Norðurland - 01.08.1908, Síða 3
bjóða sig fram til þingmensku. Þá er
og mælt að Arni Arnason á Höfða-
hólum muni og bjóða sig fram. Er því
talað um 4 frumvarpsandstæðinga sem
frambjóðendur, en ekki nema einn af
stjórnarliðum.
Þegar miðnætti var komið voru
margir fundarmenn farnir af fundi og
þótti því ekki rétt að láta ganga til
atkvæða, en fullyrt er það við oss að
ekki hafi fleiri en 10—20 af fundar-
mönnum fylgt frumvarpinu óbreyttu og
engar líkur séu til þess að neinn frum-
varptmaður nái kosningu í Húnavatns-
sýslu.
Frá Sveinsstöðum lagði ráðherrann
aftur á stað vestur á bóginn og hafði
ferð hans verið heitið nú fyrst vestur
í Strandasýslu. Hefir hann miklar á-
hyggjur og umsvif um þessar mundir.
Kórekssíaðafundurinn.
Um síðustu helgi var fundur hald-
inn um sambandsmálið að Kóreksstöð-
um í Norður-Múlasýslu. Ræðuroenn þar
voru þeir Jóhannes Jóhannesson sýslu-
maður og Björn Kristjánsson kaup-
maður í Reykjavík. Um 60 kjósendur
voru á fundi, en atkvæðagreiðsla fór
þar ekki fram.
Fundir á Snæfellsnesi.
Þá eru enn komnar fregnir af 2
fundum er haldnir voru á Snæfellsnesi,
eftir að Lárus Bjarnason hafði haldið
þar 5 fundi sína. Annar sá fundur var
haldinn að Slaðastað 19. f. m. Þar
komu 22. kjósendur og tjáðu sig alla
andvíga Uppkastinu óbreyttu.
Tveim dögum síðar, 21. júlí, var
þingmálafundur haldinn að Arnarstapa.
Þar töluðu gegn frumvarpinu þeir síra
Sigurður Gunnarsson og Einar Þor-
kelsson, landsskjalaritari í Rvík, en
með því Guðm. Eggerz sýslumaður og
Bjarni Jónsson frá Knerri. Atkvæða-
greiðsla fór svo að 21 atkvæði var
greitt fyrir breytingum, en ekki nema
2 með Uppkastinu óbreyttu.
X
Sambandsmálsfundurinn í Winnipegr.
í Lögbergi frá 2. f. m. má sjá
fundarboð það, er varð tilefni til fund-
ar þess í Winnipeg um samband ís-
lands við Danmörku, er frá var skýrt
í síðasta blaði Nls., eftir hraðskeyti.
Undir þetta fundarboð höfðu ritað ekki
færri en 31 hinna merkustu íslendinga
í Winnipeg af öllum flokkum, prestar,
læknar, ritstjórar, málfærslumenn og
helztu atvinnurekendur íslenzkir þar í
bænum.
Benedikt Svelnsson
ritstjóri koin hingað til bæjarins á
mánudaginn, úr ferð sinni í Norður-
Þingeyjarsýslu í þingmensku-erindum.
Hann fór héðan áleiðis suður á mið-
vikudaginn, ásamt Einari Hjörleifssyni.
B. S. hafði verið á þingunum í
Norður-Þingeyjarsýslu. Var þar höfð
hin sama aðferð sem í Suður-Þingeyj-
arsýslu, þingin notuð tii þess að boða
mönnum frumvarpið. Fer sá siður að
tíðkast harla mikið hér á landi að
valdsmenn noti þessar skuldheimtu-
ferðir sínar í þarfir landssjóðsins, til
þess að reka jafnframt stjórnmála- og
flokkaerindi og ætti sá ósiður að leggj-
ast niður sem fyrst.
En fremur höfðu Norður-Þingeying-
ar tekið frumvarpinu dauflega og varð
ekki annað séð, en að meira en helm-
205
N!
ingur þeirra væri því fráhverfur að
ganga að því breytingalaust.
Þórði Thoroddsen
lækni og bankagjaldkera, sem talinn
var viss að ná kosningu í Reykjavík,
sem þingmannsefni sjálfstæðismanna,
var synjað um það af bankaráðinu að
bjóða sig til þingmensku, nema hann
segði af sér stöðu sinni sem banka-
gjaldkeri og hafði þó aðalbankastjór-
inn tekið þeirri málaleitun líklega.
Það er rétt eins og hérna hjá oss.
Hér er bæjarfógetinn og sýslumaður-
inn rekinn til þess nauðugur að bjóða
sig fram til þingmensku fyrir Austur-
Skaftafellssýslu, þó allir viti, og hann
bezt sjálfur, að embætti hans leyfir
honum engan tíma til þess að sitja á
þingi.
En það er sitt hvað ef stjórnarliði
eða stjórnarandstæðingur á í hlut.
Jóhannes Jósefsson
hafði glímt í grísk rómverskri glímu
í Lundúnum og staðið sig mæta vel.
En síðasta daginn sem glíma þessi
fór fram var hann veikur. Aður hafði
hann glfmt við fjölda manna, og felt
þá alla, en aldrei fallið sjálfur.
Hefði ekki þetta óhapp komið fyrir,
eru víst ekki litlar líkur til að hann
hefði orðið sigurvegarinn
ísfenzku glimurnar
í Lundúnum gengu vel. Voru þær
sýndar á leiksviði olympisku leikanna
í viðurvist fjölda áhorfenda.
Búist við að sýna glímurnar aftur
að 14 daga leikunum afstöðnum.
Ráðnir höfðu glímumennirnir verið
til þess að sýna glímur í Edínaborg,
Newcastle og Glasgow og taldar líkur
til þess að þeir færu til Hafnar í
sömu erindum. Ensk blöð hafa flutt
myndir af glímumönnunum, að minsta
kosti þeim glímuköppunum tveimur,
Jóhannesi og Hallgrími.
U. M. F. í
A sambandsþingi félagsins (á Akur-
eyri og Reykjavík) var þessi stjórn kos-
in: Formaður HelgÞValtýsson kennari,
ritari Svafa þórhallsdóttir, ungfrú, gjald-
keri Þórhallur Bjarnarson prentari á Ak-
ureyri.
í varastjórn voru kosnir Jóhannes
Jósefsson, frú Karólína Guðlaugsdótt-
ir og Arni Jóhannsson biskupsskrifari.
Framvegis verða sambandsþingin háð
3. hvert ár að Þingvöllum og íþrótta-
mót í sambandi við það. Var nefnd
kosin til þess að undirbúa íþrótta-
mótið 1911. •
Meðal annars var það samþykt að
fela sambandsstjórninni að reyna að
koma á einum sérstökum skógræktar-
degi um land alt árlega innan vébanda
Sambandsins.
Þinsmannsefni Reykjavíkur
eru þessir taldir: Af stjórnarliðum
Guðm. Björnsson landlæknir og Jón
Þorláksson verkfræðingur, en fyrir
hönd andstæðinga Uppkastsins þeir
Magnús Blöndahl verksmiðjustjóri og
dr. phil. Jón Þorkelsson skjalavörður.
Kirkjufélag: Vestur-fslendingra.
Síra Jón Bjarnason í Winnipeg hefir
að þvf er skýrt er frá í Lögbergi 25.
júnf, neitað að taka við endurkosn-
ingu, sem forseti íslenzka kirkjufélags-
ins í Vesturheimi og hafði kirkjuþingið
kosið í hans stað síra Björn B. Jóns-
son.
Síra Jón Bjarnason var forseti kirkju-
félagsins í 23 ár, ' eða síðan það var
stofnað og gegndi því starfi með frá-
bærum skörungsskap. Eftirmaður hans,
síra B. B. J., hafði lýst yfir því á þing-
inu, að hann fylgdi stefnu síra J. B.
í kirkjumálum í öllum greinum.
Norsk-íslenzkt hlutafélas:
allstórt var stofnað nýlega í Niðar-
ósi, með 430,000 kr. höfuðstól, er
Norðmenn, ýmsir helztu fésýslumenn
þar í borginni m. fl., eiga í 200,000
kr., en hitt íslendingar, og mun vera
mikið af því fólgið í eignum félaganna
Völundar, Mjölnis, Högna og Báta-
smíðastöðvar Reykjavíkur, en þær stofn-
anir allar eignast hið nýja hlutafélag.
Það ætlar að reka verzlun á alls kon-
ar húsagerðarefnum, einkum trjávið
frá Noregi, og standa fyrir húsasmíði.
Enn fremur ráðgert, að það stofni
gangvélaverksmiðju og fáist við hafna-
gerð. Þeir hafa gengist fyrir að koma
félagi þessu á fót, Einar Benedikts-
son sýslumaður, Friðrik Jónsson kaup-
maður og Magnús Blöndahl verksmiðju-
stjóri. Fyrir félaginu ræður 5 manna
stjórn, einn Norðmaður, konsúll Bratt
í Niðarósi, og 4 íslendingar, þar á
meðal Magnús Blöndahl, og er hann
framkvæmdarstjóri þess hér á landi.
Það heflr aðalaðsetu í Reykjavík.
Ný ráðaneytisskipun
er nú á komin í Danmörku í ráða-
neyti Christensens. Er Högsbro orð-
inn dómsmálaráðherra í stað Alberti,
Anders Nielsen landbúnaðarráðgjafi,
Neergaard- fjármálaráðgjafi og Sönde-
rup samgöngumálaráðgjafi.
..Agder“
var nú í vikunni sendur austur á Eski-
fjörð með beitusíld, því þar er sfld ekki
fáanleg nú, þó nóg sé af henni hér. — Ó-
víst að annað skip hefði fengist með síldina
og sýnir þetta að skipið getur orðið að miklu
almennu gagni.
SkólastjórastarfiO
við barnaskólann hér á Akureyri er
veitt ungfreyju Halldóru Bjarnadóttur,
er dvalið hefir hin síðari ár við kenslu
í Moss í Noregi og þykir ágæt kenslu-
kona.
Qansandi suOur fjöll
fóru þeir á miðvikudaginn var, Stef-
án Björnsson teiknikennari, Lárus J.
Rist leikfimiskennari, Jóhann Sigur-
jónsson skáld og Magnús Matthíasson
bankaritari. Höfðu þeir fylgdarmann
með hest er ber farangur þeirra tvær
dagleiðir fram á fjöllin, en sjálfir ætla
þeir að bera hann úr því. Ferðinni
er heitið að Hveravöllum. Hvítárvatni,
Gullfossi, Geysi, Þingvöllum, Eyrar-
bakka og þaðan út Reykjanes til
Reykjavíkur.
SíldarveiOarnar
hér norðanlands gengu framan af
misjafnlega og voru fremur litlar, en
undanfarna viku hefir aflinn verið góð-
ur og hjá sumum ágætur.
Um miðja þessa viku er talið að
búið hafi verið að veiða um 50 þús-
und tunnur alls. Meira en helmingurinn
af þeirri síld hafði verið fluttur til Siglu-
fjarðar en hitt inn á Eyjafjörð, til Hjalt-
eyrar og Akureyrar. Af þessari síld
eiga íslendingar nálægt því 12 þúsund
tunnur.
Ólafsvíkurpresfakall
er veitt guðfræðiskandídat Guðmundi
Einarssyni, samkvæmt kosningu safnaðar-
ins.
Sfaður í Sfeingrímsfirði
er veittur síra Guðlaugi Guðmundssyni
á Dagverðarnesi.
Viðvíkurpresfakali
er auglýst laust aftur, með því að síra
Þorleifur Jónsson vildi ekki taka við þvf
er til kom. Umsóknarfrestur er til 5. sept.
>••• •••••••••••••••
kaupir þar sem hann fær mest
fyrir peninga sína.
Hygginn maður
kaupir þar sem hann veit að
vörurnar eru beztar.
Hygginn maður
kaupir þar sem mestu er úr
að velja.
r r r
Allir, sein til þekkja, vita að
Vefnaðarvöruverzluij
Gudmanns Efterfl.
fullnægir þessum skilyrðum öll-
um. — Þar er ávalt
Stærst úrval,
lægst verð.
Um
skóggræðslu °g skógrækf
heldur umsjónarmaður skógræktarinnar hérá landi,
Kofoed-Hansen,
FYRIRLEST U R
í Gagnfræðaskólanum sunnudagskvöld 2. ágúst,
kl. 82. Ókeypis aðgangur.