Norðurland - 23.02.1918, Blaðsíða 1

Norðurland - 23.02.1918, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri og útgefandi: JÓN^STEFANSSON. 5. blað. Akureyri 23. febrúar 1918. XVIII. árg. Pjóðaruppeldið. Ef spurt væri um það, hvert vaeri mesta alvöru- og umtalsefni almenn- ings hér á landi, annað en strfðið, þá mundi naumast verða nema eitt svar á hraðbergi við þeirri spurningu. Það svar, að ekkert fylti eins hug lands manna yfir höfuð eins og fjármálahlið þjóðlífs vors, og þá helzt og frekast ráðstafanir og framkoma þingmanna vorra í þessu efni. Og þetta er ekki með öllu ástæðu- laust. Það ér tæplega gefandi að sök, þó alþýða manna, sem stendur álengdar og horfir á þetta úr fjarlægð og heyr- ir fregnirnar úr fjarska, detti í hug, að hún sjái ofsjónir og beyri ein- hverjar æfintýrasagnir, er henni berst sagan um það, sem gerist á og f sambandið við þingið, í öllu þvf, sem snertir fjármálin. Það mundi engum sanngjörnum og óvilhöllum manni mikla það, þótt landslýðnum, hinum mikla múg, sem ekkert hefir á að treysta annað en hendur sínar, og til einskis annars að flýja en stritvinn- unnar, og hennar oft um megn, — það mundi engan undra, þó hann spyrði, og það í fullri alvöru, hvort þetta þyrfti að vera svona og hvort það væri rétt að þetta væri svona. Og ástæðurnar eru augljósar og daglegt umtalsefni. Lýðnum blæðir f augum öll dýrtfð- arfúlgan, sem embættismennirnir og aðrir opinberir starfsmenn fá, þó víða sé við það kannast að hún sé réttlát gagnvart sumum hlutaðeigendum. Hon- um ógnar, er þingmennirnir hafa enn á ný aukið við dagkaup sitt, sem margir hverjir njóta dýrtfðaruppbótar- innar, og taka nú 13 f staðinn fyrir 10 kr. áður. Og það kemur hik á bann, þvf líkt sem hann horfi yflr eitt- hvert kviksyndi, þegar hann sér alla þá féeyðslu, sem fer í það að koma þingmönnum á þing og af því. Og hann spyr og spyr hvernig jafnstutt- ar leiðir eins og sumar þeirra, sem þarna er til að dreifa, súpi upp ann* að eins fé og þeir segja. En þó kast- ar fyrst tólfunum, er hann heyrir, að þeir eru jafnvel farnir að hafa það fyrir alvinnu að eiga börn. Við allsr þessar fregnir og upp- talningar um fégræðgi þingmanna ber fjöldi manna sér á brjóst og spyr f örvæntingu: Eru íulltrúarnir að leika einbvern gamanleik, eða er alvara f þessum ráðstöfunum ölium og sam- þyktum; eru þeir komnir á þing að- eins til þess að ráða sínum eigin ráð- ' um, sínum eigin högum til farsællegra lykta á þessum erfiðu tfmum en ekki til þess að sjá þjóðmálunum farborða og þjóðarhagnum fyrir einhverjum Kfs- krafti og bolmagni? Og þegar hann hugsar um þetta alt, þetta og margt fleira f þessu sambandi, þá kemur honum ósjálfrátt til hugar, hvort bú ið sé að eitra loftið innan þingsins, svo hver maður verði, sem þangað kemur — þó áður hafi hann verið laus við þá kvilla — sjúkur af þeirri viðleitni að afla sjálfum sér nógu mik- ils, án nokkurs tillits til lands og þjóðar. — — En — vaeri nú ekki réttast, þegar öllu er á botninn hvolft, réttast fyrir þjóðina, landslýðinn, að hafa sem lægst um þau hermdarverk og þær misfell- ur, sem henni finst vera á störfum þingsins, lægst um þau á þann hátt a$ vega ekki eingöngu að löggjöfun- um? Eru ekki þingmennirnir kosnir úr þjóðardjúpinu, af þjóðunni sjálfri, af þeim, sem hæst hafa um ókosti þeirra, og hljóta þeir því ekki altaf að verða sýnishorn, nokkurskonar minkuð út- gáfa af allri þjóðinni, sem hefir f sér allar eigingirndir, hvatir og tilhneig- ingar, sem eru ríkjandi í sál þjóðar- innar? Það er ekkert áiitamál. Það er sannleikur að þjóðin stjórnar sér sjálf með því að velja það sem hún hygg- ur vera kjarnann úr sjálfri sér, til þess að ráða fram úr vandamálum sfnum, finna nýja farvegi fyrir straum- ana, sem brjotast fram úr þjóðardjúp- inu og verja land og lýð fyrir utan að komandi aðköstum og aðkreppu. Öll vor óp og óhljóð urn þessa menn,, er því ekkert annað en hryggileg lýs- ing á okkur sem heild, sem þjóð, — grátleg ásökun á ættjarðarást vora og óeigingirni Því hverjum kemur til hugar að halda fram, að þarna hafi valist saman verri menn eða tilþrifa- meiri um eigin hag en alment gerist meðal vor? Verum vissir um að jaln- vel þeir, sem nú standa fremstir í flokki þeirra, sem kasta ókvaiðisorðum að þinginu, þeir hefðu að öllum lík- indum fylgst með og tekið tveim höndum við dýrtíðaruppbót, hækkun á dagkaupi, meðgjöf með börnum, sem þeir kynnu að afla sér, ogNöðru því- lfku góðgæti. Nei. Hér er heimskulegt að hrópa: Guð, eg þakka þér, að eg er ekki eins og aðrir menn, — að eg er ekki eins og löggjafarnir okkar! Við erum eins og þeir og þeir eins og við, þvf þeir eru teknir mitt á meðal vor. Þing, sem skipað er þjóðkjörnum mönnum, veiður altaf, hlýtur að vera sýnishorn sinnar eigin þjóðar á þeim og þeim tíma. í þvf speglast, eins og í skuggsjá, helztu og sterkustu straum- hvörfin, sem uppi eru meðal lands- manna. Jafnvel þau öflin, sem minst ber á og dýpst Kggja, iáta einatt á sér bera, þegar þangað er komið, því þar er svo einkar frjór jarðvegur fyr- ir hvorttveggja: lífgrösin og illgresið. Hér er því ráðlegra að beina ásök- ununum að okkur sjálfum, heildinni, þvf hún ber ábyrgð á verkum manna sinna í raun réttri, hún hefir alið þá, mótað þá og þroskað og lagt grund- völlinn undir það, sem þeir telja eft- irsóknarverðast Og mun eg koma að þvf síðar. En hér er annað, sem engu er þýð- ingarminna í þessu sambandi og á- stæða er til að fara um nokkrum orð- um. Það mundi vera talinn óathugull maður, sem hefði ekki veitt því eftir- tekt, að aldrei hefir verið meira af umsóknum til þingsins um bitlinga og fjárbeiðnir eins og einmitt nú. Oft hefir þótt berast mikið að þinginu af þessu tagi og margar raddir æpa f t-yru þingmanna um nokkra tugi kr. En aldrei hefir rignt yfir þingið öðr- um eins feiknum af fjárbeiðnum eins og nú sfðast, aldrei jafnmargir munn- ar kvakað til þingsins um stýrk fyrir sig og sína og léttir undir áhugamál sín. Með öðrum orðum: þjóðin sjálf, sem slöngvar hverjum áfellisdómnum Matvöru- og sykurtalning. Samkvæmt reglugerð stjórnarráðsins 23. f. m. er fyrirskipað, að pann 26. p. m. skuli telja matvöru- og sykurbyrgðir allra verzl- ana, brauðgerðahúsa og annara, er vörur pessar hafa til sölu. Verður skýrslunnar vitjað, og eru allir peir sem vörur pessar hafa til sölu aðvaraðir um að telja pær rétt fram að viðlögðum drengskap. Ennfremur verður dagana 25, 26. og 27. p. m. tekið manntal* í bænum og hver húsráðandi krafinn um drengskaparvottorð um pað, hve mikið hann hafi í sínum vörzlum af kornmat og sykri. Tilgreina ber, hve mörg kíió séu til af hverri korntegund.- Sér- hver húsráðandi verður að vera undirbúinn að gefa vottorðið við- stöðulaust pegar krafist verður. Eftir 28. p. m. getur enginn fengið kornmat eða sykur nema samkvæmt seðli. Kornvöru- og sykurseðlar verða afhentir 28. p. *m. í húsi S. Fanndal og byrjar afhendingin kl. 10 f. h. — Herra yfirdómslögmaður Júl. Havsteen stendur fyrir seðlaúthlutun og ber mönnum að leita til hans um sérhvað eina pessu viðvíkjandi. Hver brauðseðill hljóðar á nafn og verður pví hver húsráðandi að tilgreina nafn hvers heimilismanns síns um leið og hann telur seðlana. Enginn fær seðil afhentan nema hann áður hafi gefið skriflegt drengskaparvottorð um matvöru- og sykurforða sinn. Brauðseðlar í stað kornvöruseðla verða síðar afhentir. !Ef nokkur telur byrgðir sínar rangt fram eða neitar að telja pær fram varðar pað sektum alt að 10,000 krónum. Þetta birtist til eftirbreytni. Bæjarfógeti Akureyrar 20. febr. 1918. Páll Einarsson. öðrum þyngri yfir þingmennina fyrir fégræðgi og eiginhagsmunasemi í fjár- málum, hún gerir sig seka f sömu viðleitninni, sömu fjörráðunum gagn- vart sjálfri sér. Hún hleður lestrarsal Alþingis fullan mpð styrkbeiðnir, styrk- beiðnir, sem margar hverjar eru þess eðlis, að svo lítur út, sem engin minsta á tæða auk heldur knýjandi nauðsyn hafi borið til þess, að hlutaðeígendur létu sér koma til hugar að knýja á dyr landssjóðs með þesskonar, og aðrar aftur þannig úr garði gerðar að umsækjendum er tæpa3t mikill vegs- auki að þeim. Um alt þetta er hægt að sannfærast með því að líta í þing- tíðindin og sumt af þvf fyllir dálka dagblaðanna. Enginn skal halda, að hér séu á ferðinni persónulegir kveinstafir yfir því, að einstöku mönnum hlotnast tvö til þrjú hundruð krónur úr landsjóði, að eg sé að telja eftir, þó slett sé fáeinum krónum í einhvern, sem get- ur látið svo Ktið að hrópa á hjálp landssjóðs til þess að að lifa. Það er ekki meiningin. Gott væri, að lands- búið hefði svo fullar hendur íjár, að það gæti miðlað sam flestum, lyft undir sem flesta framtakssama og við- sýna anda, sein vert er að styrkja og hlúa að. Og eg, fyrir mitt leyti, er sannfærður um það. að það út af fyr- ir sig hefir engin áhrif á vöxt og við- gang okkar sem þjóðar, hvort lands- sjóður úthlutar í bitlingum og styrk- um þrem til fjórum þúsundum meira Munið eftir samkomum Hjálprœðishersins. Fri aOiranzur.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.