Óðinn - 01.06.1909, Page 1
OÐINN
:í. blau
JUNI 1»0«.
V. AR
Einar Helg’ason
ga r ð y rk j u fr æ ð i n gu r
og gróðrarstöðin í Reyk.iavík.
Þeir, sem koma til Reykjavíkur utan af landi
uin sumartímann, ættu engir að láta hjá líða að
skoða gróðrarstöðina sunnan við bæinn. Það er
fallegur blettur og einstak-
ur hjer á landi, þegar
alt er þar í blóma. Hún
er sunnan í Skólavörðu-
hæðinni, vestan við »Gull-
mýrina«, sem svo er nú
kölluð á siðustu árum, í
lialla mót suðvestri. Neðst
eru sáðreitir og jarðávaxta-
garðar, en ofar trjáraðir,
runnar ogblómabeð. Trjen
eru þó enn í æsku, því
ekki eru nema 9 ár síðan
gróðrartilraunir voru byrj-
aðar þarna.
Gróðrarstöðin er eign
Rúnaðarljelags íslands. En
verk Einars Helgasonar
garðyrkjufræðings er hún,
og hefur hann verið um-
sjónarmaður hennar frá
því hún var ^stofnuð og
ráðið allri tilhögun þar.
Einar Helgason er fædd-
ur 25. júní 1867 á Krists-
nesi í Garðsárdal í Eyja-
firði. Foreldrar hans eru
bæði á lífi og nú hjá honum hjer í Reykjavík.
Hann var fyrst settur til náms hjá Guðmundi
Hjaltasyni í tvo vetur, fyrri veturinn í Laufási, en
hinn síðari á Akureyri. Þar næst var hann á
Eiðaskólanum í tvö ár, 1885—87. Eftir það var
hann ráðinn umferðabúfræðingur í Eyjafjarðar-
sýslu tvö næstu vor, var þá í Siglufirði, Olafsfirði,
og víðar. Til Reykjavíkur kom hann fyrst 1890
og var þá um vorið við garðrækt hjá Schierbeck
landlækni og aftur var hann hjer voiáð 1894, og þá
meðal annars hjá Tr. Gunnarssyni bankastjóra við
Þinghúsgarðinn, er hann var bygður. Haustið
eftir sigldi Einar á garðyrkjuskóla í Vilvorde í
Charlottenlund, skamt frá Kaupmannahöfn, og var
þar til vors 1897. Á þeim tíma fór hanti í sum-
arleyfi um Jótlandsheiðar með styrk frá Land-
búnaðarfjelaginu danska.
Vorið og haustið 1897 var
hann við gróðrarstöðina í
Askóv á Jótlandi, en um
sumarið ferðaðist hann um
Svíþjóð, til þess að kynn-
ast jarðrækt í Norðurbotn-
um, og var þá á landbún-
aðarsýningu í Stokkhólmi.
En veturinn eftir, 1898,
kom hann heim og var
þá ráðinn í þjónustu Bún-
aðarfjelags Suðuramtsins.
Hjá því, eða Búnaðarfje-
lagi íslands, þvi svo heitir
það nú, liefur hann starf-
að síðan. Veturinn 1898
—99 var hann aftur við
nám ytra og las þá jarð-
ræktarfræði við Landbún-
aðarháskólann í Kaup-
mannahöfn.
Einar hefur verið ráða-
naulur Búnaðarfjel. í gróð-
urrækt alla tíð, síðan hann
rjeðst til þess, og hefur
verið í ferðum fyrir fjelag-
ið um landið oft á sumrum. Nú i sumar verður
hann um tíma í Orkneyjum og Skotlandi, í erind-
um fyrir fjelagið. En aðalstarf hans er þó bundið
við gróðrarstöðina hjer, og er það svo gott og
þjóðnauðsynlegt starf, sem þar er unnið, að þess
manns, sem á nafn sitt fast tengt við það, bæði
stofnun gróðrarstöðvarinnar og þroska liennar
fyrstu árin, — hans verður_ minst bæði _vel og
Elnar Helgason garðyrkjufræðingur.