Óðinn - 01.03.1910, Qupperneq 6

Óðinn - 01.03.1910, Qupperneq 6
94 () Ð I N N Sitt af hverju. Ljóðmæl i eftir Sigurjón Friðjónsson. Kalda-Kinn. tíerst mjer enn frá Köldu-Kinn kvikur vatna glaumur. ítök mörg í anda minn á sá þungi straumur. Insl mjer festi í unga sál óm frá strengjum þínum. Og hœða þinna huliðsmál liuga tengdist mínum. Pegni lík, er þjóðir flýr og þrá og harma duldi: Ekkaþungi undir býr, ofar þögn og kuldi. Jökul-hjarn við himinbug heyir kuldagaman; neðar hrönn og liengi-fhig hafa gœlur saman. — Oft af snild þú vígi ver, völd hvers fjanda þrotna: Öldur lofts og lagar þjer leggjast að og brotna. Alt, sem komst þinn efsta stig, óm af hœðum sótti. Alt, sem stígur yfir þig, eykst að stœrð og þrótti. Auðnir vetrar, ógnir jels, alt í söng þjer hnígur. Úr baði hverju hríða’ og hels hrein á svip þú stigur. Eins og bíðir auðnuþyrst eftir degi’, er hlýnar, björtum morgni fagna fyrst fjalla-brúnir þínar. — Pegar hríð þig lirammi slœr og herðir strengja-róminn, man jeg: áltu tíðir tvœr og tök að skifta um hljóminn. Sól og blær úr mjúkri moltl mörg þjer gullin unnu. Sjaldan lia/a frjórri fold faðmað geislar sunnu. Enginn hreinni geisla-glóð grœnum trygði hlíðum. Enginn flutti fegri Ijóð fjallablœvi þýðum. Enginn fegri orða slað á við kvöldið rauða. — Fár af líkri kyngi kvað kvœði lifs og dauða. Morgunsól. Rennur sól frá sœvi; sveit í skini Ijómar. Blær í laufi leikur. Ljóð í runni hljómar. Elfur Kinnar óma, undir björgin laka. Glóir á og glymur: Gott er nú að vaka. Yfir Tjörness teigum tindrar sól og rennur, kastar neista í Krákinn, Kinnar veldi brennur. Glait er fram í gljúfrum, glymja slrengir Braga. Rennur sól og rennur, roðar grœna haga. Veðrabrigði. Sól skein. Sá til ránar. Sund hló. Kyr jeg undi. Ljóð óx. Lyftist flœði. Ljek önd. Rauk á söndum. Hjörð rann. Hlíðar brunnu. Hó barst. Glóði skógur. Foss lxnje. — Fátt jeg vissi. Fugl söng. — Kvað í dröngum. Stund leið. Slyrmdi' um tinda. Storð brá. Tók í sjáinn. Ský þaut. Skygði’ nm bœi. Skjól þvarr. Ljet í kjarri. Hríð kom. Hátt slje ftœði.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.