Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 4

Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 4
92 Ó Ð I N N líu; við fenguni sæti á hápallinum ekki langt frá organinu; svo tröllaulmar eru undirraddirnar í þessu regin-liljóðfæri, að þegar þeim var beitt, fundum við bekkinn nötra undir okkur. En ekki er þelta organ að því skapi fagurróma, sem það er raddmikið, enda er því líkast, sem ginnunga- gap hallarinnar svolgri í sig allan sönginn, bæði raddsöng og hljóðfærasöng1. í Lundúnum er önnur fræg sönghöll, sem heitir Queen’s Hall; hún er minni, rúmar 3000 manns; en þar nýtur allur söngur sín miklu betur; um þá höll hefur skáldið Einar Benediktsson orld eitt af ágætustu kvæðum sínum (»í Dísarliöll«). ___________ G. B. 1) fó hefur geysimikil slæöa verið hengd upp neö- an á þakhvelfinguna til hljónibætis; pessi slæöa vegur 1500 pund. María prinsessa. Myndin, sem hjer fylgir, er af Maríu prinsessu, er andaðist í Kaup- mannahöfn 4. des. síðastliðinn, konu Valdemars prins, yngsla sonar Kristjáns konungs IX. María prinsessa hjet fullu nafni Marie Amelie Franfoise Helene og var fædd 13. januar 1865, af Or- leansættinni frönsku, dóttir Róberts hertoga af Chatres og Fran^oise prin- sessu af Orleans, en Ilóbert hertogi af Chatres var sonarsonur Loðviks Filippusar konungs. Þau Valdemar prins giftust 23. okt. 1885. María prinsessa var kaþólsk, og var svo áskilið, er þau giftust, að synir þeirra skyldu alast upp í lútherskri trú, en dætur þeirra i kaþólskri trú. María prinsessa var mjög vel látin í Danmörku. Hún lærði íljótt bæði að tala og rita dönsku íullkomlega. Mörg íyrirtæki liefur hún stuttí Dan- mörku.bæði líknarfyrirtæki og fleira, og aflaði það henni vinsælda. Hún hafði lært málaralist ogstundaði hana altaí mikið; voru málverk eftir hana eigi sjaldan á opinberum sýningum í Kaupmannahöfn. Vífllstaðahellir. í Hafnarfjarðarhrauni, skamt frá Vífdstöðum, eru hellar tveir, vel manngengir og all- djúpur annar þeirra. Peir ganga báðir út úr einni kvos í hrauninu og hafa Vífdstaðabændur jafnan liafl þá fyrir beitarhús. Pegar Thodd stiftamtmaður bjó á Bessastöðum, ljet hann gera sáðreit þar sem heitir Sjóbúðarflöt, og hafði til áburðar tað úr Vífdstaðahelli; ijet liann aka því á sleðum á vetrum, þegar snjólög voru og ísar, og gaf 4 skildinga fyrir sleðann. Hann sáði byggi, baunum og kúmeni í akur sinn, og er svo sagt, að hann hafi haft með sjer bygg af akrinum til alþingis og gætt lögrjettu- mönnum á íslenskum bygggraut. Petta er sögn Páls Melstcðs, en honum sagði Ingi- björg Jónsdóttir, systir Gríms amtmanns; hún var gift Porgrimi gullsmið á Bessastöðum; þcirra sonur var Grímur skáld Thomsen. G. B. . María prinsessa

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.