Norðurland


Norðurland - 21.11.1914, Side 1

Norðurland - 21.11.1914, Side 1
 NORÐURLAND. ^noJ '13V 45. blað. Akureyri: 21. nóvember 1914. Hugahvarfl ofan frá fjöllum. Árið liðna, frá veturnóttum til vet- urnótta talið; hefir verið tíðendamikið og margt erfitt hefir það fært mönnum. Ekki hefir það glætt mjög trú mfna á jafnstiga og auðsæa framför mann- kynsins á einum mannsaldri talið. Ekki styrkt traustið á þjóðþriflega menning landa minna og því síður á kristilegan hug Norðurálfuþjóðanna, né djúpa, holla og göfuga menningu þeirra. Þá er fyrst um okkur fslendingana Veturinn í fyrra var ómunalega illur og langstæður, og voraði seint og óhagstæðlega; svo elstu menn hér f Þingeyjarþingi þykjast ekki muna jafn- harðan vetur. Sumarið áður hafði gef- ist ágætlega hér nyrðra og voru hey manna því mikil og vel verkuð, fyrir það sluppu menn víðast sæmilega frá harðindunum. Öðruvísi vissi við Sunn- anlands, þar nýttust hey afarilla sök- um óþurka, þar reyndust heyin stór- skemmd og afgjafa-ill. Þar sóttu sjúk- dómar á sauðfé manna einsdæma mikl- ir og þar urðu sauðfjárhöld stórum ill að lokum. Það er, með fáum orðum sagt, kvik- fjárdauði á landinu varð geysimikill veturinn og vorið 1914, til stórtjóns þjóðinni efnalega og sárústu skapraun- ar bæði þeim er fyrir urðu og hinum er afspurn höfðu af; miklu mest reyndi auðvitað á þá sem skaðann liðu og þeir munu aldrei gleyma þeim tfma þegar fénaður þeirra veslaðist upp, dró fram og drapst að lokum; sú kvöl að horfa á þjáningar og þrautir ves- alings skepnanna er nfstandi sár og þar við baetist að tapa svo að lokum miklum hluta bústofnsins; lenda í efna- legri kreppu eða þá örbyrgð Hvað mikið af dauða sauðfjárins er illkynja sjúknaði að kenna getur enginn með vissu sagt um; né fullyrt hvað margt hafi drepist úr haiðrétti og fyrir of slæmt eða of lítið fóður. Hitt er deginum ljósara að fjöldi ung- iamba drapst og fjöldi eldra sauðfjár dó hungurdauða. Það kann maður manni að segja, með fullri sannleikstrú, að á landinu, hér og þar, hafi geysimargt af sauðfé Verið drepið úr hor síðastliðið vor. Opinberlega er fátt um slíkt talað, varlega stilt orðum og sem mestri s°h skellt á kvillana. »Skitupestin« er afanll og torveld að fást við, en í þetta skifti held eg hún sé margföld- uð og gerð ag enn voðalegri drep- *6tt en dýpsta sannfæring manna sé »iss um að réttust sé og hreinskilnis- 'egast frá greint. Skaðinn, sem landið hefir beðið af Wðindum síðastliðins vetrar er mikill mun draga stórum Ur þreki manna °g framkvæmdum til endurbóta búnað- 4tins; lama fjölda manna um iengri eða skemmri tíma; er það ekki gleði- 'egt efni til umhugsunar, þeim Sem Wðs æskja þjóð sinni og vonuðu ann- írs betra og sjálfstæðilegra fyrir henn- ir hönd, XIV. ár. Selabyssur. Undirritaður tekur að sér pöntun á selabyssum Cal. 8, reyndum og viðurkendum verk- færum. Menn ættu að koma með pantanir sínar a'ður en „Ceres* og „Ingólfur" fara til útlanda, pví pá geta byssurnar Komið í janúar. Sýnishorn af alskonar byss- um geta menn fengið að sjá. Oddeyri, ii. nóvemb. 1914. J. H. Havsteen. Lftill reyndist árangur horfellislag- anna, svo einbeittleg og þau eru á pappírnum eins mögur virðist mér eftirteljan. Nú eru þau að kveðja og höfðu sjaldan afieksverk unnið, hvorki leynt né ljóst. Annað er að setja lög og hitt að fylgja þeir einbeittlega; þessi horfellislög og framkoma þeirra sýnist hafi slórt og ekki lifað, hangið líkt og hræða á staur og loksins fok- ið niður í mestu harðindunum. Hvað skyldu margir hafa brotið þau? Og margir íengið að kenna á umbun þeirra, réttvfsri og eftir orðanna strangleik? Hungur-dauðann síðasta, með öllum sinum ástæðum og afleiðingum, tel eg ótvíræðan vott um að menning þjóðarinnar sé rýrari en eg og aðrir höfðu vænst eftir; því þyngra þótti mér að verða að reka mig þannig á, sem menningarglamrið hafði verið há- værara nú um fleiri ár og eg leiðst til að trúa því, meir en góðri gagn- ryning hæfði. Ymislegt annað benti til umbóta og framfara og mér var Ijúft að trúa og vona. Eg hélt að þjóðin væri forsjámeiri með ásetning búfjár en reyndist, þrifnari með hey og gjafir, úrræðameiri og karlmann- legri þegar á herti. En svona fór það. Hér var snöggi bletturinn, þar beit vopnið, því blæðir undin. Menningin var óþroskaðri en eg og margir aðrir héldu — að minsta kosti í þessu efni. Lögin sem löggjafar þjóðarinnar höfðu sett, til þess að kenna mönnum fyrirhyggju og mann- úð, þau höfðu ekki komið að svo mikl- um notum og þá dreymdi um eða létu yfir í fyrstu; þau voru valdboð að ofan og gengu ekki til hjartna mannanna; mannúðarkendin var ekki vöknuð hjá svo mörgum sem þurfti, og skynsamlegt búvit skorti hjá fjöld- anum, Góða menningu, sem vaknar og dafnar að neðan, 0: með dæmum og kenningu beztu manna og sann- mentun fjöldans; hana vantaði.’ Fjárdauðinn og mikill hluti lamba- dauðans er ömurlegt tákn þess, að kaldur dofinsháttur um vellíðan bú- fjárins er mikiu ríkari hjá fjölda manna, Hráolíumótorinn »Vesta« fyrir skip og fiskibáta, er hentugri, endingarbetri, áreiðanlegri og langtum odyrari 1 notum en þeir mótorar, sem hingað til hafa þekst hér á Iandi. Undirritaður, sem hefir aðalumboð fyrir Island á þessum viðurkenda á- gæta, mótor, útvegar einnig með verksmiðjuverði, mótora frá flestum öðr- um motorverksmiðjum. Einnig mótorbáta. lón S. Esphólín Talsimi 41 Akureyri. en líklegt þótti: að trassaskapurinn loddi stórum við geysiu.arga, að fjölda margir settu enn þá — 1914 — á guð og gaddinn að nokkru leyti. Kinnroða megum við flestir bera fyrir tæpan ásetning og sumir nokkuð sterkan. Þjóðin öll ber skarðan skjöld drengi- legs metnaðar; mannúð og hyggindi fengu hér illan Þránd á götu sinni, þann er brátt skyldi moldu ausinn. Verði þessi óhaglegi árekstur víti til varnaðar; læri menn af þessu harða dæmi nærgætni við búféð og traust- an ásetning, þá má segja að »fátt er svo ilt að einugi dugi«. Með því einu getur sá svarti díll af þvegist, sem Þorgeir smjörhringur þessa tíma, hefir á þjóðsæmdina sett. Ekki svo fáar raddir hafa nú um langt skeið látið okkur (»Mörlandana«) heyra hvað hér skorti menningu, fram- för og forsjá; hvað stórþjóðirnar í Norðurálfunni stæði miklu hærra og ofar okkur; eftir þeirra dæmi yrðu íslendingar að feta, svo sem unt væri, ef þeir ættu að verða nýtir menn, þjóð með þjóðum teljandi. Margt er af þeim hægt að læra ef auðna gefur þeim vitið að velja rétt sem það ættu að gera. Hitt dugar illa að sníða okkur stakk eftir þeirra vexti; taka menningu þeirra skilyrðalaust til fyrirmyndar. Menning stórþjóðanna hefir sinn djöful að draga, sfna stór- galla, misbresti. Um þá er ekki hægt að ræða í stuttri biaðagrein og til þess vantar mig skilríki og nákvæma þekkingu. En eitt get eg bent á: Djöful ó- friðarins. Voldugustu þjóðir Norður- álfunnar berjast með meira mannskaða og voðalegri morðtólum en nokkru sinni áður; mentaþjóðirnar, Englend- ingar, Frakkar og Þjóðverjar drepast niður hrönnum saman, hvað þá hinar, sem miana hafa menningar orðsporið. Dag eftir dag falla hraustustu menn þjóðanna svo tölum verða seint taldir. ÖIl voðaverk hernaðarins eru unnin með fádæmum; óargagrimd manndýrs- tns veður blóðvaðlana og treður dauða og særða mannabúkanatilfinningarlaust; hlutlausum þjóðum er inisboðið og slátrað miskunarlaust. Bölið og óttinn kvelja menn og málleysingja. Tortím- ingin geysar óþrotlega yfir alt orustu- svæðið. Danir, Svíar og Norðmenn standa á öndinni og blikna af hræðslu; hver veit nær lönd þeirra verða fyrir sömu óréttindunum og Belgíumenn. Þegar saga þessa síðasta hernaðar verður sögð svo nákvæmlega og unt er, þá mun harmur og gremja fylla hjarta hvers manns; þjáninga-saga þessa ægilega tíma verður þó aldrei nema hálfsögð; kvöl einstaklinganna og þjáningar allra sem fyrir ófriðnum urðu verður að hugsa sér í samræmi við frásöguna, Ringulreiðin og skorturinn, sem kemst á alla vinnu, alla verzlun og viðskifti hefir skaðsamleg og lamandi áhrif á hvert land og byggða ey f Norðurálfunni og þó víðar. Skortur lífsnauðsynja hangir yfir höfði manna eins og Damóklesarsverð. Svona meingallað hugarfar leyndist með menningu og framför stórþjóð- anna: mannfellirinn þar, verður nú ckki getið til hvað mikill muni verða. Eins og voldugar þjóðir rísa hátt með dugnað og framkvæmdir; eins ægileg verk vinna þær þegar ofsa hernaðar- ins þyrmir yfir. Þeir dílar svtða lengi, sem nú brennir hver þjóðin annari; skömmina munu þær seint þvo af sér; vígroða mun lengi varpa á hvíta friðarskjöld- inn, þá loksins honum verður brugðið upp. Þeim voða, sem síðari kynstóðir munu bölva og háta. Er ekki að vænta þess, æskja þess, að eftir þenna hernað hati allir bestu menn orustur og hernað; að farið sé um láð og lög blóðgum brandi og loftið Ifka. íslendingar hafa ekki hátt á legginn risið, því varð fall þeirra ekki mikið. Stórþjóðirnar fá skaðsamlegri biltu og seinfyrndari. Offorsið steypir flestum. Iðrun og áklögun einar saman fá litlar yfirbætur gert. Á þeim hefi eg litlar mætur og litla trú. Góðsamar endurbætur með göfug- um framfötum; það er vegurinn til að ná aftur virðingu sinni. Þess þurfum við smáir og fáir. Þess þurfa mentaþjóðirnar þó að miklu meiri mun. Porgils. Tvíritunarbækur, Verzlunarreikningar, Bréfsefni Og Umslög með firmanafni fást f prentsmiðju Odds Björn8sonar.

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.