæti það ef til vill orðið að ein-
hverju liði síðar.
Skipkomur.
»Perwie< kom hingað 12. þ. m. sunnan
og vestan um land, flutti hingað póst frá
Reykjavík til loka síðasta mánaðar. Hafði
mjög stutta viðdvöl og hélt áfram austur
með landi á útleið.
»Adolph Andersen* stauraflutningaskip
Sameinaða gufuskipafélagsins kom hér
15. þ. m. með nokkuð af símastaurum sem
hér var skipað upp.
X
Veðurathu5?anir
Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Sigtr. Þorstcinsson.
1905. Okt. Um miðjan dag (kl. 2). Minstur h. (C)ásólar- hringnum.
Loftvog (þuml.) Hiti (C.) ti n ro ro W <D > Skýmagn Úrkoma 1
Sd. 1. 76.3 1.4 NW 1 10 í.i
Md. 2. 76.3 3.3 0 8 — 4.2
Þd. 3. 74.i 2.6 0 10 RS - 1.2
Md. 4. 76.i 4.1 NAU 1 10 - 0.2
Fd. 5. 76.9 0.4 0 10 - 2.8
Fd. 6. 76.3 6.1 0 10 - 3.1
Ld. 7. 75.3 10.4 0 10 R 0.5
Sd. 8. 75.7 9.9 wsw 2 7 5.o
Md. 9. 75.4 14.4 S 3 8 4.i
Þd.10. 76.5 1.1 N 1 10 S - 0.9
Md.ll. 76.3 1.9 wsw 0 10 - 4.2
Fd. 12. 77.4 — 1.7 SW 1 7 - 5.4
Fd. 13. 76.8 0.8 NAU 2 8 - 9.9
Ld. 14. 76.7 -f-1.6 1 10 S - 6.9
Sd. 15. 76.5 -PO.i NW 0 2 - 6.4
Md.16. 76.4 -^2.7 2 2 -f-13.i
Þd. 17. 76.7 -f-5.o SW 0 0 -11.0
Md.18. 76.6 2.5 SW 1 2 -12.o
Fd. 19. 76.8 5.o 1 6 - 0.5
Fd. 20. 76.8 7.9 0 0 2.o
Ld. 21. 76.9 1.5 0 0 - 3.8
Sd. 22. 76.9 2.o 0 0 - 6.9
Md.23. 77.0 4.5 SW 0 3 - 5.5
Þd. 24. 76.i 7.7 SSW 1 10 - 1.0
Md.25. 73.7 9.3 NW 2 7 1.2
Fd. 26. 74.4 -f-4.o 2 10 s 0.8
Fd.27. 76.3 -t-4.o 0 0 7.9
Ld. 28. 75.8 0.2 0 8 - 9.9
Sd. 29. 76.o -f-1.0 0 10 - 7.1
Md.30. 76.o -f-4.o 0 2 - 9.0
Þd. 31. 76.i -H5.o 0 4 -11.0
X
Úr ýmsum áttum.
Fjárhagm Dana.
Skuldir ríkisins eru nú um 241V2
miljón króna. Það mun því láta nærri að
100 kr. skuld komi á hvert mannsbarn í
landinu og mundi það ekki þykja álitlegur
búskapur hér á íslandi, að minsta kosti
mundi Þjóðólfi ekki lítast á það (sbr.
greinina »Þjóðólfur« í næst síðasta blaði
Nls.). En Danir eiga þá Iíka fyrir skuld-
unum, því eignir ríkisins eru um 323 Ví
miljón kr. en af því fé er talið að þeir
eigi um 200 miljónir í járnbrautum (nærri
því eins og hjá oss) og eru eignir rlkisins
því um 82 miljónir kr. umfram skuldir.
Vín og tóbak
eiga marga mótstöðumenn í Bandaríkj-
unum. í sumum rfkjunum er vínið gert
landrækt, og í heilum borgum sést cngin
drykkjustofa. Þannig er hvergi veitt vín í
Cambridge, en þar er einhver bezti og
merkasti háskóli landsins. í Exeter, litl-
um bæ með merkum skóla, er hvergi veitt
vín og enginn má sjást reykjandi á göt-
um úti eða á almannafæri.
Þetta er lítið sýnishorn af hugsunar-
hættinum hjá einhverri helztu mentaþjóð
heimsins. Sennilega þætti sumum íslend-
ingum ófrjálslegt að búa undir slíkum
Iögum, en þó lætur heimsins stjórnfrjáls-
asta þjóð sér þetta vel Iynda. Það týna
líka efalaust færri synir hennar tölunni
fyrir drykkjuskap. en hjá oss, sízt af þeim
hlutanum sem til menta er settur.
X
... ...............................»...
úr viðurkenningarbréfum um hina miklu
yfirburði, sem Kína Lífs Elixír frá
Waldemar Petersen, Frederikshöfn,
Kaupmannahöfn, hefir.
Hið bætta seiði Hér með vott-
ast, að sá Elixír, sem nú er farið að
búa til, er töluvert sterkari, og þó að
eg væri vel ánægður með hina fyrri
vöru yðar, vildi eg samt heldur borga
hina nýju tvöföldu verði, með því að
lækningakraftur hennar hefir langtum
fljótari áhrif og eg var eftir fáa daga
eins og nýr maður.
Svenstrup Skáni.
V. Eggertsson.
Meltingarörðugleikar. þó að
eg hafi ávalt verið sérstaklega ánægður
með yðar alkunna Elixír, verð eg að
kunngera yður, að eg tek hið bætta
seyði fram yfir, með því að það hefir
mikið fljótari áhrif við meltingarörðug-
leika og virðist langtum nytsamara.
Eg hefi reynt margskonar bittera og
lyf við magaveiki, en þekki ekkert
meðal, sem hefir jafn-mikil áhrif og
þægileg og kann þvi þeim, sem hefir
fundið það upp, mínar beztu þakkir.
Fodby skóla. Virðingarfyllst
kennari J. J e n s e n.
EGTA KÍNA LÍFS ELIXÍR Á einkunar-
miðanum standi vöru merkið : Kínverji
með glas í hendi og nafn verksmiðjueig-
andans: Waldemar Petersens Frederiks-
havn —Kobenhavn og sömuleiðis inn-
siglið í grænu lakki á flösku-
stútnum. Hafið ávalt eina flösku við
hendina, bæði innan og utan heimilis.
Fást hvarvetna fyrir 2 kr. flaskan.
I verzlui) undirritaðra
eru nýkomnar ýmsar vörur svo sem:
Mikið úrval af skófatnaði,
Karlmanna-nærfatnaður mjög billegur,
Kvenmanns- og barnanærfatnaður ýmiskonar,
Millipils, ýmsar sortir og klukkur,
Barnakjólar: prjónaðir flauels- og taukjólar,
Kventreflar og hettur,
Jersey hanskar handa kvenmönnum og börnum,
Skinn hanskar handa konum og körlum,
Waterproofskápur handa kvenmönnum,
Sokkar handa kvenmönnum,
Flauel, rautt, blátt, grænt, svart, og hvítt,
Tvisttau margskonar og Dowlas,
Kjólatau og karlmannafatatau,
ísgarnsklútar og ullarklútar,
Nátttreyjutau, handklæði,
Karlmannahúfur mikið úrval, barnahattar,
Handsápur margar sortir, albúm,
Peningabuddur, kampungar, hárgreiður,
Skæri, vasahnífar og m. fl.
Suðl. Sigurðsson & V. Sunnlaugsson.