Norðurland - 12.10.1907, Blaðsíða 3
33
NI.
Skipstrand.
15 menn drlikna.
Norskt skip, að nafni »Fridthjof«
hafði strandað norðan til á Langanesi
á Iaugardaginn var, um það leyti sem
stórhríðin brast hér á. Skipið var frá
Tromsö í Noregi og hafði verið norður
í höfum, nálægt eyjunni Jan Mayen
(hún er 550 kílómetrum fyrir norðan
ísland), að litast þar eftir skipi sem
vantaði. Skipið hafði laskast í ís þar
norðurfrá og hleypt suður til íslands,
en hrepti stórhríðina við Langanes og
strandaði þar. Druknuðu þar 15 menn,
en aðeins einn komst lífs af og liggur
hann að sögn veikur á Skálum, yzta
bæ á Langanesi.
Líknarstarf.
Berklaveikin í andlitinu er einn af
hryllilegustu sjúkdómum mannkynsins,
engu óhryllilegri en holdsveikin. Til
allrar hamingju hefir þó lítið verið
um þá sýki hjá oss. Einn sjúklingur
með þessari veiki var þó hér í fyrra,
rétt við »höfuðstað Norðurlands« ^og
og gerði kvenfélagið »Framtíðin« það
miskunarverk á henni í vor að koma
henni á Ijóslækninga-stofnun Finsens
í Kaupmannahöfn. Því sjúkdómurinn
getur læknast, og með engri aðferð
læknast hann jafnvel og með ljóslækn-
ingu. Kvenfélagið lagði stúlkunni 6
til 700 kr. í farareyri, en nýlega hefir
því borist bréf frá Iækni Ijóslækninga-
stofnunarinnar; er þar skýrt frá því
að stúlkan muni fá fulla lækningu, ef
hún megi vera nógu lengi, að minsta
kosti eitt ár. Félagið »Framtíðin« sendi
þá stúlkunni enn 300 kr., en enn þá
vantar töluvert fé, til þess að hún
geti notið lækningarinnar nógu lengi.
Hér er verkefni fyrir góðgjörðasem-
ina. Félagskonurnar í »Framtíðinni«
veita gjöfum til stúlkunnar móttöku
með þakklátsemi. Formaður félagsins
er konsúlsfrú Tulinius.
Eitt dœmið enn.
Maður fanst hér örendur í fyrra-
morgun fyrir framan Hafnarstræti utan-
til. Lá hann þar í flæðarmálinu og
hafði sjór fallið undir hann. Maður
þessi var Júlíus Jónsson lausamaður
frá Litla-Arskógssandi. Hafði hann sézt
hér daginn áður mikið ölvaður. Hefir
hann hröklast fram af brautinni og
ekki getað bjargast upp aftur. Upp-
skurður á líkinu sýndi að maðuriun
hafði druknað.
Mannalát.
Skafti Jóhannsson bóndi í Litiagerði í
Dalsmynni í Þingeyjarsýsiu andaðist ný-
lega hér á sjúkrahúsinu. Banameinið var
krabbamein í maganum og varð hann að-
eins miðaldra maður. Hann var sonur Jó-
hanns bónda Bessasonar á Skarði í Dals-
mynni og var maður vel greindur, sem
hann átti kyn til. Mentun hafði hann og
fengið góða á yngri árum.
S
Eftirmæli.
Nýlega er dáin úr brjósttæringu Margrét
Halldórsdóttir húsíreyja á Tréstöðum á
Þelamörk, 55 ára að aldri. Hún var ein
af okkar mörgu, ónafnkunnu alþýðukonum,
sem vinna mikið verk í kyrþey. Hún laet-
ur eftir sig 6 uppkomin og vel vinnandi
börn, sem hún annaðist og uppfæddi ásamt
bónda sínum við lítil efni, en mikla örðug-
leika, án tilstyrks annara. Þeim sem lcunn-
ugt er um hag og háttu bændalýðsins
okkar og athugar hlutdrægnislaust, þeim
einum er það fullljóst hve ótrúlegt afrek
það er, sem bændakonur þær vinna í
þarfir þjóðfélagsins, sem eiga og uppala
mörg börn.
Nágrannakona Margrétar sálugu mintist
hennar með þessum stefum.
Menn hengja’ ekki krossinn á konur,
því kjörgripur mannanna er hann,
en Alvaldur leggur sinn á þær
og einkavel stundum þær bera ’ann.
Þú stríddir á meðan þú máttir,
unz mátt þinn var hvergi að finna,
og lagðir fram alt sem þú áttir,
af elsku til barnanna þinna.
Þú fórst ekki víða til frama,
þér fastri hélt skyldunnar-bandið.
Þitt heimilislíf var þinn heimur,
en himinn- Guðs vonanna-landið.
Við Iífskröfur litlar og fáar
þú lifðir og dóst eins og kona:
Þitt eitt og þitt alt voru börnin,
að elska þau, trúa og vona.
Úr ýmsum áttum.
Þráðlaus í sumar tókst að koma þeim
loftskeyti. miklu lengri leið, en nokkurn-
tíma hefir tekist áður. Var notuð til þess
hin nýja aðferð Paulsens, fræga danska
verkfræðingsins. Loftskeytið fór yfir 3300
kílómetra eöa 2060 enskar mílur, frá skipi,
er var statt í miðju Atlantshafinu, alla
Ieið til Berlínarborgar. Hafði það þá far-
ið yfir hálft Atlantshafið, yfir írland, St.
Georgssund, England, Norðursjóinn og Hol-
land til Þýzkalands.
Loftför /neð Wellmann tókst ekki að
stjórn. ná norðurskautinu á þessu
sumri, á loftfari sínu, svo sem hann hafði
gert sér von um, en þó er heimurinn sí-
felt að stríða við það verkefni að gera
loftið að flutningabraut mannkynsins, ekki
að eins fyrir hugsanir mannanna með loft-
skeytum, heldur líka fyrir menn og muni.
Hvað þar verður Iangt komist, er ekki gott
að segja, en nú er að sögn búið að höggva
sundur þann hnútinn á þeirri flækju, er
þótt hefir torleystastur; því fullyrt er úr
ýmsum áttum, að ráð séu fundin til þess
að stýra Ioftskipum. Loftfar Zeppelins
greifa (sbr. hraðskeytin) er eitt þessara
nýju loftfara, sem stýrt er líkt og skipi
á sjó.
Mörgu tekur mannskepnan
Menn fljúga. Upp.-U Brægur tveir í Óhio-
fylkinu í Bandaríkjunum, er heita Wright,
hafa tamið sér flug, frá því þeir voru á
barnsaldri, en eru nú orðnir fulltíða menn.
Hugmyndina fengu þeir af leikfangi einu,
er faðir þeirra gaf þeim er þeir voru dreng-
ir og hafa þeir síðan bætt hana og full-
komnað. Til flugsins nota þeir flugvél, er
þeir hafa látið sntíða sér og er hún að
þyngd um 800 ensk pund og knýr mótor-
vél hana áfram, en stýri er á henni að fram-
anverðu. Varla tekst þeim að fljúga Iengur
en 40 mínútur í senn. Þó hefir öðrum þeirra
tekizt að fljúga 50 enskar ntílur, álíka lang-
an veg og er frá Gjögurtá inn í Eyjafjarð-
arbotn, á einum klukkutíma. Væri auðsjá-
anlega ágætt að geta haft þá pilta í sendi-
ferðir.
FÓÐURRÓFUR
fást í Tilraunastöðinni á Akureyri á
2 aura pundið.
ersteinolían komin. Kaupið
KRANANA
góðu hjá Páli Jónssyni.
KaupendurNorðiirlands
hér f nærsveitunum mega bofga
blaðið í
Kaupfélagsverzluij Eyfirðiijga.
50 tegundii
Karlmannafataefni
TRJAVIÐ
og margskonar
selur
Verzlun
Sig. Sjarnasonar
með
Bssr GÓÐUM KJÖRUM. ~m
Verzlun
3ig. Bjarnasonar
Oddeyri
kaupir
rjúpur
háu verði Í alt haust.
Niður-
suðu-
dósir
Skuldir þær við
verzlun Ásgeirs
Péturssonar, er
ekki verða borgaðar, eða
um þær samið, nú í kaup-
tíðinni, verða, að henni
lokinni, tafarlaust inn-
heimtar með lögsókn
á kostnað skuldunauta.
Petta tilkynnist hérmeð
öllum þeim er skulda
við nefnda verzlun.
með áskrúfuðu loki, sem áreið-
anlega reynast góðar, eru ný-
komnar í verzlun
Sn. Jónssonar.
Eiff herbergi er til leigu í húsi Ólafs
Tr. Ólafssonar við Spítalaveg.
Peningabudda,
með nálægt 18 kr. í, týndist 10. þ.
m. frá Gili að pöntunarhúsinu á
Akureyri. Finnandi skili til kennara
Páls Jónssonar, gegn fundarlaunum.
Páll Halldórssorj.
á 20 aura pundið fæst í verzlun
Sn. Jónssonar.
Minnispeningur úr gulli
tapaðist í sumar nálægt búð
Páls kaupmanns Porkels-
sonar. Finnandi er beðinn að skila
honum í búðina.