Norðurland


Norðurland - 23.05.1908, Qupperneq 3

Norðurland - 23.05.1908, Qupperneq 3
i63 Nl. mentaðar þjóðir, sem hafa gert þetta á undan oss. ^ótmæli gegq nefndarfrumvarpinu. Austri frá 15. þ. m. flytur mjög eftirtektaverða grein eftir ritstjórann um nefndarfrumvarpið í sambandsmálinu. Vér leyfum oss að prenta hér upp kafla úr grein þessari, er hljóðar svo: „Það mun óefað mega telja það víst, að þessu frumvarpi millilandanefndarinnar muni verða tekið með almennum óhug hér á landi og ekki nokkur minstu líkindi til annars, en að þjóðin muni hafna því með miklum meiri hluta atkvæða og þá að sjálfsögðu full- trúar hennar á alþingi líka. Vér getum ekki betur séð, en að hér sé stórt spor stigið aftur á bak frá sjálfstseði voru, þar sem vér eigum að binda oss um aldur og æfi við Danmörku og megum al- drei sjálfir ráða utanríkismálum vorum. Sumt er það auðvitað í frumvarpi þessu, sem er til bóta, frá því sem nú er, en þetta: að ísland skuli vera ætíð og æfinlega hluti úr „alrikinu danska", og láta Dáni jafnan hafa á hendi utanríkismál vor, — það er óhaf- andi, og hneisa fyrir oss að binda slíkan klafa um háls vorn. Og vér teljum sennilegt, að eigi verði mikill flokkadráttur um mál þetta, og menn verði að mestu samtaka og Iítið hjáróma í því að hrópa hér: ,Vér mótmælum allir'." Hér á Akureyri var haldinn fjöl- mennur fundur 17. þ. m. í félaginu Skjaldborg og var þar samþykt svo- hljóðandi ályktun: Félagið Skjaldborg á Akureyri telur frum- varp millilandanefndarinnar bygt á alt öðr- um grundvelli en kröfur Þingvallafundar- ins. Fáist þeim kröfum ekki framgengt tei- ur það ekki annað fyrir höndum en fullan skilnað. Stúdentafélagið í Reykjavík hefir samþykt mótmæli gegn frumvarpi milli- landanefndarinnar. Sagt er að blöðin Pjóðólfur, ísa- fold, Ingólfur, Fjallkonan og Rjóðvilj- in séu öll á móti því að samþykkja frumvarpið óbreytt. Austri hefir þegar lýst sinni skoðun skörulega. Náttúrlega verða blöðin Reykjavík, Lögrétta og Norðri með frumvarpinu. Um Austur- land og Vestra er enn ókunnugt. Hraðskeyti til Nls. Reykjavtk >8,'5 ’OS Flestdönsk blöð mœla með nefndarfrum- varpinu, þó fer blaðið „Vort Land“ um það þessum storkunaryrðum: (líklega til að hrœða oss frd að gera frekari kröfur). „Milli þessara iveggja skoðana, hefir nii komisf d samkomulag i nefndardlitinu á þann einfalda hátt að íslenzka skoðun- in hefir í öllum atriðum orðið ofan á.“ Blaðið ber danska hlutanum i nefndinni á brjtn hugleysi, uppgjöf og blygðunarvert athœfi. Segir blaðið að það sé eina vonin að íslendingar verði svo hrokafullir af hinum heillavœnlegu málalokum nefndar- innar, að alþingi dirfist að bera fram nýj- ar kröfur og að frumvarpið verði felt af þeirri ástœðu, svo alt standi óbreytt eins og mi er. Útlend blöð, ensk og þýzk, skoða ís- land viðurkent fullveðja riki. Ragnar Lundborg segir að ísland sé viðurkent fullveðja konungsriki. Samband- íð sé nálega hið sama sem milli Noregs Sviþjóðar. Óuppsegjanlegu málin séu hin sömu sem á milli Austurríkis og Ungverja- lands. Þessu taki þjóðrœðismenn óefað og landvarnarmenn œttu að gera það líka. Prófessor Hagerup sendiherra Norð- manna í Khöfn hefir leyft að hafa það eftir sér að island sé með frumvarpinu viðurkent futlveðja rlki (Suverœn Stat). Sannsözlin í Norðra. Síðasta blað Norðra skýrir frá því að Reykvíkingar ætli að halda veizlu fyrir íslenzku nefndarmönnunum. þegar þeir koma til Reykjavíkur og að yfirdómar- arnir Kristján Jónsson og Jón Jensson séu meðal þeirra, er til veizlunnar stofna. Vér gerðum þegar fyrirspurn til Reykja- víkur um hvort þetta væri rétt hermt um þá yfirdómarana og svarið var að það væri tilhæfulaus ósannindi. — Önnur frétt úr Reykjavík segir að þeir yfirdómararnir hafi verið beðnir að vera í forstöðunefnd slíkrar veizlu, en þeir hafi neitað því báðir. Þá skýrir Norðri frá að heimastjórnar- félagið >Fram« í Rvík. hafi samþykt í einu hljóði á mjög fjölmennum fundi þakk- lætisyfirlýsingu til nefndarinnar fyrir störf hennar, en skýrir jafnframt frá því að á fundi landvarnarmanna, sem getið var um í síðasta blaði, hafi verið »mjög fáment«. Reykjavíkurbúi, sem frétti eitthvað af þess- ari sannsögli, hringdi nú í vikunni upp kunningja sinn hér í bænum, til þess að láta hann vita að á Framfundinum hefði verið um 60 manna, en á fundi landvarn- armanna á þriðja hundrað. —Geta má þess ennfremur að þessi fundur landvarnar- manna hafði staðið fram á nótt og voru því nokkurir gengnir af fundi er til at- kvæðagreiðslu kom og var Guðm. Hannes- son á meðal þeirra, en talað hafði hann á móti frumvarpinu á fundinum, svo ekki er til neins fyrir Norðra að reyna til að blekkja menn á því, að hann hafi verið frumvarpinu fylgjandi eða þá óráðinn. Fnjóskárbrúin á að verða steinbogi, gerður úr steinsteypu, 4 álna breiður milli hand- riða og um 80 álnir á lengd. Brúar- smíðinni verður lokið í haust. Campbell Bannerman. Einn af sessunautum hins nýlátna yfirráð- herra Englands, Campbell Bannermans, segir um hann: „Flver sá maður, sein átt hefir einhver viðskifti við þann mann, mun trega hann eins og trygðavin sinn. Eg hefi aldrei þekt mikihnenni í háu sæti um mína daga, sem ávann sér eins og hann hvers manns hollnustu og elsku, sem nærri honum komu. Fiann var ekki einungis heiðraður og hátt metinn, heldur fylgdi honum hjartanleg ástúð manna og aðdáun. Þorri vorrar fjöl- mennu þjóðar, einkum og sérílagi þeir, sem bágt eiga, hafa í honum látíð það mesta mannval, sem þeir áttu nokkru sinni í hárri valdastöðu í þessu landi. Hluttekning hans við ólánsfólk og mæðumenn var sár og viðkvæm, aldrei uppgerð eða endaslepp. Hann var stórmenni, gæddur stóru höfði (o: mannviti) og enn þá stærra hjarta (o: manngæzku). Og hann var undantekningar- laust sá einarðasti skörungur í landsstjórn- armálum, er eg hefi þekt. Hann kunni aldrei að hræðast svo meiri ofurhugi hefir vart verið til. 4/ j Sigluneshákarl fæst enn þá í KJÖTBÚÐINN.I Ungur, bráðviljugur KLÁRHESTUR fæst keyptur hjá Kristjáni Nikulássyni. JVIótorbáts- formaður duglegur getur fengið atvinnu strax við þorsk- veiðar og sömuleiðis 2 HÁSETAR. Otto Tulinius. Búnaðarfélag íslands vill veita einni kenslukonu styrk til umferðarkenslu í hússtjórn og matreiðslu á Norðurlandi eða Austurlandi næsta vetur, 60 kr. á mánuði. Umsóknir um styrkinn er óskað að sendar séu Bún- aðarfélaginu sem fyrst. Hvergi á öllu Norðurlandi er eins stórt úrval af Karlmanna™ fafaefnum Og Peysufata- klœði og i VEFNAÐARVÖRUVERZLUN Sudmanns £fterf/. Gott saltað sauðakjöt rúllupylsur tólg og saltfiskur fæst í verzlun 8N. JÓNSSONAR. rjónagarn, \ kristalingarn l I schetlands- I garn, broder- garn, heklugarn «g Jj^ zephyrgarn fæst í Kaupfélagsverzluninni. Olíufatnaður fæst í verzlun Sn. /ónssonar. Aðalfundur vBindindissameiningar Norður- lands verður haldinn, laugard. 20. júní n. k. að Svalbarði á Svalbarðsströnd. Stjórnarnefndin. Dauðimj yfirvinst ekki, en menn verða Ianglífari og lífið farsælla ef menn gæta þess að halda meltingunni í lagi og blóðinu hreinu og nýju; þetta geta menn gert með því að neyta daglega hins frá- bæra matarbitters „China Livs Eliks- irs" frá Waldemar Petersen í Fred- rikshavn Köbenhavn. Garnakvef. Eg hefi i 3 ár þjáðst af þessum sjúk- dómi og var svo illa farinn, að eg gat ekki unnið léttustu verk. Eftir að eg nú hefi brúkað China Livs Eliksir, er eg orð- inn sem alheilbrigður og er það sannfcer- ing min að eg haldi við heilsunni með því að halda áfram að taka þetta lyf inn. J. E. Peterserj. Vansæt í Noregi. Krampi. Undirritaður hefir í 20 ár þjáðst af krampaflogum i öllum líkamanum, en eftir að eg hefi tekið inn 12 flöskur af China Livs Eliksir yðar er eg orðinn laus við þenna sjúkdóm og bið yður hér með að senda mér 12 flöskur handa öðrum manni, þvi mig langar til að allir sem sjúkir eru reyni þetta lyf. Carl J. y\ndersoi). Norra Ed, Kila í Svíaríki. Varið yður á eftirstælingum Kaupið enga flösku nema á ein- kunnarmiðanum standi Kínverji með glas í hendinni og nafn verksmiðju- eigandans Waldemars Petersen, Fred- rikshavn Kjöbenhavn og á flösku- stútnum merkið ^-í grænu lakki.

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.