Norðurland


Norðurland - 14.08.1915, Qupperneq 4

Norðurland - 14.08.1915, Qupperneq 4
Nl. 102 „Skandia“ móforinn. „Skandia" mótorvélin tilbúin í Lysekil, Svíþjóð, af stærstu mótor- vélaverksmiðju á Norðurlöndum, er sú einfaldasta, kraftmesta og endingarbezta mótorvél, sem hingað hefir flutzt. Áðurnefnd vél hefir þegar náð langmestri útbreiðslu í öllum heims- álfum af þeim mótorvélum, sem tilbúnar eru í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og hin stöðugt vaxandi framleiðsla sýnir ljóst að »Skan- dia“-mótorinn hefir reynst betur en aðrar þær vélar, sem útvegs- menn hér hafa átt kost á að kynnast. Festið eigi kaup á öðrum vélum fyr en þér hafið talað við H. Gunnlögsson. Símnefni “Aldan" Reykjavík. Talsími 213. — Box 477. — Okkar margeftirspurðu ágætu járnrúm eru komin aftur Brauns verzlun Bald. Ryel. Orsmiðja. Kristjáns Halldórssonar Hafnarstræti 35. leysir allar aðgerðir á úrum og klukk- um, fljótt og vel af hendi. Úr og úrkeðjur nýkomið. Tveir ungir hestar eru til sölu. Ritstj. vísar á. Búnaðarþingið. Það var haldið í Rvfk dagana 7,-14 þ. m. Sátu það þessir fulltrúar: Ágúst Helga- son bóndi í Birtingaholti, Ásgeir Bjarna- son bóndi í Knararnesi, Benedikt Blöndal á Eiðum, Björn Bjarnarson hreppstjóri í Grafarholti, Eggert Briem bóndi í Rvík, Halldór Vilhjálmsson skólastj. á Hvann- eyri, Jón Jónatansson búfr. á Ásgautsstöð- um, Ólafur Briem umboðsm. á Álfgeirs- völlum, Sig. Stefánsson prestur í Vigur, Stefán Stefánsson skólam. á Akureyri, Þórarinn Benediktsson hreppstj. á Gils- árteigi, Þórhallur Bjarnarson biskup í Rvík — Voru þar rædd ýmiskonar bún- aðarrr.ál.' Skal her lítillega minst á nokk- ur þeirra: GtasbýlamáliO. Það er nú smátt og smátt að taka þeim breytingum, að í stað þess sem undanfarin ár hefir verið talað um býli með aðeins litlum ræktuðum reitum, er nú búist við að heppilegra se og jafn- vel óhjákvæmilegt, að nokkur útjörð, engi og beitiland, fylgi þessum býlum, sem nú er farið að nefna smábýli. Ákveðið var, að leita upplýsinga um afkomu á slíkum smábýlum, með spurningalista, er senda skyldi í ýmsa staði úti um land, var nokk- uð unnið að undirbúningi þess. Búnaðarskýrslur. Þá var mikið rætt um það hve afarmikilsvert það er að fá sem áreiðanlegastar skýrslur um búnaðarhagi bænda. Samið form og gerðar tillögur þar að lútandi, er hagstofunnl er æltað að brjóta til mergjar og vinna úr. Mœling iúna og matjurtagarða. Búnað- arfélagið hafði látið gera mælingar á nokkrum stöðum í landsfjórðungunum öll- um, til þess að komast að raun um, hversu dýrar þær mælingar mundu verða með uppdrætti af ummáli túnanna og garðanna. Lætur mjög nærri að kostnað- urinn verði 10 kr á hvert býli. Leitað skyldi fyrir sér við herstjórnarráðið, hvort það vildi gera slíkar mælingar og upp- drætti í þeim héruðum, sem það [á enn eftir að láta mæla. Kvikf/árrœkt. Búnaðarþingið vildi að félagið færðist í aukana með leiðbeining- arstarfsemi í þessari grein búnaðarins, Sigurði Sigurðssyni er ætlað að annast leiðbeiningarstarfsemina í stórgriparækt- inni, en annar maður fáist við sauðfjár- ræktina á líkan hátt eða frekar en áður hefir verið. Vatnsveitingar. Reynt skyldi að fá, eins fljótt og hægt er, vatnsvirkjafróðan mann, er hefði a hendi leiðbeiningar í vatns- veitingum. Gróðurtilraunir. Ákveðið var að aðal- Vélskipið ,S>kandia sem kom hingað til fiskiveiða frá Svíþjóð í vor, er til sölu. Lengd þess milli stafna er 54 fet. Þilfarsbreidd um miðju 19 fet. Ristir, með kjalfestu 8 fet. Ristir, hlaðið að fullu 10 fet. Hæð lestarrúms 10 fet. Ber nálægt 75 tonna þunga. Skipið er bygt 1912 úr vönduðu efni og vel búið út að öllu, bæði skipið sjálft, segl og reiði. í því er mjög góður „Skandia" mótor 45 hestafla, ásamt útbúnaði til þess að vinda upp með vélaraflinu akkeri- og línur. Söluverð skipsins verður nálægt 15,000 kt. og ættu þeir er ætla að fá sér gott og ódýrt vélarskip til flutninga, fiskiveiða eða hvortveggja, að nota þetta óvenju góða tækifæri. Allar nánari upplýsingar gefur fyrir hönd eigenda skipsins OTTO TULINIUS konsúll á Akureyri og biðja þeir lysthafendur að snúa sér til hans sem allra fyrst. gróðrarstöðvarnar skyldu meira hér eftir en hingað til gefa sig við frærækt, eink- um fóðurjurta. Félaginu er ætlað að annast um útveg- un á tilbúnum áburði fyrir þá, sem þess óska í tíma óg senda borgun fyrir tram. Var búist við að með því móti mundi hann fásc nokkuð ódýrari en verið hefir, í for- föllum forsetans, Guðmundar Helgasonar, gegndi varaforseti Eggert Briem ftá Viðey, forsetastörfum í þinginu. Stjórn endurkosin: Guðmundur Helga- son. Eggert Briem skrifstofustjóri og Þór- hallur Bjarnarson. Varastjórn sömuleiðis endurkosin : Egg- ert Briem frá Viðey, Ásgeir Tortason, Guðmundur Hannesson, (LýgréttaJ. Frá Landssímanum Landssímastöðvarnar SAUÐÁRKRÓKUR og SIGLUFJÖRÐUR verða fyrst um sinn, opnar frá S1^ árdegis til 2 síðd. og 3{\2-8 síðd. Akureyri 30. júlí 1915. Halld. Skaptason. V E G N A vöntunar á verkefni, hafa tóvinnuvélar H.f. Nýja Iðunn staðið notkunarlausar um nokkurn tlma. Nú er ákveðið að þær taki til starfa þriðjudagirm 3. áffúst næstk. Verður þá unnið með nýjum kröftuin að kembing, spuná, vefnaði, litun, þófi o. fl. eítir þeirri röð, sem verkefnin berast. Alt fljótt og vel af hendi leyst. Verksmiðjan kaupir Ull Og tuskur með hæsta verði. Ahugasamir umboðsmenn óskast. Umsóknir sendist til stjórnarinnar. Stjómin. Vér höfum þá ánægju að tilkynna hérmeð heiðruðum viðskiftavinum vor- um, að vér höfum falið herra kaupmanni SIQVALDA t>OR- STEINSSYNI á AKUREYRI á hendur aðalbirgðir af verk- smiðjuvörum vorum handa Akureyri, Siglufirði og öðrum þar í grend. Frá þessum birgðum á Akureyri verður því héreftir hægt að fá: alm. sóda- vatn, sítrón-sódavatn, kampavínslímonaðe, hindberja- og jarðarberjalímonaðe, en af saft: hindberjasaft, »Husholdningssaft« og ennfremur kirsiberjasaft á flöskum. (Pessa síðastgreindu tegund er þó ekki hægt að afgreiða fyr en í októbermánuði.) Einnig geta menn pantað þar saft á tunnum, sem send verður beint frá verksmiðjunni með fyrstu ferð, sem hægt er að fá. í ágúst, september fáum vér hingað miklar birgðir af nýjum ávöxtutn, og verður þá undireins búin til úr þeim saft, er sendist skiftavinum í september- lok. Vér látum eigi hjálíða að benda mönnum á, að vér notum aðeins þau hreinustu og beztu efni við tílbúning vöru vorrar, hreinan sykur og enga gervisætu, og þar sem tilbúningun vörunnar fer fram undir yfirumsjón og með eftirliti manns með fullnaðarþekkingu í þessari grein, geta heiðraðir við- skiftavinir vorir átt það víst, að fá vörur frá oss, sem fullkomlega standa jafn- fætis þeim beztu þessarar tegundar, sem völ er á. „ Gosdrykkjaverksmiðja Seyðisfjarðar. “ Sfrandferðaskipið ISAFOLD k e m u r við í Kolkuósi í strandferð austan um land 30. júlí og í strandferð vestan um land 24. ágúst. Retta auglýsist hér með. Afgreiðslan á Akureyri, 20. júlí 1915. Ötto Culinius. Ritstjóri: Jón Stefánsson. Prentsmiðja Odds Björnssonar,

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.