Óðinn - 01.07.1905, Qupperneq 4
28
ÓÐINN.
Bjarni Þorkelsson er fæddnr 1858 í Ásum í
Skaftártúngum, en fluttist þaðan á öðru ári að
Borg á Mýrum og ólst þar upp. Ilann er son-
ur síra Þorkels Eyjólfssonar, er prestur var á
Borg og síðar á Staðastað á Snæfellsnesi. Bjarni
lærði úngur söðlasmíði í Beykjavík, fór svo vest-
ur á Snæfellsnes og var verslunarmaður í Ólafs-
vík nokkur ár, en fjekkst þó alltaf við smíð-
ar öðru hvoru. Bátasmíðar hefur hann nú
stundað i 16 ár samfleytt,
fyrst í Ólafsvík vestra og
þar i grend, en siðan í
Beykjavík. Híngað flutti
hann fyrir 2 árum. Hann
hefur fundið upp nýtt lag á
bátum og reynt þar að sam-
eina það tvennt, að bátarnir
sjeu örskreiðir og' verji sig'
vel fyrir sjó. Hann hefur
leingi verið að breyta lil og
l>æta lagið, þar lil nú, að
hann er orðinn ánægður
með það, og hefur liann
ekkert breytt því siðustu áriu.
Ekki kveðst Bjarni vita, hve
marga báta hann hafi hyggt,
en hyggur þá vara
er hann ýmist hefur smiðað
að nýju, eða hyggt upp úr
eldri bátum. Hafa hátar
hans nú feingið orð á sig'
meðal sjómanna.
Vjelabátar voru fyrst not-
aðir á Ísafirði fyrir hjer um bil 4 árum. Þá
komu upp þángað báta-hreyfivjelar frá C. Möll-
erups verksmiðju í Khöfn og voru settar í gamla
fiskibáta sexróna, og gafst furðanlega. En vjel-
arnar og bátarnir áttu ekki saman. Vjelarátakið
kemur allt á einn stað og' þurfa því vjelabátar
að vera byggðir úr traustu efni og með öðru
lagi en seglhátar og róðrarbátar. Bjarni tók |)á
upp nýtt lag á vjelabátunum og hefur á síðustu
árum smiðað þá marga, því notkun vjelabáta
fer stórum vaxandi með hverju ári. Nú hefur
Bjarni 10 menn við smíðar hjer i Beykjavik og
hefur þó ekki undan að sinna pöntunum manna.
Nú siðastliðinn vetur hefur hann feingið verk-
smiðjuna til þess að breyta gerðinni á vjelum til
notkunar í báta, svo að þær eru auðveldari í
meðferð en áður var, hjer um bil V3 ljettari og
x/4 ódýrari en áður. Nýlega hefur útlendur mað-
ur, eigandi stórrar bátasmíðaverkstofu, feingið hjá
honum bátsliki, 5 feta lángt, til þess að sjá lag
og' verk.
Vjelarbáturinn, sem myndin s^'nir,
er 28 feta lángur milli skuta að ofan, en 22 fet
í kjöl og 8 feta breiður um miðju að ofan,
byggður úr eik og furu. í
hátnum er steinolíuhreyfi-
vjel með 4 hesta afli og veg-
ur lnin, með öllu, sem henni
fýlgir, 850 pd. Vjelin eyðir
á hröðustu ferð l8/*—2 pt.
af stei-noliu á klukkustund.
Verð á þessari vjel er 1100
kr. auk flutníngskostnaðar
frá Khöfn til íslands. Bát-
urinn l)er 20 tunna þúnga
auk vjelarinnar. Skriðhrað-
inn var mældur 28. apríl í
vor og reyndist svo, að hát-
urinn fór þrautalaust 2 míl-
ur danskar á kl.st. Snún-
íngshraði vjelarinnar var þá
130 snúníngar á mínútu, en
hæsti snúníngshraði, sem
hún getur náð, á að vera
500 snúníngar á mínútu.
Báturinn er smíðaður af
Bjarna Þorkelssyni ogereign
Björns Gislasonar útvegsm.
®r- Ka.i*l Kiioliler, íslandsvinurinn þýski, sem
margt hefur skrifaö unl ísl. bókmenntir og þýtt úr þeim
á þýska túngu, er nýlega kominn híngað til Reykjavikur
og ætlar aö feröast hjer um land í sumar.
Sigfús Einarsson tónskftld er nú nýkom-
inn híngað til bæjarins frá Khöfn. Meö honum er dönsk
saungkona, Valborg Hellemann, og hafa þau boðað hjer
til saungskemtunar. Á þessari saungskemtun ætlar frk.
V. H. að sýngja lög eftir Sigfús við íslenska texta og
kvað liún sýngja vel og bera vel fram íslensku. En saung
Sigfúsar þekkja menn hjer áður.