Norðurland


Norðurland - 23.11.1915, Blaðsíða 1

Norðurland - 23.11.1915, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. 42 blað. | C.W.Obel. Vindlar 08 Vindlingar ReyktobaR í öllu úrvali, Munntobak í stærri og smærri pökkum, Alt tóbak og vindlar frá OBEL er búið til úr hreinasta og: bez'ta efni sem fáanlegt er. Þeir sem einu sinni hafa notað Obels vöru, gera það upp frá því. Pantið þær því frá C. W. 0 b e I, Aalborg — Köbenhavn. Vefnaðarvöruverzlun Gudmanns Efterfl. Stærst úrval. Lægst verð. Saumastofa Guðm. Efterfl. saumar allan klæðinað handa körlum og konum eftir nýjustu tízku. Matthías áttræður. Átta sinnum áratugi átti þinn ’inn ýrjóvi hugi margan leik á fráu flugi; fáum þvilíkt mundi vera leyft á vorri eyju, — vilji sumra i þröngri treyju, oft i knjám á ungri meyju eða i föstum blundi. Listamenskan löngum sér þar undi. Þér haja skýin jreytt um fætur furðu marga daga og nætur. Þar sem aldrei þoka grætur þaustu á disafundi. Fyrir vestan mœni mána, megindjúpu stjörnugljána, heiðrikjuna og himinblána hleyptir Sleipni á sundi. Listamaðurinn lengi sér þar undi. Austar sól og árdagsrúnum offraðir þú, í Sögutúnum unglingum með eld i brúnum óðsnillingsins pundi. — Harmi þrungnum hugðarkvœði, hjörtun þegar léku á þræði, fluttir þú, svo jróa næði, frú og yngissprundi. Listamaðurinn lengi sér þar undi. Heill og ástúð hárum þyli hugur og tunga þjóðar skili. Hann, svo eigi heilsa bili, hamingjan vermi og stundi. Áttatuga óðmœringi œska þjóðar kvæði syngi. Bragi og Saga honum hringi heill á goðafundi. Listamaðurinn lengi þar sér undi. Guðm. Friðjónsson. Akureyri 23- nóvember 1915. j -XV. árg. ,Hlutafél. ,Völundur‘ Trésmíðaverksmiðja — Timburverzlun Reykjavík hefir ávalt fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri (unnu og óunnu), vanalegar, strykaðar innihurðir af flestum stærðum og allskonar lista til hús- bygginga. Gleiaugu af öllum tegundum /z/f/dar-gleraugu, /es-gleraugu, gleraugu fyrir fjarsýna og gleraugu fyrir nœrsýna. Miklar birgðir nýkomnar í Akureyrar ApofheK. George H. F. Schrader druknaður. Eins og getið var í síðasta blaði fór G. Schrader héðan á «Helga magra" áleiðis til Noregs þar sem hann hugsaði sér að dvelja í vetur. Nú hefir bæjarfógetanum á Akur- eyri, borist símskeyti frá Per. L. Johnsen, danska ræðismanninum í Kristianssund, um að 15. þ. m. hafi Schrader hrokkið útbyrðis af „Helga magra" er skipið var í hafi milli Noregs og íslands, og látið þar líf sitt, en ekki segir nánar frá með hverjum hætti slysið hafi orðið. Svo lauk þá ferðalagi Schraders til íslands. Hann hafði dvalið hér á Akureyri síðan 1912 og látið margt gott af sér leiða, svo vel hefði átt við að skrifa rækilega grein utn hann nú við andlát hans, því að mörgu var hann einkennilegur og vafalaust mikilhæfur maður. En því miður brestur »N1." kunnugleik til þess að geta sagt nokkuð að ráði frá æfiferli hans. Hann var 58 ára að aldri. Faðir hans rak mikla verzlun í New-York með ýmiskonar vélar, gúmmí o. fl. og græddi stórfé. George Schrader tók við þeirri verzlun, rak hana á- fram af hinum mesta dugnaði og jók auð sinn stórkostlega. Nú var verzlunin orðin hlutafélagseign, en G. S. var stærsti hluthafinn og hafði miklar tekjur af henni árlega. Hér vita menn ekki með vissu um hve mikinn auð hann átti alls, en vafa- jaust skifti hann miljónum. Schrad- er trúlofaðist ungur, en misti unn- ustu sína sviplega og tók sér það mjög nærri. Hann giftist aldrei og var barnlaus. Af starfsemi Schraders hér, er fyrst að nefna hið mikla hús >,Caro- line Rest" sem hann gaf Akureyrar- bæ, ásamt 2000 króna viðhaldssjóð byggingarinnar. „Caroline Rest" kostaði með öllu um 25,000 kr. Sjúkrasamlagi Akureyrar gaf hann 500 kr. og ýmsa einstaklinga er báglega voru staddir af heilsuleysi studdi hann höfðinglega. íJá má og nefna matreiðsluskólahald hans í „Caroline Rest" er hann stofnaði til af góðum hug og hina miklu bók hans um hesta og reiðmenn á íslandi, sem áreiðanlega hefir haft mikil áhrif til góðs þó annars megi ýmisleyt að henni finna. Schrader varði miklum tíma og miklu fé til þeirrar bókar og sparaði ekkert til þess að vanda útgáfu hennar að öllu sem hægt var. Bókin var prent- uð í prentsmiðju Björns Jónssonar á Oddeyri og er líklega einhver hin bezt prentaða bók og vandað- asta að frágangi, sem komið hefir út á íslandi langa hríð. — Schrader 44 gleðin yfir því að hafa átt hann, var eftir f hug mínum. Ást mín til hans, hafði ekki fengið tíma til þess að vaxa svo saman við tilveru mína, að sorgin yfir missi hans, gæti drepið lífsgleði mína að fullu. Eg fann einnig að eg hafði ekki verið honum hans æðsta og dýrmætasta í veröldinni, því ef svo hefði verið, hefði hann aldrei farið í stríðið, án þess að vera neyddur til þess. Og sannleikurinn var sá, að herdeild hans var aldrei kvödd til vígvallarins. Eg hafði einnig breyzt mikið á þessum fjórum árum. Hinn andlegi sjóndeildarhringur minn hafði stækk- að. Eg hafði nú þá þekkingu og þær skoðanir á ýmsu, sem mig hafði aldrei órað fyrir þegar eg gift- ist og sem eg vissi að Arno hafði ekki haft hug- mynd um að væru til, svo að ef hann hefði nú komið heill heim úr stríðinu, úr gröfinni, hefði mik- ið djúg verið milli sálarlífs okkar á marga vegu. Pessi breyting hafði komið yfir mig smámsaman. Eg hafði alveg lokað mig úti frá öllum gleðskap og hafði hugann eingöngu við uppeldi drengsins míns. Eg hafði aldrei, eftir lát föður hans, kallað hann Ruru eða »undirforingjann«. Sá barnaleikur var alveg úr sögunni, en drengurinn var hin eina fram- tíðarvon mín og lífsgleði, meðan sorgin var bitr- ust í sál minni. Og til þess að geta verið förunaut- ur hans, í hinni andlegu framþróun, sem mig lang- aði til að hann ætti fyrir höndum, fór eg að nota bókasafn föður míns af kappi og las sérstaklega öll sagnfræðirit. Eg var hneigð fyrir að lesa hernaðar- 41 mig á annan hátt. Hún benti mér á að eg mætti ekki vera svo eigingjörn að harma Arno, sem nú lifði í sölum himnanna í alsælu um aldir alda, því engum, nema píslarvottum kristninnar, væri fyrirhug- að slíkt sælulíf hjá algóðum guði eins og þeim sem létu lífið í þarfir skyldunnar, eins og hermennirnir gerðu. Og hún hélt því jafnvel fram stundum, að guð hefði látið Amo missa lífið til þess að reyna mig og styrkja sáluhjálp mína. Fjórtán dögum eftir ófarirnar við Solferino komu fréttir um að friðarsamningarnir hefðu verið undir- skrifaðir í Villafranca. Faðir minn reyndi að gera mér skiljanlegt að friðurinn hefði verið samþyktur af pólitískum ástæðum, en ekki vegna þess að Austur- ríki hefði verið nauðugur einn kostur að semja frið. Eg sagði honum að mér stæði nákvæmlega á sama um það alt. Eg væri aðeins sárfegin því að friður- inn væri kominn á og séð væri fyrir endann á blóðs- úthellingum bardaganna. En hann hélt samt áfram í mesta afsökunarróm að verja stjórnina, og afsaka að hún hefði staðfest friðarskilmálana, svo eg fór að reyna að vekja eftirtekt hans á bókapakka sem bók- salinn hafði sent okkur. — Líttu á pabbi, hér er ný ritgerð eftir Darwin, brezka náttúrufræðinginn. — Góða, láttu okkur ekki tala um það. Á þess- um tímum hugsar enginn greindur maður um þess- háttar þvæíting. Hvað varðar okkur nú um bók sem ræðir um dýr og plöntur? Nei, nú er annað um að

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.