Óðinn - 01.09.1919, Page 2

Óðinn - 01.09.1919, Page 2
42 ÓÐINN en flestir aðrir, sjer i lagi vor og sumar. Fyrir þessar sakir hafði Geir hinar mestu mætur á Jóni, og vildi fyrir engan mun láta hann frá sjer fara. Jón þótti vera ágætur sjómaður, ráðsvinnur og ákveðinn, manna skjótastur að sjá, hvað best hent- aði, og áræðinn eftir því, fámáll lengstum og jafn- lyndur, og breytti lítt skapi, hvað sem að höndum bar; var hann því mjög vel til yfirmanns fallinn, enda vinsæll af hásetum sínum, og voru þeir margir bjá honum árum saman, einkum þeir, er heldur kusu hálfdrætti en kaup og »premíu«. En sagður var hann nokkuð strangur við stýrimenn sína, og hentast þótti, að þeir brigðu eigi tii muna út af fyrirmælum hans. Árið 1905 eða 1906 var fiskiveiðafjelagið »Alli- ance« stofnað i Rvík, og var Jón, að því er jeg hygg, hvatamaður þess fyrirtækis. Voru stofnendur allir skipstjórar, að Thor Jensen kaupmanni undan- skildum. — Nú getur nálega hver sem vill stofnað botnvörpufjelag og fengið fje til, en fyrir 10—12 árum var það ekkert auðveldisverk. Botnvörpunga- útgerð mátti heita óþekt hjer á landi, og það, er reynt hafði verið í því efni, mjög gert af rasanda ráði, enda þótti sýnt, að botnvörpungaútgerð væri eigi íslendinga meðfæri, þótt allir mættu sjá, að erlendir fiskimenn mokuðu upp afla á fiskimið- um vorum. í annan stað var hvergi nærri að þvi hlaupið, að fá fje til botnvörpungskaupa, og er það til marks, að þá er þeim fjelögum hafði tekist að pína út 15 þúsund kr. lán í Landsbankanum til fyrirtækis þessa, mælti annar gæslustjórinn; »t*essa peninga sjáum við aldrei framar«. En eigi hefur spá hins vísa gæslustjóra rætst, sem betur fór, og í ársbyrjun 1907 kom hingað »Jón Forseti«, fyrsti botnvörpungurinn, sem smið- aður var handa íslendingum, og hefur fjelagið siðan dafnað mætavel, enda mun langt síðan það borgaði krónurnar, sem gæslustjórinn spáði svo hraklega fyrir. Hefur Jón og fjelagar hans fært landsbúum heim sanninn um, að græða megi á botnvörpungaútgerð, og eiga þvi allir, og eigi síst hvatamaðurinn, þakkir skilið fyrir að hafa þorað að leggja fram »vit og strit« og fje, til þess að hrinda þessu þjóðnytjafyrirtæki af stað. Hafa þeir með því svift sloðunum undan ýmsum fornum kenningum og hjegiljum um fátækt íslendinga og getuleysi, er allar höfðu alist upp og magnast á margra alda sulti og kúgun landslýðsins. Jón Ólafsson hefur verið í stjórn »Alliance« síðan fjelagið var stofnað, og árið 1911 hætti hann sjó- mensku með öllu og gerðist nokkru siðar fram- kvæmdarstjóri fjelagsins, og hefur verið það síðan. Störf Jóns eru eðlilega einkum tengd við sjóinn og sjávarútveginn. Hefur hann verið í hafnarnefnd, í stjórn Fiskifjelags íslands, Öldunnar, hlutafje- lagsins Kol og Salt, Bræðings o. fl. fjelaga. Bæjar- málefni, að öðru leyti, hefur hann og látið til sín taka; var lengi í niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur, og nú bæjarfulltrúi síðast. Hins vegar hefur hann ekki allmjög látið taka til sín landsmálin, en af viðræðum verður þess skjótt vart, að einnig þessi mál hefur hann hugsað mikið, og eindregið fylt flokk þeirra manna, er fyrst vildu gera hina íslensku þjóð efnalega sjálfstæða, áður en hin póliliska sjálfstæðisbarátta væri hafin fyrir alvöru. Fyrir því hefur honum fundist sem hinir áköfustu sjálfstæðismenn færu mjög geistir og rasandi, og sýnist oss hinum eldri mönnum, sumum að minsta kosti, sem þar hafi hann að vísu haft mikið til síns máls, því að víst mun það mála sannast, að lítið verði úr pólitisku sjálfstæði þeirrar þjóðar, sem ekki getur staðið á eigin fótum efnalega; og sje það satt, að þjóðunum sje svipað farið og ein- staklingunum, þá mun Jón hafa rjelt fyrir sjer í þessu, enda mun það ekki nauða-algengt, að fult persónulegt frelsi eigi samleið með algerðu efna- leysi. Jón er maður hæglátur og orðfár löngum, nokkuð seintekinn og enginn flysjungur, kapp- samur og fylginn sjer um áhugamál sín og þá lítt væginn slundum þeim, er i móti standa, en þó jafnan stiltur; gerhugull á alt það, er hann fæst við, vinfastur og tillögugóður, og þykir gott til hans ráða að leita. Hann er maður mjög vinsæll og nýtur almenns trausts og virðingar allra, er þekkja hann. Hann kvæntist 1904 í*óru Halldórs- dóttur frá Miðhrauni í Miklaholtshreppi, og eiga þau fjögur börn. Eru þau hjón mjög gestrisin og góð heim að sækja, og ber því margan gest að garði. Þau eru og hjálpsöm við fátæka og miðla óspart af efnum þeim, er þau hafa aflað sjer með atorku og hagsýni. Ættum við marga slíka menn, sem Jón Ólafsson er, mundi margl fara öðruvísi og betur á þessu landi, en nú gerist. Sveitabóndi. SL

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.