Óðinn - 01.07.1908, Blaðsíða 6

Óðinn - 01.07.1908, Blaðsíða 6
30 Jeg elska’ ’ana eina af trjánum þar uppi’ i Suðurmörk. ÓÐINN Hún geymir pað alt sem jeg elska og alt mitt vonasafn; á hana jeg hefl skorið mitt hjarta’, og pess kærsta nafn. Pólt heimurinn víða mig lireki, er hún samt kyr, sú björk, og geymir pað alt, sem jeg elska par uppi’ i Suðurmörk. Jónas Guðlangsson. Í20 ár lög'i'eglujjjóno. Þorvaldur Björnsson hefur nú verið 20 ár lögregluþjónn hjer í Reykjavík, varð það 1. júlí 1888 og lók þá við af Jóni Borgfirðingi. Það er ónæðissöm staða og hefur enginn enn eirt í henni jafnlengi og Þorvaldur. Ekki eru launin heldur há. Þorvaldur byrjaði með 48 kr. á mánuði. Síðan var kaupið hækkað upp í 600 kr. á ári; hefur því svo þokað smátt og smátt upp á við, þar til það er nú síðustu árin orðið 1200 kr. á ári. En dálitlar aukatekjur fyrir birtingar og vott- anir bæta það nokkuð upp. Starfstíminn er lang- ur. Lögregluþjónarnir taka við gæslunni af nætur- vörðunum kl. 7 á morgnana og hafa hana til kl. 10 á kvöldin. Lengi voru þeir ekki nema 2, en síðustu árin eru þeir orðnir 4. Þorvaldur er elstur þeirra, bæði í stöðunni og líka að árum; hann stendur nú á sextugu. En að útliti er liann eins og miðaldra maður, snar í hreyfingum og hraust- legur. Starfl sínu hefur liann altaf. gengt með dugnaði. Þorv. er fæddur 1848 á Stafafelli eystra, sonur síra Björns Þorvaldssonar, er þá var þar prestur, en síðan í Holti undir Eyjafjöllum, og fluttist Þor- valdur þangað með honum 14 ára gamall og var þar þangað til hann fór hingað suður 1882. Eitt ár var hann í latínuskólanum, en hætti svo námi. Hann var hjer fyrst við vegavinnu og ferðalög og er annálaður hestamaður. Kona Þorvaldar er Jórunn Sighvatsdóttir alþm. Árnasonar frá Eyvindarholti og giftust þau 1872. Nú í sumar sendu nokkrir kaupmenn hjer í Reykjavík Þorvaldi skjal og dálitla peningagjöf, sem þakklætisvott fyrir dugnað við lögreglustöríin. fORVALDUH BJÖRNSSON. Til Matthíasar Jochumístsouar. Iívæðið á 32. bls. er tekið úr »Den 17de Mai« frá 19. mars síðastl. Höfundur pess var hjer á ferð í fyrra og kyntist pá síra M. ,1. hjer í Rvík. Grein er einnig í blaðinu eftir A. H. um M. J. Kvæðið er á nýnorsku og munu flestir lesendur »Óðins« geta komist að hugsun- inni i pvi án pýðingar. A. Ilovden cr höfundur ljóðsögunnar »Bóndinn«, sem D. Ostlund gaf hjer út í vetur sem leið í pýðingu eftir sira M. J.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.