Óðinn - 01.05.1917, Side 4
12
ÓÐINN
Þessi mynd er af minnismerki Malth. Jochumssonar
skálds, sem Akureyrarbúar reistu á áttræöisafmæli hans
liaustið 1915. Likneskið er gert af Ríkarði Jónssyni.
til að rannsaka fornar hannyrðir. Með manni sín-
um ferðaðist hún um Noreg og Svíþjóð, Þýskaland,
Sviss og Frakkland, England og Skotland, og
skoðaði þar í fjölda mörguin dómkirkjum og
öðrum gömlum kirkjum kirkjuskrúða, og útsaum
á söfnum í Berlín, Núrnberg, París og London.
Hún safnaði allmiklu efni uin þella og hafði í
huga að rita nákvæma bók um það, en af því
varð ekki sökum veikinda. Vorið 1903 varð hún
fyrir þeirri sorg að missa Sigríði dóttur sína 15
ára gamla, efnisbarn og meslu gæðastúlku. Pelta
fjekk mikið á móðurina, og nokkru eftir það lók
heilsa hennar smátt og smátt að bila. Annars
hefur frú Þóra ritað margar blaðagreinir, bæði í
íslensk blöð og dönsk.
Þegar heilsan tók að bila, fór líka hið mikla
fjör að minka. Fimm eða sex síðustu árin var
frú Póra mjög sjaldan frisk og lá þá margar
þungar legur. í september 1916 veiktisl hún hættu-
lega af lungnabólgu, en batnaði þó aftur, en þá
bæltust við aðrir sjúkdómar, og líkaminn, sem
var veiklaður áður, þoldi þá ekki. Eflir hálfs árs
þjáningar fjekk hún blítt andlát.
Frú Póra Thoroddsen var grafin 28. mars frá
syðri kapellunni í Fasankirkjugarði hjá dóttur
sinni. Sjera Haukur Gíslason hjelt ræðu og vin-
kona hennar ein, söngkonan Thora Keller, söng
kveðju í kapellunni. Vinir og kunningjar, bæði
íslenskir og danskir, fylgdu henni. Við gröfina
voru sungin 3 vers af »Alt eins og blómslrið eina«.
Kaupmannahöfn 29. mars 1917.
Bogi Th. Melsled.
Professor Harald Krabbe
dó 25. apríl síðaslliðinn, 86 ára gamall. Oss ís-
lendingum er skylt að minnast hans með þakk-
látssemi fyrir margra hluta sakir.
Hann lagði í fyrstu stund á læknisfræði, og á-
vann sjer doktorsnafnbót í henni, en árið 1863
tókst hann á hendur rannsóknarferð til íslands í
því skyni að ráða sullaveikisgáluna til fulls. Mönn-
um var þá nýlega orðið kunnugt að sullaveiki
í skepnum stafar af sullabandorminum (tænda
cchinococcus) í hundum, en hitt var ósannað,
hvort sama bandormstegundin væri veikinni vald-
andi í mönnum. Af ferð hans varð góður árangur;
Professor Harald Krabhe.
hann sannaði þetta tvent, að sullaveiki manna og
dýra er sama eðlis, og eins hitt, að fsullaveiki