Norðurland - 11.04.1918, Blaðsíða 1
NORÐURLAN D.
Ritstjóri og útgefandi: JÖN STEFANSSON.
12. blað.
Akureyri 11. apríl 1918.
] XVIII. árg.
Sagnfræðaskólinn
i jfikureyri.
Kensla til undirbúnings árs- og gagnfræðaprófi í skólanum byrjar mánu-
daginn 15. þ. m. - Árspróf í 1. og 2. bekk byrjar 10. maí n. k. kl. 9
árdegis en gagnfræðapróf 21. s. m. kl. 9 árd. og verður lokið p. 29. áð-
ur en Sterling fer austur um. Inntökupróf f fyrsta bekk verður 10.-11.
maí og næstu daga.
Þeir nemendur, sem vilja fá heimavist í skólanum meðan á prófinu
stendur eða pann tíma, sem þeir dvelja hér við skólann í vor, ættu að hafa
með sér rúmföt, að minsta kosti yfirdýnu, rekkjuvoðir og kodda. Sykur
og kornvöruseðla sína ættu þeir og að koma með og gott væri að þeir
hefðu með sjer svo sem mánaðarforða af smjöri eða öðru góðu feitmeti.
Oagnfræöaskólinn á Akureyri 5. apríl 1918.
A I þ i n g i
var sett í gær, miðvikudaginn 10.
apríl, eins og ráðgert var. 8 þing-
menn voru fjarverandi og var því
öllum kosningum frestað og þing-
fundum sömuleiðis.
Hannes Hafstein ætlar ekki að
sitja þetta aukaþing ogerhinn fyrsti
Iandkjörni varamaður, Sigurjón Frið-
jónsson, kominn til Reykjavíkur, til
þess að taka sæti hans. - Matthías
Ólafsson alþm. er á leið frá New-
York á „Oullfossi" væntanlegur til
Reykjavíkur næstu daga.
Félagið »Sjálfstjórn" krefst þess að
Alþingi haldi fánamálinu fram með
feslu og alvöru.
jóhann Sigurjónsson.
Oeorg Brandes veitti Jóhanni Sig-
urjónssynir 3. febrúar síðastl. skálda-
styrk þann, er hann úthlutar úr „Otto
Benzons Legat" til ungra rithöfunda
og þykir mikils um vert, að vera
dæmdur hæfur af Qeorg Brandes
til þess að njóta styrksins (sem er
1000 kr. að upphæð), þvf Brandes
veitir hann, án þess að nokkur fái færi
á að sækja um hann.—Þá er »Fjalla-
Eyvindur" »kominn á kvikmynd-
ir« og fer nú sigurför um Norður-
lönd í þeim búningi og ennfremur
hefir Gyldendals bókaverzlun gefið
»FjaIla Eyvind" út nýlega með 40
myndum eftir kvikmyndunum. Er
sú útgáfa 10,000 eintök og kostar
kr. 3,50 eintakið í góðu bandi. —
Loks hefir Njálu leikrit Jóhanns
(»Lögneren") verið leikið á konung-
lega leikhúsinu í Khöfn hvað eftir
annað síðustu vikurnar (síðan um
tniðjan febrúar) fyrir fullu húsi á-
horfenda stöðugt og hrósa danskir
leikdómarar (Sven Lange o. fl.) því
á alla vegu.
I Friðrik Sigurður Einarsson I
stud. art.
andaðist á sjúkrahúsinu á Vffilsstöð-
um 23. marz síðastl. — Hann var
fæddur á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði
28. júlí 1900, þar sem foreldrar hans
bjuggu þá; Einar Einarsson, nú
verzlunarmaður á Oddeyri, og kona
hans Guðbjörg Sigurðardóttir. Hann
ólst upp hjá þeirn, fór í gagnfræða-
skólann á Akureyri haustið 1912,
útskrifaðist þaðan vorið 1915 með
I einkunn, fór svo í mentaskólann í
Reykjavík um haustið og ætlaði að
taka stúdentspróf í vor. í fyrra veikt-
ist hann af brjósthimnubólgu og
náði sér ekki til fullnustu eftir það
enda las hann áfram af kappi sem
ekkert væri að. í vetur lagði hann
á stað hingað á wLagarfossi", ætlaði
að ráði kennara sinna að hvíla sig
frá námi síðari hluta vetrar, en skip-
ið lenti í hafvolki úti fyrir Austfjörð-
um og sneri við suður aftur og
mun heilsu hans þá hafa hnignað,
svo að þegar hann kom suður aftur,
fór hann á heilsuhælið og var þar
unz hann andaðist þar skyndilega af
blóðspýtingi.
Friðrik sál. var sérlega álitlegt
mannsefni, mjög duglegur náms-
maður, samvizkusamur og ósérhlíf-
inn að hverju sem hann gekk, reglu-
samur og vel látinn af öllum sem
kyntust honum. Er fráfall hans mik-
ið harmsefni foreldrum hans og
öðrum vandamönnum, sem með
rökum gátu gert sér mikSar vonir
um að hann ætti fyrir höndum mik-
ið æfistarf og glæsilega framtíð.
18— is.
Gísla Sveinssyni
yfirdómslögnianni er veitt sýslu-
mannsembættið í Skaftalellssýslum. —
Umsækjendur Voru auk hans: Páll
jónsson frá Seglbúðum og Sigurður
Lýðsson fulltrúi ( stjórnarráðinu.
Hér með tilkynnist vinum
og vandamönnum andlát okk-
ar ástkæra eiginmanns og
tengdaföður Friðbjarnar Steins-
sonar.
Jarðarförin fer fram frá
heimili hins látna laugardag-
daginn þ. 20. þ. m. kl. 12 á
hád.
Akureyri io, apríl 1918.
Guðný Jónsdóttir.
Anna Guðmundsdóttir.
Carl F. Schiöth.
Síldarrannsóknirnar
og hr. Þ.
£g hefi fyrir löngu lesið grein í 42.
tbl. »íslendings« 19/io f. á., er nefn-
ist »Sí!din og sf!dveiðin« eftir Þ. —
Ræðir hún um nauðsyn rannsókna á
aldri síldar um veiðitfmann fyrir norð-
an land f þvf skyni að sjá hvort sfld-
inni sé hætta búin vegna ofmikillar
veiði, og það er auðheyrt að höf. hefir
á þessu ugg ekki alllftinn. — Eg hefi
áður ritað nokkuð um þessa hluti f
tveim andsvörum til Böðvars yfirdóms-
lögmanns Jónssonar út af tillögum
hans um landseinokun á sfldarsöltun
og síldarverzlun, og fært þar rök, er
ekki hafa verið hrakin, fyrir því að
engi hætta sé á að sfldinni fækki
vegna ofmikillar veiði af mannavöld-
um og ætla eg ekki að taka þau rök
upp hér, en af því að eg hefi verið
við þetta mái riðinn leyfi eg mér að
gera nokkrar athugasemdir við grein
þr. Þ., og skal reyna að vera ekki
mjög langorður.
Eg skal þegar geta þess, að hr Þ.
fullyrðir ekki hættuna á fækkun sfld-
arinnar, en álftur aldursrannsóknir á
henni mjög nauðsynlegar til þess að
komast að sannleik þessa máls. En
við þetta er tvent að athuga og fieira
þó. í fyrsta lagi það, að slíkar rann-
sóknir sem hr. Þ. gerir ráð fyrir
geta ekki orðið ábyggilegar, enda full-
yrðir hr. Þ. það ekki fiekar en svo að
reikningurinn sem út af þeim yrði
gerður gœti orðið »talsvert ábyggi-
legur*. En í þessum efnum dugar
ekkert »talsvert« og ekkert kák. Og
eg þori að fullyrða, að rannsóknir
þessar og útreikningurinn út af þeim
hlyti að verða mjög Óábyggilegt
hvorttveggja, nema til rannsóknanna
væri varið stórfé og þær færi fram
kringum alt landið og um margra ára
bil og miklu lengur árlega en um sum-
arveiðitímann. Eru þau rök til þessa
að áraskifti eru að fiskigöngum ölium,
bæði hve mikill fiskur gengur og hve
vænn. Að minsta kosti er þetta svo
hér fyrir norðan lai\d Hygg eg að
6ins muni vera um síldargöngurnar.
Nokkrar birgðir hefi eg hér á staðn-
um af eftirtöldum vörum, er eg sel
kaupmönnum og kaupfélögum
J h e i 1 d s ö 1 u:
Sagfosrrjón pokinn um 100 kilo.
Kartöflumjöl pokinn um rookilo.
Kex f trékössum, kassinn um 10 kilo.
Epll f tunnum, tunnan um 60 kilo.
Rúsínur, kassinn um 10 kilo.
Kaffi, pokinn um 63 kilo.
Skófatnaður karla og kvenna.
Höfuðfatnaður karla og kvenna,
hattar og húfur.
Waterproof-kápur karia og
kvenna
Handsápa 25 tylftir f kassa.
Þvottasápa 30 kilo kassar.
Eldspýtur ioo^pakkar f kassa.
Fiskilínur og Önjgflar.
Bráðlega fæ eg, að forfallalausu,
talsverðar birgðir af karlmanna-
fatnaði aiskonar, skósvertu,
svinafeiti, tóbaki og glugga-
gleri.
Jón Stefinsson
Mureyri. — Sfmi 9*.
Nenni eg ekki að færa sérstök dæmi
um þetta, en skal geta þess, að frá
þvf eg man fyrst eftir hefir hér við
Skagaströnd verið mikill munur á væn-
leik fiskjar, svo að árum saman hefir
veiðst míkiu rýrari fiskur en önnur,
hvert af öðru. Hefir þá gosið upp
sama hræðslan og uggurinn þeirra
Böðvars og Þ. um sfldina; og menn
hafa haldið að nú væri búið að eyða
þorskinum, þegar Htið hefir fengist
annað en smælki, en svo þegar sá
gamli guli hefir komið aftur, þá hefir
mönnum fallið allur ketill f eld. Ann-
ars eru göngur flestra fiskitegunda
hér nyrðra svo misjafnar og dutlunga-
fullar, að það væri gaman að sem
flestir, er tekið hafa eftir þeim hlut-
um, vildu segja nokkuð frá þeim, og
skyldi eg leggja þar orð í belg, en
nú er ekki tími eða rúm f blaði fyrir
þessháttar skrif.
Hr. Þ. kemst út á þá galeiðu til
þess að styðja mál sitt að fara að bera
sfldveiðar og sfldarrannsóknir saman
við alólfka hluti, svo sem kolaveiði í
Norðursjónum og rannsóknir á fækk-
un kolans. Hann gætir þess ekki, að
þarna er að ræða um lítið svæði út-
sævar og ekki heldur þess, að kolinn
er botnflskur og f hinni sömu hættu
fyrir hinu ógurlegasta veiðarfæri, sem
enn þekkist, botnvörpunni, eins og
aðrir botnfiskar, en sfldin er alsævis-
fiskur og getur farið leiðar sinnar eins
og ekkert hafi f skorist undir og f
kringum þúsundir af kastnótum, Þetta
er ein hinna miklu trygginga sfldar-
innar gegn vélum mannanna og mörg-
um öðrum. Aðra trygging hefir hún,
eins og eg hefi bent á áður, og ekki
lakari: hið miskunnarlausa dráp þorsks-