Norðurland


Norðurland - 08.08.1908, Blaðsíða 2

Norðurland - 08.08.1908, Blaðsíða 2
208 Nl. Dr. Valtýr Guðmundsson °g frumvarp millilandanefndarinnar. í danska blaðið Politiken hefir Dr. Valtýr Guðmundsson ritað grein nokk- ura um frumvarpið, viðtökur þær er það hafi fengið, hvað að því sé fundið og hverjar horfur séu á því að það Verði samþykt. Að ræða um alt þetta í einni grein er að vísu ekki hægt, svo að ekki verði miklu úr að sleppa. Til þess er málið of margbrotið. En þó er það góðra gjalda vert að ein- hverir verða til þess að skýra málið nokkuð fyrir Dönum, því helzt er svo að sjá sem blöð þeirra, að minsta kosti sum, þykist ekki fær um að tala um málið með rökum. Hitt lætur þeim heldur að æpa hástöfum yfir því að nokkrir Norðmenn hafa talað til vor nokkrum hlýlegum brýningarorðum, að hlaupa ekki á oss í máli þessu og ganga að þeim kostum einum, er oss megi vera skammlausir, hvort sem vér erum lífs eða liðnir. Sé svo talað um frumvarpið í út- lendum blöðum, að það þyki í öllu fullgott handa oss íslendingum, þá er vitanlega ekki sparað, hvorki f Dan- mörku né hér, að halda þessu á lofti. En þyki einhverjum oss of lítið boðið, þá virða bæði Danir og dansklundaðir íslendingar það til fjandskapar. Dr. Valtýr bendir annars á það, að öll hin fyrri flokkaskipun f landinu sé mjög á reiki. Uppkastið hafi fengið fylgismenn í öllum flokkum, en ekki séu síður menn í öllum flokkum, er ekki vilji ganga að því óbreyttu. Tel- ur hann að þjóðin skiftist nú f þrjá flokka. 1. Þá sem vilja samþykkja frumvarp- ið óbreytt. 2. Þá sem vilja koma fram hófleg- um breytingum og tryggja það betur, en Uppkastið gerir, að það veiti oss þau réttindi, er nefndarmennirnir teljá að það veiti og 3. Þá sem ekki vilja ganga að frum- varpinu, nema á þvf séu gerðar svo gagngerðar breytingar, að Danir muni ekki vilja að þeim ganga. Engu segist hann vilja um það spá hve liðsterkir flokkar þessir verði á næsta þingi, en telur þó sennilegast að enginn þeirra ráði yfir fuilum meiri hluta. Gerir hann því ráð fyrir öðru af þessu tvennu: Að breytingartillögur gjörbreytenda verði feldar af báðum hinum flokkun- um, en Uppkastsmennirnir sætta sig sfðan við tillögur þeirra manna, er hægar vilja fara og þær tillögur verði samþyktar, eða Að breytingartillögur gjörbreytenda verði fyrst feldar af báðum hinum flokkunum, en síðan verði tillögur þeirra er skemra fara feldar bæði af gjörbreytendum og Uppkastsmönnum, en ekkert frumvarp verði samþykt á þessu þingi. Vitanlega eru þetta ekki annað en spár einar. Ennþá er óvfst með öllu að ekki náist fult samkomulag um breytingarnar milli þeirra -manna, er vilja breyta og fari svo er ekki held- ur ólíklegt að nokkurir, eða jafnvel allmargir, þeirra, er nú vilja ganga að frumvarpinu óbreyttu, sláist þá f þann hóp á sfðustu stund. En sennilega fer þetta nokkuð eftir því hve liprir Danir reynast við samningana. Annars kannast Dr. Valtýr við það, að það sé ómótmælanlégt, að hinn íslenzki og danski texti Uppkastsins sé ekki samhljóða í ýmsum greinum og hafi það átt góðan hlut í því að spilla fyrir því. Það sé og rangt, sem ýmsir nefndarmennirnir hafi haldið fram, að báðir textarnir séu frumtextar eða jafnréttháir. Samþyktin 13. Maí sýni það glögglega að þetta sé ekki svo. í henni standi að aðeins danski textinn sé samþyktur af allri nefndinni, en ís- Ienzka þýðingin sé látin fylgja og sé hún á ábyrgð íslenzku nefndarmann- anna, en með tilteknum dæmum (veldi Danakonungs — ríkjasamband) sé það ákveðið, að beri textunum ekki saman skuli merking dönsku orðanna ráða. Er þetta ekki lítilsverð viðurkenn- ing frá manni, sein er jafnhlyntur frum- varpinu að öðru leýti og Dr. Valtýr Guðmundsson. »Sú hefir orðið afleiðingin af þessu«, segir Dr. V. G. » — og ýmsum öðrum ummælum íslenzku nefndarmannanna — að á íslandi hefir mönnum sýnzt sem það væri með ráði gert að gera textana svo úr garði, til þess að villa kjósendum í báðum Iöndunum sýn — danskir og íslenzkir kjósendur ættu að skilja frumvarpið hvor á sinn veg. Þetta hefir spilt mikið fyrir og vald- ið tortrygni, einnig að því er þau atriði snertir, sem eru fullljós og engin ástæða er til að vera óánægður yfir.« ? Skólamál Vestur-íslendinga. Af því máli berast hingað eftirtekta- verð tíðindi. Kirkjuþingið hefir ákveðið að slíta sambandi því, er það hefir haft við 2 skóla þar vestra, að einu ári liðnu, Gustavus Adolphus College og Vestley College í Winnipeg. Þó verður ekki séð að von sé um að skóli kirkjufé- lagsins, sem lengi hefir verið efnt til, muni komast upp bráðlega. Af fund- arskýrslunni verður ekki séð, að sú von hafi vakað fyrir nokkurum fundar- manna, þó reyndar sé gengið kappsam- lega fram í því að safna fé. Aðalá- stæðan er sú, að kirkjufélagið vill ekki hafa síra Friðrik J. Bergmann fyrir kennara í tungumálum við Vestley- skólann, af því að hann sé á bandi nýju guðfræðinnar. Þá sök eina finn- ur kirkjufélagið á hendur honum og hún er því nóg. Helztu andstæðingar síra F. J. B. á kirkjuþiriginu, prestarnir þar vestra, urðu að kannast við það, að frá þjóðernislegu sjónarmiði hefðu íslendingar vestra haft gott af stofnun embættisins við Vestley-skólann og að margir mundu hafa leitað náms þess vegna, er annars hefðu ekki til þess hugsað, en það yrði að lúta í lægra haldi er um það væri að ræða, að bæla »hærri kritikina« niður. Eins og kunnugt er hafa íslending- ar getið sér hinn bezta orðstír við Vestley-skólann, það verið viðurkent um þá, að þeir sköruðu þar fram úr öðrum nemendum og síðastliðið ár var skólinn sóttur af ekki færri en 35 ís- lendingum. Hér er því að ræða um næsta þýðingarmikla ráðstöfun og fer varla hjá því að hún veki talsverðan óhug víða hér á landi. Síra Friðrik benti á það á fundin- um, að ef skoðanir hans væru skað- legar, lægi næst að reka sig frá prests- embætti, en ekki frá tungumálakenslu og sýnist ekki ólíklegt að kirkjufélag- ið geri það á eftir, er það hefir stigið þetta fyrra sporið. 3» Cesar £ombrosó heitir nafnfrægur sálarfræðingur á ítal- íu. Hefir hann einkum aflað sér frægð- ar um hinn mentaða heim fyrir tvent: sakamannafræði (criminologiu), og rit sín gegn dulspeki og andatrú. Hann er nú vel sjötugur, en ern maður og óbilaður. Fyrir eitthvað 20 árum sfðan fengu nokkrir vinir hans hann til að reyna sjálfur tilraunir spiritista. Hann lét loks að orðum þeirra og samdi við hina nafnkunnu Evsapíú Paladino að sýna sér nokkrar tilraunir, en þó svo að hann mætti ráða öllum atvikum og hreyfingum hennar, t. d., binda hendur hennar og fætur og haga öllu í herberginu, svo og birtunni, eins og hann vildi. Hann viðhafði met, vog og mælira, ljósmyndavél og önn- ur vísindaáhöld. Síðan var hann við ótal tilraunir. Liðu svo nokkur ár. Smásaman lýsti Lombroso því f ritum og ræðu, að hann væri löngu orðinn sannfærður um að fyrirbrigðin, er hann hefði séð, hefðu verið áreiðanlegir við- burðir, og aldrei svik eða sjónhverf- ingar. Þó kvaðst hann tala einungis um staðhœtti, en hvernig þá ætti að þýða, kvaðst hann ekkert um segja. Svo líður og bíður. Lombrosó hélt áfram rannsóknum sínum, en bráðum komust fleiri og fleiri á snoðir um, að hann væri orðinn fulltrúaður spíritisti, í blaðinu Le Matin (d: morgun) í Paris stóð 12. apríl í vor eftirfylgjandi sam- tal ritstjóra blaðsins við Lombrosó. »Hvernig viljið þér þýða fyrirbrigðin við tilraunir yðar hjá frú Evsapiuf* »Á einfaldan hátt. Hún hefir þá gáfu að sýna fyrirbrigðin. Hún er taugasjúk (hysterisk); heili hennar raskaðist þeg- ar hún var barn, við einskonar gin- klofa. Hún hefir lág, sem líkist gati við gagnaugað. Við tilraunir flýtur þar út loftefni með vissum lit og má glögg- lega sjá útstreymið. Hún er ákaflega næm og dáleiðist afar-auðveldlega.« »Hafið þér oft verið við tilraunir, prófessorf* »Hundrað sinnum eða oftar, í Milano, Genefu, Neapel, Túrín og Feneyjum.* »Vilduð þér þá gera svo vel að segja mér hvernig yður varð við þau fyrirbrigði ?« 178 »Já, — hvað átti eg að gera?« spurði prófessorinn og fórnaði höndum; »hvað átti eg að gera, aleinn í þessum ósköpum? — það var rétt áður en þú komst, — eg greip það, sem eg hafði handbært. En hún hefir áreiðanlega verið dáin þegar eg helti því í munninn á henni. Eg var lengi hræddur um hjartað í henni; — en að það skyldi fara svona —.« Bentzen Iagði höndina á öxl honum. »Sýndu nú, að þú sért maður, Lövdahl! Við höfum báðir séð svo margt af þessu tægi, að okkur er skylt að sýna þrek þegar þetta dynur yfir okkur sjálfa. Eg sé líka, að þú ert stiltur, og auk þess veiztu líka — guð almáttugur veri lofaður — hvar þú átt að finna bezta og ríkulegasta huggun.« Bentzen héraðslæknir hafði jafnan guðrækileg orð á reiðum höndum við svona tækifæri, þó að hversdags- ræða hans væri allajafna krydduð formælingum og ýms- um óþverrasögum. ,En þegar hann var farinn, búið 'að loka framdyrun- um, leyna því versta og bjarga ástæðunum, þá gugn- aði Karsten Lövdahl; hann lokaði sig inni hjá líkinu, fleygði sér niður við rúmið og stundi. Þetta varð þá endirinn á því — þessu bjónabandi. Það hafði verið honum langvinn barátta, og altaf hafði hann borið Iægra hlut — líka í þetta sinn. Hann hafði barist fyrir því að vinna konu sfna á annan hátt en með ástinni. Hún átti að læra til fulln- ustu að meta hann — einnig á þann hátt að viður- kenna, að lífsskoðun hans væri rétt og að láta undan. Hégómadýrð Karstens Lövdahls var ríkasta sálarein- kunn hans; alt hafði stuðlað að því að efla hana — konan hans ein vildi ekki beygja sig. 179 Og eftir því sem þau lærðu betur að þekkja hvort annað í sambúðinni, eftir því skildist honum betur, að altaf minkuðu Iíkurnar til þess að hún mundi ganga á hönd honum í fullri aðdáun, og' því áfjáðari varð hann að vinna sigur. Það skyldi þó sannast á endanum, að án hans væri henni enginn vegur fær; og einhverntíma skyldi koma að því, að allar fjarstæðuhugmyndir hennar reyndust það, sem þær voru — marklaust hjal og gífuryrði. Og þó fann hann að hún var ofurefli. Þessi hlífðar- lausa, hugdjarfa glaðværð, þetta óhvikula, örugga augna- ráð, sem hann fann hvíla á sér í hvert sinn er hún skifti ögn um brögð með sannleikann svo létt og þægi- lega, þótt hún væri jafnvel í öðrum enda á veizlusaln- um, — alt þetta þjáði hann, espaði hann, af því að hann gat aldrei fengið hana til að hvika. Að eins í einu atriði hafði hann fengið sigur, — í baráttunni um Abraham. En samtímis því kom dálftið annað til sögunnar, sem verst var af öllu, og það hafði rekið smiðshöggið á. Þvf að hann átti leyndarmál, sem hann hafði gert sér alt far um að dylja öll sín hjúskaparár. Hann vat afbrýðissamur. En eins og hégómadýrð hans kom aldrei í Ijós á þann hátt, sem bæri nokkurn vott um gort eða skrum, þannig bólaði heldur aldrei á afbrýðissemi hans í ofsa og bráðræði. Hann mundi altaf eftir setningu einni f bók, sem hann hafði leaið í æsku: Afbrýðissamur maður er æf- inlega hlægilegur, en einkum þegar hann kemur hlaup- andi með hníf í hendinni. í augum Karstens var það hámark allrar mannlegrar hörmungar að verða hlægilegur; og þess vegna hafði

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.