Norðurljósið - 26.02.1891, Side 2
14
NOUÐURLJÓSIÐ.
1891
væri eptir niargra ára reynslu, að semja viðunanlega
hentuga póstferða-áætlun, ef lögð væri alúð við það verk,
og ef þeir, sem að því vinna, leituðu ser upplýsingar um
vegalengd og greiðfæri vega í þeim sveitum, er póstarnir
ganga um, hjá þeim sem því eru kunnugastir. Einkum gætu
póstarnir sjálfir gefið glöggar og góðar upplýsingar i því efni.
I>að eru aðeins fá atriði, er vér viljuni minnast á í
þetta skipti, en það eru atriði, sem ekki má láta ganga
umtalslaust lengur.
Laura fór frá Kaupmannahöfn í haust 8. nóv. siðusta
feið á árinu til íslands. Til Reykjavikur átti hún að koma
20. sama mánaðar, náttúrlega með bréf og sendingar til
ýmsra staða á landinu. Landpósturinn (norðanpóstur) fór frá
Reykjav. 3. des.. hafa því bréfin er með Lauru komu. hafi
hún komið á réttum tíma, dvalið fulla 12 daga í Reykja-
vik. 17. desember komu þau siðan til Akureyrar. Yér
Akureyringar fengum þannig bréf vor frá útlöndum ná-
lægt mánuði siðar en Reykvíkingar. J>ó eru Múlsýslingar
hálfu ver settir, því bréf sem send voru með Lauru frá
Kaupm.höfn 8. nóv. komu t. a. m. á Seysisfjörð ekki fyr
en 14. janúar, því eptir alla biðina í Reykjavik eru þau
látin hvíla sig á Akurej'ri frá 17. des til 6. jan. (eða 19
daga). Hafa bréfin þannig verið á leiðinni frá Kaupmh.
til Seyðisfjarðar fulla 68 daga eða hátt á 10. viku.
Yér getum nú ekki betur séð en að þetta fyrirkomu-
lag sé alveg óhafandi Póstgöngur hér hljóta ávallt að
verða talsvert seinar og örðugar sökum vegleysu og illviðra,
einkum á vetrardaginn, og því veitir ekki af að bréfin séu
látin halda áfram svo fljótt sem unnt er, en séu ekki látin
liggja vikum saman á póststöðvunum. Hefðu bréfin, er
með Lauru komu í Reykjavík 20 nóv., verið send þaðan,
setjum til dæmis 24. s. m., gátu þau komið til Akureyrar
9. des. Hefðu þau svo verið send frá Akureyri 11. des-
gátu þau komið 19. s. m. á Seyðisfjörð, eða 26 dögum fyr
en mögulegt var að þau kæmu eptir áætluninni. Alla
þessa daga hafa þau legið alveg að óþörfu á pósthúsunum.
Alveg er það og óþarít, að láta bréf, sem send eru
með Lauru frá Höfn 16. jan. og nú komu til Rvíkur 26. sama
mán., dvelja þar í 8—9 daga áður en þau eru send á
stað, því ómögulegt er að póstmeistarinn þurfi allan þann
tíma til að afgreiða póstana. J>að væri annars fróðlegt að
fá að vita hvaða ástæðu póststjórnin hefir fyrír því að láta
bréf og sendingar liggja þannig dögum og enda vikum saman
á Reykjavikurpóststofunni. Vér álítum meira að segja,
að hún sé skyldug til að gjöra almenningi grein fyrir því.
J>á eru nú dagleiðir póstanna nokkuð kynlega ákveðn-
ar. Yér' skulum aðeins minnast á dagleiðir póstsins milli
Akureyrar og Staðar. Stundum er honum ætlaður einn
dagur af Akureyri að Möðruvöllum, sem er tveggja til þriggja
tíma ferð; en aptur er honum ætlað að fara á 1 degi
frá Steinsstöðum að Viðimýri, sem er á vetrardag jafnaðar-
legast fullar 2 dagleiðir. Ætti því aldrei að ætla póstin-
um minna en 2 daga þá leið. Helzt ætti að vera bréf-
hirðingastaður á Silfrastöðum, er optast getur verið
hentugur gistingastaður fyrir póstinn. J>að mun láta nærri
á vetrardag í meðalfæri (og útfrá því verður maður að
ganga) að það sé 8 daga ferð frá Akureyri að Stað i
flrútafirði. Mundi þá einna hentugast að skipta dagleið-
um þannig:
1. dag frá Akureyri að Steinsstöðum
2. - — Steinsstöðum að Siifrastöðum
3. — — Silfrastöðum að Yíðimýri
4. — — Víðimýri að Botnastöðum
5. — — Botnastöðum að Sveinsstöðum
6. — — Sveinsstöðum að Lækjamóti
7. — — Lækjamóti að Staðarbakka
8. — — Staðarbakka að Stað
Sé færi vel gott má auðvitað vel fara þessa leið á
6—7 dögum, en að vetrarlagi er ekki til neins að ætla
póstum lengstu dagleiðir. J>að er hálfu verra, að ætlá
þeim svo stuttan tíma, að þeir undir flestum kringuinstæð-
um geti ekki fylgt átetluninni, heldur en að ætla þeim
svo marga daga til ferðar, að þeir optast geti komið á
réttúm tíma á hverja póststöð; enda er þá fyrst hægt að
heimta af þeiin, að þeir fylgi áætluninni, en annars ekkí
Auðvitað má jetla póstum lengri dagleiðir á sumrin.
Ekki getum vér séð að ástæða sé til þess að ætla
póstinum færri daga frá Stað til Akureyrar heldur en frá
Akureyrí að Stað. Jafnaðarlega niun póstflutningur vera
talsvert rneiri að sunnan en suður, einkum þegar póst-
flutningur kemur frá útlöndum, eins og t. a m. nú með
síðustu ferð. En þá voru póstinum ætlaðir 6 dagar vestan
frá Stað til Akureyrar, en næst á undan 8 daga frá
Akureyri vestur.
]>ótt vér minnumst hér aðeins á áætlun póstgöngunn-
ar milli Akureyrar og Staðar, þá rnundi full nauðsyn til
að áthuga hana víðar. Ættu menn, einkum póstafgreíðslu-
menn og póstar, að gjöra sér það að fastri reglu, að vekja
athygli póstctjórnarinnar á hverju ári í blöðunum á þeim
göllum, er á póstáætluninni kunna að verða framvegis.
Yæri líklegt að póststjórnin tæki það til greina, svo menö
gætu fijótlega fengið hentuga póstáætlun.
Skýr sla
yfir jarðabætur og húsagjörð búnaðarskólans á Eiðum
sumarið 1890.
a.
1. Sléttftðir í túni 75 fer. faðmar.
2. Stækkaður maturtagarður. Lengd veggjanna er 109’,
breidd að neðan 5’ og að ofan 2’, hæðin er á'/is’ “ 1558
ten. fet.
3. Hlaðinn varnargarður, á lengd 190’, á bæð 5’, breidd
nð neðun 5‘/2’ og að ofan 2’ =■ 3562’/2 ten. fet.
4. Hlaðin fjárrétt. Lengd veggjanna er 102’, breidd að
neðan 5’, breidd að ofan 3’ og á hæð 5’ = 2040 ten. fet.
5. Sáð rótarávöxtum í sáðreiti, sem eruaðstærð c. 130 fer.faðm.
b.
1. Byggt fjárhús sem tekur rúmlega 70 fjár.
2. Lagt ytra-þak á 4 hlöður.
3. Lagt spón-þak á íbúðarhúsið, gcrt að gluggum í þvi o. fl.
4. Tekinn upp svörður, sem er þur 125 hestsburðir.
A skólanum voru í sumar 5 námssveinar. Tveir af
þeim fóru heim í haust að afloknu námi og tveir bættust
aptur við, svo nú eru í vetur 5 námssveinar, þó er einn
þeirra sem undirbúnings piltur og ætlar að byrja nám við
skólann a næstkomandi bausti. Útlit er fyrir að skólinn
verði vel sóttur eptirleiðis, þar sem 6 nýsveinar hafa sótt
um inntöku á næstkomandi vori. Ákveðið er að skólinn
skuli eptirleiðis vera i tveimur deildum og taka árlega 5
pilta, þannig að það sé 5 f hvorri deild. Næstkomandi ár
verða 4 námssveinar í eldri deild og tilvonandi 6 í þeirri
yngri, því fleiri verða að líkinduro ekki teknir sökuin rúm-
leysis á skólanuin, enda virðist 10 piltar bæfileg tala. meðan
Múlasýslur eru einar um skólann, mætti kalla að skólínn
væri þá vel sóttur ef sú nárassveinatala héldist við, sem
vonandi er, því ekki er kostnaðarsamt að vera á skólanum
þó efnalitlir piltar eigi 1 hlut, þegar því að líkindum verður
slegið föstu, að piltar þurfi ekki að leggja með sér annað en
vinnu sína. Síðan eg kom hingað vorið 1888 hafa piltar
ekki þurft að leggja með sér. Skólastjórnin hefir ekki séð
fært að ákveða neina meðgjöf, til þess að skólinn yrði betur
sóttur. J>etta gengur næst þvl að kaupa menn til að ganga
á skóla, en samt sem áður er það mín slcoðun, að piltaf
þeir sem læra á búnaðarskóluin og vinna á þeim alla vinnu
að sumrinu til, ættu ekki uð þurfa uð gefa með sér. Náms-