Norðurland


Norðurland - 14.08.1915, Page 2

Norðurland - 14.08.1915, Page 2
Nl. 94 777 kaupmanna og kaupfélaga. Eg undirritaður sem hefi fyrsta flokks sambönd á vindlum, sigar- ettum, og allskonar tóbakstegundum, leyfi mér hér með að benda kauptnönnum og kaupfélögum á að snúa sér beint til mín, með öll innkaup á þeim vörutegundum Reykjavík í águst 1915. Virðingarfylst R. P. Levi. Til kaupmanna. Aldinsafagerðin »S A N I T A S* við Reykjavík mælir með sinni alkunnu S Æ T S A F T. Eftirlitsmaður verksmiðjunnar er G. Björnson landlæknir. wS" vendboi goi eldfœti. Með e.s Vesta fjekk jeg nú talsverðar birgðir af ofnum og eldavjelum af ýmsum stærðum. Öjggert JCaxdal. Itm láð og lög. — Héraðslœknir í Pistilfjarðarhér- aði er settur jrá 1. ágúst Pórhallur Jóhannesson cand. med. Hann kvœnt- ist um miðjan j. m. í Reykjavik, ung- frú Ágústu Jóhannesdóttur. — Iveir sjóliðsforingjar af „íslands Falk“ hafa verið að mœla fyrir hafn- arstœði við Eyrarbakka undanfarið. Peir gera það jyrir Lefolú stórkaup- mann sem þar rekur verzlun og hefir i hug að byggja höfnina fyrir eigin reikning. — Gift eru Kr. Linnet sýslumaður Dalamanna og ungfrú jöhanna Július- dóttir. — Hínn nýi danski doctor við Há- skólann i Reykjavik, magisíer Holger Wiehe er kominn þangað. Rikisþingið danska hefir samþykt fjárveiting til embættisins 4000 kr. árlega. H. Wiehe er alkunnur íslandsvinur og œtti oss að vera styrkur að honum i þessu sæti. „Norðurl." bíður hann velkominn. — Seítur sýslumaður i Árnessýslu er Eirikur Einarsson kand. jur. frá Hæli, er var löggæztumaður á Síglu- firði sumarið 1913. — „Dagsbrún“ heitir blað sem Ólafur Friðriksson (póstafgreiðslu- manns Möller) er farinn að gefa út i Reykjovik. Pað fylgir stefnu jafn- aðarmanna. — D. Thomsen konsúll i Reykja- vik hefir selt G. Eirikss stórkaup- manni þar, hið mikla hús sitt við Lœkjartorg fyrir 60 þúsund kr. — Islenzku ofnkolin (af Vestfjörð- um) voru reynd í eldhúsi klþingis 30. f. m. og þóttu reynast vel. — Hvalsöe heitir maður, danskur að ætt er keypt hefir um 200 sauð- fjár hér á landi, er hann ætlar að flytja til Grænlands. Féð verður flutt út frá Reykjavik. ; Akureyri. Paul Witte frá Gautaborg, er hér hefir rekið síldarútveg undanfarin ár, er kominn fyrir nokkru. Hefir hann nú 4 eimskip til síldveiða og hafa þau fengið svo góðan afla að hann sendi milliferðaskip sitt >Blanche« til Gautaborgar fyrra fimtudag með fyrsta farminn, um 3000 tunnur. Opinberunarbók Hinrik Thorarensen stud. med. & chir. (sonur O. C. Thor- arensen lyfsala) og ungfrú Svanlaug Olaísdóttir stud. art. (framkvæmdar- stjóra sál. Arnasonar frá Stokkseyri) Norður að Ásbyrgi hafa ýmsir far- ið um þessar mundir héðan úr bæn- um, m. a. Arni Pálsson stud. ung- frúrnar Kristín Pálsdóttir og Guðrún Tulinius o fl. Málararuir Kristín Jónsdóttir frá Arnarnesi og Þórhallur Björnsson frá Ljósavatni, hafa undanfarið verið upp í Mývatnssveit, til þess að mála lands- lagsmyndir og komu með mikið mynda- safn hvort um sig. — Kristín, sem hefir nær því lokið námi á listahá- skólanum í Khöfn, ætlar til Reykja- víkur bráðlega og halda þar sýningu á málverkum sínum. Líkneski af Matthíasi skáldi er Rik- harður myndhöggvari nú að gera f Reykjavík, fyxir tilhlutun nokkurra góðra borgara á Akureyri. Björgunarskipið „Geir“ verður hér nyrðra í sumar. — Það kom fyrst í þeim erinduin norður að bjarga síld- veiðaskipi Chr. Evensen, því er strand- aði við Gjögur, en ætlar svo að bfða hér fram undir haustið og sjá hvað verður að gera. Aðkomumenn síðustu daga: Páll Einarsson bókhaldari á Vopnafirði, Guðm. Vilhjálmsson bókhaldari Húsa- vík. Eimskipið > Skolma* sem sökk á Skjaldarvík í fyrraSumar og legið hef- ir þar á mararbotni síðan, er nú kom- ið hér inn að hafnarbryggjunni. Otto Tulinius konsull keypti skipið af vá- tryggingarfélagi því er hafði það í sæábyrgð og fékk svo björgunarskipið »Geir« til þess að reyna að ná því upp. Hefir »Geir« verið að fást við það starf nú í vikunni og hepnaðist það að lokum. — »Skolma« er líticf skemd og ætlar Tulinius að láta gara við hana og halda henni svo út til fisk og sfldveiða. Frímann B Atngrímsson er alt af að hugsa um raflýsing og rafhitun Akureyrar og er þeirri viðleitni hans og starfsemi tæplega sint með þeim áhuga meðal bæjarbúa sem æskilegt væri Hann hefir nú síðast samið ritl- ing um þetta mál, sem kom út nýlega frá prentsmiðju Odds Björnssonar. Ættu menn að kaupa hann alment. Og eins aðrir kauptúnsbúar, en Ak- ureyringar, hérlendis. Frá Reykjavik eru nýlega komnir: Ingólfur Jónsson prentari sem starfað hefir í prentsmiðjunni »Rún« en nú hefir tekið inntökupróf f mentaskól- ann, Kristján Sigurðsson er sezt að hér í bænum og Bergvin Jóhannsson frá Gautsstöðum er tekur sér bólfestu á Svalb irðseyri. Látinn er hér á sjúkrahúsinu Armann Eirfksson bóndi frá Þorsteinsstöðum í Höfðahverfi að eins 29 ára gamall, duglegur maður og vel látinn. Bana- mein' hans var botnlangabólga. Frú N Christensen kom hingað heim, úr ferð sinni til Noregs, á miðviku- daginn Frú Sigriður Sæmundsson hef- ir (eng'ð nokkra heilsubót f Noregi og er larin þaðan til Kaupmannahafnar. Eiazráð /. V. Havsteen og frú hans fóru til Reykjavíkur á »Gullfoss« og ætlar Havsteen að leita sér lækninga við sjóndepru hjá Fjeldsted augnlækni. Sítdarskipin koma inn daglega að heita má og hafa mörg þeirra fengið góðan afla. Er nú smátt og smátt að lifna yfir bænum eftir mókið sem hef- ir verið í sumar lengst af og stafað hefir af hafísnum og kuldanum. Aðkomumenn Sigurjón Jónsson út- gerðarstjóri frá ísafirði, Brynjólfur Arnason exam juris frá Khöfn. Sunnan Kjalveg komu gangangi um helgina þeir Jakob Kristjánsson prent- smiðjustjóri og Jón Albertsson úrsmið- ur (Jónssonar frá Stóruvöllum). Þeir voru viku frá Reykjavík, fóru fyrst austur að Þingvöllum, Geysi og Gull- fossi, en svo norður þaðan. Þeir fengu gott veður og bjart á öræfunum og sválu þar uppi í þrjár nætur. Þegar þeir komu niður á Mælifellsdal hreptu þeir þoku. X Þýzk sriafmllill. Bald. Ryel verzlunarstjóri fékk með »Vestu« bréf frá systur sinni sem býr f Bremen dags. 15. júlí og segir hún honum meðal annara frétta, þessa smásögu: Hér er í dag vígt hátíð- lega tiélíkneski af Roland sem stend- er á einu torgi borgarinnar. Þeir sem vilja styrkja föðurlandið kaupa sér nagla f búð er selur þá fyrir hið op- inbera til þess að reka f líkneskið og gengur ardvirðið fyrir |naglana til þeirra sem eru komnir heim særðir úr stríðinu. Járnnagli kostar eitt mark (nál. 90 aur.), silfurnagli 5 mörk og gullnagli 20 mörk. Allir naglarnir eru merkfir, hver nagli með nafnstöfum þess er gefur þá. Fyrsta daginn sem þetta var auglýst, voru pantaðir 9000 gullnaglar með stöfum. $ Vélskipið •Windy‘ er til sölu. Skipið er bygt síð- astliðið haust, úr vönduðu efni og góðuni útbúnaði að öllu leyti bæði er snertir skipið sjálft, segl og reiða. Lengd milli stafna er 50 fet. Breidd (um miðju) 20 fet. Ristir, með kjalfestu 9 fet, Ristir, hlaðið að fullu 12 fet. Hæð lestarrúms er 9 fet. Ber nálægt 72 tonna punga. Vandaður >,Skandia"-mótor, 36 hesta, er í skipinu og útbúnaður til pess að vinda upp með hon- um akkeri og Iínur. — Skipið er gott sjóskip, pað kom hingað frá Svípjóð í vor og verður hér í sumar. Ættu peir er vilja fá sér verulega gott skip til veiða eða flutninga að nota tækifærið. Söluverð verður nálægt 18,000 kr. Allar nánari upplýsingar gef- ur fyrir hönd eigendanna Otto Tulinius konsúll, Akureyrl og eru lysthafendur beðnir að snúa sér til hans sem fyrst. / bókaverzlun Kr. öuðmundssonar á Oddeyri er nýkomið: Pjóðfélagsf rœði eftir Einar Arnórs- son ráðherra. Lög Islands (framhald) eftir sama, og ei u áskrifendur beðnir að vitja um hin nýkomnu hefti. Frá Skotlandi eftir Jón Þorbergs- son fjárræktarfræðing. ísland og ófriðurinn eftir Bjarna frá Vogi. Ennfremur ýmsar aðrar góðar bækur ritföng, myndir o. fl. til tæki- færisgjafa o. fl. Klæðaverksmiðjan Gefjun Akureyri. Eins og að undanförnu, tekur verk- smiðjan á móti ull og ullartuskum, til kembingar, spuna og vefnaðar, og afgreiðir allar sendingar svo fljótt sem unt er. Ný sýnishorn af dúkum eru til sýn- is á afgreiðslustofu verksmiðjunnar og hjá umboðsmönnum hennar. Þegar á alt er Iitið, eru Vl'nriU- !aun lœg:ri en hjá öðrum verksmiðjum landsins. Fri?ur í vændum? Síðustu símfregnir segja, að Vil- hjálmur Þýzkalandskeisari hafi boð- ið Nikulási Rússakeisara að peir skyldu semja frið milli ríkja sinna. Ktistján Danakonungur á að hafa verið milligöngumaður um friðar- boðin og verða oddamaður í gerð- ardómnum, ef til friðarsamninga kemur. Sagt er að Þýzkalandskeisari hafi gert þessi sáttarboð daginn eftir að Þjóðverjar höfðu tekið Warshau.

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.