Norðurland


Norðurland - 17.10.1914, Blaðsíða 2

Norðurland - 17.10.1914, Blaðsíða 2
Nl. 136 grjóti, járnþynnum, tré o. s. frv. 3. »Silo þyrfti að vera eins loít- þétt, eins og hægt er. 4. »Silo ætti að vera í samræmi að stærð, við þann fjölda af gripum, sem fóðra á. Ætti að eyða á hverjum degi ekki minnu en tveim þumlungum af yfirborðinu til þess að það verjist allri skemd. 5. Betra að hafa það hátt, en ekki mjög vftt. 32 fet á hæð og 14 fet á þvermál, tæki um 100 tonn og mundi fóðra að mest- um parti 25 kýr. 6. Ef »cornið« hefði frosið að mun eða væri þornað upp til muna þegar það er saxað upp, þarf að láta vatn í það, svo að það verði vel deigt, þegar inn kemur. 7. Bezt að »cornið« sé í deigi þegar saxað er. 8- Veggirnir þurfa að vera sterk- ir, því þrýstingurinn að innan er mikill. Maísrœkt. Að endingu ætla eg að segja, að orsökin til þess að eg bygði »silo« var sú, að eg var farinn að sann- færast um, af minni eigin reynslu og af þvf sem eg sá í kringum mig, að hveitirækt einvörðungu, var að verða hættuleg að »stóla á«. Eg þóttist sjá, að menn hér mættu til með að haía griparækt með, ef vel ætti að fara. Eg sá ekki góðan veg til að hafa gripi að mun á heyi, sem ekki grær hér vilt til muna, og ef þvf er sáð, vex það ekki nema 1 tonn af ekru til jafnaðar, eða þarum bil. Það sem vakti fyrir mér, var að komast að hvað »corn« gæti hjálp- að í þessu efni: því eg hafði heyrt »Corn is King«, en hafði aldrei eiginlega skilið, hvað þ^ð meinti. Nú er eg farinn að skilja það betur. Það sannast, að yfir alt þetta stóra miðbik Norður Amerfku, þar sem »corn« vex, og það er yfir stórt svæði, bæði í Bandaríkjum og Canada, verður »Corn King«, eins og það hefir verið, þar sem mennirnir hafa trú á því. Eg er sannfærður um, að ekkert verður vissara, til að byggja upp framtfðar hagsmuni okkar bændanna, heldur en »corn«-rækt til fóðurs; tækifærið er ótakmarkað; við erum ekki nema byrjaðir, aðeins örfáir að vakna til meðvitundar um. hvað hægt er að gera. Mótbárunum þessum almennu: »Æ, þetta er svoddan óttalegur kostnaður*, eða »Æ, þetta er svo rnikið verk,» þeim anza eg ekki. Tækifærið er hvorki meira né minna með »corn«- rækt, en 160 naut og svín á hverjum 160 ekrum í North Dakota, Manitoba og vfðar hér um slóðir, bara ef hin komandi kynslóð vildi sjá það þann veg. Þinn einlægur S. Thorwaldson. Séra Arboe Rasmussen sýknaður. Af blöðunum, og þó sérstaklega grein Einars Hjörleifssonar í »Skírni«, mun mönn- um í fersku minni ofsóknin gegn danska prestinum Arboe Rasmussen, sem flæmdur var frá embætti sínu, um stundarsakir í öllu falli, af embættisbræðrum sínum, dönsku heimatrúboðs-klikkunni, og ofsóttur á allar lundir, með málshöfðun o fl., fyrir kenn- ingar sínar. »Prófastarétturinn« hefir nú kveðið upp dóm í málinu 27. ágúst s. 1. (í Aalborg) og sýknaði hann Arboe Rasmus- sen gersamlega. Formaður dómsins var Bay héraðsfógeti frá Terndrup. Höfler prófastur frá AIs vann kappsamlega að því að fá séra A. R. sakfeldan og greiddi atkvæði með því. — Féndur A. R. haf i þegar áfrýjað dóminum til hæztaréttar og bíða nú margir með óþreyju eftir því að vita hversu frjáls- lyndur sá »réttur" verður í skoðunum. 1 Heimkoman. Vesíurförii). Heill þjer, fagra fósturmold, með fannaskrautið bjarta; nútímans ertu náðarfold, og norðurskauísins hjarta. Eg er kominn heim aftur til fæð- ingarlands míns, hingað til átthaganna, þar sem eg ólst upp og hefi séð feg- urstu ef eigi beztu daga æfinnar. Rétt 40 ár voru liðin hinn 14 á- gust síðastl. síðan eg fór, ásamt 350 íslendingum til Vesturheims (þ. e. til Kanada) til að leita þar lukkunnar og vinna mér til frægðar og frama, meir en mér sýndist þá mögulegt hér á ís- landi — ísalandinu, sem ekki gaf mér kost á öðru en verða fátækur vinnu- maður eða preslur. Mig langaði til að læra þau vísindi, er gætu stilt öldur sjávarins, breytt »steinum í brauð« og handsamað norð- urljósin. Steinarnir voru lifandi, hugs- aði eg þá; þeir nærðu mosann, og svo langaði mig til að sjá land það, er Leifur heppni og Bjarni Herjúlfsson höfðu fundið fimm öldum áður en Kol- umbus sigldi þangað. Eg vifdi sjá af- reksverk hinna ungu, uppvaxandi þjóða vestan hafs, og verða þar maður með mönnum. — Þessi æskudraumur rættist að nokkru leyti. — Eg hefi séð Ameríku (Eiríks land?) og ýms stórvirki Ameríkumanna, undr- ast fegurð landsins og unnað mannúð þeirra og menningu,—en aldrei gleymt ættjörðinni snæföldnu, né fegurð henn- ar og fólki. Eftir 14 ára framsókn í Kanada, 5 ára og 8 mánaða starf í Bandaríkj- unum, 6 mánaða ferðaflakk til íslands, árin 1894 og 1895, 21/2 árs stríð á Bretlandi og 17 ára og þriggja mán- aða dvöl í París, höfuðborg Frakk lands, er eg kominn aftur; ekki þó til þess að forða lífi mínu né af ótta fyrir ýfirstandandi ófriði, — því mig skiftir það htlu hvar bein mín liggja, þegar lífið þrýtur, — og mér hefir oft fundist eg vera búinn að lifa nógu lengi til lítils gagns, — heldur til að sjá ættfólk mitt og vini og fósturjörð, og láta þá heyra af mfnum eigin munni sumt það, er eg hefi reynt að rita, en sem eigi er fullkunnugt. Einkum það, að eg ftygg að ísland eigi fagra og þýðingarmikla framiíð í vœndum og að fólk þess geli búið þa, betur og átt þar betri daga en allur þorri al- þýðu á í þeim löndum, sem eg hef dvalið í síðan eg fór héðan. Og svo óska eg alþýðu íslands til heilia. Akureyri 22. sept. 1914. Frimann B. Arngrimsson. Hannes Hafsteln fyrv. ráðherra var veikur nær því allan septembermánuð, en er nú orð- inn heill heilsu aftur fyrir nokkru. Gleður það alla vini hans og kunningja °g góða íslendinga, og það' því meir, sem sagt var um skeið, að hann væri hættulega sjúkur. Kvæði það, sem hér er fremst í blaðinu eftir Sigurð skáld Sigurðsson lyísala í Vestmannaeyjum, vonar »N1.« að háttvirtur höf. misviiði ekki, þó prentað sé hér án hans leyfis. Flestir eða allir Norðlendingar munu honum þakklátir fyrir það, eins og mörg önn- ur góð kvæði hans, Gamalmennahæli. 100,000 króna gjöf. Simfrétt í dag. Jóhann Jóhannesson bæjarfulltrúi í Reykjavík afhenti stjórnarráðinu í gær eitt hundrað þúsund krónur í verð- bréfum, að gjöf, til stofnunar gamal- mennahælis í Reykjavík og á stofnun- in að bera nafn konu hans, Sigur- bjargar Guðnadóttur, sem nýlega er dáin á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn, en verið hafði kvenskörungur og fá- tækum gamalmennum í Reykjavík hin mesta hjálparhella. Retta er einhver hinn mesti höfð- ingsháttur, sem Norðurland veit til að sýndur hafi verið í alþjóðarþarfir á ís- landi af einum manni. Jóhann byrjaði að reka sjálfstæða atvinnu fyrir fáum árum, þá alveg efnalaus, en hefir nú auðgast þetta og þó oft gefið höfð- inglegar gjafir til ýmsra mannúðarfyr- irtækja. Væri vel að ísland ætti marga syni, sem líktust honum. % Símfréttir af stríðinu. London. sunnudag 11. oktb. Þjóðverjar tóku Antwerpen í fyrri- nótt. Her Belgja yfirgaf borgina á föstudagskvöldið. Þjóðverjar sóttu á með skothríð úr 200 stórskotafall- byssum. Borgin er hræðilega útleik- in og eyðilögð. Þjóðverjar og Rússar segja hvorir um sig að þeir sæki fram íAustur- Prússlandi. Frakkar segjast hafá hrundið af sér grimmilegum áhlaupum Pjóð- verja í gærog unnið nokkuð á norð- an við Oise og Saint Mihiel. Carolus konungur í Kumeníu and- aðist í gær. London, mánudag 12. oktb. Flotamálastjórnin tilkynnir að brezkir sjóliðsforingjar og sjómenn hafi hjálpað til að verja Antverpen. Pegar borgin var áð falla urðu peir aflokaðir af Pjóðverjum en komust jaó til Hollands í nótt og lögðu þar niður vopn sín. Af Bretum féllu að- eins 300 1 Antverpen. Frá Paiís er símað að hlé virðist á orustunui. Aðstaða Bandamanna er óbreytt nerna þeir vinna lítið eitt á og hertóku einn fána Pjóð- verja í gærmorgun. London, þriðjudag 13. oki. Opinberlega tilkynt frá París: Æðisgengin riddaraliðsorusta hefir staðið í vinstra herarmi Bandamanna frá í gærdag. Þjóðverjar hraktiraft- ur hvað eftir annað Úrslitin ófyrir- sjáanleg. Frökkum miðar allvel áfram við Aisne. Þýzk loftskip kastaði 20 sprengi- kúlum niður yfir París í gærkvöldi. 4 menn drepnir. Margir særðir og mörg hús skemd. í morgun var enn kastað sprengikúlum án þess flugvélar Frakka gætu viðgert. Ein kúlan kveikti í Notre-Damekirkj- unni og önnur fór gegn um gler- þak á biðsal norðurbrautastöðvanna. London, miðvikudag 14. okt. Símað frá Pétursborg að þýzkur neðansjávarbátur hafi sökt miklu herskipi rússnesku sunnarlega í Aust- Umsóknir um garóyrkju- Kenslu í gróðrarstöðinni í Reykjavík 1915 sé sendar Einari Helgasyni garðyrkjumanni fyrú lok janúarmánaðar. Kenslutími 6 vikur frá byrjun maímánaðar. Nemendur fá 40 kr. námsstyrk, og auk þess nokkurn ferðastyrk þeir sem langt eru að. Umsóknir til búnaðarfélags- ins um styrk til jarðahóta \9$ er æskilegt að komnar sé til félagsins fyrir lok marzmánaðar. Búnaðarfélag ísiands. ursjónum. Öll skipshöfnin iét m sitt. Símað frá París að her Sambands- manna hafi unnið áfram á nokkrufl1 stöðum hingað og þangað meðfra111 allri herlínunni. London, fimtudag 15. okt. Búist við fullkominni úrslitaorustu milli Belgja og Þjóðverja á hverjfl augnabliki á svæðinu milli Gent og Ostende. Stjórn Belgja er komin til Havre á Frakklandi og hefir lýst opinberlega yfir, að hún hafi Þaf aðsetur fyrst um sinn. Stjórn Frakka lýsir yfir, að hún vilji búa alt serfl bezt í haginn fyrir stjórn Belgja 1 Havre, svo hún geti notið sín þar sem bezt. Opinberlega tilkynt í París, ^ staðfesting og full vissa sé fengin fyrir framgangi Sambandshersins, er blöðin gátu um í gær að hefði ver- ið yfir alla herlínuna. London, föstudag 16. október. Belgjaher komst heilu og höldfl11 til Bryggeborgar (er liggur miðja vega milli Antwerpen og Ostende) Sambandsherinn vinnur talsvert a milli Arras og Albert og Caaonfle og Beine (norðaustur af Reims). Eflfl' fremur hafa Þjóðverjar yfirgefið vinstri árbakka Lysárinnar. BreZ^ beiíisnekkja „Yarmouth" sökti ein11 af stórskipum Hamborg-AmeríkU' iínunnar og tók eitt grískt eimskiP' Bæði skipin voru í fylgd með her' skipinu „Emden" er liefir gert rflik' inn usla í liði Englendinga. Kapný' lendan í Suðurálfu gerir uppfe*sl1 gegn Englendingum undir forustl1 Maris ofursta. Herlið Breta þar syðra’ hefir þegar tekið fasta 80 af Ii^s' mönnum hans. Þýzkaland hefir °P' inberlega viðurkent. Kap-nýlendu113 sem sjálfstætt ríki. London, laugardag 17. okt- Þýzkur neðansjávarbátur sök*1 í gær enska línuskipinu „Harvzke sunnarlega í Norðursjónum. Fj®1 manna fórst Botnvörpungar björáí uðu 3 yfirforingjum og 49 dátum. Símað frá Amsterdam að menn sem komu frá Belg*u 1 11, segi að Þjóðverjar hafi tekið Ostefl í gærmorgun. , Opinberlega tilkynt í París ^ eystii vígstöðvunum, að Rússar ha hrint af sér öllum áhlaupum Þj ^ verja og sæki fram með góðum rangri. Við vígstöðvarnar í Fra landi er alt óbreytt.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.