Óðinn - 01.05.1917, Page 2

Óðinn - 01.05.1917, Page 2
10 ÓÐINN fullkomnar, að fullnaðarályklanir væru fengnar um þau efni, sem rannsóknunum var ætlað að leysa iir. — Ásgeir heitinn var einkar vinsæll og vel látinn af skólabræðrum sínum og öðrum þeim, sem kyntust honuin. Róleg glaðværð var yfir höf- uð sá eiginleiki, sem mest bar á hjá honum. Er mikil eftirsjá að fráfalli hans á svo ungum aldri. . . . « Ýmsar rilgerðir eru eftir Ásgeir heitinn í Rún- aðarritinu og Ársriti Verkfr.fjel. ísl. 1907 kvæntist hann Önnu Louise Ásmundsdótt- ur, cand. phil. Sveinssonar, og lifir hún mann sinn ásamt þrem hörnum. H Sumardagur, Um gróin tún og grænan mó með gleðisöngum leika börn. í svörtu gljúfri sest á tó við silungsána sterkur örn. | : Úr lofti háu sjer lieiðló slingur i hraunið lága og glaðvært syngur. En spóinn vellur í kringum kot, og kjóinn gellur um engi vot : | Úr fjallasölum fossalög í fjarska heyrast óma þungt. Og ylurinn um daladrög af dvala vekur blómið ungt. | : En jöklar háir til himins stara svo hjelugráir sem vetrarmara, því geislaöldur frá sumarsól þeir sviítu völdum um jökulstól. : | Af hafi andar hlíður blær. Og broshýr sól í austri rís. Við íslands strendur syngur sær: Nú sumar er í Paradís. | : Það blika logar á brúnatindum, og bláir vogarnir ná þeim myndum, er sumardrotningin sigurfríð með silfurböndunum leggur hlíð. : | Hallgr. Jónsson. Sl t Frú Póra Thoroddsen. Hinn 22. mars andaðist frú Póra Tlioroddsen hjer í Kaupmannahöfn. Hún var mesta merk- iskona og er skylt að minnast liennar. Væri leitl ef færi nú eins og farið hefur áður, er íslenskar merkiskonur hafa andast hjer við Eyrarsund. ís- lensku blöðin hafa stuttlega getið um fráfall þeirra og lofað meiru siðar, en ekkert hefur orðið af því. Hefur því miður líka farið oft á þá leið, er merkismenn, konur sem karlar, hafa fallið frá á íslandi, eins og blöð vor bera vitni um bæði fyr og síðar. Frú Þóra var af góðu bergi brotin, dóttir Pjet- nrs biskups Pjeturssonar, er var merkastur allra biskupa á íslandi síðan þeir feðgar Finnur Jóns- son og Hannes sonur hans fjellu frá. Móðir henn- ar var Sigríðnr Bogadóttir Benediklssonar á Stað- arfelli, mesta dugnaðarkona, híbýlaprúð og ágæt liúsmóðir og móðir. Þóra var fædd 10. október 1847 að Staðarstað á Snæfellsnesi, þar sem faðir hennar var prestur. Hann hafði þá fengið for- slöðumannsembætlið fyrir prestaskólanum, sem þá var verið að koma á stofn, og fór hann því uin haustið til Reykjavíkur og selli þar prestaskólann 2. október. Sumarið eftir llutti dr. Pjetur fjölskyldu sína til Reykjavíkur. Frú Þóra ólst upp hjá foreldrum sínurn og fekk þegar á unga aldri óvenjulega mikla mentun, eftir því sem þá gerðist. Móðir hennar ljet hana læra alt, sem hússljórn snerli, bæði tóvinnu og matar- gerð, eigi siður en saumaskap og hannyrðir, eða bóklega mentun, tungumál og hljóðfæraslátt. Þegar faðir hennar varð biskup og fór utan til að sækja biskupsvígslu 1866, sigldi hún með foreldrum sín- um og kyntist þá fjölskyldu Martensens Sjálands- biskups og mörgu öðru heldra fólki í Kaup- mannahöfn; hjelt hún vinfengi við sumt af því jafnan síðan. Nokkrum árum síðar (um 1872) fór frú Þóra aftur til Hafnar og dvaldi þar nálega tvö ár. Þá lærði hún að mála hjá hinurn fræga málara Vilhelm Kghn. Hún var frá æsku hneigð fyrir teiknun og málverk, og eru til eftir hana margar myndir, meðal annars stór mynd af Þingvöllum, sem var á Kvennasýningunni í Kaupmannahöfn 1895, og vakti þar almenna athygli, þar á meðal Kristjáns konungs níunda. Hún kendi eflir heim- komu sína frá Kaupmannahöfn mörgum teiknun

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.