Norðurland - 06.01.1910, Page 1
NORÐURLAND.
Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson. læknir.
1. blað.
Akureyri, 6. janúar 1910.
X. ár.
Ekkjufrú Elísabet Ólafsdóttir.
Eftirmæli.
Nr var heim á hausti,
heimboðinu máttug vötd
réðu — það var 'rökkurkvöld.
Aldan reis og orti i nausti.
Alda reis á öllu landi:
<*skan var að reyna mátt,
werki lét 'i\n hafið hátt.
Lyfta merki er litill vandi.
ttitt er meira: að hafa gengið
hólminn á í vísa raun,
tiopað hvergi, hœstu taun:
<ir og góðan orðstir fengið.
Gerði það hin gamla kona;
gekk hún sina löngu braut
gegn um lifsins gleði og þraut
út i Ijósblik efstu vona.
Göfgum dœtrum, göfgum sonum
gott er að vera móðir að
— alt of fáum auðnast það —;
þú varst ein af þessum konum.
Peim sem orkað þessu geta.
þjóðin á að gjalda skuld,
sé hún ei hins sanna duld,
rf hún kynni memi að meta.
Góðrar konu er gott að njóta,
góðrar móður: hœsta lán;
hart að vera hennar án. v
Barnssálina mæður móta.
Pað er skálds að þakka i tjóði,
þeim sem hafa dýrðar Ijós
láitið skína um dreng og drós
~ þjóðarblessun, gœfa, gróði!
Gulti betri er göfug kona.
Gáskamærin vari sig!
horfi á þennan háa stig,
heldur en þjóðbraut villivona.
Manngildisins brautir blasa
heint á móti hverri sál, *
hafi ’ún sjón og heyrn og mál;
hcegt að standa, hægt að rasa.
Eg hef stundum getað grátið
glöp þin, kœra landið mitt!
gæfuleysi, þjóð min! þitt,
þegar eg hef ei þolað mátið.
Preksmœlingjar þola ei mátin.
Purt er mér um augu nú,
af þvi góð og göfug frú,
er i gæfu Ijósi látin.
G. F.
X
Veðursímskeyti til J'íls
frá 12. til i8. desbr. 1909.
Ak. Gr. Sf. Bl. ís. Rv. Þh._
s. - 5.0 -4.0 - 0.2 - 1.0 0.0 0.8 3'1
M. 7.0 2.0 7-° 6.0 3.0 4-3 8.6
Þ 10.8 7° 133 9.2 5-8 74 7.6
M. 5’2 5 0 9.2 2.6 31 2-3 7-7
F. - °-5 - 4.0 , 3-4 - 1.1 - 2.2 1.0 6.8
K. - 5.0 -10.5H 5.8 - f> 5 - 47 - 6.0 - 1-5
L. - 90 -12.o|- 5.8 - 99 - 9.0 - 9.0 - 6.8
Kl. (f.h.) 7_7_6 — 7 — 7 — 7 —
$
Boejarstjórnarkosningar.
Kosning fór hér fram 3. þ. m. í
stað bæjarfulltrúanna Friðriks Kristjáns-
sonar, Guðmundar Ólafssonar, Sigurð-
ar Hjörleifssonar og Sveins Sigurjóns-
sonar, er frá áttu að fara að lögum.
Listarnir sem kosið var um, voru 6.
Á A-lista Kristján Sigurðsson verzlun-
arstjóri og Guðmundur Ólafsson timb-
urmeistari, á B-lista Sveinn Sigurjóns-
son prentari og Guðmundur Ólafsson
timburmeistari, á C-lista Björn Jóns-
son prentari, Pétur Pétursson verzlun-
arstjóri, Júlíus Sigurðsson bankastjóri
og Björn Líndal málfærzlumaður, á
Drlista Sigurður Hjörleifsson læknir og
Friðrik Kristjánsson bankastjóri, á E-
lista Guðm. Ólafsson timburmeistari
og á F-listaHalldóra Bjarnadóttir skóla-
stýra.
Kosning fór svo að D-listinnri
(Skjaldborgar-listinn) fekk 142 atkvæði
A-listinn 108 atkv., C-listinn 72 atkv.
B-Iistinn 44 atkv., F-listinn 33 atkv.
og E-listinn 4 atkv. Alls komu fram
411 atkv. af um 690 á kjörskrá. lJess-
ir hlutu því kosningu:
Sigurður Hjörleifsson,
Kristján Sigurðsson,
Björn Jónsson,
Friðrik Kristjánsson.
Á Seyðisfirði fór bæjarstjórnar-
kosning *frarn sama dag. Skyldi kjósa
tvo bæjarfulltrúa og var allmikið kapp
í kosningunum. Listar voru ekki færri
en 5.
Kosningin fór svo að kosin voru
Kristján Kristjánsson héraðslæknir og
frú Solveig Jónsdóttir, kona Jóns Ste-
fánssonar, fyrrum pöntunarstjóra.
X
Bankamálið.
Alt með friöi og spekt því viðvíkj-
andi .syðra og fátt um tíðindi.
Fyrsta virkan dag ársins, 3. þm.
sendi stjórnarráðið þeim Eiríki Briem
og Kristjáni Jónssyni tilkynmngu um
að eítir skilningi þess ætti hvorugur
þeirra, fyrri gæzlustjórhnna, að taka
sæti í bankastjórninni.
Við það hefir Eiríkur Briem sætt sig
en aftur fór Kristján Jónsson dómstjóri
til Landsbankans þegar starf byrjaði
þar. Fór hann til herbergis banka-
stjóranna og spurði hvort þeir vildu
taka við sér sem gæzlustjóra. Þeir
kváðu nei við því og munu hafa bor-
ið stjórðarráðið fyrir sig. Kr. J. hafði
haldið því fram að neitunin væri á á-
byrgð þeirra bankastjóranna, sjálfra,
því þetta væri óviðkomandi stjornar-
ráðinu. Eftir þessar umræður fór Kr.
J. aftur út úr bankanum. ■
Skýrsla rannsóknarnefndar kvað vera
væntanleg mjög bráðlega. Það hefir
tafið nú uppá síðkastið, að formaður
nefndarinnar, Karl Einarsson sýslumað-
ur, hefir verið sjúkur síðan fyrir jól.
* *
*
Eftir er þetta er ritað, berast Norð-
urlandi símfréttir af viðburðum banka-
málsins síðastliðinn þriðjudag.
Kristján Jónsson dómstjóri hafði
heimtað sig settan inn í gæzlustjóra-
starfið, með aðstoð fógetans.
Fógetagjörðin, sem fór fram í bank-
anum, hafði staðið yfir 5 klukkutíma.
Voru þar mæt-tir auk Kr. J. fógetinn
Jón Magnússon, Sveinn Björnsson yfir-
réttarmálfærzlumaður fyrir hönd bank-
ans og Ari Jónsson yfirréttarmálfærzlu-
maður fyrir hönd stjórnarráðsins.
Urskurður fógeta var að þessu loknu
á þá leið, að hann heimilaði Kr. J.
aðgang að bankahúsinu, bókum og
skjölum bankans.
Eftir því sýnist þó ennþá óafgert
mál hvort Kr. J. tekur aftur við gæzlu-
stjórastarfinu.
En nú kemur þó það, sem nærri
því má heita það sögulegasta. — Fó-
getinn kom með úrskurð sinn ritaðan
í bók sína í b«nkann. Hafði skrifað
hann áður en hann fór af stað til bank-
ans, svo öll þessi langa fógetagerð
var aðeins til málamynda.
Þessu hafði Sveinn Björnsson mót-
mælt, sem óviðurkvæmilegu gjörræði
og heimtaði mótmæli sín færð til bókar
og varð fógeti að sætta sig við það.
Líklega heyrist þá eitthvað fleira
sögulegt af þessu máli áður en langt
um liði.
X
Líndalsmálið.
Það hefir vakið allmikið umtal hér
í bænum, síðan rannsókn í því var
hafin, en á þó líklega eftir að verða
enn þá meira umtalsefni, ekki aðeins
hér í bæ, heldur um alt land.
Ekki svo undarlegt heldur að menn
láti sig málið nokkuru skifta. Al-
menningur á heimtingu á að fá
fulla vitneskju um á hverju þessi rann-
sókn er bygð, hvort fjárdráttur hefir
orðið úr landssjóðnum að þarflausu
og á vítaverðan hátt, hvort lands-
stjórnin hefir verið gint með fölsuð-
um reikningum og hvort henni getur
talizt það vansalaust að láta ginna
sig svo.
Að sjálfsögðu eykur það nokkuð á
forvitni manna um málið, að við það
er riðinn maður, sem þykist vera hinn
mesti vandlætari, maður sem þráfalt er
að drótta glæpum að öðrum, glæp-
samlegum tilgangi, fjársvikum og jafn-
,vel morðum. Það hefir stundum kom-
ið fyrir áður, að elcki hefir alt reynst
hreint í fari slíkra pilta.
Til þess að mönnum geti orðið
nokkurnvegin ljóst, hvernig málið horf-
ir nú við og til þess að koma í veg
fyrir misskilning og missagnir um það,
hefir »Norðurland« verið sér úti um
áreiðanlegar upplýsingar um upphæðir
þær, er tilfærðar eru á reikningi hr.
Líndals til landssjóðs, ferðalög hans
og útgjöld við þau og birtir þær hér,
lesendum sínum til athugunar, því hr.
Líndal kynokar sér við að gera það
sjálfur, að birta reikninginn í Norðrt
þrátt fyrir áskorun Norðurlands.
Ennfremur höfum vér, að svo miklu
leyti sem hægt hefir verið, haldið
Kaupendur J^orðurlands,
sem hafa vistaskifti, eru beðnir að segja
blaðinu til um það í tíma
Nýir kaupendur
að 10. árgangi
NORÐURLANDS
fá blaðið fyrir einar
3 kr.
Sendi peir borgun með pöntuninni
fá peir góða sögu í KAUPBÆTI.
spurnum fyrir um það, sem í ljós hefir
komið við rannsóknina. En fremur
mun það vera lítið ennþá. Málið rnun
vera stutt á veg komið. Og svo eru
réttarhöld við sakamálsranr.sóknir háð-
ar hér fyrir luktum dyrum og verður
þá örðugra til fréttafanga.
Ferðir Líndals voru, eins og skýi
var frá í næstsíðasta tölublaði »Norð
urlands«, fjórar talsins, og verður hér
tekin til athugunar hver einstök þess-
ara ferða útaf fytir sig.
I. ferð.
TJm hana nægir að flestu að vísa
til þess, er frá var skýrt í síðasta
blaði. — Þó skal þess getið, vegna
missagna sem um það hafa heyrst, að
Otto kaupmaður Tulinius hefir eigi
»gengið inn á« það, sem Líndal ber
fram um fargjaldið með gufuskipinu
»Perwie«. — Hann neitar því enn að
Líndal hafi við sig samið um það, og
þarafleiðandi einnig að sér beri að
veita því móttoku — Skipið hafði alls
ekki verið á hans vegum um það
leyti.
Ragnar Ólafsson mun nú hata gefið
í réttinum skýrslu, líka þeirri, er »Norð-
urland« flutti eftir honum f síðasta
blaði um þetta atriði.
í þessari 1. ferð voru 5 menn að
Líndal sjálfum meðtöldum. Einn þeirra
hafði farið sér til skemtunar (Ph. Car-
stensen) og líklega ekkert kaup fengið.
Ferðin stóð yfir um 16 tíma, en er
reiknuð af Líndal 3 dagar og 5 mönn-
um gerðar 8 kr. í kaup í 3 daga,
samtals 120 kr. Að öðru leyti nægir
að vísa til skýrslu Guðm. Guðlaugs-
sonar í síðasta blaði, enda hafa þeir
Sig. B. Jónsson og Kr. Nikulásson nú
borið það fyrir rétti, að þeir hafi ein-
ungis fengið 10 krónur. Þeir höfðu
eigi gjört kröfu til frekari borgunar,
enda hafði verið samið við annan
þeirra fyrirfram.
Aukalcostnaður i ferðinni er reikn-
aður 30 kr. og talinn vera greiddur
fyrir bátslán, vöktun skipa o. s. frv.
Að því er oss hefir verið skýrt frá
af manni, sem var í þessari ferð, voru
bátar eigi notaðir þar, annað en það,
að skipstjórinn á »Perwie« lét flytja