Norðurland


Norðurland - 05.01.1914, Side 3

Norðurland - 05.01.1914, Side 3
3 Næst kemur ritgerð eítir Sig. skóla- stjóra Sigurðsson: Um jarðepli. Skift- ist hún í þrjá aðalkafla: Ræktun jarð- epla erlendis á umliðnum tímum, Ræktun jarðepla á íslandi og Eðli og þroski jarðeplanna. Seinasti kaflinn greinist svo marga liði, og skrifar Jónína Sigurðardóttir frá Lækjamóti um matreiðslu jarðepla í niðurlagi hans. Þessa ritgerð ættu allir að lesa. Fyrst og fremst þeir, sem eitthvað fást við jarðeplarækt, því hún gefur margar og mikilsverðar tendingar í því efni, en auk þess allir þeir, er eitthvað hafa með þau að sýsla, því auk hinna mörgu bendinga um mat- reiðslu þeirra fjallar hún um geymslu þeirra og næringargildi. Það er íhugunarvert fyrir okkur ís- lendinga, sem ekki getum stundað korn- yrkju, að hér skuli að eins vera rækt- uð 25 kg. á mann, en í nágranna- löndunum þar sem kornyrkja er stund- uð, er jarðeplaræktin svo margfalt meiri í hlutfalli við íbúatölu, að Þjóð- verjar rækta 700 kg., Danir 250 kg., Svíar 280 kg. og Norðmenn 240 kg. á mann. Sumir kunna að segja svo sem, að jarðeplarækt hér og í þess- um löndum sé ekki sambærileg, en sannleikurinn er, að margir hér gera sér hærri hugmynd um jarðeplaupp- skeruna í nágrannalöndunurn en hún er í raun og veru. Meðaluppskera af dags- láttu er á Þýskalandi 42 tunnur eða 4200 kg., Danmörku 38 tunnur, Svíþjóð 1 30 tunnur og Noregi 46 tunnur. Beztu 1 uppskeru í litlum reitum telja Danir þrefalt meiri en meðaluppskeru og svar- ar hún þá til 114 tn. af dagsláttu. Hér á landi eru engar skýrslur til um meðaluppskeru, en í daglegu tali köllum vér það meðaluppskeru þegar 40—50 tunnur fást af dagsláttunni. I litlum og vffl hirtum görðum er það alltítt að hér fáist uppskera, er svar- ar til 80—90 tn. af dagsláttunni, og hér við »Hverina« hefir hún af litlum blettum svarað til 125 tn. af dagslátt- , unni. Það sannast á okkur með jarð- ; eplaræktina, eins og ýmislegt fleira, að margur hyggur auð f annars garði. 1 Þriðja ritgerðin er eftir Jakob H. Líndal íramkvæmdarstjóra félagsins um jarðeplatilraunir Ræktunarfélagsins hin , fyrstu io ár þess og er í 12 köflum: Tilraunir, Lýsing afbrigðanna, Upp- skerumagnið, Meðalþyngd og tala, Hlutfall milli útsæðis og uppskeru, Mjölvis- og þurefnismagn, Sumarhitinn og kartöfluþroskinn, Tilraunir með mismunandi sáðdýpi, Urvalsrækt Og þýðing afbrigðanna. Auk þess fylgja skýrslur mörgum köflunum. Allar eru þessar tilraunir gerðar af hinni mestu nákvæmni og standast fyllilega sam- anburð við samskonar tilraunir erlend- is, enda hinar víðtækustu, er gerðar hafa verið hér á landi og því hinn bezti grundvöllur undir víðtækari til- raunir í sömu átt, því altaf er ónum- ið land á hinum ýmsu tilraunasviðum. Vel getur verið að sumir sem lesa ritgerðina yfir í fljótu bragði geri sér ekki Ijósa grein fyrir hina mikla verki, sem liggur á bak við allar þær tölur og athuganir, sem þar eru fram sett- ar. En þeim, sem eitthvað hafa við þessháttar fengist, finst það ganga æfintýrum næst þegar þess er gætt, að jarðeplatilraunirnar eru ekki nema einn þáttur af tilraunastarfsemi Rækt- Nl. unariél. Væri vel þess vert að fara ítarlegar út í tilraunir þessar og þá miklu þýðingu, sem þær geta haft fyrir jarðeplarækt hér á landi, og hin mörgu sannindi, sem þegar eru feng- in í hinni löngu leit, er allir þeir eiga fyrir höndum, sem tekið hafa að sér það hlutverk, að leita þeirra f h:num óleystu gátum náttúrunnar. En það yrði oflangt mál í stuttri blaða- grein. — Þó langar mig til að skjóta orði inn í hjá hinum heiðraða höfundi þegar hann er að ræða um sumarhit- ann og jarðeplaþroskann. Eg hefi ver- ið að veita því eftirtekt undanfarin ár, og komist að þeirri niðurstöðu að fyrripart sumarsins meðan jarðepla- grasið er sem óðast að spretta, er mjölefni jarðeplanna mikið minna en að haustinu. Þetta virðist liggja í því að fyrst hugsar jurtin mest um stöng- ul, blöð og blóm, en þegar á sumar- ið líður fer hún [að búa rótarvöxtinn, — sem er forðabúr og framhaldsliður hennar — undir næsta ár. Þau jarð- epli sem spretta á stuttum tíma verða aldrei mjöleínarík. Orsökin til þess að íslenzku jarðeplin eru svo fátæk af mjölefni, er sennilega hinn litli sum- arhiti hér. Á þetta bendir það að í sendnum görðum og grýttum eru þau mjölefnaríkari en sá jarðvegur er mót- tækilegri fyrir hitann, og að jarðepli úr þeim görðum sem jarðhiti er í (laugagarðar) eru til mikilla muna mjölefnaríkari. Þó mun það máske ekki ráða minnu um mjölefni íslenzku jarðeplanna, að þau verða því nær aldrei fullsprottin. Jarðeplagrasið er hér oft í bezta blóma þegar það fellur fyr- ir næturfrostum, í stað þess að hið rétta eðli þess er, að bera blóm og fara svo smá hnignandi, unz það fell- ur að fullu þegar það hefir lokið hlut- verki sfnu sem starfandi líffæri fyrir rótarvöxtinn. í einu atriði er eg nokkuð á ann- ari skoðun en hinn heiðraði höfundur, en það er um heil og sundurskift jarðepli til útsæðis, og verð eg að draga f efa að þessi þáttur tilraun- anna sé fyllilega ábyggilegur. Utkoma hans er, að af Vioo úr dagsl. gefa heil jarðepli 37,2 kg., en sundurskift 29,5 kg. n- v*rður þá mismunurinn 17,7 kg. eða tæpum helmfngi minna sem hin sundurskiítu jarðepli gefa f uppskeru. Eg hefi gert nokkrar tilraunir með heil og sundurskift jarðepli, til útsæðis, undanfarin sumur, og komist að þeirri niðurstöðu að sundurskorin jarðepli f tvent, væru ekki síðri til út- sæðis en heil, þar sem jarðvegur er myldinn og efnisrfkur, en að í mörg- um jarðvegi gæfu hin sundurklofnu minni uppskeru, en betri, að því leyti að smælki hefir verið minna og jarð- eplin jöfn og falleg. Aðaltilraunina hefi eg gert í bezta hluta garðsins og hefir uppskeran af ’/ioo úr dagsl. verið 50—100 kg. — Tilraunirnar hafa verið innifaldar í því 1. að setja niður sömu tölu, en helm- ingi minni þyngd, af sundurskiftum jarðeplum og hefir þá uppskeran orð- ið mjög svipuð. 2. að setja niður sömu þyngd en fleiri sundurskift jarðeplí og hefir þá uppskeran orðið meiri af hinum sundurskiftu jarðeplum en heil- um. Ætíð sama útkoman, að sundur- skiftu jarðeplin hafa gefið færri og stærri afkomendur til uppskeru. Fjórða ritgerðin er sömul. eftir Jakob H. Líndal framkvæmdastj.: Búnaðarat- huganir. Er það hvatning til bænda að gefa betri gaum en hingað til, hinum ýmsu atriðum sem búskap þeirra áhrærir, og fylgja sýnishorn af skýrslum um garðyrkju, ýms búnaðar- atriði, áburðarmagn, heyafla og fóður- eyðslu, og vinnuskýrslur. Menn eru því miður alt of ófróðir um flest það, er skýrslum þessum við- vfkur, og má það ekki minkunarlaust heita, að svo verði enn um óákveðinn tíma. Ættu því allir að bregðast vel við þessu. Fimta ritgerðin er ennfremur eftir Jakob H. Líndal framkvæmdarstj., er það yfirlit yfir starfsemi Ræktunarfé- lags Norðurlands 1913. Skiftist það yfirlit í: 1. Gróðrartilraunir. 2. Verk- leg kensla. 3. Búnaðarnámsskeið. 4. Ný verkfæri. 5. Samband við búnað- arfélögin. Síðast í ritinu eru æfifjelagar Rækt- unarfél. Norðurlands taldir og eru þeir alls: 432. Skiftast þeir þannig að í Húnavatnssýslu . . eru 103 Skagafjarðarsýslu . — 56 Eyjafjarðarsýslu . — 68 Akureyri .... — 23 Þingeyjarsýslu . — 127 og utan Norðlendinga- fjórðungs ... — 55 =432 Er ekki laust við að það veki undr- un hjá manni að Eyjafjarðarsýsla með Akureyri skuli hafa færri félaga fram að telja en bæði Þingeyjar- og Húna- vatnssýsla hvor um sig, þar sem mið- stöð Ræktunarfélags Norðurlands er í Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri, og engir eru betur settir en einmitt íbú- ar þeirra, til að sjá og sannfærast um hið ómetanlega gagn, sem Ræktunar- félagið hlýtur að hafa fyrir Norðlend- ingafjórðung og landið í heild sinni. Arsritið er prentað í prentsmiðju Odds Björnssonar, Akureyri, og vand- að vel að prentun og pappír. Er það í alla staði hið eigulegasta. Reykjum 27/n 1913. Baldvin Friðlaugsson. % „Hvað eigum við að hafa til miðdags?“ Þannig spyr eldastúlkan húsmóðir sfna á dönsku skotinni íslenzku, sem skilst þó. Og húsmóðirin leggur nú höfuðið í bleyti, um það, hvort það eigi að vera »beuf« eða »kétbúðing- ur«, »labskás« eða »pIokkfiskur«, sem á góðri íslenzku nefnist fiskstappa. En það er fleira matur en feitt két. Eg mintist á það f fyrra hér f blað- inu að hinn nafnkunni læknir Hindhede hefði sýnt fram á það, með ítarlegum rannsóknum, að karíöflur voru sérlega holl og saðsöm fæða. Hann hafði mann til athugunar, sem í 2 mánuði hafði eigi nærst á öðru en kartöflum, brauði og plöntufeiti. Síðan hefir hann feng- ið bæði þennan mann og aðra til að lifa eingöngu á kartöflum og smjörlíki, og hafa þeir þrifist vel í alt að þvf 300 daga, á þessari fábreyttu fæðu. En fullorðinn starfandi maður þarf alt að því átta pund á dag til þess að fá nægju sfna. Áður fyr var þvf haldið fram, jafn- vel af læknum, að kartöflur væru tor- melt fæða, sem mörgum yrði bumbult af, af þvf að það myndaðist svo u.ik- ill saur af þeim. Rannsóknir Hind- hede hafa sýnt það gagnstæða. Nýt-

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.