Reykjavík - 09.06.1906, Blaðsíða 2
98
REYKJAVÍK
Enn einn snoppungui- á það geggjaða
blað.
Báðar „Ekstrablads“-gremarnar eru til
sýnis hjá oss hverjum, sem sjá vill.
Heimsendanna milli.
Danmörk. Því höfðu menn al-
ment við búist, að stjórnliðum mundi
fækka nokkuð á þingi, svo að sá
flokkur („Reformpartiet") yrði þar ekki
í meirihluta lengur, enda var meirihluti
hans af skornum skamti þegar fyrir
kosningarnar — eitt atkvæði á þing-
mannabekkjunum um helming fram.
-— Þetta hefir og ræzt; þeim fækk-
aði svo, að ekki urðu nema 55 kosnir
af þeirra flokki; en víst er talið að
Reventlov greifi, sem er hægri mað-
ur, en hefir síðustu árin kallað sig
vinstri mann, en þó staðið „á báðum
áttum“ utan flokka, muni nú ganga
í stjórnarflokkinn, og yrði þeir þá 56.
Svo er ófrétt úr Færeyjum. Verði
Jóanes Patursson kosinn þar, þá verða
stjórnliðar 57, eða réttur helmingur
þjóðþingismanna.
Þá höfðu flestir búist við, að „rót-
nemum* (Radikale, eða: Folketingets
Venstre) mundi fjölga eitthvað; þeir
vóru 13 (og 2 flokkleysingjar, er með
greiddu þó jafnan atkvæði —• þeir
Deuntzer og Trier); en þeim fækkaði
um 4, svo að nú eru þeir að eins 9,
eða 11, ef D. og Tr. eru taldir með.
— Sósíaiistar höfðu áður 16 þing-
menn, en hafa nú 24; mega þeir
þakka þá aukningu nær eingöngu
fylgi rótnema. — Hægri manna þing-
mönnum hefir fjölgað um tvo, en
hóglætismanna („Moderate," sem ekki
eru „miðlunarmenn") fækkað um 3.
— Hóglætismenn muúu styðja stjórn-
ina (en ekki þiggja ráðgjafasæti) og
eins hægri menn. Stjórnin verður
því við vöid, óhreytt iíkl. að mestu,
en veik og máttvana — lifir á náð
hægri manna og hóglætismanna.
Svíþjóð. Þar fóru svo kosning-
ar síðast, að vinstri menn urðu í
meiri hlut talsverðum í neðri mál-
stofu. Staaff forsætisráðherra lagði
fyrir þmgið frv. til rýmkunar á inum
ófrjálslegu kosningarlögum (almennan
kosningarrétt), sem n. d. samþykti
með miklum atkvæðamun, en e. d.
feildi. Staaff heimtaði þá að konung-
ur ryfi þing, svo að þjóðin gæti skorið
úr miili málstofanna (kosn. frv. hafði
ekki verið það mál, er kosningarnar
ultu á), og vænti hann að þjóðin
sýnai vilja sinn með því að kjósa
vinstri menn, er frumvarpinu fylgdu,
í meiri hluta á ný. En konungur
neitaði, og sagði þá ráðaneytið af sér
völdum. Konungur gat enga fengið
af meirihluta mönnum til að mynda
ráðaneyti, og tók svo hægrimanna-
ráðaneyti (Lindmann fors.ráðh.), og
við það hafin barátta miili konungs-
valds og aðalsmanna og annara hægri-
manna á aðra hlið, og mikils meiri
hluta þjóðarinnar á hina. Verður það
varla Bernadotte-ættinni til farsældar
né frama.
Ilenrik Ibsen, einna víðfrægasta
skáld heimsins, sem nú var uppi, dó
23. f. m. í Kristianíu. Hann var
fæddur 20. Marz 1828 i Skien. Út-
för hans var gerð á kostnað ríkisins,
og fylgdi m. a. Hákon konungur
honum tii moldar.
N. J. Slmonsen, einn af frægustu
söngmönnum Dana, er nýdáinn.
(Meira næst).
Landshornanna milli.
—:o:—
Grindawik, 6. Júní. — Hr. ritstj. —
Nú eru lík þeirra 5 manna, sem ch-ukknuðu
hér 14. Apríl, öll fundin; fundust tvö á
þriðja í Páskum, og eitt á Eöstudagskvöldið
fyrir Hvitasunnu, en ið síðasta í dag. Lfk
formannsins rak upp þegar, eins og áður
er frá skýrt. Þau tvö, sem rak á þriðja
í Páskum, vóru Jóns sál á Hópi, og Sigur-
björns sál frá Syðri-Gróf, ósködduð að öllu
leyti. Yóru pau jarðsungin að Stað þann
22. f. m.
Þessi tvö, sem ný-rekin eru, vóru, sem
vænta má eftir svo langan tíma tíma, mjög
sködduð, einkum ið síðara, (Guðlaugs sál.),
þar sem þau eru búin að hrekjast innan
um brim og boða í 7—8 vikur. Verða
þessar leifar væntanlega jarðsettar næstk.
Sunnudag.
Litlu munaði, að hér yrði annað slysið
til og það miklu stórkostlegra 14. f. m.
Aðfaramóttina var suðaustan stormur, og
sjógangur, en gekk með morgninum til út-
suðurs með hroða-sjó og stormi; sléttlygndi
svo um miðjan dag. Reru þá sex smá-
bátar frá Þórkötlustöðum og Hrauni, 4 og
5 manna för. Þegar þeir vóru komnir í
djúp-fiskileitir og vóru búnir að leggja lóð-
irnar, gerði afspyrnu-rok á norðvestan, svo
að sjórinn rauk eins Og lausa-mjöll upp i
landsteinum, en það stóð þó ekki nema
stutta stund; náðu svo 4 bátarnir landi
um kvöldið, oftir mikla vosbúð og erfiðan
barning, en tveir hröktust mikið af nótt-
inni, en náðu þó heim undir morgun, ann-
ar sóttur á skipi frá landi; sama var gert
við einn af þeim sem um kvöldið náðu
heim. Auðvitað vóru þeir taldir af, sem
ekki náðu lendingu um kröldið.
Það þarf engum getum um það að leiða,
hvað orðið hefði ef veðrið hefði haldist
eins og það byrjaði, þvi að þá er vafa-
laust að engin smábátur hefði af borið, jafn-
slæmur og sjórinn var; má því nærri geta
um tilfinningar ástvinanna í landi þegar
ofviðrið skall á, og engin hjálparvon sást,
en ég leiði hjá mér að lýsa þeim hér. En
hitt er víst, að á þeirri stundu hafa marg-
víslegar tilfinningar gert vart við sig i
brjóstum flestra hreppsbúa, eins þeirra sem
engan nákominn ástvin áttu þar innan
borðs, þvi að það var gefið, að hefðu allir
þessir bátar farist með milli 20og30 manns,
og þar á meðal milli 10 og 20 heimilisfeð-
ur og dugandi bændur, og hitt upprenn-
andi ungir dugnaðarmenn margir hverjir,
þá hefði verið höggið svo stórt skarð i
þetta fámenna sveitarfélag, að seint hefði
íylt orðið, og þótt nú ekki hefði meira að
oi-ðið en að þessir 2 bátar, sem vóru að
hrekjast um nóttina, hefðu farist, þá hefði
það þó ekki verið alllitill hluti af kröftum
þessa fámenna bygðarlags, enda munu
flestir hugsandi menn hér hafa haft órólega
og svefnlitla nótt; en forsjóninni séu þakkir
að þeir allir komust heilir uð landi, þótt
með lúnat- hendur væri.
Virðingarfylst
Erl. Oddsson.
Hf*. Jósef Jónsson á Melum í Hrúta-
firði kom hér fyrir hátíðiua og sagði ís að
eins vestan megin á Húnaflóa. Skip ný-
komið á Blönduós. Gróður farinn að
koma eftir öllum vonum, og fellir naum-
ast neinstaðar þar um slóðir.
I Borgarfirði er kominn gróður all-
góður, og enginn fellir að kalla þar, utan
vanhöld á lömbum um sauðburðinn.
Reykjavík og grend.
Fæðingardag konungs vors bar
í ár upp á 1. dag Hvítasunnu, en
það mun hafa þótt vanhelgun Hvíta-
sunnudagsins að hafa þá opinbert
samsæti til að minnast konungsaf-
mælisins, og var því svo frestað til
næsta dags, 2. í Hvítasunnu. Þá
gengust ýmsir málsmetandi bæjar-
búar fyrir samsæti í þess minningu.
Yóru það fram undir 80 manns, er
sátu þar miðdegisverð. Bæjarfógeti
bauð gesti velkomna í nafni forstöðu-
nefndarinnar. Ráðherrann mælti fyrir
skál konungs vors. Mintist þess, að
við fráfall Kristjáns 9. hefði ísland
mist þann ástsælasta konung, er það
hefði átt, og mundi flestir hafa hugs-
að, að hans jafnoka, mættum vér
lengi biða að velvild við þetta land
og umönnun fyrir velfarnan þess. En
hann kvað sig hafa stórum furðað,
að heyra í viðræðum við Friðrik 8.,
hve kunnugur hann væri mönnum
og málefnum á íslandi, og hefði auð-
heyrt verið, að hann hefði kynt sér
þetta áður en hann kom til ríkis.
Og þess kvaðsthann hafa orðið áskynja,
að konungur vor hefði mjög sterkan
hug á að kynnast landi voru og koma
hingað upp til lands, og það væri
víst, að hann hugsaði til að vinna sér
sömu ástsæld af oss, sínum íslenzku
þegnum, eins og faðir hans. Því
mættum vér treysta því, að vér mætt-
um alls góðs af honum vænta. Heim-
boð konungs til Alþingismanna, sem
væri fyrst í hans huga upp runnið,
væri vottur um þennan hug konungs.
Óskaði hann, að Friðrik konungur 8.
mætti ávinna sér með verðleikum
sömu ástsæld sem faðir hans. Var
skálin drukkinn eftir húrrahróp. —
Séra Þórhallur mælti fyrir íslands
minni, Havsteen amtmaður Danmerk-
ur, yfirforinginn á „Heklu" Alþingis.
Enginn var þar þeirra manna af um-
skiftingaflokknum, sem vanir eru að
hafa hátt um sig, nema séra Ólafur
Ólafsson. Hefir svo jafnan verið síðan
vér fengum heimastjórn.
10 af foringjum herskipanna „ls-
lands Falk“ og „Hekla" vóru boðs-
gestir ráðherrans í samsæti þessu.
Hr. Jón J*órariiisson kennari í
Flensborg fór vestur á land með>
Skálholti í kennslumála-erindum.
Brennivargur. Aðfaranótt Hvíta-
sunnu var kveikt í húsi nr. 1 á Grett-
isgötu. Hanson kaupmaður, sem nú
er á ferð til útlanda, á hálft húsið
og hefir rekið verzlun í vesturenda
hússins, en nú var búðin læst í fjar-
veru hans, og geymdi verzlunarum-
boðsmaður Nielsen Jyklana. Þessa
nótt svaf stúlka, sem annars sefur
uppi, niðri í húsinu í herbergi nærri
búðinni. Á 4. stund vaknaði hún við
við megna reýkjarstibbu, og varð
þess þá vart, að eldur var í búðinni;
vóru þar einar 5—6 spónahrúgur, er
að var komið, og heit steinolíu í, og
steinolíu helt á alla veggi og á varn-
ingsst.ranga í hillunum. Eldurinn var
þó ekki mjög magnaður og varð slökt-
ur áður en slökkviliðið kom að. Ef
dregist hefði nokkuð að mun, að vart
yrði við eldinn, er hætt við að fólkið
í húsinu hefði brunnið inni, með því
að það var alt uppi annað en stúlkan.
Óskandi væri, að hefðist upp á
brennivarginum, því að slíkt athæfi
er farið að tíðkast hér of mjög. Vá-
tryggingargjald hefir verið hækkað
óhæfilega hér í bæ fyrir þær sakir.
Hjúskapur. í fyrra dag gaf bæjar-
fógeti ungfreyju Ellen Johannessen
og spítalalækni Matthías Einarsson
saman í borgaralegt hjónaband. —
í gær gaf aðstoðarpr. dómkyrkju-
prestsins ungfr. Jónu Björnsdóttur
(kaupm. Kristjánssonar) og kaupm.
Fanoe í hjónaband. — í dag gefur
dómkyrkjupresturinn ungfr. Guðrúnu
Kristjánsdóttur (kaupm. Þorgríms-
sonaij og verzl.m. Hans Hoffmann
í hjónaband.
Skipakomur. „Kong Trygve"
(Emil Nielsen) kom hingað frá út-
löndum 6. þ. m. fullfermdur vörum
og um 50 farþegar, þar á meðal:
Sveinn Sigfússon kaupm. og frú
hans. L. Fanö, daftskur verzl.umb.-
maður (agent). Jón Hjaltalín Sigurðs-
son læknir. Jón Jóhannesson Zoega
snikkari. Stúdentarnir: Guðmundur
Ólafsson. Gunnar Egilsson og Bogi
Brynjólfsson. Frú Ragnh. EyjóJfsd.
(Þorkelssonar). Ungfreyjurnar: Mar-
grét Ólafsdóttir. Valgerður Þórðar-
dóttir og Herdís Jóhannesd. (Péturs-
sonar kaupm. á ísaf.). M. Jeppesen
danskur skraddari með konu og 2
börn. Þá komu einnig 30 menn til
Generalstaben og fyrir þeim Kapt.
Hammershoj og 5 Danir aðrir.
„Laura44 kom einnig hingað 6. þ.m.
Aukaskipfrá „Samein. Eimsk.fél." kom
næsta morgun („Esbjærg"). Von á
aukaskipi (Clara") frá Thore-fél. á
morgun eða svo. Var komið til Leith,
er „Kong Trygve" fór þaðan, en á
að koma við á Stokkseyri. Með ,,Laura“
komu yfir 40 farþegar, þar á meðal
prentvélastjóri Em. B. H. Cortes til
Gutenbergs-prentsmiðju.
Slys hörmulegt vildi til á Þriðju-
daginn hér. Barn Hjörl. Þórðarsonar
snikkara og konu hans, 1 Ló árs gam-
alt, datt út um loftsglugga og dó af.
Trúlofun. CJngfreyja Etizabeth.
Halldórsdóttir (bókbindara Þórðar-
sonar) og Þórarinn (Þorsteinsson)
Egilsson verzl.m. — Kristín Lárus-
dóttir ungfr. og Bogi Þórðars. kaupm.
-j- Guðríður Brynjólfsdóttir í Engey,
ung efnismær, vel gefin og veí látin, aml-
xjl L LIR viðurkenna, að engin verzlun hefir staðið verzl-
uninni „GODTHAAB" jafnfætis í því að bæta verðlag og vöru-
gæði í þeim vörutegundum, er hún hofir verzlað með, enda
hefir engin verzlun jafn ung, hlotið eins mikla hylli fólks og
hún. Nú sér verzl. sér fært að verða við ítrekuðum tilmælum
margra viðskiftavina sinna að fjölga vörutegundum, og hefir
hún i vetur látið stækka og prýða búð sína og hefir nú bætt .
við þessum nýju vörutegundum:
ÁlnaYÖru, — prjónlesi, — glerYarningi, — smærri
járnYÖrum, — niöursoðnuin ávöxtuin, — matYæluni og
m. m. fleira, sem oflangt yrði upp að telja.
Allar vörurnar eru mjög vandaðar oð verðlagið ið alþekta
lága Godthaabs-verð. Miklar birgðir eru þegar komnar og
mikið á leiðinni og mun verzl. reyna að hafa ávalt nægar
birgðir af þessum vörutegundum, svo ekki verði þrot þótt eftir-
spurnin verði afarmikil, sem hún telur víst að verði, því Reyk-
víkingar kunna að meta að fá jafn vandaðar vörur fyrir jafn-
lágt verð eins og nú er á hoðstólum í verzl. „GodiliaahJ4