Norðurland - 19.03.1908, Blaðsíða 3
127
Nl.
Útför
Zophoníasar Halldórssonar.
Norðurlandi er ritað úr Skagafirði:
Eins og áður hefir verið getið í blað-
inu, andaðist prófastur Zophonías Hall-
dórsson í Viðvík 3. jan. síðastliðinn.
Jarðarför hans fór fram í Viðvík þann
29. s. m. að viðstöddum 3—4 hundr-
uðum manna. Allir prestar prófasts-
dæmisins voru þar viðstaddir, og héldu
4 af þeim ræður: prófastur síra Arni
Björnsson, síra Pálmi Þóroddsson, síra
Hallgr. Thorlacius og síra Sigfús Jóns-
son. Fjöldi sóknarbarna hins látna var
þar viðstaddur, allmargir víðsvegar úr
prófastsdæminu og fáeinir menn úr
öðrum héruðum.
Konur í Viðvíkursókn höfðu tjaldað
kirkjuna svörtum dúkum. Kistan var
öll þakin blómsveigum, bæði frá ein-
stökum mönnum og félögum, svo sem
Kaupfélagi Skagfirðinga, Kvenfélagi
Sauðárkróks og konum f Rípursókn.
Þá var og silfurskjöldur frá Hólasókn,
einnig silfurskjöldur og krans frá nem-
endum og kennurum Hólaskóla. —
Prestafélag hins forna Hólastiftis hafði
sent kvæði, ort af þjóðskáldinu síra
Matth. Jochumssyni. Einn af eldri nem-
endum Hólaskóla sendi einnig kvæði.
Voru kvæðin lesin upp við jarðarför-
ina.
Sorgar og alvöru-blær hvíldi yfir
allri athöfninni. Alt bar vott um það,
að verið var að kveðja einn af merk-
ismönnum vorum hinni hinstu kveðju,
og um hluttekningu með ástvinum og
heimili hins látna.
'4
Barnaskóli ísflrOinsra.
Svo er að heyra sem ísfirðingar taki
fræðslulögunum nýju með engu minni
skörungsskap en sumir höfðingjarnir
hér á Akureyri. — ísfirðingar áttu ný-
legt skólahús með 6 kenslustofum. En
nú hafa þeir ákveðið að stækka það
svo að þar verði 12 kenslustofur og
að auki kennarastofa og safnherbergi,
ennfremur íbúð fyrir skólastjóra og
dyravörð. Auk þess á að vera leik-
fimishús 25x14 álnir með nýtízku út-
búnaði. Þáætla þeir að hafa miðstöðvar-
hitun f skólahúsinu.
Skólastjóri er oss sagt að eigi að
hafa 1600 kr. laun og frían bústað í
skólahúsinu og auk þess I. kennari
1600 kr., 2 næstu kennararnir eiga
að hafa 1000 kr. hvor og 2 800 kr.
o. s. frv.
Auðséð er það að ísfirðingar skilja
hver lífsnauðsyn það er að skólinn
uppfylli þær kröfur, sem til hans þarf
að gera. Hún lítur auðsjáanlega svo
á það, bæjarstjórnin á ísafirði, að það
borgi sig illa að láta kennara skólans
hafa sveltilaun og sagt er að hún sé
einhuga um það að gera skólann sem
allra rausnarlegast úr garði.
Óneitanlega er þetta myndarlega af
stað farið af Isfirðingum og drengilega
tekið undir fræðslulögin, ein allra þýð-
ingarmestu lögin sem þjóðinni hafa
verið sett. — Framtíð þjóðar vorrar cr
komin undir nýju kynslóðinni. Vér
megum ekki telja það eftir oss að
reyna til þess að búa hana vel úr
garði.
Otkomu NorOurlands
var flýtt í þetta siun vegna sunnanpósts.
Blaðið kemur því ekki út á laugardaginn
kemur.
Sýnlngru
mikla á að halda í Arhúsum í Dan-
mörku 1909. Er sagt að sérstakur
skáli sé þar ætlaður íslenzkum sýn-
ingarmunum og stórt landsvæði að
auk fyrir kvikfjársýningu. — Ekki er
það óhugsandi að vér gætum haft
eitthvað gott af þessari sýningu, ef
vel væri til hennar vandað af vorri
hálfu, en auðvitað þyrfti þá líka mik-
ils undirbúnings við. Annars höfum
vér heyrt talað um undirbúnings-sýn-
ingu í Reykjavík sumarið 1909, undir
stærri sýningu þar 1911.
Sennilega fer það mikið eftir undir-
tektum Dana undir mál vor nú, hve
áhuginn á þessari Arhúsasýningu verð-
ur mikill á landi hér.
Nýtt kirkjublaO.
Sú breyting varð á útgáfu þess um
síðustu áramót að prófessor Þórhallur
Bjarnarson gefur það einn út, þetta
yfirstandandi ár að minsta kosti. —
Ótrúlega dauft og dautt hlýtur trúar-
lífið að vera hér á landi ef slík-
ur hæfileikamaður sem síra Þórhallur
er, getur ekki haldið lífi í blaðinu.
Blaðið á þó áreiðanlega miklu meiri
útbreiðslu skilið, en það hefir fengið
að þessu.
Fríkirkjuhreifing:
allmikil er sögð að vera í presta-
kalli síra Zophoniasar heitins og líka
Rípursókn, sem við á að bætast eftir
nýju lögunum. Myndar- og maktar-
menn eiga í hlut og munu þeir treysta
sér að geta haldið fríkirkjunni uppi.
Fréttin er þó fremur óvænt, þar sem
ekki mun um skoðunarmun að ræða í
trúarefnum og þeir munu ætla að fá
sér prestlærðan mann til forstöðu. Al-
valdir eru þeir nú um prestskosning-
una. Kirkjurnar fá þeir að sjálfsögðu
til nota, gangi hvert mannsbarn úr
þjóðkirkjunni eins og talað er, en
eignartekjur prestakallsins hljóta þeir
að missa og er það gjaldaviðbót fyrir
þá við prestslaunin. Það ætti að vera-
töluvert fhugunarefni fyrir þessar sókn-
ir, hvort vert er að slíta félagsskapn-
um við þjóðkirkjuna. Betur ógert nú.
Bíði meiri umskifta.
Nýtt kirkjublað.
N. Midthun.
Þess er óskað getið hér í blaðinu að
N. Midthun sé ekki alfarinn héðan af landi.
Hann hafði farið til Noregs, sumpart til
frekara náms, en sumpart til þess að ráða
verkafólk.
Sláturhús
hefir Kaupfélag Skagfirðinga ákveð-
ið að byggja á næstkomandi sumri.
Teikningu að hinu fyrhugaða húsi
gerði Ingimar Sigurðsson frá Drafla-
stöðum. Stærðin er ákveðin 40x15
al. Húsið á að vera úr stcinsteypu,
bæði veggir og gólf og er talið að
það muni kosta um 6000 kr. í því
má slátra á dag 5-—600 fjár og koma
kjötinu í salt. Komi hinsvegar þeir
tímar, að millilandaskip fáist með
kælirúmum, má slátra þar í einu um
1200 fjár.
Hraðskeyti til Nls.
Reykjavfk 17/3 '08.
Þann 14. þ. m. druknuðu 6 menn
í fiskiróðri frá Miðnesi. Formaður
bátsins var Árni Eiriksson frá Gerða-
koti.
Vatnsleiðsla Reykjavíkur er nú á-
kveðin og kostnaðurinn áœtlaður 400
þús. kr.
Hallgrímur Halldórsson.
bóndi á Melum í Svarfaðardal lá hættu-
lega veikur þegar Siglufjarðarpóstur fór um
Svarfaðardal um síðustu helgi.
Hrognkelsaveiði
er byrjuð hér yzt í firðinum og mun
það vera með fyrsta móti.
Tíðarfarið
ágætt. Bezta veður á hverjum degi und-
anfarið, eins og flesta daga á þessum vetri.
í gær blíðviðrishláka.
Ferðafólk.
Bæjarfógetafrú M. Guðmundsson,
Th. Krabbe verkfræðingur og alþing-
ismennirnir Pétur Jónsson og Jón
Jónsson fóru héðan suður með Eljan
um síðustu helgi.
Kaupmennirnir E. Einarsson og Sig.
H. Sigurðsson frá Siglufirði komu hing-
að frá útlöndum með Ingólfi, ennfrem-
ur Sveinn Olafsson í Firði. Með Vestu
kom hingað skraddari til Gudm. Efter-
fölgers verzlunar.
FUNDUR verður haldinn í félaginu
Goodtemplarahúsinu, næstkomandi
þriðjudagskvöld, 24. þ. m., u. 8V2.
Mörg mál á dagskrá.
Áríðandi að allir mœii.
Félagsstjórnirv
Húsgagnaverzlui)
Guðbjörns Björnssonar
H hefir œtið nœgar birgðir af H
ji flestum algengum húsgögn- ji
um.
Sérlega mikið af
jj stólum, linoleum, gólf- -j
ii vaxdúkum, rúmstæðum |
ii o. m. fl. H
OKEYPIS
fást ekki vörur hjá undirrituðum, en nú er gott tækifæri að fá ódýrar vörur,
svo sem, nærföt og peysur mjög hlýjar, fyrir sjómennina.
Gólfteppi, borðteppi, rúmteppi, dyramottur úr járni, hamp og
eokus. Karlmannaföt, stórtreyjur, frakkar og regnkápur fyrir
unglinga og fullorðna.
Mikið af karla- og kvenfataefnum. Þvottabalar, aflangir og
kringlóttir og margt fl.
Við höfum flestar nauðsynjavörur á boðstólum.
St. Sigurðsson & E. Gunnarsson.
.?. •• •.?.• .* *.• .• •.•.•.*.• .••.•.• •..• •.• .♦.• .f.«.« »..•
VERZLUNIN
**^**.*
EDINBORG 1
hefir nú með skipunum fengið allskonar
Imatvöru ««
nýlen du vöru,
álnavöru;
Í par á meðal margar tegundir af dÚkumy sem ekki hafa sézt hér
f:
♦:
•:
•;
•:
I:
•:
•:
i: og enn fremur allmikið af
••••••
áður í verzlunum.
*j Eins og að undanförnu selur verzlunin allar vörur við svo lágu verði
tj sem unt er, og er pví sjálfsagt að spyrja fyrst um vörur og verð
á þeim í
^ Edinborg.
............................ • •»•••• • • ••• • • ••••••••• • • • • • • • • • • v
•'• •* • 'V •' • '• •' • ’• •' • ‘ • •' • '• ’•' •' • • ’ • •' • ’• •’ • ’• •' • •’ • ’ •
Beizlisstengur
smíðaðar eftir mínum alþektu stengum, nýkomnar í verzlun mína. Verð
með keðju:
Fortinaðar 2 kr. 65 aura.
Nikkelerjiðar 3 kr. 45 aúra.
Sig. Sigurðsson.
Verksmiðjufélagið á ýlkureyri
heldur aðalfund sinn 22. aprílmánaðar á Hotel
Akureyri. Fundurinn hefst kl. 4 e. h.